Dagblaðið - 30.09.1976, Page 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1976.
13
íþróttir
Iþróttir
Sþróttir
Sigur FH gegn
erkHjendunum
— FH sigraði Hauka 17-16 i úrslitaleik
Reykjanesmótsins
n Þjódverjinn varð fyrri til Gísli Tnrfasnn fvlgrlist spenntur með.
DB-mynd Bjarnleifur.
leinars fœvði
m jafnteffi!
f ó Laugardalsleikvanginum i gœrkvöldi 1-1
Þjóðverjanna — til að mynda átti
Olafur Júlíusson þrumuskot af
20 metra færi úr aukaspyrnú en
knötturinn small í samskeytum
þýzka marksins — Kargus átti þar
enga möguleika. Keflvíkingar
áttu einnig tvö ágæt skot en fram-
hjá og síðan á 73. mínútu kom
glæsimark Keflvíkinga eins og
áður hefur verið lýst. Jafntefli 1-1
— þrátt fyrir að Keflvíkingar hafi
verið slegnir út var frammistaða
þeirra íslenzkri knattspyrnu til
sóma. h. halls.
FH sigraði í Reykjanesmótinu
— sigraði erkifjendurna Hauka
17-16 í úrsiitaleik mótsins í gær-
kvöid. FH var vel að sigrinum
komið — liðið lék oft ágætan
handknattleik, einkum í fyrri
háifleik er það náði góðri forustu.
Voru FH-ingar þá gæðaflokk
betri en Haukar, sem ekki virtust
ná sér á strik.
Já, FH náði sannarlega góðri
forustu í fyrri hálfleik og var
engu líkara en Haukar væru stat-
istar í leiknum. Slíkir voru yfir-
burðir FH. FH komst í 4-1 —
síðan 6-2 og stóð ekki steinn yfir
steini hjá Haukum. Þeir virtust
ráðvilltir og íslandsmeistararnir
beinlinis gengu í gegnum vörn
nágranna sinna.
FH jók bilið jafnt og þétt —
þannig komust þeir í 9-4 fyrir
leikhlé. Því bjuggust áhorfendur
við að eftirleikurinn yrði FH auð-
veldur — ekki stóð steinn yfir
steini hjá Haukum.
Og í byrjun síðari hálfleiks
virtist stefna í öruggan sigur. FH
hélt áfram að auka muninn —
komst í 11-5 en þá fór vélin að
hiksta. Haukar gengu á lagið og
breyttu stöðunni í 10-13.
Þegar aðeins þrjár mínútur
voru til leiksloka tókst Haukum
að jafna 16-16 — já, vel af sér
vikið að breyta stöðunni úr 5-11 í
16-16.
En FH tókst að ná forustu aftur
þegar aðeins tvær mínútur voru
til leiksloka — og allt á suðu-
punkti. Haukar héldu knettinum
og reyndu að finna glufu í vörn
FH og þegar aðeins nokkrar
sekúndur voru til leiksloka
reyndi Sigurgeir markskot — en
framhjá og sigur FH staðreynd —
FH Reykjanesmeistari 1976.
Markhæstur FH-inga varð
Þórarinn Ragnarsson með 6 mörk.
Sæmundur Stefánsson skoraði 4,
Viðar Símonarson 3 og Geir Hall-
steinsson skoraði 2.
Þeir Sigurgeir Marteinsson og
Hörður Sigmarsson voru mark-
hæstir Haukanna — skoruðu 5
mörk hvor. Arnór Guðmundsson
skoraði 3 mörk.
Delluleikur
Víkings og KR
Víkingur tryggði sér þriðja
sætið í Reykjavíkurmótinu x
handknattleik er liðið sigraði KR
30-24. Leikur liðanna var ákaflega
lélegur — já, það var vart hægt að
kalla leikinn handknattleik. Liðin
virtust leika eftir einhverjum allt
öðrum reglum. Furðulegt að Vík-
ingur skuli geta sýnt jafn slakan
leik og liðið gerði í gærkvöld.
Liðið hefur á að skipta mörgum
ágætum handknattleiksmönnum
— en ekki var heil brú til í leik
liðsins. Virtist sem allir leik-
menn liðsins álitu sig sjálfkjörna
til að skora — samherji, hvað var
nú það? Dapurlegt.
Já, leikur Víkings og KR var
furðulegur — að ekki sé meira
sagt. Víkingur hafði yfir í leikhléi
14-10 — komst síðan í 17-10. Þá
hins vegar fór allt úr skorðum og
KR jafnaði 19-19.
KR komst síðan í 24-22 — en
Víkingur skoraði síðan 8 síðustu
mörk leiksins. Furðulegur leikur,
vitiaus leikur. Ólafur Einarsson
skoraði 9 mörk fyrir Víking,
Björgvin Björgvinsson 5 og Þor-
bergur Aðalsteinsson 4.
Ármann sigraði Fylki í
leiknum um 7. sætið 21-15. Pétur
Ingólfsson, Hörður Harðarson og
Vilberg Sigtryggson skoruðu 4
mörk hver fyrir Armann. Fyrir
Fylki skoruðu Einar Agústsson
og Gunnar Baldvinsson 5 mörk
hvor.
Skagamenn óheppnir að
bíða ósigur í Tyrídandi
— Trabzonspor sigraði ÍA 3-2 i Tyrklandi í gœrkvöldi og sigraði samanlagt 6-3
Akurnesingar sönnuðu í
gærkvöld í Tyrklandi að tap
þeirra hér heima fyrir tyrkneska
liðinu Trabzonspor var
ástæðuiaust — já, Akurnesingar
áttu aldrei að tapa hér heima
fyrir Trabzonspor. 1 gær-
kvöld iéku Skagamenn í Trabzon
og töpuðu að vísu —en 2-3 og
máttu Skagamenn teljast
óheppnir að hljóta ekki jafntefii í
Iciknum. Liðið átti fuiit eins
mikið í leiknum og betri mark-
tækifæri.
Lið Trabzonspor fékk
sannkallaða óskabyrjun er
Huseyin skoraði eftir aðeins 4
mínútur. En Skagamenn voru
ekki á því að gefast upp og sóttu
vel og eftir skemmtilega sóknar-
lotu jafnaði Karl Þorðarson fyrir
Skagamenn.
Það sem eftir var hálfleiksins
var jafnræði með liðunum.
Hvorugu liðinu tókst að ná frum-
kvæðinu. Staðan í leikhléi var því
1-1.
Kn rétt eins og í fyrri hálfleik
fxxngu Tyrkirnir góða byrjun í
hinum síðari. Huseyin var þá
aftur á ferðinni er hann skoraði
og kom það mark á 5. minútu.
En aftur voru Skagamenn ekki
af baki dottnir — Teiti Þórðar-
syni var brugðið innan vítateigs
og víti umsvifalaust dæmt. Teitur
skoraði sjálfur úr vítinu, 2-2.
Tyrkjunum tókst að knýja fram
sigur er Engin^skoraði af 25
metra færi — þrumuskot hans
hafnaði í þverslá og inn, gjörsam-
lega óverjandi, 3-2.
Hinir 15 þúsund áhorfendur
fögnuðu innilega og þrátt fyrir
þunga sókn Skagamanna þaó sem
eftir var tókst þeim ekki að knýja
fram mark. En nokkrum sinnum
skall hurð nærri hælum við mark
Tyrkjanna — þannig átti Teitur
Þúrðarson gott skot í þverslá frá
vítateig en ekki vildi knötturinn
inn. Þessi úrslit verða að teljast
góð — eftir það senx á undan
var gengið hjá Skagamönnum
Þeir voru óheppnir með þjálfara
og óeining kom upp. Hið slæma
tap hér á Laugardalsleik-
vanginum varð til þess að liðið
féll út — slæmt til þess að vita því
íslenzkir knattsp.vrnuunnendur
vita að miklu meira býr í liði
Skagamanna en þeir sýndu þá.
Fram tapoði
0-5 í Bratislavo
Fram mátti þola slæmt tap í
Bratislava í Tékkóslóvakíu í gær-
kvöld er liðið lék seinni leik sinn
við Slovan Bratislava. Fimm
sinnum máttu leikmenn Franx
hirða knöttinn úr netinu — og því
tapaði Fram samanlagt 0-8 i
báðunx leikjum liðsins við Slovan.
Ondrus — risinn í vörn Slo-
van, kom líðinu á sporið er
hann skoraði snemma í leiknum.
Dekarik bætti síðan við iiðru
marki og þrátt f.vrir þunga sókn
Tékkanna tókst þeim ekki að
bæta við fleiri mörkuni lyin leik-
hlé.
En nxörkin urðu hins vegar
þrjú í siðari liálf leik.Þeir Barton
og Gapkovie skoruðu tvívegis en
Kris.tinn Atlason varð fyrir því
óláni að senda knöttinn i eigið net
— framhjá Arna Sefánssyni. Því
ósigur 0-5 — einnig á Laugardals-
leikvangtnum 0-3. Fram er þvi úr
leik í UEFA -bikarkeppninni.
Ahorf.endur í Bratislava voru um
8 þúsund — greinilegt að Tékkar
liafa álitið verkefni Slovan auð-
velt eftir 3-0sigurinn i Reykjavik.
Iþróttir
Hafi Alí sigrað,
þó unnu Japanir
seinna striðið!
„Hafi Ali sigrað Norton þá
sigruðu Japanir í síðari heims-
styrjöldinni," skrifaði einn
fréttamanna eftir að Ali hafði
verið dæmdur sigur i keppni
sinni við Ken Norton um heims-
meistaratitilinn í hnefaieikum í
fyrrinótt. AIi var dæmdur sigur á
stigum og virtust menn ekki á eitt
sáttir við þann úrskurð dómara
þó flestir hafi verið sammáia um,
að Ali hafi sigrað. Þeirra á meðal
var Floyd Patterson fyrrum
heimsmeistari.
Norton hefur nú mótmælt
niðurstöðu dómaranna formlega
og hann sagði. „Eg er ekkert sár
út í Ali en ég átti sigurinn skiiið
— alls ekki síður en Ali.“
Norton hefur sagt að hann
muni draga sig í hlé frá hnefa-
ieikum fái hann ekki að keppa
aftur við Ali — það er að ieikur-
inn verði dæmdur til að ieikast
aftur.
En Ali hefur sagt að hann hafi
aðeins áhuga á einni keppni tii
viðbótar, gegn George Foreman
— síðan hætta.
í kæru sinni sagði Biron, fram-
kvæmdastjóri Norton — „Til þess
að sigra Ali þarf rothögg eða
algjöra yfirburði. Slíkt á ekki að
geta átt sér stað. Niðurstaða
dómaranna í ieik Ali og Norton
var tii skammar. Það var „svört
nótt' í sögu hnefaleika.
Fyrsti sigur
Leicester!
Leicester vann sinn fyrsta
sigur í ensku 1. deiidinni í ár er
liðið sigraði Stoke 1-0. Leicester
gerði jafntefii i fimm fyrstu
leikjum sínum — já sannkaliaðir
jafntefliskóngar ■ Leicester.
Liðið gerði 19 jafntefli á síðasta
keppnistímabili. Því hlýtur þessi
sigur Leicester að vera
kærkominn — en liðið hafði
tapað sínum sjötta leik 0-2 á
laugardag gegn Aston Villa.
Það fór einnig fram einn leikur
í 3. deild — Peterborough sigraði
Swindon 1-0. í áttaliða úrslitum
skozk-ensku keppninnar fóru
fram tveir leikir. í Lundúnum
Iéku Orient úr 2. deild á Englandi
og Aberdeen úr skozku „aðal-
deildinni". Orient sigraði 1-0 og
komst áfram samaniagt 2-0.
Patrick Thistle lék við Bolton í
Glasgwo og sigraði Partick 1-0.
Þetta nægði Glasgow liðinu því
jafntefii varð í Bolton 0-0.
Sunderland
kaupir tvo
leikmenn
Bob Stokoe framkvæmdastjóri
Sunderland gerði stórkaup í gær.
Lið hans — Sunderland er nú í
neðsta sæti 1. deiidar og greini-
legt að Stokoe ætlar þvi meira.
Hann keypti tvo leikmenn í gær.
Stokoe keypti hinn unga og skæða
sóknarmann Leicester Bob Lee á
200 þúsund pund.
Ekki lét Stokoe þar vxð sitja
heidur keypti hann einnig
markvörð. Hann ke.vpti Barr.v
Siddail frá Bolton á 80 þúsund
pund.
Sundcrland hefur einmitt átt í
erfiðleikum vcgna þess að Jim
Montgomery, hinn snjalli mark-
vörður liðsins hefur átt við
meiðsli að stríða og enginn hefur
verið til að fylla skarð lians. Kaup
Stokoe á Lee eru athyglisverð —
Þessi ungi leikmaður varð
markhæsti ieikmaður Leicester á
síðasta keppnistímabili —
skoraði 13 mörk. En það var fyrst
á síðasta keppnistímabili að Lee
náði að tryggja sæti sitt í liði
Leicester. Lee hefur átt við
ineiðsli að stríða það senx af er
þessu keppnistímabili.