Dagblaðið - 21.08.1976, Síða 15
I)ACBI.AÐH). LAUGARDAdl'R 21. AC.UST 1976.
15
Það er mikil búbót að eiga fr.vst grænmeti til vetrarins í
fr.vstikistunni.
DB-mynd Árni Páll.
Agúrkur er ein af fáum
grænmetistegundum sem hægt
er að frysta hráar. Þá eru
gúrkurnar skornar niður í
sneiðar og síðan þíddar í
sterkum edikslegi.
DB-mynd B.P
MARGAR FYRIRSPURNIR BERAST
LEIÐBEININGASTÖÐ HÚSMÆDRA
Leiðbeiningastöð hús-
mæðra. sem rekin er af
Kvenfélagasambandi Is-
lands, var stofnsett árið
1963. Fyrstu tvö árin veitti
Sigríður Kristjánsdóttir
stöðinni forstöðu en síðan
1965 hefur það verið Sigríð-
ur Haraldsdóttir.
Aðsóknin hefur farið
sívaxandi á undanförnum
árum og eru helztu
spurningarnar í sambandi
við innkaup og þá mikið í
sambandi við heimilisvélar,
þvottamerkingar, matvæli
og rétt neytandans.
„Ef um eitthvert ákveðiö
vandamál er að ræða vísum
við til Neytendasam-
takanna," sagói Sigríður í
viðtali við DB. „Við erum
ekki rétti aðilinn fyrir
neytendakvartanir.
Það hefur komið fram að
fólk stendur í þeirri trú að
við rekum einhvers konar
athugun og prófun á
heimilistækjum, en það er
mesti misskilningur. Það er
miklu meira mál en svo að
við getum farið út í slíkt.
Eg kom einu sinni inn í
slíka athugunarstöö úti í
Svíþjóð. Þar unnu þrjár
konur og einn karlmaður að
því aö rannsaka 12 þvotta-
vélategundir og var reiknað
með að það tæki um það bil
hálft ár!
Við höfum hins vegar þýtt
upplýsingar frá Statens
Husholdningsrad í Dan-
mörku um hin ýmsu heim-
ilistæki. Þessar upplýsingar
hafa verið birtar í tímariti
okkar, Húsfreyjunni, og
einnig sérprentaðar," sagði
Sigríður Haraldsdóttir.
*
VILTU KOMA HEIM MEÐ MÉR?
Kunningi minn einn kom til mín um
daginn og sagðist hafa kvænst fyrir
nokkru til fjár. Jæja, sagði ég. og hvað á
hún mikið af peningum? Hún á enga
peninga, sagði hann. Aftur á móti á hún
tvö hundruð kindur.
Nú er úti veður vott
og víðast himinn grár.
Ekki fær hann Grímur gott
að gifta sig til fjár.
Kona nokkur sagði mér fyrir skömmu
að hún væri að hugsa um að skilja við
manninn sinn vegna þess að hann færi á
bak við sig. Hann þættist alltaf vera að
fara út að skemmta sér þegar hann væri
að vinna yfirvinnu.
Ég skellti mér á skemmtistað um daginn
Skemmtunina er fæst þar, vel ég
þekki.
Eg verð ánægður í alla staði
ef mér þarna bara Ieiðist ekki.
Ég hef ekki skoðun á neinu nema
bílnum mínum, enda er það skylda. Um
verslunarmannahelgina ætlaði ég út á
land. Ég var stöðvaður í Ártúns-
brekkunni af lögregluþjóni. Hann gekk
ábúðarmikill í fasi að bílnum og spurði,
hvort hann mætti prufa hann lítils-
háttar. Ég neitaði því, og sagði eins og
satt var, að mamma hefði bannað mér að
lána bílinn. Láttu ekki svona, sagði
lögregluþjónninn. Þú hegðar þér eins og
smákrakki. Víst gjöri ég ei, sagði ég, um
leið og ég tók út úr mér snuðið. En nú
var þolinmæði lögregluþjónsins á
þrotum og hann sagði, nú er þolinmæði
mín á þrotum. Ef þú hættir ekki þessum
barnaskap tek ég bílinn úr umferð. Allt í
lagi, sagði ég, en þá klaga ég þig líka
V
fyrir mömmu. Þar með þraut þolinmæði
lögregluþjónsins, og nú er hún móðir
mín blessuð bíllaus.
Lögreglan er löngum
lítið gefin
f.vrir það að þrasa.
Hún gengur um göturnar
galvösk að vanda
með hendur i vasa.
Hún gengur gjarnan
í geitarhús
að leita ullar.
Hún ei tekur til fanga
fangageymslurnar.
Þótt þær séu fullar.
Ég hef heyrt fjöldann allan af fólki
tala illa um fasteignasala. Mér finnst
slíkt ekki réttmætt. Að mínu áliti vinna
þeir fyrir kaupinu sínu. Ég seldi íbúðina
mína um daginn. Hún hafði verið mánuð
í sölu og ég borgaði fasteignasalanum
ekki nema mánaóarlaun fyrir að selja
hana. Þ.e.a.s. mánaðarlaun fasteigna-
sala. Það fannst mér ekki mikið.
Ég lifi af laununum mínum.
Ég segi það alveg satt.
Ég borga aðcins þriggja mánaða laun i
skatt.
Ég lifi af laununum minum.
IVIér gengur það yfirleitt glatt.
Ég borga mánaðarlaun í söluskatt.
Ég lifi af laununum minum.
t óhófið þó er mér att.
Ég borga vikukaup í fastcignaskatt.
Ég lifi af launum minum.
Þið ætlið slíkt ef til vill raup.
Ég borga af útvarpi, sjónvarpi. bilnum.
o. fl. mánaðarkaup.
Ég lifi af laununum mínum.
Ég kvarta sko ekki baun.
Ég greiði í vexti af lánum tveggja
mánaða laun.
Ég lifi af laununum minum.
Það lifa sumir á víxlasnatti.
En ég er snillingur í því að stela undan
skatti.
Vinur minn, sá níski, kom til mín um
daginn. Áttu ekki afmæli í dag, spurði
hann. Jú, sagði ég. Hver gaf þér það?
spurði hann. Heyrðu, sagði hann svo,
áttu ritvél? Já, sagði ég. Ansans vand-
ræði, sagði hann, ég ætlaði einmitt að
gefa þér ritvél í afmælisgjöf. En þar sent
þú átt ritvél, væri þér þá ekki sama þótt
ég gæfi þér bara skóreimar.
Ljóðið hér á eftir er tileinkað öllu því
óhamingjusama fólki sem hefur orðið
fyrir því að verða ástfangið.
Ég fann þig eina nótt
á förnum vegi,
cr máninn skein
og allt var kyrrt og hljótt.
Vor ást var heit
ég bölvaði næsta degi
sem kemur alltaf, alltaf
alltof fljótt.
En þetta þekkja þeir
sem hafa elskað
og einnig hitt
þeir hafa líka reynt,
að kvöldið eftir áðurnefndum degi
kepiur alltaf, alltaf
alltof seint.
Þættinum hefur að vanda borist mörg
bréf. Ég vil í fyrsta lagi biðja bréfritara
Ljóð á
laugardegi
Ljóð á
laugardegi
að kaupa sér Orðabók Menningarsjóðs. I
öðru lagi vil ég vinsamlegast benda þeim
á að taka sér aldrei framar penna í
hönd.
Að lokum vil ég þakka velunnurum
þáttarins, þeim Jóni og Guðmundi, fvrir
hlý orð í hans garð.
Þeim sem ætla út um helgina vil ég
benda á það, að til þess að ná sér í
kvenmann núna er öruggasta ráðið að
ganga að stúlkunni og segja: Viltu koma
heim með mér, maður minn?
Ben. Ax
/