Dagblaðið - 21.08.1976, Page 14

Dagblaðið - 21.08.1976, Page 14
14 DACBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. ÁGUST 1976. Um ber og garðávexti: BEZTA GEYMSLUAÐFERÐIN ER FRYSTING ,,Það er bara orðin stór spurning hvort sultuneyzla Is- lendinga sé ekki orðin alltof mikil," sagði Sigriður Haralds- dóttir hjá Leiðbeiningastöð húsmæðra að Hallveigarstöðum er við spurðum hana um sultu- gerð og geymslu á berjum og garðávöxtum. ,,Bezta geymsluaðferðin á berjum og öðrum garðávöxtum er frysting. Með þvi móti þarf miklu minna sykurmagn en þegar er búin til sulta eftir hefðbundinni aðferð. Þaó er ábyggilega hvergi i Rœtt við Sigríði Haraldsdóttur heiminum notuð sulta með kjöti nema á íslandi nema þá með einstökum og ákveðnum réttum eins og t.d. ribshlaup með rjúpum. Það er miklu betra að nota hrásalat í staðinn fyrir sultu." — Hvernig er bezt að tilreiða berin fyrir frystinguna? ,,Berin eru annað hvort hökk- uð eða hrærð og síðan fryst í hæfilegum skömmtum í litlum plastpokum. Ég hef þó grun um að plastpokarnir sem hér eru á markaðinum séu ekki nógu sterkir og betra sé að nota tvo MEÐFERÐ EINSTAKRA GRÆNMETISTEGUNDA Frysting á grænmeti er vafalaust langbezta geymsluaðferðin. Þess verður að gæta að grænmetið sé nýupptekið þegar á að frysta það og einnig að kæla grænmetið um leið og suðu lýkur. Allt grænmeti. sem á að frysta, verður fyrst að sjóða og hér er tafla yfir meðferð einstakra grænmetistegunda. Við fengum góðfúslegt lcyfi til að birta þessa töflú sem er í Hússtjórnar- bókinni, sem Sigríður Haraldsdóttir og Valgerður Hannesdóttir þýddu og endursömdu úr dönsku. Meðferð eimtakra grænnietistegunda. Grænmeti: Hæfnl: Hreinsun: Suðutími fyrir frystlngu: Suðutimi fyrir framreiðslu: Blaölaukur góö skolaður, skor- inn I blta, 3 cm 3—i minútur 6—7 mínútur Blómkól góð, sé það þétt skolað og skipt í hríslur, ef vlll hellt 6—8 min. hrislur 2—3 min. heilt 5—10 min. í hrislum 4—5 mínútur Grænkál góö riíiö af blaö- leggjunum, skolað 2 mln. og síðan hakkað um 8—10 min. Gúrkur góö skolaðar, nlðursneiddar frystar hráar þíddar i sterk- um edikslegi Hvítkál góð. Frystið tll neyzlu ó vorin, þegar erfltt er að fá nýtt kói skorið 1 þunnar ræmur 2—4 mín., fer eftir hve smátt káliö er skorið 6—10 min. Rauðkál. soðið góö matreitt á venju- legan h&tt og síðan fryst Spergilkál göö fjarlæglö gróf blöö, kljúfiö svera leggl 2 minútur 6—8 minútur Spinat góð skolaö, fjarlæglö grófa leggl 2 minútur: saxað, ef vill 3 minútur Stelnselja 1 Sólselja }• Kerfill J góð þvegið, saxað, látið hæfilega skammta i smá- poka. látið beint út I súpu eða aöra tilbúna rétti Tómatar léleg. séu þeir frystir heilir þvolö Þá, merjið. og látiö í krukk- ur eöa þess hátt- ar; fylllö ekkt Ilátln alveg látiö belnt út í ýmsa rétti Ætisvepplr ekki sérlega góð hrelnsaöir, skolaölr, skorn- ir i sneiöar 10—15 mínútur í 1 dl vatns; 10 g salt og 2 g sitrónu- sýra i hvert kg, frystir i leginum lótnir beint I sósu eða rúpu eða soðnir með leginum. Sigríður Haraldsdóttir hefur veitt Leiðbeiningastöð húsmæðra forstöðu síðan 1965. UB-mynd Bjarnleifur. FRIMERKJASAFNARAR Sérstimpill Reykjavíkurskák- mótsins á sérútgefnum umslögum með merki mótsins og einnig með teiknuóum myndum af íslenzku keppendunum eftir Halldór Pétursson. Uinslögin verða til sölu á keppnis- staó í Hagaskóla, opnaó veróur kl. 2 þann 24. ágúst, upplag mjög takmarkað. Pöntunum veitt móttaka í síma 83540 REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ kl. 10—2 sunnudaginn 22. ágúst._ Taflfélag Reykjavíkur poka. Siðan þarf ytri umbúðir og til þess er gott að nota vax- bornar öskjur sem eru til á markaðinum. Raþarbara er sjálfsagt að frysta, þá eru leggirnir þyegnir og skornir í bita og frystir í plastpokum og þá hæfilegt magn í einn graut i hverjum poka. Sykurmagnið sem nota skal í berin er eftirfarandi: t hvert kg af bláberjum þarf 200 gr sykur. í hvert kg af sólberjum þarf 500 gr sykur. t hvert kg af ribsberjum þarf 700 gr sykur. Ur krækiberjum á skilyrðis- laust að búa til saft og þarf 375—500 gr af sykri í hvern lítra af saft. Gott er að hræra 5 gr af vínsýru út í hvern lítra af saft.“ — Er nauðsynlegt að bæta einhverju út í rétti sem búnir eru til úr rabarbara eins og víða er gert erlendis? „Erlendis er kalki bætt út í rabarbararétti vegna þess að í rabarbara er oxalsýra sem bindur kalk í fæðunni þannig að það nýtist ekki. Ég held að þetta sé ekki nauðsynlegt hér á íandi þvi Islendingar drekka svo mikla mjólk." — Hvernig á að frysta græn- meti? „Þegar frysta á grænmeti verður það að vera nýupptekið iil þess að sem beztur árangur náist. Einnig verður að gæta þess að snöggkæla grænmetið undir köldu rennandi vatni eða jafnvel í ísvatni um leið og suðu lýkur. Ef þetta er ekki gert samvizkusamlega verður græn- metið seigt. Grænkál er mjög gott að frysta því það er mjög auðugt af vítamínum og steinefnum. Annars má það gjarnan standa úti í garðinum langt fram á vetur eftir að komið er frost. Einnig er hentugt að eiga hakkaða steinselju í litlum krukkum í frystikistunni. Agúrkur má frysta niður- sneiddar í mátulegum skömmt- um í plastpokum. Þær eru siðan látnar þiðna í sterkum ediks- legi. Einstaka grænmetistegundir er ekki hægt að frysta og má þar nefna til salatblöð og radís- ur.“ — Er eitthvað sérstakt sem verður að gæta að þegar frysting stendur fyrir dyrum? „Það verður að gæta þess að hafa aukinn straum á frystikist- unni á meðan verið er að frysta matvælin en síðan má minnka strauminn þegar allt er orðið frosið. Bezt er að eiga mæli til þess að mæla hve mikið frost er í kistunni. Það er fljótt að koma fram í auknu rafmagnsverði ef frystikistan er höfð á of miklum straumi." sagði Sigríð- ur Haraldsdóttir. A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.