Dagblaðið - 07.09.1976, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1976.
íslenzk iðnkynning:
Kona bankastjóri
Hugmyndabankans
„Hugmyndabankinn" er oitt
af fyrirtækjum Iðnaðardeildar
SÍS — fyrirtæki sem mikið
mun koma við sögu á nýbyrj-
uðu ári iðnkynningar. Þrátt
fyrir nafnið á fyrirtækið lítið
skylt við bankastarfsemi. Þessi
banki lánar ekki út (ekki
frekar en hinir), heldur safnar
hann hugmyndum, nýtir þær til
sköpunar fallegra hluta, aðal-
lega ,í fatnaði, og fatnaðurinn
breytist síðan í peninga, aðal-
lega dýrmætan erlendan gjald-
eyri. Icelook heitir vörumerki
bankans og fer víða og heldur
vel á lofti nafni íslenzk iðnaðar.
Hugmyndabankinn hefur
einn allra banka á íslandi kven-
bankastjóra. Það er Elísabet
Weisshappel, sem veitir þessari
deild innan Iðnaðardeildar SlS
forstöðu. Dagblaðsmenn heim-
sóttu þennan nýstárlega banka,
sem hefur aðalbækistöðvar á
Akureyri, nú á dögunum.
„Þetta hófst með handa-
vinnusamkeppni sem Iðnaðar-
deild SÍS efndi til í því skyni að
fá fram í dagsljósið hugmyndir
að framleiðslu alls kyns prjóna-
varnings og fleiru. Siðan hefur
starfsemin byggzt annars vegar
á kynningu og sölu alls kyns
fatnaðar auk þess sem rekið er
sérstakt hönnunarverkstæði til
samræmingar og sköpunar
verkefna fyrir prjóna- og
saumastofur viðs vegar um
landið." sagði Elísabet Weiss-
happel.
Hugmyndabankinn seldi í
fyrra íslenzkan varning fyrir
um 45 milljónir króna og í ár er
stefnt að því að salan verði um
100 milljónir króna.
I upphafi var prjóna-
varningur alls konar aðalsölu-
varan. Nú er sala prjónavara
um þriðjungur af sölu
Hugmyndabankans entilbúinn
fatnaður tveir þriðju hlutar.
Mest er selt til Norðurlanda,
Þýzkalands og annarra hluta
Evrópu og til Bandaríkjanna.
Af prjónafatnaði er svonefndur
Tunic-fatnaður, cape og dragtir
langvinsælastar.
„Hjá Hugmyndabankanum
vinna nú alls 14 manns,“ sagði
Elísabet. „Sjö starfa á sauma-
stofu fyrirtækisins en hinir 7
að hönnun, við lagerinn og að
framkvæmdastjórn. Prjóna- og
saumastofur víðs vegar um
landið starfa fyrir Hugmynda-
bankann og vinna eftir hug-
myndum, sem þar skapast."
Stór liður í starfi Hugmynda-
bankans er sölustarfsemi.
Elísabet er á förum í sína
þriðju söluferð á þessu ári.
Fyrst liggur leiðin á Idego-
sýninguna í Diisseldorf og
síðan á Scandinavian Fashion
Week í Kaupmannahöfn. Eftir
það mun Elísabet halda til Sví-
þjóðar til viðræðna við umboðs-
menn fyrirtækisins, en fyrir-
tækið hefur marga víðs vegar
um Erópu og fer meginhluti
sölunnar um hendur þeirra. Á
þessum sýningum hefur
Hugmyndabankinn sérstaka
bása, þar sem getur að líta
sýnishorn af öllum framleiðslu-
og söluvörum firmans, en þær
eru að mestu gerðar eftir eigin
hugmyndum, þó einstaka hlutir
séu frá öðrum keyptir. En eins
og áður segir verður megin-
hluti þess varnings sem
Hugmyndabankinn sér um
framleiðslu á að dýrmætum
gjaldeyri.
—ASt.
Elisabet Weisshappel veitir „Hugmyndabankanum“ forstöðu. Hún
kynnir íslenzkar vörur á erlendum vörusýningum og ætlar að selja
fyrir 100 milljónir króna á þessu ári. DB-mynd Arni Páll.
1
[ mH' w ■
En korlmaður sér um að sníða og skapa úlfitið
I stóru herbergi, eða mjög
litlum sal, er hönnunarverk-
stæði Hugmyndabanka
Iðnaðardeildar SÍS á Akureyri.
Það þarf að fara um mjóan
stiga til að komast upp á loftið
þar sem hugmyndirnar verða
til að þeim fatnaði, sem ber
hróður islenzks iðnaðar öðru
fremur víðsvegar um heiminn.
Þegar við sjáum erlenda ferða-
menn gramsa í slám, kápum,
drögtum, jökkum, peysum og
ýmsu fleira í „útlendinga-
verzlununum" þá vita fæstir
við hvaða aðstæður er unnið
þegar verið er að skapa þessar
vinsælustu vörur íslenzks
iðnaðar.
Þorsteinn Gunnarsson er
hönnuður verkstæðisins. Við
hlið sér hefur hann tvær konur,
sem báðar eru kjólaklæðskerar
að mennt. Þorsteinn er sjálfur
klæðskeri, hélt síðan til náms í
fatateikningu í Danmörku og
vann í Höfn hjá Mogens
Eriksen og í ýmsum verk-
smiðjum.
Þorsteinn Gunnarsson hönnuður og ein flíkin sem hann hefiir
I teiknað.
Þau vinna að frumsmíð íslenzka fatnaðarins, sem er svo vinsæll meðal ferðamanna og víða erlendis.
Þau eru Halia Guðmundsdóttir, Jóna Aðalbjörnsdóttir og Þorsteinn Gunnarsson. Þau eru öll
klæðskerar og Þorsteinn auk þess lærður fatateiknari. DB-MYND Árni Páll.
„Það er mun meira efnisúr-
valið til framdleiðslu á drögtum
og slíku héldur en þegar að
ullarfatnaðinum kemur," sagði
Þorsteinn er Dagblaðsmenn
litu inn til hans á dögunum.
„En hér hönnum við allt sem
okkur getur dottið í hug úr
ofnum íslenzkum efnum og
prjóni. Hér sköpum við verk-
efni fyrir sauma og prjónastof-
ur á Húsavík, Egilsstöðum,
Hofsósi, Sauðárkróki, Skaga-
strönd, Hvammstanga, Vík i
Mýrdal auk verkefna fyrir
okkar eigin saumastofu," sagði
Þorsteinn.
Auk Þorsteins vinna þær
Jóna Aðalbjörnsdóttir og Halla
Guðmundsdóttir að frumfram-
leiðslunni. Hún er í því fólgin,
að þær sauma fyrsta módel flík-
urinnar. Þegar því er lokið þarf
að framleiða sýnishorn fyrir
sölumennina, auk þess sem lag-
færing fer fram á sniðum og
settar eru upp stærðir. Sam-
hæfing er algjör á öllum fram-
leiðslvörum hvað númer
snertir. Síðan hefst fram-
leiðslan ýmist á einum eða
fleiri stöðum á landinu.
Mokka-kápurnar sem fram-
leiddar hafa verið hjá fyrir-
tækjum SÍS fram til þessa hafa
aðallega verið hannaðar af
Ingólfi Ölafssyni. Nú er hönn-
unarverkstæði Hugmynda-
bankans hins vegar að hefja
samvinnu við Ingólf um hönn-
■ unina. Hann er fagmaður í öllu
er að skinnum lýtur, en nú mun
hönnunarverkstæðið hefja
sköpun hugmynda um nýtt útlit
hinna frægu Mokka-kápa.
Hönnunarverkstæðið verður
héðan í frá miðstöð allrar
fatnaðarframleiðslu allra verk-
smiðja SIS og saumastofa og
hyggja Þorsteinn hönnuður og
hans fólk gott til aukinna
umsvifa.
Þorsteinn Gunnarsson,
aðstoðarfólk hans í hönnuninni
og tugir eða hundruð manna
sem vinna að framleiðslunni á
Akureyri og út um allt land
hafa lyft merki íslenzks
iðnaðar. Verk þessa stóra hóps
eru vel sambærileg við störf
erlendra hópa sem vinna á
sama sviði.
— ASt.