Dagblaðið - 09.10.1976, Blaðsíða 22
22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 9. OKTÖBER 1976.
C Bíóauglýsingqr eru á bls. 20 ) (§
Útvarp
Sjónvarp
i
Sjónvarp í kvöld kl. 22.00:
Leikararnir
ekki af verri
endanum
I kvöld fáum við að sjá
bíómyndina Rakel (My cousin
Rachel) , sem gerð er árið 1953
eftir sögu Dauphne du Maurier.
Leikararnir, sem fara með aðal-
hlutverk, eru ekki af verri end-
anum en það eru Olivia de
Havilland og Richard Burton,
Segir i kvikmyndahandbókinni
okkar að leikur þeirra sé
Þaö er ekki víst aö allir beri kennsl á Richard
Burton á þessari mynd, en svona leit hann út
áríö 1953. Þama eru þau í hlutverkum
sínum Burton og Olivia de Havilland.
fullkominn, hvorki meira né
minna!
Myndin fær einnig þrjár og
hálfa stjörnu.
Sagan gerist á Englandi á 19.
öldinni. Ungur maður hyggst
fletta ofan af vélabrögðum
ungrar frærtku sinnar. En
hann verður yfir sig ástfanginn
af henni.
Þýðandi er Kristmann
Eiðsson, og sýningartími er ein
klukkustund og þrjátlu og
fimm mínútur.
-A.Bj.
Stjarna Burtons
reis hœgt
fyrst í stað
„Eg ætla svo sannarlega að
verða bezti leikari heimsins,
hvers vegna ætti maður annars
að vera að leika," mælti
Richard Burton að sögn endur
fyrir löngu. Hvort hann sagði
þetta og hvort hann náði tak-
marki sinu er að sjálfsögðu um-
deilanlegt.
Hann var fæddur árið 1925,
faðir hans var velskur
kolanámumaður. Frami hans í
leikarastarfinu kom hægt og
sígandi. Fyrst í stað lék hann i
Shakespeareverkum hjá Old
Vic og kom fram i fyrstu kvik-
myndinni árið 1949. Hún var
velsk.
Fyrsta bandaríska myndin,
sem hann lék í, var einmitt
myndin sem er í sjónvarpinu í
kvöld, Rakel. Hann varð eigin-
lega ekki ærlega frægur fyrr en
hann lék Antony á móti Eliza-
beth Taylor í Kleopötru árið
1963. Það sem á daga hans
hefur drifið síðan er á allra
vitorði, svo við látum þetta
nægja í bili.
-A.Bj.
OLIVIA DE HAVILLAND:
Hefur nœstum alltaf
leikið blíðar og
hjólparlausar meyjar
Hin undurblíða Olivia de
Havilland er fædd árið 1916 í
Tokyo, en foreldrar hennar
voru enskir. Systir hennar er
leikkonan Joan Fontaine.
Olivia kom fram í fyrstu
kvikmyndinni árið 1935, en
hafði þá áður leikið í
Miðsumarsdraumi, sem var
sýnd síðar.
Hún lék á móti Errol Flynn í
Captain Blood árið 1935, einnig
Iék hún Marion I Hróa hetti
árið 1938. Eftir að hún hafði'
leikið I nokkrum minniháttar
myndum fékk hún hlutverk
Melanie I A hverfandi hveli,
sem kvikmynduð var 1939. Þótt
hún stæði I málaferlum við
Warner Brothers kvikmynda-
fyrirtækið urðu myndir hennar
betri og betri. Hún fékk út-
nefningu til Óskarsverðlauna
1941, en systir hennar Joan
Fontaine fékk sjálf venðlaunin.
Arið 1946 fékk hún fyrstu
Óskarsverðlaun sín og önnur
árið.1949. Fyrir leik sinn I kvik-
myndinni Ormagryfjan, sem
sýnd var hér I sjónvarpinu fyrir
fáum árum, fékk hún verðlaun
gagnrýnenda I New York.
Olivia de Havilland hefur leik-
ið I meira en fjörutíu kvik-
myndum um daga sina.
________________________A.Bj. A
Útvarp kl. 13.20 á morgun:
Frelsarí úr
Mývatnssveit
„Þetta er fyrra erindi mitt af
tveimur um Aðventu Gunnars
Gunnarssonar," sagði Ólafur
Jónsson fil. kand. er við spurðum
hann um efni útvarpserindis sem
hahn flytur á morgun kl. 13.20 og
nefnir Frelsari úr Mývatnssveit.
„Aðventa er byggð á frásögn af
ævintýrum og þrekraunum, sem
Fjalla-Bensi lenti í. Hann hét
Benedikt Sigurjónsson og var úr
Mývátnssveit. Hann fékk
viðurnefni sitt af því, að hann fór
í eftirleitarferðir áratugum
saman.
Skáldverkið er byggt á frásögn
af einni slfkri ferð. Þessi frásögn
Bensa birtist einu sinni í
Eimreiðinni.
Aöventa kom fyrst út sem
smásaga og birtist þá í dönsku
jólatímariti. Sú saga hefur ekki
verið birt, annars staðar, en ég
hef kynnt mér hana.“
— Hvenær kom Aðventa fyrst út?
„Aðventa kom f.vrst út á
þýzku árið 1936. á dönsku árið
1937 og á íslenzku kom hún út
árið 1939, eða rétt um það leyti
Ólafur Jónsson fíl.kand.
sem Gunnar Gunnarsson var að
flytja heim. Það var Magnús
Ásgeirsson sem þýddi Aðventu og
bollaleggingar minar i erindinu
snúast um þessar þrjár frásagnir.
Núna er komin úl ný þýðing á
Aðventu, sem Gunnar gerði
sjálfur," sagði Ölafur Jónsson.
Gunnar Gunnarsson lézt á
þessu ári.
Útvarp kl. 14.30 í dag:
Minning látinna tónlistarmanna
„Ég hef verið með þætti með
líku sniði nokkur undanfarin ár
sem fjölluðu um nýlátna tónlistar-
rnenn," sagði Baldur Pálmason,
en hann er með útvarpsþátt í dag
kl. 14.30, sem nefnist Arfleifð í
tónum.
„Það verða eitthvað tólf eða
f jórtán persónur sem getið verður
um í þættinum. Svo nokkrir séu
nefndir þá verður t.d. minnzt á
Dimitry Sjostakovitsj, sem er lík-
lega einna þekktastur þeirra tón-
listarmanna sem létust í fyrra.
Einnig verður minnzt á einn fær-
asta violuleikara Breta Lionel
Tertis, sem lék öðru hvoru I 40 ár
með Pablo Casals, heimsfræga
tenórsöngvarann Richard Tucker,
sem um áratuga skeið var aðal-
tenór Metropolitan óperunnar í
New York, dans- og söngkonuna
Josephine Baker, Leroy Ander-
son, sem aðallega s-amdi létta tón-
list og var hér á tslandi á stríðsár-
unum og Thor Johnson, Banda-
ríkjamann af norskum ættum,
sem hingað hefur komið tvisvar
eða þrisvar og stjórnaði þá
Sinfóníuhljómsveitinni," sagði
Baldur Pálmason. —A.Bj.
Baldur Pálmason, útvarps-
fulltrúi.
Útvarp
Laugardagur
9. október
12.00 DaK-skráin. Tónleikar. Tilkynnins-
ar.
12.25 Verturfregnir og fréttir. Tilk.vnn-
ingar. Tónleikar.
13.40 „Ég vildi bara veröa bóndi'* Jónas
Jónassnn ræðir virt Jón Pálmason á
Þinj'eyrum. (Artur útv. i mai).
14.30 Arfleifö i tónum. Baldur Pálmason
minnist þekktra tónlistarmanna. sem
létust I fyrra. on kynnir hljómplötur
þeirra. ie.00 Fréttir.
1(5.15 Vorturfrejínir. Lóttlög.
17.30 Á sloðum Ingolfs Arnarsonar i
Noregi. Ilallurimur Jónasson rithöf-
1 undur flytur annan ferrtaþátt sinn.
1K.00 Tónleikar. Tilkynninnar.
18.45 Verturfrejínir.DaK.skrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Frettaauki. Tilkynninuar.
19.35 Vegir á alla vegu. (lisli Kristjánsson
rærtir virt Óskar Júliusson fyrrum
vej’averkstjöra á Dalvík.
19.55 Óperettutónlist: Þættir úr ..Sumarfrii
i Salzburg" eftir Fred Raymond.
20.35 í herfjötrum — dagskrá um Chile.
Umsjónarmenn og flytjendur: GylfP
Páll Hersir. Haukur Már Haraldsson,
IngibjörK Haraldsdóttir. Þorleifur
Hauksson og Ævar Kjartansson.
21.20 Lótt tonlist frá nýsjálenzka út-
varpinu. Julian Lee tríóið leikur.
21.40 ..Timburmenn", smásaga eftir
Mögnu Lúöviksdóttur. Margrét Helga
Jóhannsdóttir leikkona les.
22.00 Féttir.
22.15 VerturfreKnir Danslög.
23.55 Fréttir. DaKskrárlok.
Sunnudagur
10. október
K.00 Morgunandakt. Séra SÍKUl'rtur Páls-
son vÍKslubiskup flytur ritninKarorrt
ok bæn.
K. 10 Fréttir. K. 15 VerturfreKiiir. Lótt
morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustUKroin-
um daublartanna.
9.15 Morguntónleikar.
11.00 Prestvigslumessa i Domkirkjunni
(hljórtr. á sumiud. var). Biskup Is-
lands. herra SÍKiirbiörn Kinarsson.
viuir se\ Kurtfrærtikandidala. sem
verrta settir til prestþjónustu:
Gunnþór Inuason i Startarprestakalli i
Isafjarrtarprófaststlæmi. Hjálmar
Jónsson i Bólstartarprestakalli i llúna-
vatnsprófastsdæmi. Sighvat tíirKi
Emiisson í Hölaprestakalli í. Skaga-
fjarðarprófastsdæmi. Vigfús Þór
Arnnson i Siglufjaröarprestakalli i
Eyjafjarrtarprófastsdæmi. Pétur
Þórarinsson i Hálsprestakalli í Þing-
eyjarprófastsdæmi og Vigfús Ingvar
Ingvarsson i Vallanesprestakalli i
Múlaprófastsdæmi.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Verturfregnir og fréttir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 FrelRari úr Myvatnssveit. Ölafur
Jónsson fild.kand. flvtur fyrra erindi
sitt um ..Artventu" Gunnars Gunnars-
sonar.
13.50 Miödegistónleikar: Frá svissneska
utvarpinu.
15.00 '’Hvernig var vikan? Umsjón: Páll
Heirtar Jónsson.
1(5.00 íslenzk einsöngslög. * Kristinn
Hallsson syngur; Gurtrún Kristinsdótt-
ir leikur á pianó.
1(5.15 Veurfregnir. Fréttir.
1(5.25 Alltaf á sunnudögum. Svavar Gests
kynnir lög af hljömplötum.
17.10 Barnatimi: Ágústa Björnsdóttir
stjornar.
1K.00 Stundarkorn meö ungverska
pianóleikaranum Andor Foldes.
Tilkynninear.
1S.45 Verturfregnir. Dagskrá kvöldsms.
19.00 Frettir. Tilkynningar.
-A.Bj.