Dagblaðið - 21.08.1976, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 21.08.1976, Blaðsíða 2
DACBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1976. ÞAÐ FARA FLEIRI f FÝLU EN LITLU BÖRNIN — samanber þó sem róða mjólkursamsðlunni Háaloftið 1 mörg ár hefur það verið eiti af þrætueplunum íslensku, hvar maður mætti kaupa mjólk (>>> hvar ekki. í Reykjavik var þetta pex um það hvort maður ætti að fá að kaupa hana í stór- versluninni eða mjólkur- búðinni við hliðina, en úti á landi skilst manni að það hafi aðallega verið deilt um hvort það ættu fleiri að fá að selja mjólk en kaupfélagið. En þetta hefur ekki verið auðsótt mál. Samsalan í Reykja- vík hefur komið sér upp hús- næði, meira að segja í verslunarmiðstöðvum sem hafa alla aðstöðu til að selja mjólk, og væri svo sem ekkert athuga- vert við ef þessar búðir bera sig vel og ef þær væru opnar til jafns við hinar búðirnar. Ilitt var kannski verra, þegar kaup- endum var meinað að kaupa mjólk á sama stað og þeir þurftu að gera önnur innkaup sín af því það var mjólkurbúð einhvers staðar í hverfinu. Rök samsölunnar fyrir því að láta ekki kaupmenn fá að selja mjólk voru löngum aðallega þau, að þá myndu þeir sölsa undir sig alla mjólkursölu og úr því yrði þess ekki langt að bíða að þeir heimtuðu snöggtum hærri álagningu og þannig yrðu þessar vörur langtum dýrari fyrir viðskiptavinina, rétt eins og ekki þyrfti fyrir góóa álagn- ingu til að standa undir hús- næði mjólkurbúða og starfsliði. Nú hafa málin skipast svo, að alþingi fór að skipa sér af þessu og samþ.vkkti lög sem mér skilst að segi svo fyrir. að þeim sem fái til þess tilskilin vottoró skuli vera heimilt að selja mjólk. Það þýðir, að fjölmargir kaupmenn sem hingað til hafa orðið að láta sér nægja að selja djús og gos geta nú farið að selja mjólk, rjóma og skyr líka, gott ef ekki þetta sull sem kallað er jógúrt þótt það minni ekkert á þá jógúrt sem maður fær i Balkanlöndunum. En hvað um það, maður hefði þá haldið að höggvið hefði veriðá Gordíons- hnútinn og nú yrði buðum, svo vel mjólkursamsölunnar sem kaupmanna, fjölgað eða fækkað eftir lögmáli framboðs og eftir- spurnar. En ekki var því að heilsa. Samsalan hefur látið þau boð út ganga, að úr því hún fái ekki að hafa einkasölu eftir sem áður og fullan skömmtunarrétt á framleiðslu sinni ætli hún að loka hverri einustu mjólkur- búðarholu og ber því við að það sé of dýrt að vera með blandað sölukerfi — sem þó hefur við- gengist i vaxandi mæli hin siðari ár. Og nú er það sem manni tekur að förlast skilning- urinn. Nú má allt i einu af- henda kaupmönnum alla söl- una, nú þurfa þeir ekkert aðhald lengur. Máttug eru lög alþingis. Ekkert tillit er tekið til elsta borgarhlutans í Reykjavík þar sem engar stórverslanir eru né eru líklegar til að verða, þótt slöku kaupmaður og bakari selji þar ntjólk i sinni búð og hafi gert unt skeið. þrátt fyrir .mjólkurbúðir sem finna má á stangli. Þegar forsvarsmenn samsölunnar eru spurðir hvern- ig eigi að sjá fólki i þessari byggð fyrir mjólk, er svarið á þá lund að þarna séu mest gam- almenni som litla mjólk kaupi. Drottinn minn, sá mórall! Fyrir nú utan það, að þetta er ekki sannleikanum samkvæmt. Ég er tíður gestur í gamla borgar- hlutanum i Reykjavík og því fer fjarri að þar búi tómir gaml- ingjar og geldfólk. Þar eru börn ekki síður en annars staðar. Og hvaða endemis kenning er það, að aðeins börn þurfi á mjólk og mjólkurvörum að halda? Fyrir svona hugsunarhátt mega for- ráðamenn mjólkursamsölunnar skammast sín, fyrir að láta hann uppskátt ættu þeir að segja af sér því það sýnir að þeir eru ekki starfi sínu vaxnir. Enn mætti nefna það, að þótt gamla fólkið notaði ekki mikla mjólk væri þó ærin smán að senda það út í nýju hverfin eftir henni. Það er ekki svo tindilfætt að geta hlaupið það né svo fjáð að eiga fyrir leigu- bílum þangað, enda yrði mjólkin æði dýr með þeim hætti. Nei, því miður, ákvörðun mjólkursamsölunnar um að loka öllum mjólkurbúðum, hvort sem þeirra er þörf eða eigi. sýnir svo ekki verður um v.illst að þar ráða menn sem kunna ekki að tapa. Það hefur alltaf þótt ljóður á ráði allra keppenda. hvort heldur er í kaupmennsku. spilum eða öðrum iþróttum. Þeir hafa reiðst yfir því að geta ekki lengur skammtað að eigin geðþótta hverjir fá að selja miólk og hvar, og ekki sist hafa þeir reiðst almenningi. sem barist hefttr fyrir fr.jálsum og eðlilegum viðskiptaháttum á þessu sviði. Þeir hafa hugsað sem svo: Það er ekki nema rétt að helvítin fái þá ærlega smjör- þefinn af því sem þau hafa verið að heimta, þau um það, þetta er mátulegt á þau. Mér er spurn: Eru þessir menn að hugsa um hag þeirra, sem þeir eru sölu- og dreifingaraðilar fyrir, bændurna? Eru þeir að hugsa um þá, sem þeir eru þjónustu- aðilar fyrir, neytendurna? Hvorugt. Þvermóðska dreif- ingaraðilans lilýtur að vera báðum til tjóns. Hún gerir ekk- ert gagn, en er kannski ofurlít- ill plástur á sárið sem kom við að beygja sig. Þeir segja, að það sé ekki hægt að selja mjólk bæði í kaupmannabúðum og mjólkur- búðum. Samt hefur það verið gert nú í nokkuð mörg ár og enginn hefur ambrað. Þeir segja, að mjólkurbúðirnar beri sig ágætlega. Hvers vegna á þá að leggja þær allar niður, líka þá staði þar sem önnur mjólkursala verður tæplega f.vrir hendi? ,,Megi sú hönd visna, sem snertir þennan stað," sagði ágætur maður af þunga þegar hann var að tala um skerðingu Arnarhóls i útvarpið fyrir nokkrum árum. Ekki bið ég nokkrum manni bölbæna. en ég vildi mega segja eins og haft var eftir einum biskupnum okkar. og beina þeim orðum til forráðamanna mjðlkursamsöl- unnar: „Til þess gaf guð okkur skynsemina að við gætum skipt um skoðun." Fleiri fengu súra kókómjólk merkta 25. október Ein fékk sex súrar af sex keyptum Húsmóðir i Breiðholti krifar: Eg get nú ekki orða bundizt lengur eftir að hafa lesið í DB 11. ágúst sl. hversu kæruleysis- lega Oddur Magnússon for- stjóri Mjólkursamsölunnar talar um súru kókómjólkina og segir að þar sem þetta sé mjög sjaldgæft þá hafi konan sem bar fram kvörtunina verið sér- lega óheppin að Ienda á 3 súrum fernum af 10. Nú langar mig að segja mína sögu. Eg keypti 6 stk. af 'A 1 kókómjólk fyrir verzlunar- mannahelgina, merktar 25. október. Við tókum þetta með okkur í útilegu og ég get ekki lýst þeim viðbjóði og von- brigðum sem við urðum fyrir er við opnuðum þessa mjólkur- vöru, því allar 6 fernurnar voru súrar. Við urðum að keyra langa leið til að ná í aðra mjólk því við vorum með smábarn sem þurfti nauðsynlega að fá þetta. Á þríðjudeginum eftir verzlunarmannahelgina fór ég með þetta gums í mjólkur- búðina og skilaði því. Eg fékk aðrar í staðinn sem merktar voru sama dag og hinar en þessi vara reyndist í lagi. Afgreiðslu- stúlkan sagðist ekki hafa tök á að koma skemmdu vörunni á rannsóknarstofu MS, og bað mig því að hringja og segja þeim frá þessu. Jú, jú, ég hringdi og bað um Odd Magnússon. Ég sagði honum erindi mitt en svar hans var á þessa leið: „Nú og hvað með það, fékkstu ekki mjólkina endurgreidda?" Jú, ég kvað það rétt vera en hélt þeim þætti e.t.v. betra að vita af þessu svo þetta kæmi ekki oftar fyrir. „Þetta getur nú alltaf komið fyrir við áfyllingu, en það má þekkja þær fernur því þær eru útbólgnar. Annars gerist þetta ekki nema með 1 fernu af 1000 að meðtaltali," sagði hann. Mér fannst það undarlegt og sagði honum að ég hefði fengið 6 fernur skemmdar á einu bretti og voru þær ekkert útbólgnar, heldur var lögurinn aðeins þykkari í þeim. Þá kom dálítið hik á forstjórann en svo kom stóra svarið: „Kókómjólkinni er allri pakkað inn á Sélfossi." Þetta var greinilega lokasvar sem átti að leiða mig í allan sannleikann þó að ég fengi nú reyndar lítið út úr því. En ég þakkaði fyrir mig og kvaddi. Dagin eftir sagði afgreiðslu- stúlkan í mjólkurbúðinni mér að fleiri hefðu komið með gallaða mjólk eftir helgina, er merkt hefði verið 25. október. Ég veit ekki hvort ástæða er til að kalla inn alla þessa lögun, en mér finnst ástæða til að taka kvartanir alvarlega og rann- saka orsakirnar fyrir þessum mistökum, en ekki skella fram svona fáránlegu svari. Þetta er ný vara sem er þægileg til sins brúks og væri leiðinlegt ef hún missti markaðinn fyrir handvömm. ÞHIPJI PAGLH i Víð eigum rétt ó meðferð rétt ein íslenzkir loggoezlumenn oft ómjúkir í viðskiptum við almenning siðan sleppt. Kon* i Borgarnesl hringdi: Mig laogar að koma hér ð iramf*n nokkrum velviljuðum athugasemdum vl(J löggæzlumenn 4 Islandi. Máli minu til stuðnings vil éc nefna eitt dæmi um viðskipti ölvaðs manns við lögregluna Þessi maður skrapp fyhr skömmu á sveitab.il og lenti Par i einhvcrjum orðaskiptum uð logregluþjón sem sat Inni i h!, 'ln,u.m Ekkl veit ég hvað Þeim fór a milli en sjónar- vottar segja að allt hafi virzt vera með eðiilegum hætti Allt l einu skrúfar lögregluþjónninn UPP ruðuna og eins og eðlilegt verður að teljast. kippir maðurinn að sér hendinni um t;'rtK En 'ið Petta snögga \ lonragð hrotnar rúðan I bllnum. Skiptir það engum MekiT,'r ÍJÖI<J', lrt«ri-«lu'na'ina Aðferðir sumra íöggæzl't „ * “r 111 handsamar minna helzt i sögur fr4 Hrn a bak'afm^^M "" ‘ ícld' crtl' Hitlersárunun ':Cn d ,,lk df,ur •stl,an er hann á ekkert skylt við löéreelnhm.nJ rnum 'nn 1 Iafnrí‘<' bræðralag. - n ó ur hn °* cnKU skcyM á að emkenna ve árninkhv|hhn.n “n ,osa l^r*'»'«tj6marh*tti. arnin. þvl þau ollu honum Farið varleea l siarf. ™Uurm S,M f hal"’ 08 Í*,1S ortl >kk,r Am staðfesur meiðslin á höndum og auk þess skurð á vör hans sem að sögn leknisins hefði átt að sauma strax um nóttma en var orðið of seint. Hann f*r ávcrkavottorð hjá l*knmum. Hann hefur enn ekki hlotið fullan bata á höndum. Fyrr má nú vera! Sök sér að láta manninn borga sekt fyrir brot á rúðunni. en að koma af stað svona illindum og ve.ta drukknum manm slika meðferð er alveg út I hött D*m. þessa V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.