Dagblaðið - 11.10.1976, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 11.10.1976, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 11. OKTOBER 1976, Carter: Hefur tryggt sér fylgi helmingi fleiri kjörmanna. Það getur ráðið úrslitum. Bandarísku forsetakosningarnar: Carter hefur fylgi helmingi fleiri kjörmanna en forsetinn Jimmy Carter, forsetaefni Demókrataflokksins i forseta- kosningunum í Bandaríkjunum í næsta mánuði, hefur fyigi helmingi fleiri kjörmanna en Ford forseti, að þvi er kemur fram í nýrri skoðanakönnun fréttaritsins Time. Samkvæmt hinu flókna kerfi, sem Bandaríkjamenn fara eftir er þeir velja sér forseta, fær hvert ríki ákveðinn fjölda kjör- manna, sem grundvallast á íbúafjölda viðkomandi ríkis. Frambjóðandi þarf að hafa stuðning 270 kjörmanna til að ná kjöri. S^mkvæmt skoðana könnun Time hefur Carter nú tryggt sér 273 kjörmenn. Hann hefur vinninginn yfir Ford for- seta í 21 ríki og D.C. Forsetinn hefur vinninginn i sautján rikjum með 113 kjörmenn, en Carter og Ford eru jafnir í 12 rikjum, þar sem þeir berjast um stuðning 152 kjörmanna. í viðtali við Newsweek sagði ford, að hann gæti vel hugsað sér að verða prófessor í stjórn- vísindum, ef hann tapar kosningunum. 1 viðtölum við fréttaritið U.S. News & World Report sögðu frú Ford og frú Carter, að þær yrðu vissulega von- sviknar — en ekki þó eyðilegð- ar manneskjur — ef eiginmenn þeirra töpuðu kosningunum 2. nóvember. Ródesía: Bjartsýni um Genfarfundinn — Kissinger lofaði Smith að hvítir fengju að ráða her og lögreglu í landinu Horfur á því að stjórnar- skrárráðstefnan um Ródesiu, sem halda á í Genf í Sviss, fari vel af stað hafa heldur aukizt eftir yfirlýsingar tveggja blökkumannaleiðtoga um helg- ina. Bæði Joshua Nkomo og Robert Mugabe létu að því liggja, að þeir settu ekki ófrá- víkjanleg skilyrði fyrir þvi að koma til ráðstefnunnar, sem ætlað er að koma á bráðabirgða- stjórn blökkumanna í landinu. Ráðstefnan er haldin að til- hlutan Breta. Nkomo kom til Bulawayo í Ródesíu í gær og var fagnað þar af hundrað þúsund manns. Við það tækifæri sagði hann að hann hlakkaði til ráðstefn- unnar og til að vinna að því að færa meirihlutanum völdin í hendur. Mugabe, sem talinn er vera lalsmaður skæruliðahreyf- ingarinnar f landinu sem berst gegn stjórn Ian Smiths, sagði í Dar Es Salaam í Tanzaníu í gær, að hann setti aðeins örfá skilyrði fyrir því að taka þátt í fundahöldunum f Genf. í fyrsta lagi yrði að sleppa öllum póli- tískum föngum í Ródesíu nú þegar — og í öðru lagi yrði að fresta ráðstefnunni í Genf, svo að hinir frjálsu fangar gætu farið þangað. Þá segir f fréttum frá New York, að Ian Smith hafi sagt í, viðtali við Newsweek að stjórn hvítra manna á her og lögreglu i Ródesíu væri einn mikilvæg- asti þátturinn í áætlun Henry Kissingers um bráðabirgða- stjórn hvítra og svartra í landinu. Newsweek héfur eftir Smith, að Kissinger hafi sagt honum að forsetar Zambíu og Tanzaníu hafi faliizt á að öryggissveitir landsins yrðu undir stjórn hvítra manna. Hua Kuo-feng hefur tekið við af Mao — en einhver bið er á opinberri staðfestingu Háttsettur kínverskur embættismaður staðfesti í samtali við fréttamann Reuters í Peking í gær, að -Hua Kuo- feng væri orðinn formaður kínverska kommúnista- flokksins og æðsti valdamaður landsins eftir Mao. Embættismaðurinn skýrði Reuter frá því, að skipan Huas í embættið yrði gerð opinber innan skamms. Það hefur vakið mikla furðu utan Kína, að dráttur skuli vera á opinberri staðfestingu embættisskipunar manns, sem mun stjórna fjórðungi alls mannkyns. Hálfum öðrum sólarhring eftir að fyrstu veggspjöldin sáust í Peking, þar sem skýrt var frá embættistöku Huas, hafði opinber tilkynning ekki verið gefin út. I Dagblaði alþýðunnar í gær var varað við því, að hægri eða vinstri tækifærissinnar í flokknum gætu reynt að kljúfa flokkinn, en þeir væru dæmdir til að mistakast, eins og raunar Nýr leiðtogi 800 milljóna manna: Hua Kuo-feng. allir sem svikju hugsun Maric- Lenins-Maos. 1 forystugrein í blaðinu voru landsmenn hvattir til að fylkja liði um miðstjórn Kommúnista flokks Kína og Hua formann. Mikil áherzla var löð á sam- einingu, aga g hlýðni. Skipan Huas í embætti formanns er hámark ævintýra- legs ferils hans til valda. Það er ekki lengra síðan en í fyrra, að hann var ekki einu sinni talinn meðatíu valda- mestu manna landsins. Upphaf- legt val hans í embætti forsætisráðhera var talið vera málamiðlun til að stilla tii friðar í pólitískum og persónulegum deilum valda- manna í landinu. Haldi hann forsætisráðherraembættinu verður hann þar með valda- mesti maður, sem verið hefur í Kína síðan kommúnistar komust þar til valda, því Mao sjálfur kaus Chou En-lai fyrir forsætisráðherra einn. Landhelgisviðrœður Norðmanna og Sovétmanna: Jens Evensen, hafréttarráðherra Norðmanna: Ymislegt fleira en fiskur tii umræðu. Norðmenn og Sovétmenn hefja viðræður um hin umdeildu fisk- veiðiréttindi i Barentshafi nú í þessari viku en sérfróðir menn telja að viðræðurnar muni snúast um allt annað og þýðingarmeira viðfangsefni, a.m.k. fyrir Sovét- menn. Enda þótt sagt sé i erindisbréfi nefndarmanna sem hefja eiga viðræður sínar í Moskvu á, morgun að einungis verði rætt um fiskveiðar, er talið, að sjó- hernaðarlegt mikilvægi og mögu- leiki á málmvinnslu muni skipta miklu máli. Jens Evensen, ráðherra sá er fer með hafréttarmál, mun verða formaður viðræðunefndar Norð- manna er ræða á við fiskiðnaðar- málaráðherra Sovétmanna, Alexander Ishkov. Viðræðurnar eru byggðar á grundvelli þeirrar yfirlýsingar Norðmanna að færa út efnahags- lögsögu sína í 200 mílur frá og með 1. janúar n.k. til þess að reyna að vernda ört minnkandi fiskistofn sinn. Sovétmenn hafa farið fram á að viðurkennt verði þríhyrnt svæði sem telur ailt að 60 þúsund ferkílómetra, en það er auðugt af fiski og heldur einnig siglinga- leiðinni til Murmansk opinni þar sem bækistöðvar íshafsflota þeirra og alls flota kjarnorkuknú- inna kafbáta þeirra eru. Sendinefnd Norðmanna hefur hins vegar lýst því yfir, að þeir muni krefjast þess að svæðinu verði skipt í samræmi við ákvæði Genfarráðstefnunnar, nefnilega með línu sem dregin' er mitt á jnilli nágrannaríkja. Rússar vilja að línan verði dregin beint f norður frá landamærum ríkjanna en það myndi þröngva Norðmönn- um töluvert lengra f vestur en nú er. Mikil kjörsókn á Kúbu Kúbumenn greiddu í gær at- kvæði um fulltrúa til hrepps- þinga í fyrstu almennu kosningunum síðan Fidel Castro forsætisráðherra kom til valda fyrir 17 árum. Kjörsókn var góð en á kjörskrá voru meira en fimm milljónir manna, sem völdu 11 þúsund fulltrúa á hreppsþingin úr hópi 30 þúsund frambjóðenda. Þing-' um þessum var komið á fót á síðasta þingi kúbanska kommúnistaflokksins i des- omber sl. til þess að reyna að minnka miðstjórnarvald flokksins og gera stjórnarfarið lýðræðislegra. Þingfulltrúum hefur verið veitt mikið vald til þess að fara með öll mál varðandi alm. þjónustu i hreppunum og mun ætlunin, að þeim fylgi kosningar til héraðsþinga og síðar til þjóðþingsins. Dr. Castro, klæddur dökk- grænum hermannabúningi að venju og girtur skammbyssu á mjöðm, greiddi atkvæði snemma i gærmorgun í mið- borgarhverfinu Badado í Ilavana. Hann hafði um átta frambjóðendur að velja, en sex þeirra eru konur. Er hann var spurður um þýðingu þessara kosninga sagði hann, að þær væru ..augljóst skref fram á við í þá átt að efla og fastmóta byltinguna." Frambjóðendur til kosning- anna voru valdir á fundum á götum úti í borgar- og bæjar- hverfum þeirra. Um 53% eru í kommúnistaflokknum en um 16% eru í samtökun yngri kommúnista. Samkvæmt nýjum kosninga- lögum verður að kjósa á ný á þeim stöðum þar sem enginn frambjóðenda fékk meira en 50%, atkvæða.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.