Dagblaðið - 27.11.1976, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 27. NOVEMBER 1976.
1
Flug Vængja fer að
komast í eðlilegt horf
Erlendi
flugvirkinn
loks kominn
Bandaríski flugvirkinn lang-
þráði, sem Vængir hafa átt von á
marga undanfarna daga, er nú
loks kominn til landsins og
byrjaður að vinna þannig að vonir
standa til að önnur 19 manna
Ottervél félagsins komist í gagnið
í dag. Mótorar hinnar Otter-
vélarinnar er hins vegar enn i
viðgerð erlendis, svo hún kemst
varla í gagnið fyrr en í desember,
væntanlega fyrir mestu jólaum-
ferðina.
Nú sem stendur fljúga Vængir
aðeins einni vél, tíu manna
Islander-vél. Hefur hún snúizt
myrkranna á milli í bókstaflegri
merkingu þvi með nýrri reglu-
gerð má ekki lenda á mjög van-
búnum flugvöllum fyrr en 45
mínútum eftir sólarupprás og þar
til 45 mínútum fyrir sólsetur.
Flestir þeir flugvellir sem Væng-
ir fljúga til falla undir þetta
ákvæði.
-G.S.
Viðbót og
leiðrétting við
Húsavíkurgrein
Eitt þarf að leiðrétta og öðru
við að bæta, sagði Ásmundur
Bjarnason fréttaritari DB á Húsa-
vík og átti við grein sína um leik-
starf á Húsavík í fimmtudags-
blaðinu. Það er ekki rétt að
Gunnar Eyjólfsson hafi stjórnað
uppsetningu á Pétri Gaut er Leik-
félagið á Húsavík réðst í það stór-
virki að setja það á svið. Gunnar
lék hins vegar titilhlutverkið með
miklum glæsibrag. Það var
Sigurður Hallmarsson sem var
leikstjóri og annaðist uppsetning-
una. Þá er því við að bæta að
myndir er greininni fylgdu tók
Ljósmyndastofa Péthrs á Húsa-
vík.
Leikfélag Húsavíkur glímir nú
við franskan gamanleik og verða
næstu sýningar um þesa helgi.
-ASt.
Grímnir í
Stykkishólmi
með nýtt
leikrit
„Við erum búin að æfa þetta
leikrit undanfarnar 5 vikur á
hverju kvöldi og árangurinn
kemur í ljós í kvöld,“ sagði
Hannes Stigsson í samtali við DB.
Leikfélagið Grímnir í Stykkis-
hólmi setur nú upp sitt 12. verk-
efni en það er bandarískur gam-
anleikur sem nefnist Hlauptu af
þér hornin og er eftir Neil Simon.
Hjörtur Halldórsson hefur þýtt.
Leikurinn verður frumsýndur í
kvöld kl. 21.00 og önnur sýning
verður sunnudaginn 28. klukkan
16.00. Báðar sýningarnar verða i
félagsheimilinu í Stykkishólmi.
Grímnir hefur farið víða með
verk sín, sýnt víða á Vesturlandi,
í Kópavogi og í Reykjavík.
Leikstjóri nú er Þorvaldur
Ólafsson frá Stykkishólmi en með
aðalhlutverk fara m.a. Bergur
Hjaltalín, Hjálmdís Hjálmars-
dóttir, Hannes Stígsson, Sigrfður
H. Jóhannesdóttir, Guðmundur
Agústsson og Þuríður Gísladóttir.
-KP
Aðventukvöld
í Kafnarfirðl
Sunnudaginn 28. nóvember verður haldið
aðventukvöld í Hafnarfjarðarkirkju og hefst
þaðk! 20.3G.
A dagskráer erindi sem dr. Vilhjálmur Skúla-
son prófessor flytur. einleikur á selló, ein-
leikur á trompet og samleikur á hlásturs-
hljóðfæri. flytjendur eru Páll Gröndal. skóla-
stjóri Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. og
nemendur I skólanum. kvennakór Hafnar-
fjarðarkirkju syngur nokkur lög. organleik-
ari kirkjunnar leikur á orgelið og prófastur-
inn, sr. Garðar Þorsteinsson. flytur ávarp.
Samkoman hefst kl. 20.30 eins og fyrr segir.
18 milljón króna kjallar-
inn í beinni samkeppni
við íþróttastarfið?
Félagsstarfið sem Víkingar hafa byggt upp af dugnaði stórlega
vanmetið að þeirra dómi
„Það er ekki um of að segja
að farið sé yfir bæjarlækinn til
að ná í vatn,“ sagði Jón
Aðalsteinn Jónsson formaður
Víkings í samtali við Dagblaðið
í gær. „Nú er risið hér í
Bústaðahverfi nýtt félags-
heimili í kjallara kirkjuyfir-
valda sem er í beinni sam-
keppni við félagsheimili Vík-
ings steinsnar frá. Við höfum
staðið í basli við að bæta úr
félagslegri aðstöðu ungling-
anna. Við höfum náð stórkost-
legum árangri og margfaldað
félagsstarfið. En við höfum allt-
af átt við fjárskort að striða og
80-90% af tíma þeirra manna,
sem í sjálfboðastarfi vinna og
hafa unnið að þessum málum,
fer í öflun fjár. Svo kemur
borgin, sem neitar okkur um
aukið fé, og innréttar félags-
heimili við lóðarjaðar okkar
fyrir 18 milljónir króna. Þá
skortir ekki fé. Svo er hringt í
okkur og við beðnir að láta nú
fólk koma svo nýta megi
„milljónakjallarann“.“
Jón Aðalsteinn sagði að
Víkingar hefðu með glöðu geði
látið af hendi húsnæði til enn
meiri félagsstarfsemi en þeim
hefur tekizt að byggja upp.
Takmörk uppbyggingarinnar
hafa alltaf verið fjármálin. Þó
voru t.d. á þessu ári keyptir
stólar og aðrir innanstokks-
munir fyrir milljón króna.
Jón Aðalsteinn sagði aðstöðu-
mun íþróttafélaganna 1 saman-
burði við Æskulýðsráð vera
óskiljanlegan. „íþróttafélögin
hafa ekki efni á að launa menn
til að standa í starfi. Öll vinnan
er sjálfboðastarf. Einn íþrótta-
fulltrúi Reykjavíkur á að anna
samskiptum við öll félög um
allan bæ og einnig að huga mik-
ið að skólaíþróttamálum.
Hins vegar er svo
Æskulýðsráð sem á fáum árum
hefur byggzt upp með skrif-
stofubákni og 10-12 manna fast-
ráðnu starfsliði. Fjármagni er á
stundum ausið út og lítt sem
ekki hugsað um hvaða árangur
er líklegur eins og nú er raunin
á orðin 1 Bústaðahverfi, þar
sem keppt er við þann aðila
sem hafði tekizt að skapa hvað
bezta aðstöðu allra íþrótta-
félaga bæjarins í sínu heima-
hverfi." -ASt.
aóvenlukransar
l^^irflx
jólaskraul
aóvenfluskreytingpr
jólastemningin k§mwT með
ojAðventukrönsunum frá
v/Miklatorg