Dagblaðið - 29.10.1976, Síða 28
Vafasamt að flug-
rekstrarieyfi Vængja
verði nú endumýjað
— þar eð félagið uppfyllir ekki öll skilyrði til þess
frfálst, úháð dagblað
FÖSTUDAGUR 29. OKTOBER 1976.
Dagur iðnaðarins á
Egilsstöðum:
lírbeinad hrein-
dýrslæri og blá-
ber á milli sýn-
inga og umræðna
Líkur benda til, að allt flug
flugfélagsins Vængja hf. legg-
ist niður nú um mánaðamótin,
þegar flugrekstrarleyfi félags-
ins rennur út.
„Það er augljóst mál, að
félagið fær ekki flugrekstrar-
leyfi sitt endurnýjað nema það
uppfylli öll skilyrði, sem sett
eru,“ sagði Agnar Koefod-
Hans,en, flugmálastjóri, í sam-
tali við fréttamann blaðsins í
gær. „Félagið uppfyllir ekki öll
skilyrði nú,“ sagði Agnar enn-
fremur.
Eins og skýrt hefur verið frá
í DB hefur yfirflugvirki félags-
ins hætt störfum hjá því og
annar ekki fengizt, enda
skortur á slíkum starfskröftum
hérlendis. Hefur félagið nú
engan til að skrifa vélarnar út
fyrir skoðun sem er á næsta
leiti. Flugrekstrarleyfi Vængja
— sem og annarra flugfélaga —
var veitt til þriggja ára 1973 og
fellur leyfið úr gildi um mán-
aðamótin. Umsókn um endur-
nýjun á leyfi félagsins barst
samgönguráðuneytinu 21.
þessa mánaðar.
Fyrirhugað var að taka þetta
mál til umræðu á fundi flug-
ráðs í gær, en af því varð ekki.
Takist Vængjum ekki að útvega
Á Reykjanesbrautinni:
ÓK ÚT AF OG LENTI Á RAFMAGNSSTAUR
— háiku mun vera um að kenna
Lögreglunni í Keflavík var
tilkynnt í gærkvöld um ellefu-
leytið að fólksbíll hefði lent út
af Reykjanesbrautinni á móts
við Njarðvík. Bíllinn hafði
runnið til í hálku og vildi svo
óheppilega til að hann lenti á
ljósastaur sem bar einnig uppi
rafmagnslinur.
Staurinn virðist hafa verið
orðinn fúinn, því að hann
brotnaði í miðjunni og féll
þvert yfir veginn. Um tima
lokaði hann því veginum. Þegar
í stað þurfti að taka rafmagnið
af línunum en þegar rafveitu-
stjórinn kom á vettvang tókst
ekki betur til en svo, að hann sá
ekki rafmagnslínurnar og ók á
þær.
Engin slys urðu á fólki í
þessu óhappi, hvorki á bílstjóra
bílsins, sem lenti út af, farþega
hans né rafveitustjóranum.
Bíllinn, sem var af Ford Pinto
gerð, mun vera mikið
skepimdur.
—AT
Pinto-inn var gjoronýtur eftir áreksturinn við staurinn a Reykjanesbraut
(DB-mynd EMM)
Ríkisskattanefnd
er ekki lengur til
— nefndarmenn telja sig ekki hafa óvéfengjanlegt umboð til að
gegna störfum áfram, þar eð nefndin var aðeins skipuð til 1. okt.
Ríkisskattanefnd, æðsta yfir-
vald skattamála innan stjórn-
kerfisins, er ekki til lengur.
Skipunartími þeirra manna, er
áttu sæti i nefndinni, rann út
uin sl. mánaðamót og hefur
ekki verið skipað aftur í nefnd-
ina.
„Það er millibilsástand í
þessu," sagði Höskuldur Jóns-
son, ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, í samtali við
fréttamann blaðsins um þetta
máí. „Það er ekki alveg hægt
að skera úr um hvort nefndin
til eða ekki, því það er ágrein-
ingur um hvort umboðið hafi
fallið niður eða ekki.“
Að sögn Höskuldar Jóns-
sonar telur ríkisskattanefnd
— sem i áttu sæti sem aðal-
menn þeir Guðmundur Skafta-
son, hrl., Atli Hauksson, lögg.
endurskoðandi, og Jóhannes
L.L. Helgason, hrl. — sig ekki
lengur hafa óvéfengjanlegt um-
boð til að starfa áfram. Kvaðst
Höskuldur vænta þess, að í dag,
föstudag, verði málið tekið til
sérstakrar athugunar í ráðu-
neytinu, svo og vinna við
væntanlegt skattalagafrum-
varp. „Við munum taka á því
hvernig við viljum ganga frá
þessu máli,“ sagði Höskuldur.
Hann vildi ekki „á þessu stigi
málsins" segja til um hvort
breytingar á hlutverki nefndar-
innar væri að vænta með nýjum
skattalögum og bætti við að
auðvelt væri að endurnýja um-
boð nefndarmanna; til þess
hefði e.t.v. ekki unnizt timi
vegna anna við fjárlagafrum-
varpsgerð.
Nefndin skilaði fjármála-
ráðuneytinu greinargerð um
störf sín áður en skipunartimi
hennar rann út, að sögn
Höskuldar, og biðu þá mjög fá
mál úrlausnar.
Guðmundur Skaftason, form.
nefndarinnar, vísaði á ráðu-
neytið þegar fréttamaður
blaðsins hafði tal af honum í
gæi kvöldi.
— OV.
sér flugvirkja með nægjanleg
réttindi fyrir mánaðamót,
verður leyfið ekki endurnýjað
og stöðvast þá flugfloti félags-
ins.
1 gær reyndi Dagblaðið ár-
angurslaust að ná tali af Guð-
jóni Styrkárssyni, stjórnarfor-
manni Vængja, til að spyrjast
fyrir um þetta mál.
— ÖV.
____
Litasjónvarpasmyglið:
Tollarar
áttu enga
aðild
„Það hefur ekkert það komið
fram við rannsóknina, sem bendir
til þess að tollverðir hafi ált
nokkra aðild að litsjónvarpa-
smyglinu,“ sagði Þórir Oddsson,
aðalfulltrúi yfirsakadómarans í
Reykjavík, sem annazt hefur
rannsókn litsjónvarpasmyglsins, í
samtali við fréttamann DB í gær.
Rannsókn málsins er nú að
mestu lokið og hafa allir þeir, sem
hnepptir voru í gæzluvarðhald
vegna aðildar (og í einu tilfelli
meintrar aðildar) að því, verið
látnir lausir.
„Nú förum við yfir þetta og
athugum hvort einhverjir endar
eru lausir, hvort okkur hefur sézt
yfir eitthvað," sagði Þórir enn-
fremur.
Hann kvaðst væntanlega geta
gert nánari grein fyrir málinu og
rannsókn þess í dag, föstudag.
— ÓV.
„Fagurt haustveður heilsaði
góðum gestum á degi iðnaðar-
ins hér á héraði,“ sagði Bjarni
Arthúrsson, fréttaritari Dag-
blaðsins á Egilsstöðum í viðtali
við blaðið í morgun.
Iðnaðarráðherra Gunnar
Thoroddsen og kona hans frú
Vala Asgeirsdóttir Thoroddsen
komu austur á Hérað í gær.
Hingað komu einnig forráða-
menn íslenzks iðnaðar. Gestir
og heimamenn skoða í dag
iðnaðarfyrirtækin Brúnás, sem
er byggingarfyrirtæki, Prjóna-
stofuna Dyngju og Trésmiðju
Fljótsdalshéraðs.
Hádegisverður með úr-
beinuðu hreindýrslæri og blá-
berjum verður snæddur í boði
hreppsins að Valaskjálf. Að
loknum málsverði skoða gestir
sýningu 24 iðnaðaraðila, sem
sett var upp í Valaskjálf. Þessir
aðilar eru úr þjónustu-, bygg-
ingar-, og framleiðsluiðnaði.
Þar eru meðal annars tveir
sýningarbásar þar sem sýndur
er unninn viður úr Hallorms-
staðaskógi. Annars vegar eru
þar listmunir, hins vegar
fundarborð og stólar úr fundar-
herbergi Kaupfélags Héraðs-
búa. í því er viður á veggjum úr
Hallormsstaðaskógi og húsgögn
öll.
Almennur fundur um
iðnaðarmál verður þá haldinn.
Gunnar Thoroddsen iðnaðar-
ráðherra flytur þar ávarp en
framsöguræður flytja þeir
Erling Garðar Jónasson oddviti
og Björn Bjarnasön, formaður
Landssámbands iðnverkafólks.
Iðnaðarráðherra hefur boð
inni fyrir gesti dagsins og
heiðrar aðila úr iðnaði á Egils-
'stöðum. Sýningar í tilefni dags-
ins eru haldnar í Búnaðarbank-
anum og Samvinnubankanum á
Egilsstöðum. Þá er einnig
sýning á flugvellinum, sem
Brúnás stendur að. —BS.
ÁÐUR
ÓÞEKKTAR SLÓÐIR
Fyrsti hópur þess Flugleiða-
fólks, sem mun vinna að flutn-
ingi pílagrímanna frá Nígeríu
til Saudi-Arabíu leggur, af stað
á sunnudaginn. Var haldinn
fundur með flugliðum, flug-
freyjum og þjónum og öðru
starfsfólki á Hótel Loftleiðum í
gær. Allir sem í flutningunum
taka þátt, sem eru alls 109
manns, hafa verið bólusettir
gegn ýmsum hitabeltissjúk-
dómum og auk þess gegn „lifar-
vírus" sem orðið hefur vart við
í Afríku að undanförnu.
Yfirstjórnandi flutninganna
verður Þórarinn Jónsson, yfir-
maður flugliðs Guðlaugur
Helgason, yfirflugfreyja Erla
Agústsdóttir, rekstrarstjóri
Baldur Maríusson, stöðvarstjóri
í Jedda verður Jón Óskarsson
og yfirflugvirki Jóhannes
Jónsson. —A.Bj.
Myndin.sýnir áhafnirnar
DB-m.vnd Sveinn Þormóðsson.