Dagblaðið - 31.08.1976, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. — I«IÐJUDAGUR 31. ÁGUST 1976.
Skipti á góðum sumarbústað
y
fyrir Mercedes Benz
Höfum til siilu 30 ferm sumarbústað með góðum stækk-
unannöguleikum í Biskupstungum. Einn hektari lands
fvlgir. Heitt vatn á staðnum. Möguleiki á litlu gróður-
húsi, haðlaug o.fl. Tilvalinn heilsubótarstaður. Gert er
ráð fyrir sameiginlegri sundlaug með öðrum bústöðum í
skipulagi. Til greina kemur að taka góðan Mercedes Benz
250, árgerð 1971—73 eða sambærilegan bíl upp í
greiðslu.
Höfum einnig nýja sumarbústaði í Grímsnesi ásamt
eignarlóð. Góðir greiðsluskilmálar. Möguleiki að taka
hjólhýsi upp í o.fl.
Upplýsingar á Markaðstorginu, Einholti 8, sími 28590.
Ritari óskast
Starf ritara á skrifstofu landlæknis er
laust til umsóknar. Laun samkvæmt
launaflokki B8 í kjarasamningi starfs-
manna ríkisins. Leikni í vélritun
áskilin, stúdentsmenntun eða sam-
bærileg menntun æskileg. Umsóknir
óskast sendar skrifstofu landlæknis
fyrir 8. september næstkomandi.
Landlœknir.
w w
Utsala - - Utsala
Kvenblússur, verð frá kr. 1000.00
Kvenbuxur, verð frá kr. 1700.00
Kvenkjólar, verð frá kr. 5000.00
Kvenmussur, verð frá kr. 2500.00
Gerið góð kaup. ELÍZUBÚÐIN, Skipholti 5.
ÓNSKÓLI
SIGURSVEIN5 D. KRISTINSSONAR
| Hellusundi 7 . Reykjavík
Innritun og greiðsla námsgjalda fer
fram í skólanum, Hellusundi 7, þriðju-
daginn 31. ágúst, miðvikud. 1. sept. og
fimmtudag 2. sept. kl. 4—7 alla
dagana.Rúm er fyrir allmarga nem-
endur í forskólanám, í flestum öðrum
námsgreinum er skólinn nær fullset-
inn. Nemendur eru minntir á að þær
umsóknir, sem ekki hafa verið stað-
festar með greiðslu námsgjalda, falla
úr gildi þegar auglýstri innritun er
lokið. fl .
Skolastjori.
Mercury Montego
MX Brougham 74
Þessi stórglœsilegi bill til sölu.
Upplýsingar hjó Bílamarkaðinuhi,
Grettisgötu 12-18. Sími 25252.
Holland:
Þingmenn fylkja
sér um drottningu
Sú var tiðin að Júliana drottning og Bernharð maður hennar nutu bæði virðingar hollenzku
þjóðarinnar. Nú er hann lítiisvirtur en hún dáðari en nokkru sinni fyrr.
Hollenzka þingið hefur heitið
endurnýjuðum stuðningi við
Júlíönu drottningu þrátt fyrir
þá smán sem Bernharð prins
hefur valdið konungdæminu
með aðild sinni að Lockheed-
mútuhneykslinu.
Yfirgnæfandi meirihluti
hinna 150 fulltrúa á þinginu
hafnaði í gær kröfum vinstri
manna um málshöfðun á
hendur drottningarmanninum
og fylktu sér með drottningu,
sem hornsteini stjórnarfarsins í
landinu.
í umræðum á þinginu í gær
fordæmdu ræðumenn hlutdeild
prinsins í málinu og tengsl hans
við Lockheed, en allir vottuðu
drottningu virðingu sína fyrir
að setja hagsmuni lands og
þjóðar ofar sínum eigin.
Að umræðunum loknum
voru það aðeins tveir þingmenn
Sósíalíska friðarflokksins, sem
er andsnúinn konungdæminu,
sem kröfðust þess að Bernharð
prins yrði sóttur til saka. Aðrir
þingmenn neðri deildar þings-
ins, þeirra á meðal sjö komm-
únistar, sátu kyrrir í sætum sín-
um þegar tillaga þeirra tveggja
var borin upp. Hún var aldrei
tekin til umræðu.
Almenningsálitið í Hollandi
virðist á þá lund, að bezt sé nú
að láta málið lönd og leið, þrátt
fyrir niðurstöður rannsóknar-
skýrslunnar um viðskipti prins-
ins við Lockheed.
Þar kemur m.a. fram, að
Bernharð fékk 4—6 milljónir
dollara í „umboðslaun“ fyrir
fyrirhugaða sölu á þrettán
Lockheed P-3C njósnaflug-
vélum til hollenzka flotans.
Kínverjar skjóta á loft gervihnetti:
••
HVERSU OFLUGAR ELD-
FLAUGAR EIGA ÞEIR?
Kínverjar liafa skotið á loft
áttunda gervihnetti sínum, sem
að öllum líkindum verður
notaður til njósna, en ekki var
þess getið í heimildum um
geimskotið.
1 frétt á forsíðu Dagblaðs
Alþýðunnar í Peking er greint
frá því að gervihnettinum hafi
verið skotið á loft i gær og að
,,það væri enn einn óðurinn um
sigra Maos formanns í Kína
byltingarinnar'*.
Síðasta gervihnetti Ktnverja
var skotið á loft í desember í
fyrra og þá tókst vísinda-
mönnum þar í landi að ná til
baka hylki frá hnettinum sem
er sönnun þess að þeir hafi
yfirstigið alla þá erfiðleika sem
eru því samfara að ná
hlutunum til baka í gegnum
gufuhvolf jarðar.
Að sögn heimildarmanna var
þyng gervihnattarins haldið
leyndri sennilega til þess að
önnur ríki gætu ekki reiknað út
hversu öflugar eldflaugar
Kínverjar eiga nú.
Dularfullu dauðsföllin í Philadelphiu:
Eiturgas hefur fundizt í
nokkrum trefjasýnum
Vísindamenn, sem hafa að und-
anförnu rannsakað orsakir dauða
28 manns, sem sóttu ársþing fyrr-
verandi hermanna í Philadelphiu
í síðasta mánuði, hafa komizt að
þeirri niðurstööu, að banvænt
gas, svonefnt nickel carbonyl,
hafi verið í tref.jasýnum nokkurra
þeirra, sem létust á þinginu. Heil-
brigðisyfirvöld í Philadelphiu1
staðfestu þetta og sögðu jafn-
framt að tveir aðrir hópar vis-
indamanna, sem starfa sjálfstætt
að rannsóknum dauðsfallanna,
hefðu komizt að sömu niðurstöðu.
Dagblaðið The \'ew York Dail.v
News hafði það eftir dr. William
Sunderman, eiturcfnafræðingi
við Connecticulháskólann, að
eiturmagnið í trefjunum hefði
verið nógu nnkið til að valda
dauða. Rannsóknarnefnd farsótta
i Atlantaf.vlki hefur tekið undir
orð dr. Sundermans og sagt að
meira eiturmagn hafi fundizt í
trefjasýnunum en nokkurn tíma
hefði verið búizt við. ,,En það er
of snemmt að draga nokkrar
ályktanir af þessari uppgötvun."
er haft eftir nefndinni.
Ahrif niekeleitursins eru
svipuð þeint. sem komu fram hjá
fólkinu, sem lézt á ráðstefnunni.
Helztu einkennin eru höfuð-
verkur, ógleði, sárindi í brjósti og
hósti, — ekki ósvipað lungna-
bólgu. Ekki var talið að hiti fylgi
inntöku nickels, en fólkið, sem
lézt, fékk einmitt háan hita.
Nickel carbonyl er bragðlaust,
lyktarlaust og litlaust, en eigi að
síður mjög eitrað. Það er aðallega
notað við framleiðslu plasts og
fata úr gerviefnum. Þá er þetta
efni í nokkrum efnunt, sem notuð
eru í prentiðnaðinum.