Dagblaðið - 27.08.1976, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 197<5.
N
NY STUÐMANNAPLATA KYNNT
— Tívolí skal hún heita
Stuðmenn kynntu nýju plötuna sína, Tívolí, fyrir blaðamönnum og Myndina af Stuðmönnum tók Árni Páll á fundinum. Með hljómsveit-
fleiri gestum í hófi á miðvikudagskvöldið. Útgefandi plötunnar er inni eru á myndinni blaðamenn og gestir hófsins. Stuðmönnum fannst
Steinar hf. það sanngjarnt að blaðamenn fengju einu sinni mynd af sér í blöðin og
Að loknum ræðuhöldum Stuðmanns var platan leikin. Um hana er gerðu það að skilyrði f.vrir myndatöku að allir gestir hófsins yrðu
fátl að segja eftir að hafa heyrt hana aðeins tvisvar, en í fljótu bragði festir á filmu.
virðist hún Spilverkslegri en fyrri plata hijómsveitarinnar, Sumar á — ÁT/ DB-mynd Arni Páli.
Sýrlandi.
Trommuleikari Cabarets
hœttulega slasaður
— Ari Jónsson kemur í hans stað til bráðabirgða
Trommuleikari hljómsveitar-
innar Cabarets, Ingólfur
Sigurðsson, varð fyrir því
hörmulega slysi aðfaranótt
síðasta sunnudags að lenda
fyrir bifreið fyrir utan húsið
heima hjá sér. Hann slasaðist
lífshættulega og hefur legið á
gjörgæzludeild síðan og verður
þar væntanlega út vikuna.
Ingólfur er þó úr allri lífshættu
núna en verður sennilega frá
vinnu sinni í langan tíma.
Þetta slys er mjög bagalegt
f.vrir Cabaret. Til stóð að hefja
plötuupptöku á næstunni, en sú
áætlun verður aö bíða. Þá
standa fyrir d.vrum tónleikar í
Laugardalshöll þar sem Cabar-
et átti einmitt að skemmta.
Hljómsveitin kemur þó fram
með varamanni, Ara Jónssyni,
sem er lesendum eflaust að
góðu kunnur sem trommu-
ieikari og söngvari.
Hljómsveitin æfir nú af full-
um krafti með Ara og vonast
meðlimir hennar til þess að allt
verði orðið klappað og klárt
fyrir næsta miðvikudag. — Ari
Jónsson hefur ekkert leikið
opinberlega síðan í vor er
liljómsveitin Sheriff lagði upp
laupana. Hann er þó gamal-
reyndur í poppinu og vanur að
gripa inn í lítt undirbúinn svo
að lítil hætta er á að áheyrend-
ur í Laugardalshöllinni þurfi
að verða óánægðir með leik
hans og Cabarets. — ÁT —
INGÓLFUR SIGÚRÐSSON
ARI JÓNSSON
LÓNLÍ BLÚ BOIS AÐ VERÐA TILBÚNIR
Þá er tæp vika þangað til
merkishljómsveitin Lónll Blú
Bois kemur fram á dansleikjum
á Norðurlandi. í tilefni af því
buðu þeir félagar blaðamönn-
um á fund í vikunni til að
kynna dagskrána. Dansleikir
verða á eftirtöldum stöðum:
2. sept. Sjálfstæðishúsið
Akureyri.
3. sept. Félagsheimilið Húsa-
vík.
4. sept. Miðgarður i Skagafirði.
5. sept. Dalabúð, Búðardal.
7. sept. Tönabær.
9. sept. Sigtún.
10. sept. Stapi Keflavik.
11. sept. Aratunga.
Þá verður einnig dansleikur
12. september en ekki var enn
búið að ákveða honum stað er
fundurinn var haldinn.
Lónlí Blú Bois verða með
fritt föruneyti með sér um
landið. Alls verða um 20 manns
f hóp þeirra. Auk hljómsveitar-
innar, sem í eru sex manns, þar
á meðal Þórir Baldursson,
skemmta Halli, Laddi og Gísli
Rúnar. Tæknimenn verða fjór-
ir, Tómas Tómasson, bassa-
leikari Stuðmanna, verður
einnjg með í förinni að
ógleymdum Baldvini Jónssyni
sem sér um að allt gangi fyrir
sig eins og það á að vera.
Meðal annarra ferðalanga
verður Ómar Valdimarsson
blaðamaður Dagblaðsins. Hann
mun sjá lesendum blaðsins
fyrir sem nákvæmastri frásögn
af þessum merkasta viðburði
ársins i íslenzku popptónlist-
inni. — Lónli Blú Bois á ferð.
— ÁT —
„Rock Festival 76":
Siónvarpið
tekur upp
— Tony Cook
annast
hljóðstjórn
Samningaviðræður standa nú
yfir milli sjónvarpsins og
Óttars Haukssonar um að rokk-
hátíðin í Laugardalshöllinni á
miðvikudaginn verði tekin upp
til sýningar í sjónvarpinu. Ef
samningar nást, sem Óttar taldi
líklegt þegar poppsíðan hafði
tal af honum í vikunni, verða
allir hljómleikarnir festir á
myndband og síðan unnið úr i
einn þátt — eða jafnvel fleiri.
Þá hefur brezki hljóðupp-
tökumaðurinn Tony Cook tekið
að sér að annast hljóðstjórn á
þessum tónleikum og jafnframt
að hljóðrita þá. „Við notum þá
upptöku kannski til að gefa út á
plötu og/eða til gerðar útvarps-
þáttar," sagði Óttar popp-
siðunni. ,,Eg er hress með
aðfá' Tony í þetta, það
tryggir almennilegan hljóm-
burð.“
Miðasala á rokkhátíðina
hefur gengið vel að sögn Óttars
og er útlitið nokkuð bjart.
— ÓV.
Tony Cook: hljóðstjórn og upp-
taka.