Dagblaðið - 11.10.1976, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 11.10.1976, Blaðsíða 21
DACBLAÐIÐ. MANUDACUH 11. OKTÓBER 1976. 21 leika á. Þetta verður allt annað eftirtilkomu hljóðfærisins." Nú varð Jóhann að gera hlé á spjallinu því hann þurfti að fara upp á hinar ýmsu deildir spítal- ans til þess að sækja sjúklinga sem ætluðu að koma á skemmtun- ina. Ég sneri mér aftur að Svövu. Hún sagðist vera fædd og upp- alin í Reykjavík, nánar tiltekið í vesturbænum, og væri hún ein af Sveinsstaðasystrunum, sem svo voru nefndar. Hún bjó með for- eldrum sínum á Bakkastígnum og voru þær sjö systurnar. Aðgerðin sem Svava gekkst undir fyrir viku virtist ekki hafa haft áhrif á andlegan hressleika hennar, hún hló og gerði að gamni sínu. ,,Við Lovísa erum í eins konar framvarðasveit „hækjuliðsins"," sagði Svava. Lovísa Jónsdóttir sagðist vera ættuð frá Seyðisfirði en hafa verið búsett í níu ár á Selfossi og kunna vel við sig þar. Hún gekksl undir hnéaðgerð fyrir viku og steig fyrstu sporin daginn sem skemmtunin var haldin. „Fram- arsteinn Hannesson las upp við mik- in fögnuð áheyrendanna. ;úst Björnssou og Jóhann Þórðarson hafa séð um fimmtudagssamkomur rir sjúklinga Landspítalans núna í eitt ár. Formaður safnsins, Benedikt Cröndal. hefur nú ákveðið að öllum sjúkrahúsum á landinu verði lánaðar kvikmyndir úr safn- inu endurgjaldslaust," sagði Jóhann. — Hvernig fenguð þið píanóið? ..Það var fyrir milligöngu for- stöðukonu spítalans, Vigdísar Magnúsdóttur, en það var skrif- stofa ríkisspítalanna sem borgaði brúsann." — Hvernig hefur gengið að fá fólk til þess að skemmta? ,.Það hefur gengið framar öllum vonum en hefur auðvitað verið mótað af hljóðfæraskortin- um, áður var einungis orgel til að verðirnir" í hækjuliðinu hiifðu notið aðstoðar eiginmanns Lovísu til þess að fá ..beztu" satti á skemmtuninni en hann var i heimsókn og ók þeim niður. Nú fór aðra sjúklinga að drífa að. Þeir voru mjög misjafnlega á sig koinnir. Sumir voru i hjóla- stólum. aðrir gengu arm i arm og nokkrir voru í rúmunum. Þeim var ekið niður af þeim félögum Jóhanni og Agústi og einnig af starfsfólki spítalans. A meðal þeirra sem voru rúm- liggjandi voru nokkrir af barna- deildinni og þegar Guðmundur Cuðmundsson byrjaði að syngja he.vrðist frá einni lítilli hnátu: Guðmundur Guðjónsson söng með undirleik Sigfúsar Halldórs- sonar. Þeir féiagar hafa undanfarið sungið og leikið fyrir sjúklinga ýmissa stofnana. Það er gaman að skemmta þessu fólki, sagði Sigfús. Það eru allir svo innilega þakklátir. Skemmtanahaldið fer fram í kennslustofum á fyrstu hæð. Krakkarnir af barnadeiidinni voru spenntir f.vrir Sveini ljósmvndara. Blómarósin í miðið tekur sig vel út, engu líkari en kvíkmyndadís. ..Hann er bara ofsalega góður óperusöngvari!" Einn ungur sjúklingur sagði þegar hann sá Svein ljósm.vndara: „Ég fer alltaf að hlæja þegar ég sé þig." Sigfús Halldórsson lék nú f.vrsta lagið á nýja píanóið og fannst viðeigandi að það væri vel valið lag, eins og hánn komst sjálfur að orði. Lagið var Þakkar- gjörð. Því næst gekk Guðmundur Sveini brá að vonum dálítið i brún og spurði: „Hvers vegna?" „Af því að þú ert alltaf hlæj- andi sjálfur," sagði sá smái sem re.vndist vera sonur Ömars Ragnarssonar. Sveini ljós- myndara létti augsýnilega. Nú var salurinn orðinn þéttset- inn af fólki. Páll Helgason yfir- læknir endurhæfingardeildar- innar flutti eins konar setningar- ræðu áður en skemmtiatriðin hófust. Hann gat þess að hann liti svo á að fimmtudagsskemmtan- irriar væru eins konar liður í endurhæfingu sjúklinganna. Þær hefðu bætandi áhrif á þá og hann hefði fullan hug á að auka þessa starfsemi og gera sjúklingana sjálfa virka eftir því sem hægt væri. Við hefðum nú máiað okkur betur ef við hefðum vitað af þvi að Sveinn ijósmyndari kæmi í heimsókn, sagði Svava, en þær stöllur sögðust vera i framvarðasveit „hækjuliðsins". v.uojonsson í saltnn og söng hvert lagið á eftir öðru við mikil fagn- aðarlæti áhe.vrendanna. Þor- steinn Hannesson óperusöngvart, sem verið hefur sjúklingur á spít- alanum síðan i sumar, las upp skemmtisögur og mátti heyra hlátrasköllin úr salnum. Síðan söng Guðmundur á ný með undirieik Sígfúsar og sjúkl- ingarnir. sem voru nærri áttatíu talsins áttu góða kvöldstund með pe.-isum velgerðarmönnum sem vinna óeigingjarnt starf fyrir meðbræður sína. — A.Bj. rAflt undir einu þaki! Prjónaband og uppskriftir, ullarfatnaður og ullarvörur, skinnavörur og vandaðar gjafavörur— ir gjatavorur— og nu einniggólfteppadeild ftf i* IMP Álafossbúðin Vesturgötu 2

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.