Dagblaðið - 29.10.1976, Page 7

Dagblaðið - 29.10.1976, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTl'DAGUR 29. OKT.ÖBER 1976. Belfast: Enn helzti leiðtogi IRA myrtur á sjúkrahúsi ígær Þrír ungir menn, klæddir sem læknar, komust inn á spít- ala í Belfast í gærk'völd og réöu þar af dögum frú Marie Drumm, sem þar til nýlega var talin einn helzti leiðtogi stjórn- málaarms skæruliðahers trskra lýðveldissinna, IRA. Lögreglan hefur ekki viljað geta sér til um það hverjir mennirnir vord, en óttazt er að morðið verði tilefni hefndar- ráðstafana sem bitna muni á liinhverjum háttsettum leíðtoga mótmælenda. Mennirnir þrír, sem enn hafa ekki verið borin kennsl á komust inn á Mater- sjúkrahúsið í Belfast og skutu frú Drumm á stuttu færi til ólífis. Önnur kona á stofunni særðist lítillega. Frú Drumm, sem var þekkt fyrir ákafléga harða andstöðu sína gegn brezkum yfirráðum á Norður trlandi, hætti störfum sem varaformaður Sinn Fein armsins af IRA fyrir skömmu af heilsufarsástæðum. t yfirlýsingu frá Sinn Fein var „morðhundum konungs- hollra mótmælenda" kennt um verknaðinn og voru kaþólskir hvattir til þess að herða barátt- una gegn brezkum yfirráðum Genfarfundurinn um Ródesíu: lan Smith og blökku- mannaleiðtogamir augliti til auglitis — í fyrsta skipti í dag er þeir ávarpa ráðstefnuna Ian Smith, forsætisráðherra, minnihlutastjórnar hvítra manna í Ródesíu, mun í dag í fyrsta skipti setjast augliti til auglitis við leiðtoga fjögurra áhrifamestu þjóðernis- og skæruliðahreyfinga blökkumanna í landinu, á Ródesíuráðstefnunni í Genf í Sviss. Ekki er talinn leika vafi á að ágreiningur Smiths og blökku- mannaleiðtoganna fjögurra muni koma i ljós um leið og þeir hefja mál sitt við fundarborðið í dag. Ráðstefnan hófst í gær, að vísu hikandi og í megnri óánægju. Það eru Bretar, sem hafa efnt til þessarar ráðstefnu, en henni er ætlað að koma á bráða- birgðastjórn i Ródesíu þar til meirihlutastjórn blökkumanna tekur við völdum innan tveggja ára. Blökkumannaleiðtogarnir hafa sett fram þá kröfu, að Erlendar fréttir Allt er þá þrennt er Dauðadæmdur morðingi á Filippseyjum, Marcello San Jose, slapp við að dómnum vrói fullnægt af aftökusveit og lifði síðan af setu í rafmagns- stólnum. I þriðja skiptið var hann ekki eins heppinn: Hann var dæmdur til dauða fyrir þrem árum fyrir að myrða vörubílstjóra, en Marcos for- seli breytti líflálsdómnum fyrir framan aftökusveit i af- tiiku i rafmagnsstól. San Jose dó í rafmagnsstólnum i síðustu viku eftir að hafa lifaö af fyrstu tilraun lil aftöku, er 9.300 volta straumi var hleypt á líkama hans sagði talsmaður varnarmálaráðuncytisins. ráðstefnan samþykki að Ródesía hljóti sjálfstæði undir þeirra stjórn innan tólf mánaða, áður en þeir vilja hefja umræður um myndun bráðabirgðastjórnar- innar. Tilkynnt var í Washington í gær, að William Schaufele, aðstoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna, myndi halda til Genfar til að sitja ráðstefnuna. Frá Salisbury í Ródesíu bárust þær fréttir í morgun, að skæruliðar hefðu hafið nýja sókn gegn stjórninni þar. Sprengdu þeir upp járnbrautar- teina helztu samgönguleiðarinnar í gegnum Ródesíu á milli Botswana og Suður-Afríku. Hvlt hjón voru og myrt í upphafi þessarar nýju sóknar. Umræðurnar um Ródesíu hefjast í dag i Genf. en setning fundarins tafðist í gær vegna deilna um stöðu Ivor Richards, formanns umræðu- nefndarinnar, sem er fulltrúi Breta. Hér iná »já Ian Smith, forsætis- ráðherra Ródesíu. koma af fundi með Riehard. Tékkóslóvakía: RÆNDIFLUGVÉL TIL ÞÝZKALANDS 0G VARD EFTIR — en vélin lenti á ný í Tékkóslóvakíu í morgun Tékkneskri flugvél, sem rænt var í gær og flogið til V-Þýzkalands, var flogið aftur til Prag i nótt. Vopnaður maður rændi flug- vélinni, sem er af gerðinni Ilyushin 18, á flugbrautinni á Prag-flugvelli. Hann var hand- tekinn strax eftir lendinguna i Munchen i gærkvöldi. Allir farþegarnir 105 fóru aflur urn borð ásamt áhöfninni eftir að liigreglumenn höfðu yfirheyrt þá og þeir fengið mat og drykk. Flugræninginn, Rudolf Bec- var, sem er 28 ára að aldri, var enn við yfirheyrslur hjá lög- reglunni. Sagt var í utanríkis- ráðuneytinu í Bonn, að tékk- nesk yfirvöld hefðu krafizt þess, að flugvél, farþegum og áhöfn, ásanit flugræningjanum, yrði skilað umsvifalaust. Eftir dómsúrskurð var Becvar leyft að dveljast i landinu á meðan mál tyans verður rannsakað. EHRLICHMAN HEFUR AFPLÁNUN DÓMS John Ehrlichman, sem fyrr- um var einn valdamesti maður Bandaríkjanna sem nánasti ráðgjafi Nixons fyrrum forseta fór í gær í fangelsi I Arizona fyrir aðild sína að yfir- hylmingu Watergate-málsins og tengdra glæpa. Ehrlichman kaus að hefja afplánun dóms síns, sem var allt að fimm ára fangelsi.í stað þess að blða niðurstöðu áfrýjunardómsins til Hæsta- réttar Bandarikjanna. Ríkisfangelsið, þar sem Ehrlichman er nú, geymir aðallega Mexikana, sem brotið hafa innflytjendalög Banda- ríkjanna. Fangar þar fram- leiða fatnað til notkunar i ýms- um ríkisstofnunum. útkeyrsluna á Háaleitisbraut Vörumarkaðurinn hf. ÁRMÚLI 1 A MATVÖRUDEILD 86-111 — HUSGAGNADEILD 86-112 HEIMILISTÆKJADEILD 81-680 — VEFNAÐARVÖRUDEILD 86- 113 SKRIFSTOFAN 86-114

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.