Dagblaðið - 27.11.1976, Síða 24
Rúmur þriðjungur fulltrúa á ASÍ-þingi úr Alþýðubandalaginu
Hinir róttækustu vilja
hrekja ríkisstjómar-
liöa úr miðstjóm
Alþýðubandalagsmenn munu
verða 130-140 á væntanlegu
Alþýðusambandsþingi, sjálf-
stæðismenn um 100, fram-
sóknarmenn tæplega 60 og
alþýðuflokksmenn tæplega 60.
Övíst er um flokk 20-30 full-
trúa. Af þessu má nokkuð ráða
um línurnar á þinginu en þar
má búast við talsverðum átök-
um.
Talsvert sterkur hópur innan
Alþýðubandalagsins stefnir nú
að því að fella sjálfstæðis- og
framsóknarmenn úr miðstjórn
sambandsins, að minnsta kosti
suma þeirra. I forystu í þessum
hópi alþýðubandalagsmanna
munu vera Bjarnfríður Leós-
dóttir, Akranesi, Baldur
Óskarsson, nýkominn i Alþýðu-
bandalagið úr Samtökunum,
fulltrúar frá Siglufirði og fleiri.
Hinir rólegri alþýðubandalags-
menn hafa fremur talið að
áfram skyldi verða í miðstjórn-
inni samvinna manna úr öllum
flokkum á breiðum grundvelli.
Hinir róttækari leita hins vegar
samvinnu alþýðubandalags- og
alþýðuflokksmanna um að-
gerðir gegn fylgjendum ríkis-
stjórnarinnar. Eins og sést af
framangreindum tölum er
um Rélmingur þingfulltrúa úr
Alþýðubandalagi og Alþýðu-
flokki. Athygli beinist að þessu
máli.
Ennfremur má búast við
hörðum ágreiningi um stefnu-
skrá ASl sem drög hafa verið
lögð að. Hinir róttækari alþýðu-
bandalagsmenn vilja að stefnu-
skrá Alþýðusambandsins verði
sem næst stefnuskrá Alþýðu-
bandalagsins. Þetta minnir á þá
tíma þegar AÍþýðusamband og
Alþýðuflokkur voru eitt.
Björn Jónsson er talinn
öruggur um að verða endur-
kjörinn forseti. Líklegt er talið
að Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, formaður Sóknar, reyni
að ná varaformannssæti af
Snorra Jónssyni.
-HH
Barnaspítali Hringsins
eykur læknisþjónustuna
Nú er að fara af stað aukin
þjónusta barnadeildar Land-
spítalans. Heimilis- og vakt-
læknar geta nú vísað veikum
börnum til deildarinnar til
skoðunar og þar verður síðan
tekin ákvörðun um hvort
sjúklingurinn þurfi að leggjast
á sjúkrahúsið eða megi fara
heim.
Læknar deildarinnar hafa
boðizt til að veita þessa
þjónustu og er hún nú þegar
hafin vegna þeirrar aukningar
á heilahimnubólgu sem vart
hefur orðið undanfarið.
Gerir þetta Landspítalann
virkari í hinni almennu heil-
brigðisþjónustu, elnkum þegar
um bráð veikindi er að ræða.
Hafa læknar spítalans lengi
haft áhuga á aukinni þjónustu
af þessu tagi en erfitt hefur
reynzt að finna slikri starfsemi
stað í spítalanum vegna
þrengsla.
Þessi nýja þjónusta barna-
deildarinnar kemur einkum í
góðar þarfir í þeim tilvikum
þegar vaktlæknir telur sig‘
ekki geta sinnt nógu fljótt þeim
verkefnum.sem fyrir liggja
hverju sinni eða að læknirinn
álítur sjúklinginn þarfnast
nánari rannsóknar en hægt er
veita honum í heimavitjun.
Eins og margoft hefur verið
bent á, bæði af borgarlækni og
landlækni, ber að bregða skjótt
við ef grunur leikur á að barn
hafi fengið heilahimnubólgu.
Getur stundum orðið bið á því
að vaktlæknir komist í
vitjunina og getur því þessi
nýja þjónusta Barnaspítala
Hringsins i Landspítalanum
orðið til þess að barnið komist
strax undir læknishendur. -A. Bj.
UNG DB-STÚLKA í EYJUM!
„Hvað ungur nemur gamall
temur" segir máltækið og það
fer ekki á milli mála, að frétta-
ritari Dagblaðsins I Vestmanna-
eyjum, Ragnar Sigurjónsson,
hefur tileinkað sér það i upp-
eldi dóttur sinnar, hennar Guð-
bjargar, sem aðeins er sjö
mánaða gömul.
Nú þegar er hún farin að
hafa áhuga á Dagblaðinu, eins
og margir aðrir landsmenn, og
að sögn kunnugra ætlaði hún að
gleyþa það af áfergju er hún
fékk það i hendurnar.
-JB/DB-mynd R.S.
fxjálst, nháð daghlað
LAUGARDAGUR 27. NÓV 1976.
Ógild og stolin
ávísanaeyðublöð
í umferð
— Engin eyóublöö
frá Sparisjóði
alþýðu eru gild
I umferð hafa komizt
ávísanir sem útfylltar eru á
eyðublöð útgefin af Spari-
sjóði alþýðu. Sá sparisjóður
var undanfari
Alþýðubankans, en
umskiptin úr sparisjóði í
banka og nafnbreyting í
samræmi við það fór fram
1971. Eyðublöð sem Spari-
sjóður alþýðu lét prenta og
afhenti eru því löngu úr'
umferð.
Að minnsta kosti ein slík
ávísun hefur nú verið inn-
leyst og þá hófst rannsókn
málsins. Kom i ljós að úr
geymslukössum frá timum
skiptanna milli sparisjóðsins
og bankans hafði verið stolið
ávísanahefti. Voru þar tveir
pakkar slíkra hefta, annar
hefur verið rifinn upp og í
hann vantar hefti.
Avísanirnar i heftinu bera
númerin 56251-56275. Á
ávísanaeyðublöðin er
prentað nafnið Verka-
mannafélagið Dagsbrún og
einnig er þáverandi
reikningsnúmer Dagsbrúnar
prentað á eyðublaðið en
reikningur félagsins var
númer 93.
Á ávísanablaðinu, sem
komið er inn í bankakerfið
úr þessu stolna heft'i. er
reikningsnúmerinu breytt.
Er tölustöfunum 40 bætt
aftan við prentaða númerið
á eyðublaðinu þannig að
svo lítur út sem eyðublaðið
sé nr. 9340.
Ávísunin sem inn kom er
númer 56256, þannig að hún
er sjötta eyðublaðið úr
stolna heftinu. Ekki er
vitað hvort þessu eyðublaði
hefur verið kippt innan úr
heftinu eða búið sé að setjai
fleiri ávísanir úr heftinu í
umferð. En nú ættu allir
að vara sig á ávísanaeyðu
blöðum með fyrrnefndum
einkennum. -ASt.
Albert Kemp um átök varðskipsmanna og heimamanna á Fáskrúðsfirði:
Varöskipsmenn sóttu ískyifur
um borö og héidu upp í bæinn
— Lögreglan og stýrimaður á Þór ákváðu að gleyma málinu
Það gleymdist alveg að geta
þess að varðskipsmenn náðu I
ískylfur um borð og gengu upp
í bæinn vopnaðir þeim, sagði
Albert Kemp frá Fáskrúðsfirði
í viðtali við DB í gær vegna
frásagnar í blaðinu þann 19.
þ.m. um aðsúg að varðskips-
mönnum á Fáskrúðsfirði. Þá
sagði hann einnig að fullt sam-
komulag hefði orðið með
stýrimanni á Þór og
lögregluþjóni á staðnum að láta
þetta mál niður falla, sennileg-
ast vegna þess að aðgerðir
beggja deiluaðila orkuðu
tvímælis.
Þá sagði Albert að þetta atvik
hefði ekki gerzt í þorska-
stríðinu, heldur i desember
1974. Átaldi hann Helga Hall-
varðsson, skipherra á Þór, fyrir
að hafa gleymt heilum tveim
árum, en Helgi var heimildar-
maður blaðsins.
Undirritaður blaðamaður
tekur fram að hann kann
hugsanlega að eiga einhverja
sök á þessari iunaskekkju,
enda vannst ekki timi rii aó iesa
frásögnina fyrir Helga.
Albert er vara-oddviti á
Fáskrúðsfirði og einnig frétta-
ritari Morgunblaðsins þar. I
frétt sem höfð er eftir honum í
Morgunblaðinu 4. des. 1974
segir orðrétt undir fyrirsögn-
inni: Fáskrúðsfjörður: Átök
varðskipsmanna og ttnglinga á
staðnum:
,.Að siign Alberts Kemp.
fréttaritara Mbl. á staðnum, var
haldið Lionsball í Skrúði um
kvöldið. Nokkru eftir að því
lauk upphófust slagsmál, og
voru upptökin þau, að
unglingar á staðnum veittust að
einum varðskipsmanna. Náðu
varðskipsmenn'þá í ískylfur, en
einn heimapiltanna sótti hagla-
byssu og skaut hann einu skoti
upp í loftið Að sögn Alberts
tóku varðskipsmenn piltinn og
fluttu til skips, en honum var
síðan sleppt, eftir að lögreglan
á staðnum hafði blandað sér í,
málið. Sagði Albert, að sem
betur fer hefði enginn meitt sig
að ráði í þessum átökum, tveir
menn væru með smávegis sár
eftir ískylfur varðskipsmanna.
Lögregluþjónar frá Eskifirði
héldu uppi löggæzlu í sambandi
við dansleikinn, en þeir voru
farnir þegar atburðirnir
gerðust.
Mbl. hafði samband við Valtý
Guðmundsson sýslumann á
Eskifirði vegna þessa máls.
Hann sagði, að 3 lögregluþjónar
frá Eskifirði hefðu verið á
ballinu, og væri þeim ekki
kunnugt um að til átaka hefði
komið. Þá sagði hann, að
læknirinn á staðnum hefði
enga menn fengið til meðhöndl-
unar þessa nótt."
Er Albert var að því spurður
hvort varðskipsmenn hefðu
farið eftir ísk.vlfunum til að
aðstoða skipsfélaga sina eða
félaga sinn í átökunum eða
aðeins til að lúskra á ungling-
unum eftir átökin, sagðist
hann ekki vilja fullyrða um það
en taldi það síðarnefnda nær
fullvíst.
Ekki var Albert að mæla
framkomu heimamanna bót í
þessu tilviki, eins og reyndar
kemur fram í frétt hans. en
hann vildi benda mjög ákveðið
á að varðskipsmenn væru engir
píslarvottar í þessu tilviki og
orkaði framkoma þeirra tví-
mælis alveg eins og heima-
manna. Að lokum tók hann
fram að hann mæti og virti
störf varðskipsmanna er þeir
væru að gegna skvldu sinni. og
þeir væru eftir sem áður
velkomnir.
-G.S.