Dagblaðið - 30.09.1976, Page 14
DACHLAÐIf). FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1976.
nf-
N
Synir Falldins hafa meiri óhuga ó uppskerunni en hvort faðir þeirra
verður forsœtisróðherra
Sl|órnmála-
menn eiga
að búa meðal
kjósendanna
— segir Solveig Falldin
Það var hoilmikið um að vera
heima hjá Fálldin fjölskyld-
unni. sem býr í Ramvik, sem er
í smábæjarsamfélagi er heitir
As. nálægt Hárnösand og Kram-
fors. Þetta annríki var ekki
vegna þess að kosningarnar
voru í nánd og heldur ekki
vegna þess að til greina gæti
komið að heimilisfaðirinn yrði
forsætisráðherra landsins. Nei,
það var verið að sinna
uppskerunni. Það þurfti að
þreskja kornið og koma upp-
skerunni í hús.
Húsmóðirin, Solveig Fálldin
er heilmikil bóndakona, þótt
hún líti kannski ekki beint út
sem slík. Hún er nýtízkuleg
bóndakona sem fylgist með
tímanum en jafnframt sér hún
um að gamlar hefðir séu í
heiðri hafðar.
Þarna í sveitinni hefur það
tíðkazt um aldaraðir að
húsmæðurnar bökuðu brauð til
vetrarins. nefnist það ,,,þunn-
ttrauð" og er eins konar
flatbrauð.
Sænskur blaðamaður kom í
heimsókn til Ramvik og hafði
Solveig þá rétt lokið við að baka
brauðið. Hún var klædd í
upplitaðar gallabuxur og tre.vju
og hafði_ bundið klúi um hrafn-
svart hárið. Hún stikaði yfir
hlaðið frá brauðgerðarhúsinu
með hlaða af kökum undir
hendinni og ætlaði inn í eldhús
til þess að hella upp á
könnuna.
Þau hjónin eiga þrjú börn;
dótturina Evu sem er tvítug, og
synina Niklas, sautján ára og
Pontus," tólf ára. Solveig sér um
búskapinn ásamt börnum
sinum á meðan eigin-
maðurinn, Þorbjörn, ferðast
um landið þvert og endilangt og
safnar atkvæðum.
Jörðin er 20 hektarar af
akurlendi og 250 hektarar af
skóglendi. Þau framleiða korn.
hafra og kartöflur. Þau hafa
einnig kálfa, svín og eiga einn
hest. Einnig hafa þau ógrvnnin
(ill af kinduni.
Um uppskerutímann hvílir
þyngsta byrðin á Niklas. Það
kemur i hans hlut að aka
dráttarvélinni og hann hefur
mestu kraftana til þess að ntoka
uppskerunni í hlöðuna.
Niklas er i búnaðarskóla og
er staðráðinn i að gerast bóndi.
Eva vinnut á læknantiðstöðinni
i Krantfors en Pontus litli
hefur ekki ákveðið enn hvað
hann ætlar að taka sér f.vrir
hendur.
Börnin eru staðráðin í því að
verða ekki stjórnmálamenn
eins og faðir þeirra. Þau eru að
vísu í æskulýðssamtökum Mið-
flokksins, en taka ekki ntikinn
þátt í félagsstarfinu og hafa
ekki ýkja rnikinn áhuga á því.
Strákarnir hafa ntiklu meiri
áhuga á íþróttum. Þeir stunda
bæði íshokký, skíðaíþróttina og
handbolta. Að sjálfsögðu leika
þeir knattspyrnu með gamla
knattsp.vrnufélagi pabba
þeirra.
Þau eru ekki andvaka af
áhyggjum út af því hvort faðir
þeirra verði forsætisráðherra
eða ekki.
Strákarnir búast ekki við því
að líf þeirra breytist svo ýkja
mikið þótt hann verði það, en
segjast ætla að taka því þegar
þar að kemur.
Solveig hefur líka afstöðu til
málsins.
,,Ég geri ekki ráð fyrir að líf
mitt breytist fjarska mikið,"
segir hún. ,,Það verður örugg-
lega miklu minni breyting
heldur en varð á lífi okkar
þegar Þorbjörn varð þing-
rnaður árið 1958. Þá urðum við
að taka upp alveg nýtt líf. Þor-
björn er afar sjaldan heima nú
orðið. Ég verð auðvitað
stundum að koma fram með
honúm við hin ýmsu tækifæri
og fjölskyldan er öll undir
smásjá fjölmiðla."
Solveig telur að það verði
erfiðast f.vrir sig ef hún verður
að flytja frá kindununt og land-
búnaðinum til Stokkhólms.
,,Það er ómögulegt að segja
um hvernig þetta verður. Við
Þorbjörn höfum aldrei rætt um
þetta." segir hún. „En ég á
erfitt nteð að hugsa mér að
'flytjast til Stokkhólms. Mitt 1 ífs
starf er hérna á bænum og
maður yfirgefur ekki lifsstarf
sitt svo einfaldlega.
„Ég get ekki ím.vndað mér
annað en að það verði mögulegt
fyrir mig og börnin að halda
búskapnum áfram hérna.
Annars finnst mér að stjórn-
málamenn eigi helzt að búa
meðal kjósendanna sem hafa
kosið þá á þing."
Þýtt og endursagt A. Bj.
" 1 1 \
Sendisveinn
BIAÐIÐ
Þverholti 2
*
•;
Solveig heldur fasl við gantla siði og venjur. Ilún
hakar hrauð til votrarins í sérstiiku „bakaríi" eins
og gert hefur verið unt áraraðir.
Það var mikið að gera dagana fyrir kosningarnar
heima hiá Fálldin, sem verður líklega næsti
forsætisráðherra Sviþjóðar. Eiginkonan Solveig og
synirnir Pontus og Niklas voru önnum kafin við
uppskeruna.
Fálldin fjiilskyldan er þarna öll samankomin
heima í eldhúsinu i Ramvik eftir að úrslit
kosninganna voru ráðin.