Dagblaðið - 21.08.1976, Side 3
LAU<;.\HI)AC;UR 21. AGUST 19?6.
VEITIÐ OKKUR
Raddir
lesenda
SOMU ÞJONUSTU
ein 13 ára kvartar undan viðmóti afgreiðslufólks
B.ósa Björg, 13 ára, hringdi:
Mig langar að kvarta yfir
þeirri hræðilega lélegu
þjónustu sem unglingar fá í
verzlunum og öðrum fyrir-
tækjum sem veita opinbera
þjónustu.
Um daginn skrapp ég ásamt
vinkonu minni í tízkuverzlun
til að kaupa buxur. Ein af-
greiðslustúlka var í búðinni er
við komum inn og sat hún og
talaði í símann. Við biðum
dágóða stund eftir að hún hætti
að tala og sneri sér að því að
afgreiða okkur, en hún spurði
bara hvað við vildum og benti
síðan eitthvað út í loftið og
sagði. Þarna er nóg af buxum:
Við gátum ómögulega skilið
livað hún vara að fara og
ákváðum að bíða enn eftir að
hún legði tólið á. En það var
árangurslaust. Eftir tíu
mínútna bið gáfumst við upp og
gengum út.
Sama sagan hefur endur-
tekið sig í mörgum verzlunum.
Afgreiðslufólkið veitir okkur
bókstaflega enga athygli kvað
þá nokkra þjónustu. Eg veit það
eru margir krakkar sem hafa
það fyrir sið að ráfa í verzlanir
án þess að kaupa neitt, en við
erum líka nokkur sem komum
til að kaupa og eigum rétt á
sömu þjónustu og aðrir.
Mjólkin súrnar ekki strax
sé hún geymd í kœli
Eiísabet Arnoddsdóttir
Vestmannaeyjum hringdi:
1 mánudagsblaðinu sagði Jón
Svavarsson sínar farir ekki
sléttar varðandi mjólkurkaup.
Þar sagði hann að mjólkin
súrnaði óeðlilega fljótt. Ég vil
bara benda á að ég kaupi alla
þá mjólk, sem ég nota yfir
vikuna, á föstudögum. Síðasta
mjólkin er síðan drukkin næsta
föstudag á eftir. Og ég hef ekki
orðið vör við að hún súrnaði við
þetta langa gevmslu. £g gæti
þess að sjálfsögðu að kæla
mjólkina og á bágt með að trúa
því að mjólkin sem Jón keypti
hefði farið- svona hefði hann
farið rétt með hana.
Mjólk súrnar að sjálfsögðu sé
hún látin standa utan kælis í
langan tíma. Og sama má segja
um mjólk á pela smábarna.
Hún súrnar yfir nóttina við
stofuhita.
Ég vil aðeins brýna fyrir
fólki að fara með vöruna
samkvæmt þeim fyrirmælum
sem gefin eru um varðveizlu
hennar ef það vill koma í veg
fyrir skemmdir.
Bretar!! Nú er tœk’rfœrið!!
Björn hringdi:
Um það leyti sem fréttir
berast frá Englandi og víðar að
úr Evrópu um gífurlega þurrka
sem allt ætla að drepa segir
Landhelgisgæzlan frá því að
meðal rekíssins sem nú lóni
norð-vestur af landinu sé stór
borgarísjaki sem jafnvel rísi
meira en 100 m upp úr sjó.
Nú er vitað að aðeins einn
níundi hluti borgarísjaka
stendur upp úr sjónum, svo
gríðarlega hlýtur þetta að vera
mikill jaki og mikið vatnsmagn
í honum!
Er ekki rétt að benda
Bretanum á að nú sé tækifæri!
Þeir mega svo sannarlega hirða
jakann af íslandsmiðum og þá
ættu þeir að geta notað dráttar-
bátana sína í friðsamlegri
tilgangi en fram til þessa hér á
Islandsmiðum. Síðan geta
þeir dregið jakann til Englands
og brætt hann þar.
Bretar! Einn borgarísjaki,
gjörið þið svo vel!!
OKUMENN! SIUDUD AD BÆTIU UMFERDAR-
ÖRYGd OG lÁUDSnUA UÓSIN!
J. skrifar:
Nú er að koma sá tími ársins
sem ökuljós bifreiða verða
mjög nauðsynleg því dimmviðri
og slæm ökuskilyrði verða
algengari þegar nær dregur
hausti.
En nú kemur til kasta
ökumanna sjálfra og
lögreglunnar, því stór hluti bíla
sem er f umferðinni eru með
vanstillt og biluð ljós,en eftirl.
ágúst á að vera búið að stilla
Ijósin. Nú þarf lögreglan að
herða mjög eftirlit með ljósa-
búnaði en ökumennirnir
sjálfir geta auðveldað það verk
með því að yfirfara ljósin og
láta stilla þau. Þannig stuðla
þeir að stórbættu umferðar-
öryggi.
Var vitni að atburðinum
LOGREGLAN KOMIALLA
STAÐIVEL FRAM
„Edrú“ vitni hringdi:
Mig langar að koma með
athugasemd við frásögn sem
birtist í „Raddir lesenda"
þriðjudaginn 17. ágúst. Er þar
lýst meðferð löggæzlumanna á
drukknum manni og kvartað
sáran.
Eg var staddur við lögreglu-
bílinn er fyrrnefndur atburður
átti sér stað, var meira að segja
ódrukkinn.
Sá ég hvar umræddur
maður kom slagrandi að lög-
reglubílnum, þreif í öxlina á
lögreglumanninum gegnum
opna bilrúðuna og sagði: „Eg
skal segja þér það, að þið
skuluð aldrei ná af mér bíl-
prófinu." Tilefni þessa var að
hann hafði stuttu áður verið
tekinn fyrir ölvun við akstur og
beið dóms.
Lögreglumaðurinn nennti
ekki að standa í neinu þrasi við
ölvaðan mann og skrúfaði því
upp rúðuna. Þá umsnerist hinn
alveg og setti hnefann í
gegnum rúðuna en tók síðan til
fótanna. Þá hlupu á eftir
honum nokkrir lögreglumenn
og tóku hann, færðu hann í
járnum að bílnum en hann
brást illur við og er ekki að
furða þó á honum sæi eftir
þann hamagang.
Að hlaupa með svona sógur í
blöð vegna þess að ættingjar
vilja ekki trúa hinu sanna upp
á manninn, er alveg út í hött.
Ég er nú enginn engill heldur
og hef oft haft ýmiss konar
samskipti við lögregluna en
þeir hafa aldrei sýnt mér annað
en kurteisi og góðan vilja. Það
má vel vera að margir lögreglu-
menn eigi skilið ávirðingar
vegna framkomu sinnar í starfi,
en ég held að lögreglan í
Borgarnesi verði þar einna
síðust á skrá.
Raddir
I esenda
Hríngið ísíma
83322
milfí kl.
13 og 15
3
Hvernig gœludýr vildirðu
helzt eiga?
Elísabet Pétursdóttir
tækniteiknari: Ég mundi helzt
vilja eiga hund. Það er erfitt að
hafa þá í Reykjavík en ég mundi
leggja það á mig.
Elín Birna Guðmundsdóttir í-
þróttakennari: Eg kysi helzt
hund, en ég mundi ekki hafa
hann hér í Reykjavík. Þeir eru
svo ófrjálsir í þéttbýli.
Snorri Ægisson nemi: Hund, ég
mundi taka hann fram yfir önnur
dýr. Það þarf auðvitað að hafa
mikið fyrir því að hafa hann, en
ég mundi leggja það á mig.
Kristín Kristjánsdóttir nemi:
Kött auðvitað. Ég á kött og hef
mjög gaman af honum.
Garðar Karlsson: Kött, ég er
hrifinn af þeim. Ég átti kött hér í
gamla daga en það er erfiðara að
hafa þá núna.
Gunnar Högnason nemi: Eg held
að ég veldi hund. Að vísu mundi
ég ekki hafa hann í bænum
vegna þess að þeir eru allt of
innilokaðir hér.