Dagblaðið - 29.10.1976, Side 6

Dagblaðið - 29.10.1976, Side 6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDACIUR 29. OKTÖBER 1976. 6 Veit hann um orsök Hammarskjöld-slyssins? Öryggislögreglan í Stokk- hólmi leitar nú ákaft sænsks flugmanns, sem var málaliði í sveitum Katangahers í borgara- styr.jöldinni í Kongó, í von um, að hann kunni að veita upplýs- ingar um flugslys það sem Dag Hammarskjöld aðalritari Sameinuðu þjóðanna lét lítið í. Talsmaður sænska flughers- ins sagði fréttamönnum, að flugmaðurinn, sem segist hafa flogið fransksmíðaðri sprengju- flugvél fyrir uppreisnarstjórn Moise Tshombe, hefði hringt í majór í sænska flughernum, sem vinnur að samningu bókar um þátt Svíþjóðar í störfum friðargæzlusveita S.Þ. og þá sérstaklega í Kongóstyrjöld- inni. Sagnfræðingurinn, Lennart Berns majór, segist hafa komizt að þvi með eftirgrennslan, að maður þessi væri örugglega sami flugmaðurinn og lék þann leik að ráðast að flutninga- vélum S.Þ. yfir norðurhéruðum Rodesíu, þar sem nú er Zambía. DC-6 flugvél, með Hammar- skjöld og marga helztu sam- starfsmenn hans innanborðs, hrapaði logandi til jarðar í frumskóginum nálægt Ndola í Zambíu, á leið frá Leopoldville fyrrum höfuðborg Kongó, sem nú er Kinsasa í Zaire, 17, september 1961. EvaPeron endanlega jarösett Eva Peron: Lík hennar hefur verið á ferðalögum, en nú hefur henni verið fundinn endanlcgur legstaður. Lík Evu Peron, eiginkonu Perons fyrrum forseta Argentínu, hefur nú verið flutt til hinztu hvíldar í Buenos Aires, graf- hvelfingu þar í borginni, að sögn talsmanns stjórnarvalda. Smurt lík Evu, sem var önnur eiginkona Perons og lézt árið 1952, var flutt með leynd til Ítalíu árið 1955 og jarðsett þar. Síðar var því skilað til dvalarstaðar Perons í útlegð hans á Spáni árið 1971 og að lokum flutt til Argentínu árið 1974 þar sem því var komið fyrir í viðhafnarsal for- setahallarinnar. Sjálfur andaðist Peron árið 1974 eftir að hann fékk að snúa heim og var kjörinn forseti á nýjan leik. Lík hans og Evu lágu á viðhafnarbörum í forsetahöllinni, jafnvel eftir að herinn hafði tekið völdin og hrundið Isabellu Peron úr valdastóli í marz sl. Ekki var hægt að flytja líkin fyrr en þeim hefði verið fundinn öruggur staður. Líkami Perons er ennþá í forsetahöllinni. Eva Peron hvllir nú í fjölskyldugrafreiti og unnu sér- fræðingar í byggingu bankahólfa aðgerð grafarinnarsemer tuttugu metrum'undir yfirborði jarðar. BigBen hljómar á ný — en aöeins í stuttan tíma Vísar klukkunnar frægu, Big Ben, sem er tákn hinnar brezku heimsborgar um allan heim, hreyfðust enn á ný nú i vikunni eftir viðgerð á klukkunni. Samt verða Lundúna búar að sætta sig við það, að hljómar klukkunnar hljóðni á ný, því umfangsmikil viðgerð er fyrir- huguð og mun hún standa yfir I a.m.k. tvær vikur. Klukkurnar í Westminster og Big Ben, eru orðnar mjög úr sér gengnar af elli. 'ZZS& §gMmjét .. Mannabeinin hafa legið á fjallinu I meira en 40 ár, LEIFAR LEIÐANG- URSINS FUNDNAR — lögðu upp fyrir tæpum 40 árum Sveit indverskra fjallgöngu- manna hefur fundið leifar frá hinum sögufræga svissneska fjall- gönguhópi er hugðist klífa tinda Himalayjafjalla árið 1939, að sögn fréttastofunnar Samachar í Nýu-Dehlí. Indverjarnir fundu höfuðkúp- ur manna og mannabein, brotnar ísaxir, rifna svefnpoka og gamlar gerðir af fjallgönguskóm í 5.400 metra hæð. Tveir burðarmenn létu lífið í l^iðangrinum. Þá hafa Indverjarnir sagt, að þeir hafi fundið vatnsflösku merkta „A. Roch“, peningaveski með mynt frá Nepal frá árinu 1938 og sígarettuveski. Svo virðist sem vatnsflaskan sé eign André Roch, sem var leiðangursstjóri, en ætlun hans var að klífa Chowkhumbatind, sem er 7.026 metra hár. Fréttastofan segir, að Abdul Rahim, leiðangursstjóri ind- verska hópsins, hafi ritað Andre Roch bréf til Zurich, og boðizt til þess að skila gripunum. Tjáningarfrelsi er'éin meginforsenda þess ud frelsi geti vidhaldizt iðj i samfélagi. yl HÚSGÖGN (cr> RAFTÆKI HALLVEIGARSTÍG 1 SÍMI10520 GLÆSILEG SÉRVERZLUN MEÐ HÚSGÖGN, RAFTÆKI 0G GJAFAV0RUR Þetta glœsilega sófasett höfum við í verzluninni ásamt fjölda annara tegunda SÉRSTAKLEGA HAGSTÆÐ KJÖR NÆG BÍLASTÆÐI

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.