Dagblaðið - 27.08.1976, Blaðsíða 24
Verðið byggl á
röngum forsendum
Sjómenn í Stykkishólmi álíta
aö Verðlagsnefnd sjávarút-
vegsins hafi setzt niður og
samið um nýtt verð á skelfiski á
alröngum forsendum, — 1.50
dollara fyrir kg til Bandaríkj-
anna í stað 1.80—2.00 dollara.
Þetta kemur fram í bréfi sem
sjómenn vestra hafa sent Sjó-
mannasambandinu, LlÚ og
fulltrúa Þjóðhagsstofnunar.
I Stykkishólmi hafa 160—170
manns atvinnu af skelinni, eða
allt að þriðjungur vinnufærs
fólks. Nú telja sjómenn úti-
lokað að stunda veiðarnar
áfram. „Launin okkar hafa
verið lækkuð um 25.17%,“
segja þeir. I bréfinu sem fyrr
greinirsegir: „Sjómenn benda á
að þetta er ein mesta launa-
lækkun sem framkvæmd hefur
verið á tslandi fyrr og síðar, og
forsendur fyrir skelveiðum sem
atvinnu eru brostnar með þess-
ari síðustu ákvörðun."
1 bréfinu kemur fram að á 7
manna báti hafi hásetahlutur
miðað við 35 krónur verið
147.200 krónur miðað við 80
tonna mánaðarafla, en 163.280
á báti með 6 mönnum.
Eftir að verðið lækkar í 26
krónur á kíló verða sambæri-
legar tölur 109.360 og 121.360.
Benda þeir á að með haustinu
fækki róðrum í að meðaltali 4 á
viku og hlutatölurnar verði
87.488 á bátum með sjö manna
áhöfn og 97.088 á bát sem
hefur 6 skipverja.
Telja sjómennirnir sig hafa
órækar sannanir fyrir því að
miðað hafi verið við of lágt
markaðsverð i Bandaríkjunum,
þegar samið var, fulltrúarnir
hafi haft rangar tölur einhvers
staðar frá til að miða við.
Sjómenn neituðu að róa sl.
þriðjudag, eða strax og kunn-
gert var um nýja verðið á skel-
— segja skelveíði-
menn í Stykkis-
hólmi, og telja
kauplœkkunina
25,17%
inni. Hafa þeir lýst yfir megnri
gremju sinni yfir því að ofan á
allt saman hefur verðið v.erið
látið gilda afturfyrirsig, eða til
12. ágúst.
Þá benda sjómennirnir á í
bréfi sínu að kvóti hafi verið
lækkaður úr 5 tonnum í 4 til 4,5
tonn á bát á dag vegna örðug-
leika á vinnslu í landi. Einnig
hefur orðið að binda stærð
skeljarinnar við 7 sentimetra
og stærri, en í verðlagsgrund-
vellinum er reiknað með 6
sentimetra hörpudiski. Hefur
kaupandinn sett það sem skil-
yrði að skelin nái þeirri stærð.
— JBP —
Það kom reyndar smá þurrviðriskafli í Reykjavík um miðjan dag í gær. Þá notuðu þessar tvær konur tækifærið og tylltu sér niður við
gamla vatnstankinn skammt frá Sjómannaskólanum. Grasið var nú samt hálfvott við rótina, svo að varla hafa konurnar setið þarna lengi.
—DB-mynd: Arni Páll.
Rignir greinilega ekki jaf nt — Sól og blíða fyrir austan
' t'M. r. og norðan — rigning
a ranglata og rettlata annors stoðor
Reykvíkingar og nágrannar
þeirra vöknuðu í morgun við
sunnan hvassviðri og rigningu.
Reyndar var regnið ekkert ný-
næmi, en þegar við bættist
hvassviðri var engu líkara en
haustið væri nú komið beint á
eftir rigningunum í sumar, sem
hafa gert Sunnlendingum lífið
leitt undanfarna mánuði.
Dagblaðið hafði samband við
nokkra fréttaritara í morgun til
að grennslast fyrir um
veðrið hjá þeim. Fyrstur varð
fyrir svörum Bárður Jensson í
Ólafsvík.
„Við erum hér í suðaustan
hvassviðri og rigningu,“ sagði
Bárður. Undanfarinn hálfan
mánuð hefur verið hér sunnan
og suðvestanátt með rigningu
af og til. Ég get eiginlega full-
yrt að við höfum ekki fengið
almennilegt veður í allt sumar
nema hálfan mánuð um mán-
aðamótin júni-júlí.“
„Hér er dj... rigning og rok,
eins og að undanförnu," sagði
Halldór Traustason á Flateyri,
er við spurðum hann um veðr-
ið. „Annars fengum við smá-
vegis af góðviðri í gær, svo að
það sá jafnvel til sólar öðru
hvoru. Að öðru leyti hefur
veðrið verið hálf nöturlegt
hérna á Vestfjörðunum."
„Blessaður vertu, ég hef ekki
þurft að skrúfa frá ofni í
húsinu mínu í allt sumar og við
látum útidyrnar standa opnar
til að hleypa sólinni og blíðunni
inn,“ sagði Bjarni Artúrsson á
Egilsstöðum. „Við Aust-
firðingar höfum haft mjög
gott veður í allt sumar, en
þrír síðustu dagar hafa þó
slegið allt út. Til dæmis komst
hitinn hérna í 24 stig þegar bezt
lét í gær. Ég held að þið ættuð
að flýva ykkur hingað austur í
góða veðrið heldur en að kúldr-
ast í rigningu og hvassviðri
þarna fyrir sunnan. Hér er nú
nokkuð margt aðkomumanna,
sem njóta lífsins í Suðurlanda-
blíðunni."
Samtalið við Bjarna Artúrs-
son varð ekki lengra. Það þýðir
ekkert að útskýra fyrir Norð-
lendingum og Austfirðingum,
hvaða sálaráþján íbúar hinna
landshlutanna hafa orðið að
búa við í sumar. Þeir vita varla
lengur hvað vont veður er. ÁT
fijólst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1976.
Hreyfing á
oliumálum
Ríkisstjórnin virðist nú
hugsa til hreyfings í olíumál-
um. Beiðnir fjölda erlendra
aðila um leyfi til olíuleitar hér
við land hafa árum saman
legið „í salti“.
„Það verður að vanda vel til
þeirra skilyrða, sem hinum er-
lendu aðilum verða sett“, sagði
Guxinar Thoroddsen iðnaðar-
ráðherra í viðtali við blaðið.
Um afstöðu ríkisstjórnar-
innar sagði ráíherrann, að
málið hefði verið talsvert rætt
og þeim umræðum væri ekki
lokið.
Fjallað væri um, hvernig að
þessum málum skyldi staðið.
—HH
Góð tíðindi úr
umferðinni:
HRAÐINN
HEFUR
MINNKAÐ
„Við radarmælingar sem við
höfum gert undanfarið hefur
komið í ljós að hraðinn hefur
ekki verið eins mikill nú og
undanfarin ár“, sagði Óskar
Ölafsson yfirlögregluþjónn f
samtali við DB. Það hafa færri
ökumenn gerzt brotlegir um of
hraðan akstur á götum Reykja-
víkur. Sektir eru á bilinu 3.000
til 8.000 krónur. Ef um víta-
vert gáleysi er að ræða þá er
beitt ökuleyfissviptingum.
„Við skulum vona, að þessi
þróun haldist og ökumenn fari
varlega nú þegar skólarnir eru
að byrja og skyggni versnar",.
sagði Óskar. _KP
Fódœma
póstsamgöngur
Bréf er 6 daga á leiðinni úr
Borgartúni niður í Austur-
stræti.ef marka má póststimpil
bréfs, sem Ragnari Aðalsteins-
syni barst í gær. Bréf þetta var
svar yfirsakadómara við
tveimur bréfum Ragnars. I
þessum bréfum hafðilögmaður-
inn óskað eftir skýrslum eða,
skýringum á frelsissviptingu
ljósmyndara og blaðamanns
DB. Bréf þetta hefur Halldór
Þorbjörnsson yfirsakadómari
póstlagt að morgni 20. ágúst en
það var föstudagurinn í
síðustu viku. Bréf þetta barst í
pósthólf Ragnars laust fyrir
hádegi I gærmorgun.
Þetta þýðir í reynd að bréf
eru orðin mun lengur á leið
innanbæjar en milli landa. BÁ
Tveir graðhestar í
óskilum hjó
Árbœjarlögreglunni
Tveggja og þriggja vetra
mósóttir graðhestar eru nú í
vörzlu ÁrDæjarlögreglunnar.
Að sögn varðstjórans voru þeir
teknir í Gufunesi þar sem þeir
voru að þvælast innan um
verðlaunahesta Þorgeirs í
Gufunesi.
Hestarnir, sem eru ómark-
aðir, hafa verið i vörzlu lög-
reglunnar í tvo daga. Haldið
hefur verið uppi spurnum í
hestamannafélögum í Reykja-
vík og nágrenni en enginn
kannast við gripina.
— BÁ
Timman ef stur ó Reykja
n | W ■ r -• Friðrik vann
vikurskokmotmu ssr
Stal ytri fatnaði og
spókaði sig i
miðbœnum
Starfsmaður Þjóðleikhússins
kom i gær til lögreglunnar í
miðborginni. Kvartaði hann
yfir því, að ytri fatnaði hans
hefði verö stolið. Hafði
maðurinn hengt fötin upp og
farið i vinnugalla sinn. Þegar
hann síðan ætlaði að skipta um
aftur voru fötin horfin. Þegar
maðurinn var á leið að kæra
stuldinn þóttist hann þekkja
föt sín á manni er var á rölti í
miðbænum.
Með aðstoð lögreglunnar
tókst að ná manninum.
Reyndist það rétt vera hjá Þjóð-
leikhúsmanninum, að þetta
væru föt lians. Þegar þjófurinn
var færður úr fötunum, kom í
ljós, að hann var í öðrum al-
klæðnaði innan undir. — BÁ
Friðrik Ólafsson vann West-
erinnen í 3. umferð Reykja-
víkurskákmótsins í gær.
Timman vann Matera, jafntefli
varð hjá Najdorf og Vukcevich.
Timman hefur því tekið foryst-
una með allar skákir sinar
unnar eftir þrjár umferðir.
Úrslit skákanna í 3. umferð
voru annars þessi:
Gunnar — Haukur: 0—1
Ingi R. — Helgi: ‘A—‘A
Margeir — Tukmakov: 0—1
Vukcevich — Najdorf: 'A—'A
Westerinnen — Friðrik: 0—1
Keene — Guðmundyr: 'A—'A
Matera — Timman: 0—1
Antoshin — Björn: biðskák
Staðan eftir 3. umferðir:
1. Timman : 3 vinningar
2. Najdorf: 2'A vinningur
3. Tukmakov: 2 vinningar og
biðskák
4. Friðrik: 2 vinningar
5. —7. Helgi, Antoshin, Haukur:
l'A vinningur
8.—9. Guðmundur, Vukcevich:
1 vinningur og biðskák.
10.—12. Matera, Keene, Ingi R.:
'A vinningur og biðskák.
13.—15. Margeir, Gunnar,
Westerinnen: 'A vinningur
16. Björn: 3 biðskákir.
Biðskákir verða tefldar í dag,
en 4. umferðin verður tefld í
Hagaskóla á morgun, laugar-
dag, og hefst kl. 14.
—BS