Dagblaðið - 09.10.1976, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 09.10.1976, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. OKTÖBER 1976. 13 RUGLAÐUR ROKKARI - EÐA SNILLINGUR „Hann er stórkostlegur,“ segir Candy Clark mótleikari Davids Bowie í nýrri kvikmynd, sem nefnist „The Man Who Fell To Earth“. Aðrir segja að hann sé hálfklikkaður rokk- tóniistarmaður, sem sé harður í horn að taka í viðskiptum. Eitt er víst að hann hefur margt að segja og var ekkert feiminn að láta álit sit í ljósi. Bowie hét einu sinni David Jones. Það hljómar velskt, en hann segist vera miklu meiri Kelti. Forfeður hans voru bændur í Yorkshire- héraði. Hann ólst að vísu ekki upp á neinum bónda- bæ, heldur í sjálfri London. Þar varð hann skotinn I stelpu einn góðan veðurdag, en svo óheppilega vildi til að hún átti kærasta. Þegar hann v^rð þess var að David renndi hýru auga til stúlk- unnar, rauk hann til og barði hann. Þá munaði litlu að hann missti augað, en síðan hefur hann vérið ofurlítið tileygður. Það passar ágætlega við hárið á honum, sem er rautt efst á DAVID BOWIE höfðinu, en ljóst í vöngunum. David Jones ætíaði að verða auglýsingateiknari, en skert sjón er ekki gott veganesti í þess háttar nám. Hann hætti því við þaðog nú segir hann að þess háttar hafi hvort sem er verið svo leiðinlegt að hann hefði ekki tollað í starfi til lengdar. David var líka svo mik- ill hrakfallabálkur, að hann hefði misst mikið úr náminu. Eitt sinn var hann að gera við bílinn sinn þegar hann byrjaði allt í einu að renna. Hann hafði gleymt að setja hann í gír. Bíllinn rann yfir fótinn á hon- um og hann fótbrotnaði. Þetta sama ár hafði hann handleggs- brotnað og fingurbrotnað. Þegar teiknaranámið leit svona illa út, fór David að leita fyrir sér um stofnun hljóm- sveitar. Fyrsta hljómsveit hans hét „David Jones and The Lower Third“. Þeir gáfu út plötu, sem enginn vildi hlusta á. En á þessum árum gerði annar David Jones garðinn frægan í Bandaríkjunum. Hann var með hljómsveitinni „Monkees“. Þar sem illa gekk og fáar plötur seldust leystist hljómsveit Davids upp. Nú varð til maður að nafni David Bowie og hann g’ékk til liðs við hljóm- sveitina „Lindsay Kemp Mime Troupe". Þar fékk hann æfingu i sviðsframkomu. Eftir nokkurn tlma reyndi David sem nú kallaði sig Bowie að hljóðrita aðra plötu.Þessar plötur eru nú álitnar vera klassískar, en þær eru „The Man Who Sold The World“, og „Man Of Words, Man Of Music“. En Bowie varð samt ekki frægur fyrir að gera þess- ar plötur. Næst tók hann sig til og safnaði um sig nokkrum vinum sfnum i Kent. Þar unnu þeir að plötunum „The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders from Mars.“ Þá ioksins varð hann þekktur. Fólk gagnrýndi hann fyrir ein- kennilegt útlit. Þetta var það sem hann var að leita eftir. Hann segist vera mikill að- dáandi Salvador Dali og sækir margar hugmyndir sínar til hans.Bowie málar og hefur gert það sér til gamans lengi. Hann aetlar bráðlega aó halda sýningu á verkum sínum og elnnig á þeim plötuumslögum sem hann hefur gert. Hann hefur einnig mjög gaman áf þvf iað leika og segist hafa komizt áfram með því að leika ein-v hvern annan en hann er í raun og veru. Uppáhaldstónlist Bowies er Country Western tónlist. Það er svolftið einkennilegt þegar hún'. er borin saman við hans eigin tónlist. Skýringin er. ef til vill sú að hann er mikill aðdáandi alls, sem amerfskt er. Ljóðin sem eru ort við þessa tónlist segir hann vera beztu nútfma- ljóðin sem gerð eru f dag. „Ég fann konuna mína f diskóteki, hún er ofsalega fyndin og miklu gáfaðri en ég,“ segir David. Angela og Bowie eiga einn son, sem er að verða fimm. lára. Fjölskylda hennar varð alveg miður sfn þegar þau giftust, en núna kemur Bowie og tengdapabbanum vel saman. Það getur vel farið svo að David Bowie setjist að f Mexico. Hann varð svo hrifinn af land- inu þegar verið var að taka kvikmyndina „The Man Who Fell To Earth“. „Hver veit nema ég verði nágranni John Wayne, — vonandi á okkur eftir að koma vel saman,“ segir hann. —KP þýddi ■■■ mmn Eftir að-Ames hefur boðið Orn og mótorhjólakappann velkom’m* halda F Hvar getum þeir inn I drouqaborgin^ . -----------FTl eiginlego komií ¥ “ þetta er allt Nema M okkur fyrjr? A|lt virðist fullt af fólki í og sumt, sem hann kann fyrir ier, þó verður einvígið ekki svipur hjó sjón. lýðurinn sem styður hann eitt hótel í bœnum, œtla ég að búa. Það er \ j aðeins U p Brjólœðingui er mœttur, J Rétt er það, það'VPL betta eru skilur okkur enginn' göðar róðstafanir að fyrr en einvígið tehfa " . er búið. jó^auðvitað^Eins og þú^ Herra Keagle, . baðst um. eitt handa þcr\Ijjjj og eitt fyrir hjólið þilt. Rj| W Svo 1 þetta er skotmarkið mitt. Er herberaið mitt tilbúið?

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.