Dagblaðið - 11.10.1976, Blaðsíða 32
Afí og amma voni í tveggja
ára af mœli Sonju í gœr
Píanósnillingurinn, stolt og höfuð fjölskyldunnar, var í gær ekki síður duglegi drengurinn hennar mömmu og hans pabba síns.
Þórunn heldur á Sonju liflu, en Vladimir Ashkenazy heldur á Dimitri Þór. A bak við þá krýpur Vovka. Þá koma foreldrar
Vladimirs en við hlið afa síns situr Nadja. Við óskum henni til hamingju með 13 ára afmæiisdaginn í dag. -BS.
„Ég er þakklátur öllum íslendingum sagði Ashkenazy
„Sonja litla fékk afa sinn og
ömmu í afmælisgjöf, hún varð
tveggja ára í dag.“ sagði Þór-
unk Ashkenázy í stuttu viðtali
við fréttamenn Dagblaðsins í
gær, „Annars verður Nadja 13
ára á morgun," bætti hún við.
„Við erum öll mjög ánægð og
þakklát þeim, sem hafa lagt
okkur lið. Mér finnst eins og að
í hpssn máli höfum við átt vin í
hverjum einasta Islendingi,"
sagði píanósnillingurinn, sem í
gær var kannski fyrst og fremst
drengur mömmu sinnar og
pabba.
Það er mikil hamingja á
heimili Ashkenazy-
fjölskyldunnar, sem nú er
sameinuð og orðin stærri en
síðast þegar hún kom saman.
David Ashkenazy og kona hans
komu hingað til lands eftir
langa flugferð frá Moskvu á
föstudagskvöldið. Auk þeirra
sem að framan greinir eru
Dimitri Þór, sem er 7 ára og
Vovka, Vladimir Stefán, sem
verður 15 ára í næsta mánuði.
„Foreldrar mínir verða
hérna um hálfsmánaðar tíma að
þessu .sinni og eitthvað reynum
við að sýna þeim af landinu,"
sagði Vladimir Ashkenazy. ,,En
síðan fara þau líklega með
okkur því að mér er ekki til
setunnar boðið. Fyrir dyrum
stendur hljómleikahald, sem
ekki verður slegið á frest. Við
viljum að þau komi með
okkur,“ sagði Vladimir
Ashkenazy. Dagblaðið býður
foreldra hans velkomna til
Islands. -BS.
frýálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 1976.
GUÐJÓN
STYRKÁRSSON
HÓTAR
MÁLSHÖFÐUN
— vegna greinarinnar
um Vœngjamálið
Guðjón Styrkársson, hæsta-
réttarlögmaður, stjórnarfor-
maður Vængja h.f., hefur
tilkynnt að hann muni höfða
meiðyrðamál og skáðabótamál
á hendur „ritstjórn Dag-
blaðsins" fyrir upplýsingar,
sem komu fram í grein í
blaðinu sl. föstudag.
I yfirlýsingu frá Guðjóni
segir m.a.: „Að sjálfsögðu vísa
ég ásökunum Dagblaðsins um
fjárdrátt algjörlega á bug sem
þvættingi og markleysu, sem
fram er sett fyrst og fremst í
þeim tilgangi að blaðið seljisf."
Síðar segir Guðjón í
yfirlýsingu sinni: „Ég veit að
Dagblaðið hefur beitt
persónulegum svívirðingum og
rógi í skjóli þess að menn þori
ekki aö leita réttar síns. Þetta
á ekki við um mig eða stjórn
Vængja. Við höfum engu að
leyna. Þá munum við einnig
kæra og krefjast rannsóknar á
stuldi á einkaskjölum úr
bókhaldi félagsins, þó að segja
megi að vel fari á að
ærumorðingjar starfi með
þjófum.“
í viðtali við Guðjón
Styrkársson og aðra stjórnar-
menn og hluthafa í Vængjum
hf. staðfesta þeir það, sem
fram kom í grein Dagblaðsins
á föstudaginn. Stefnan, sem
Guðjón Styrkársson talar um í
yfirlýsingu sinni, hefur ekki
verið birt í Dagblaðinu enn.
-OV.
Nóðu háhyrningi eftir
mikinn eltingaleik
syndir nú í girðingu á Höfn i Hornafirði og lendir trúlega
i sœdýrasafni i Frakklandi
Fjögurra metra langur
háhyrningur syndir nú í góðri
girðingu austur í Álaugarey á
Höfn í Hornafirði og er ekkert
smeykur við kafara sem
bregður sér ofan í til hans öðru
hverju. Háhyrningurinn er 4-6
ára gamall, ósærður og heill
heilsu að því er virðist.
Skipshöfnin á Sigurvoninni
náði þessum háhyrningi út af
Ingólfshöfða eftir miðnættið í
fyrrinótt eftir nokkurn eltinga-
leik. Skipstjóri á Sigurvon er
Konráð Júliusson en um borð í
henni eru 4 franskir menn, sem
hafa fengið leyfi til að fanga
hér 2 háhyrninga með það fyrir
augum að fara með þá út til
Frakkiands.
Alltaf er einhver , hjá
háh.vrningnum í girðingúnni,
sem er rúmgóð. Hann lætur vel
að kafara, sem syndir um með
honum öðru hverju, og þykir
gott að láta klappa sér og ausa
sig sjó. Hann er ekki
matgráðugur en stenzt þó ekki
ferska síld, sem berst til Horna-
fjarðar af miðunum.
Háhyrningurinn er 4-6 ára
gamall, ef til vill í elzta lagi'
fyrir starf í dýragarði, um 1000
kg að þyngd„ -BS.
Hœttulegur reki í
Gaulverjobœ
Þegar lögreglan á Selfossi
var á eftirlitsferð á fimmtu-
daginn niðri í Gaulverjabæ
kom maður frá bænum Tungu
að máli.við hana og afhenti litla
sprengju sem fundizt hafði i
f jörunni fyrir framan bæinn.
Á föstudag kom Rúdoli'
Axelsson, sprengjusérfræðing-
ur frá lögreglunni í Reykjavík,
austur á Selfoss og gerði
sprengjuna óvirka.
Rúdolf sagði i viðtali við DB
að þetta væri framhluti úr sam-
settri sprengju, hefði hluturinn
verið mjög ryðgaður og greini-
lega legið lengi í sjó. Talið er að
sprengjan, sem var af brezkri
gerð, sé leifar frá stríðinu en
a'fingasvæði brezka hersins var
þarna í grenndinni og þær
sprengjur sem finnást eru yfir-
leitt frá þeim tíma. —A.Bj.
Á Norðurlandamóti framhaldsskóla!
HAMRAHLÍÐARSKÁK-
SVEITIN SIGRADI
Skáksveit Hamrahlíðar- voru: Adolf Emilsson og Þor
skóla sigraði á Norðurlanda- Örn Jónsson.
■ skákmóti framhaldsskóla, sem Yfirdómari mótsins var
hefur farið fram hér í Reykja- Guðmundur Arnlaugsson, en
vík undanfarna daga. Sigur- mótsstjóri Bragi Halldórsson.
skáksveitir úr innb.vrðis
keppni í framhaldsskólum fjög- Urslit í einstökum umferðum
urra Norðurlanda tóku þátt i urðu sem hér segir:
þessu móti. íslenzka sveitin er tsland — Finnland: 5-0
úr Menntaskólanum við Hamra- ísland — Svíþjóð: \'-A-íA
hlíð. Hana skipa þessir menn: ísland — Danmörk: 3'A-l'A
1. borð: Margeir Pétursson, 2.^ Einar S. Einarsson forseti
borð: Omar Jónsson. 3. borð:' Skáksambands íslands afhenti
Asgeir Þór Árnason. 4. borð: verðlaun að lokinni keppni í
Jón Loftur Árnason, 5. borð: gær.
Þröstur Bergmann. Varamenn —BS