Dagblaðið - 30.09.1976, Blaðsíða 3
DACBLAÐIÐ FIMMTUDAGUK 30. SEPTEMBER 1976.
3
ERU BINDINDISMENN ORÐNIR
UTANKERFISMENN?
Sigriður Guðmundsdóttir
skrifar:
Eg get ekki lengur orða
bundizt vegna þeirrar vanvirðu
sem þeim sem ekki neyta
áfengis er sýnd. Verst er að
slíkt á sér stað á áberandi hátt í
veizlum hjá opinberum
stofnunum.
Ég hef orðið fyrir því hvað
eftir annað að mæta i veizlur
þar sem allt hefur verið yfir-
fljótandi af vini.
Frammistöðustúlkur hafa
svifið um á milli gesta með
Raddir
lesenda
bakka fulla af glösum, þar sem
menn gátu valið milli hinna
ýmsu víntegunda. Iðulega er
enginn gosdrykkur sjáanlegur
á þessum bökkum og hvað gerir
þá bindindismaðurinn?
Ef hann er ekki mjög þyrstur
tekur hann vínglas og reynir
svo að tæma glasið með
einhverju móti. Frægt var er
einn bindindismaður skýrði frá
því að hann hefði alltaf hellt úr
glasi sínu í blómapotta.
Gamanið fer hins vegar aó
kárna ef bindindismaðurinn er
þyrstur. Nú hann byrjar á að
svipast um hvort eins sé ástatt
fyrir einhverjum öðrum. Ekki
er líklegt að hann finni neinn
sálufélaga strax. Það er
nefnilega þannig að bindindis-
menn er sumir hverjir hálf-
feimnir við að láta í ljós hversu
„ófélagslegir" þeir séu.
Bindindismaðurinn okkar
fer þessu næst á stjá um sali þá
sem veizlan fer fram í. Hann
rekst á stofustúlku og biður
hana að útvega sér eitthvað að
drekka. Hún lofar öllu fögru,
en ekkert bólar á neinum vökva
sem ekki inniheldur áfengi.
Bindindismaðurinn fer þessu
næst fram í gang og tekur að
nálgast eldhúsið. Á sama tíma
ganga stofustúlkur á milli gesta
og skenkja peim í fögur vínglös
og allir eru orðnir mjög hressir
nema vesalings bindindis-
maðurinn, sem fær ekki sömu
þjónustu og aðrir.
Það hafa ekki allir lyst á
þessum guðaveigum.
Loks finnur bindindis-
maðurinn bakka á borði
frammi við dyr, þar standa
nokkur glös og gosflöskur.
Maðurinn okkar hraöar sér
heldur kátur til baka með feng
sinn.
Hann er ekki fyrr kominn
inn en nokkrir ávarpa hann.
„Hvar fékkstu þetta? Hvar
fékkstu þetta?“ Bindindis-
manninum okkar vinnst ekki
tóm til að drekka langþráð gos
sitt því hann verður að ferja þó
nokkurn hóp af fólki fram að
borðinu, þar sem það getur loks
fengið að drekka það sem það
þorði ekki að biðja um.
Áskorun til
veizluhaldara
Gleymið ekki bindindis-
mönnunum. Það verður hver og
einn að gera upp hug sinn um
það hvort hann vill neyta
áfengis, en opinberir aðilar
eiga að sjá sóma sinn í því að
neyða því ekki upp í nokkurn
mann. Eða er það kannski orðið
afskaplega ófínt að „vera ekki
með“ þegar áfengis er neytt?
Ef svo er þykir mér vera komið
mál til að bindindisfólk rísi
upp.
Hríngið í
síma
83322
mifíi kl.
13 og 15
HVAÐ REKUR Á EFTIR KRÖFLUVIRKJUN?
Einar Erlingsson skrifar:
„Hvað er það sem rekur svo
mjög á eftir framkvæmdum við
Kröfluvirkjun? spyrja margir.
Ekki þarf að leita lengi að for-
sendunum. Auðvitað eru ráða-
menn á þeim vettvangi að
leitast við að sýnast ekki minni
menn en kokkurinn, sem
fórnaði höndum og hrópaði:
Guð minn góður, skipið er að
sökkva og ég ekki búinn að
vaska upp. Spurningin sem
brennur þarna er hvort um
óvenjulega samvizkusemi er að
ræða eða rangt mat á kringum-
stæðum til framkvæmda.
Víst væri þetta verðugt verk-
efni fyrir sálfræðinga okkar að
fjalia um og fengist þá væntan-
lega niðurstaða hvort tilfellið
ætti að koma til meðferðar
orðunefndar eða sérfræðing-
anna inn við sundin."
Borunarframkvæmdir við Kröflu.
ÍSLENZKAR PLÖTUR HEYRAST EKKI
— Charlie kann ekki að meta annað en soul-músik
Páll Daníelsson Kópavogi skrif-
ar:
Það fór svo, sem mig hafði
lengi grunað, að blaðadeilur
yrðu vegna Charlies í Sesar. Ég
ætla að gerast svo grófur að
kasta mér út i þær með hæfi-
legum gusugangi. Ég vil taka
það strax fram að ég er alveg
laus við kynþáttafordóma, en
sumt fólk virðist halda að það
séu þeir sem valdi gagnrýni á
Charlie.
Charlie hefur verið mjög
umdeildur frá upphafi. Þeirri
staðreynd, að lagaval hans er
mjög einhæft, hefur verið
haldið mjög á lofti í umræðum
manna um hann. Fyrir minn
.;mekk er hér komið að kjarna
málsins. Einhæft iagaval.
Hin mikilvægasta regla
plötusnúðsins hlýtur að vera að
gera sem flestum gestum
staðarins til hæfis. Eða það
skyldi maður alla vega ætla.
Því miður hefur Charlie ekki
tileinkað sér þessa gullnu
reglu. Lagaval hans beinist
aðallega í eina átt: Soul-músík.
Soul-músík er upprunnin
meðal bandarískra svertingja
og er vinsæl mjög víða. Hér-
lendis hefur hún einnig náð
talsverðum vinsældum enda er
uppspretta þessarar tónlistar
nálægt þéttbýliskjarnanum.
Soul-músík hefur þó ekki
„slegið í gegn“. Langt frá því.
Er þá ekki hæpið, forráðamenn
Sesars. að ráða hingað erlendan
plötusnúð sem spilar nær
<€
Gestir í Sesar fá ekki að hiýða á
íslenzka hljómlistarmenn
fivtja tónlist sína, segir Páll
Daníelsson.
eingöngu þessa tegund tón-
listar? Er það ekki frumskílyrði
að plötusnúðurinn geri sem
flestum gestum staðarins til
hæfis?
Að undanförnu hafa komið
út geysimargar íslenzkar hljóm-
plötur. Fjöldi listamanna sendi
þar frá sér mjög góðar plötur
sem njóta mikilla vinsælda.
Þessar plötur heyrast aidrei í
Sesar. Ég veit að ég mæli fyrir
munn margra er ég skora á
forráðamenn Sesars að athuga
sinn gang og ráða til sín plötu-
snúð sem er leikandi og léttur.
Plötusnúð sem velur fjöl-
breytta músík sem hægt er að
dansa eftir. Plötusnúð sem
kynnir lögin á íslenzku og lætur
kannski brandara fljóta með
öðru hverju.
Að lokum: Jafnvel þótt veit-
ingahúsið Sesar fyllist oft á
laugardagskvöldum, er ekki
þar með sagt að plötusnúðurinn
Charlie njóti mikilla vinsælda.
Þvert á móti. Flestir þeir sem
ég hef persónulega rætt við eru
sammála um það að Charlie sé
„hundleiðinlegur". En ég vil
meina að hann sé lélegur plötu-
snúöur.
v--------Y
Spurning
dagsins
£ 4
Finnst þér að umferðarljós
eigi að loga ó nóttunni?
Kristján Helgason prentnemi:
Já, en það mætti t.d. hafa gul
blikkljós að minnsta kosti I miðri
viku, svo umferð gæti gengið
greiðar. Það er alveg óþarfi að
bíða á rauóu ljósi, þegar engin
umferð er.
Samúel Helgason sjómaður: Eg
á engan bll og hef ekki bílpróf og
þess vegnahefég enga skoðun á
þessu.
Jóhanna Bogadóttir blaða-
maður á Tímanum: Ég á nú engan
bíl og hef aldrei orðið fyrir óþæg-
indum eða töfum vegna
umferðarljósa.
Gísli Guðmundsson sjómaður:
Já, en það er alvegóþarfiaðstoppa
á rauðu þegar engin umferð er.
Það væri hægt að setja gul blikk-
andi ljós og hafa þau á í miðri
viku. Rauða ljósið á að loga um
helgar og þegar meiri umferð er
Olafur Waage, vinnur hjá Skelj-
ungi: Mér finnst alveg ástæðu-
laust að vera með rauð ljós um
miðja nótt, þegar engin umferó
er.
Sváfnir Hermannsson sendiil:
Mér finnst að það eigi að setja
upp gul blikkljós eins og í
mörgum löndunt. Það er óþarfi að
biða eftir grænu ljósi þegar engin
umferð er.