Dagblaðið - 31.08.1976, Síða 11
DACHLAÐIÐ. — ÞRIÐJÚDAGUR 31. AGUST 1976.
II
- ' ' '
íslenzkar hofgœrur
í Ameríku
Bréf fró henni
Ameríku:
Þórir S. Gröndal
Eftir því sem árin líða heyrir
maður um fleiri hjónabönd,
sem bresta eða slitna á miðri
lífsleiðinni. Sérfræðinga
greinir á um orsakirnar fyrir
vaxandi haldleysi hjónabands-
ins. Sumir þeirra segja, að þar
sé að kenna auknu rótleysi
fólksins, eigingirni þess, tillits-
leysi við börn og ættingja, og
svona mætti lengi telja. Ekki
hefi ég neinar sérstakar kenn-
ingar fram að færa í þessum
málum, nema hvað ég held, að
eiginmenn og konur fari að
hugsa um að skilja við hvert
annað, þegar þau hætta að
skilja hvert annað.
Kona ein að nafni Abigail
Van Buren ritar daglegan dálk
i blöð hérna í henni Ameríku.
Dálkinn kallar hún ,,Dear
Abby“, en hún gefur fólki ráð í
alls kyns vandræðum, sem að
steðja í lífinu. Furðulegustu
hlutir koma í ljós í bréfum
fólksins til ,,Dear Abby“. Um
daginn skrifaði harmi lostin og
ringluð húsmóðir. Hún sagðist
hafa verið gift í rúman aldar-
fjórðung og ættu þau hjón tvö
uppkomin, efnileg börn, stúlku
og pilt. Bæði börnin hefðu
fundið sér maka á sama árinu
og gift sig um svipað leyti. Nú
hefði það gerzt, að makar barn-
anna, þ.e. tengdadóttirin og
tengdasonurinn hefðu orðið
ástfangin hvort í öðru, og væru
nú bæði hjónaböndin í voðan-
um.
Halda mætti, að hér hefði
mælir ógæfunnar verið orðinn
fullur, en svo var þó ekki.
Vesalings bréfritarinn
brýndi mann sinn og nuddaði í
honum og vildi, að hann færi á
fund móður tengdasonarins til
að freista þess að biðja hana að
tala um fyrir syni sínum. Lét
manngreyið loks undan og fór
á fund konunnar, sem sjálf var
fráskilin fyrir nokkrum árum.
Skipti nú engum togum, að
hann sjálfur varð yfir sig ást-
fanginn af konu þessari!! Sagði
bréfritari, að hann væri nú
búinn að biðja um skilnað.
Abby átti fá svör við þessum
voveiflega vanda.
Hjónaskilnaður er alltaf
reiðarslag fyrir allt vanalegt
fólk. En til eru þeir, sem giftast
og skilja eins auðveldlega
og við hin skiptum um sokka og
skó. Þar eru auðvitað frægastir
Hollywood-leikarar og annað
listafólk, svo og sumir auð-
menn. Fátækir hafa skiljanlega
ekki efni á að vera með neina
kræsni í kvennamálum, nema
rétt á meðan þeir eru ungir. Þá
er ekki farið að bera eins mikið
á þvj, að þeir eigi ekki til hnífs
og skeiðar og gaffals.
Ég þekki einn marg-giftan
auðmann.. Hann var eigandi
heildverzlunar í Flórída og var
góður viðskiptavinur hjá
okkur. Hann var eitt af dæmun-
um, sem hérlendir vilja benda á
til marks um gnægð tækifær-
anna í Ameríku: Hann hafði
ekki átt bót fyrir rassinn á sér
fyrir 15 árum og verið vörubíl-
stjóri að atvinnu. Nú var hann
milljónari, ekki nema tæplega
fertugur að aldri.
Eitt haustið, þegar ég hafði
ákveðið að farga gömlu vetrar-
fötunum minum og fá mér ný,
tók vinurinn í Flórída einmitt
ákvörðun um að kasta konu
númer 3 á haugana og fá sér
nýja. Ég blandaðist í málið
vegna þess, að hann bað mig að
útvega 50 hvítar lambsgærur
frá tslandi. Þar sem við viljum
allt fyrir viðskiptavininn gera,
tók ég beiðni hans með skiln-
ingi, en bað hann að útskýra
nánar.
Hann sagði þá, að hann vildi
lappa svolítið upp á svefnher-
bergið í tilefni hjónabands
númer fjögur. Herbergið væri
um 20 fermetrar og væri hjóna-
rúmið, af stærstu gerð, fellt í
gólfið, þ.e. það væri eins og
gryfja í miðju herberginu.
Frægur hýbýlafræðingur væri
að hjálpa honum að vinna að
endurbótum á mannvirkjum
þessum. Yrði lagður parket
gangstígur meðfram veggjum
og inn á snyrti- og búnings-
klefana. Loftið yrði þakið með
reyklituðum speglum. Ætlunin
væri svo að láta sauma úr
skjannahvítum lambsgærum
eitt samfellt teppi eða gólf-
ábreiðu, sem þekja myndi allan
annan gólfflöt. Skorið yrði úr
fyrir „rúmteppinu“, og yrði það
fóðrað með rauðu silki!
Var ég skiljanlega mjög upp-
veðraður yfir því trausti, sem
þessi fyrrverandi vörubílstjóri
sýndi mér. Ég var líka dolfall-
inn yfir hugmyndaflugi hans og
hinu næma fegurðarskyni sem
hér hafði opinberazt. Einnig
fannst mér íslenzkum land-
búnaði, og reyndar þjóðinni,
vera sýnd virðing með því að
fara þess á leit, að íslenzkar
gærur yrðu staðsettar í musteri
þessu eður hofi.
Gærurnar voru útvegaðar og
fundinn feldskeri til að sauma
þær saman. Allt kostaði þetta
morð fjár, en vinurinn greiddi
með bros á vör, því enginn er
eins laus á aurinn eins og ást-
fanginn maður. Hann spurði
oft, hvort ekki væri öruggt mál,
að gærurnar væru silkimjúkar
viðkomu. Giftingin fór svo frarn
að því er ég frétti og rofnaði nú
sambandið við hinn nýgifta, og
talaði ég ekki við hann í rúmt
ár. Hugsaði ég stundum til
hans og spekúleraði í því, hvort
svona furðu-svefnherbergi
myndi auka mikið á lífs-
hamingjuna.
Svo hringdi hann um daginn
og spurði, hvort ég gæti út-
vegað svo sem fimm viðbótar
gærur. Hann sagðist þurfa að
láta bæta teppið fína, því hann
væri að fara að gifta sig í
fimmta sinni. Ekki veit ég,
hvort nokkurn lærdóm er hægt
að draga af þessu. Líklega end-
ast konur skammt, þegar þær
þurfa að sofa í eins konar jarð-
föllum. Vera má, að þótt auð-
velt sé að steypa sér í svona
koju á kvöldin, sé erfitt að fara
fram úr þeim á morgnana.
Þórir S. Gröndal
✓
Það er ekki ætlunin með
greinarkorni sem þessu að
leysa vandamál hins flókna
nútímaþjóðfélags, heldur að
kasta steini í vörðu þeirrar
viðleitni að gera það. Heilög
löngun til að bæta og betra
okkar breyzka samfélag hefir
næstum þvi logað á síðum
tveggja dagblaða höfuð-
borgarinnar á undangengnum
vikum. Fáir munu þeir
íslendingar í dag, sem ekki
vilja í hjarta sínu leggja sprek á
þann eld.
Þessi grein hefir þann til-
gang einan.
Orð eru til alls fyrst en það
fylgir ekki hugur máli nema í
verki sé.
Hver er réttarvitund
þjóðarinnar?
Ég hefi vart mætt þeim
manni, sem ber virðingu fyrir
réttarfari þjóðarinnar, og er
það með meiri ólíkindum en
skilið verði. Þetta vantraust á
stjórnarfarinu, þessi inngróna
fyrirlitning og þetta sinnuleysi
virðist vera að verða hluti af
þjóðarviljanum, grundvöllur
gildismatsins, staðreynd, sem
allir reikna með og ekki verður
umflúin.
Hráskinnsleikur hins spillta
stjórnarkerfis er lífið sjálft, og
takir þú ekki þátt í honum þá
ertu annað tveggja „úti“ eða
,,inni“. Réttlætið á nú for-
mælendur fáa.
Hvað er að vera úti
í „kuldanum11?
í hráskinnsleik íslenzkrar
þjóðfélagsbaráttu gilda óskráð
lög á sama hátt og gerist í utan-
garðshópum annarra þjóð-
félaga. Það gefur auga leið að
til þess að einhver geti verið
„úti í kuldanum" þurfa
einhverjir að vera „inni í hitan-
um.“ Það leiðir líka af líkum að
þarna myndast sjálfrátt eða
ósjálfrátt tveir andstöðuhópar.
Nú þarf það engan veginn að
vera svo að þeir. sem eru „úti"
séu brotlegir við liig og rétt
v
f . .........1 1
RÓTLEYSI0G
RÉTTARFAR
Vi
/
hins lögskráða samfélags,
heldur fullnægi þeir ekki skil-
yrðum þess hagsmunahóps sem
„inni“ er.
Lög hins sterka og grimma
eru oft betur haldin en hins
veika og- meinlausa. Þetta
lögmál þekkjum við úr ríki
dýranna.
Hagsmunahópurinn í „hlýju“
þjóðfélagsins, þ.e. þeir sem eru
„inni", er að öllum líkindum að
mestu leyti sá hluti þjóð-
félagsins. sem hefur að geyma
sterkustu einstaklingana. Gild-
ir sú regla. að minnsta kosti á
tímaskeiðum.
Þetta fólk ver hag sinn og
völd með oddi og egg. Lög þess
eru óskráð en virt. Á tslandi
minna þessir hópar á hið gamla
ættaþjóðfélag. sem styrkti völd
sín með blóðböndum, sem bezt
héldu.
Það þarf ekki glöggt auga til
að sjá lifandi dæmi þessa í ís-
lonzkri stjórnmálasögu i dag.
„í'ti or sá, som okki fellur
inní eða þjónar hagsmunahópi
eða hópum íslenzkrar valda-
klíku.
Hvað er réttarríki
í augum hins
almenna borgara?
Því er til að svara, að það er
ekki túlkun löglærðra manna á
köldum lagabókstaf eða um-
deildum kenningum þeirra um
það hvernig eigi nú eftir allt að
túlka lögin. Réttarriki er.sam-
kvæmt því, sem ég hefi lært af
,,fólki“. það að eitt skuli yfir
alla ganga. háa og lága.
Til þessa eru reyndar lög
landsins og til þessa er boðun
kristinnar trúar sömuleiðis
dómstólar og lögregla.
En þegar við blasa brestir
alls þessa, veikist trúin á þjóð-
félagsformið, á stjórnvöld
landsins. Fótunum or kippt
undan því inikilva'gasta sem til
Kjallarinn
Brynleifur H.
Steingrimsson
or f.vrir þogninn, en það or það.
að hann eigi sinn rétt til iífs og
lands og sá réttur só honum
vorndaður.
Atferlið og
réttarfarið
Kynslóðir koma og fara.
Arfur einnar kynslóðar á að
'verða eign annarrar. Svo hefir
verið um ómunatíð og svo er
einnig í dag. En arfur
kynslóðar ersá andi, sem svifið
hefir yfir vötnunum meðan
hún var í mótun. Einn mikil-
vægasti þáttur þessa anda,
þessara áhrifa eldri kyn-
slóðarinnar, er réttarvitundin.
Það fær því engum dulizt að
hinn ungi íslendingur ber oft
kala lil |>oss þjóðfólags som
hann er vaxinn í. Æskan
fyrirlítur falsið, spillinguna og
réttarfarið og atferli hennar
mótast af þessum hugmyndum,
af virðingarleysi en ekki
virðingu.
Þann loga, sem ég hefi séð
brenna á síðum tveggja
dagblaða höfuðborgarinnar um
að réttarfarið í landinu sé eins
og laus eldur í húsi, hefir orðið
til þess að ég ritaði þessar línur.
Það væri í lengra máli hægt að
gera grein fyrir þeirri vá, sem
hér er á ferðinni en verður ekki
gert að sinni.
Hvað er til róða?
Eins og sagt var í upphafi
þessarar greinar er al-
menningur að verða sinnulaus
um heilbrigt réttarfar.
Fjöldinn allur af boztu
mönnum þjóðarinnar eru
bundnir á klafa auvirðilogs
flokksvalds og því mýldir, þó að
margir þeirra séu onnþá
sjáandi.
Til forystunnar vorður því
ekki leitað og frá henni er lítils
að vænta.
Það er almenningur. sem
þarf að vakna til vitundar um
það, að það or hans að vornda
og varðveita röttarfarið í land-
inu. En lykill þoirrar vakningar
eru fjölmiðlar landsins. Hið
broiða og beina bak blaða-
mannsins. frjáls og loitandi
vilji. gotur gort þotla.
Brynloifur II. Stoingríniss.
hóraðshoknir. Solfossi.