Dagblaðið - 09.12.1976, Page 1
frfálst
úháð
daublað
2. AR(i. — FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976. — 278. TBU.
RITSTJORN SIÐÚMULA 12, SlMI 83322. AUGLYSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SIMI 27022-
/ \
Hugsanlegir
Suðurlands-
skjálftar:
Sums
staðar er
jafnvel
hætta á
manntjóni
— bls. 9
Slysið varð
honum að
mörgu leyti
til láns
— óvenjuleg saga
dansks
garðyrkjumanns
í Reykjavík
— sjá bls. 4
•
Páll Björgvins-
son gengur
í raðir fyrri
félaga í Víking
— sjá íþróttir
í opnu
— segir sýslumaður, en þrjár kærur liggja fyrir um fjármálamisferli
,,Viö höt'um leitaó að stúlkun-
um, sem varðhaldsfangi okkar
segist hafa verið með sem far-
þega, en engar fundið," sagði Jón
Eysteinsson sýslumaður í Kefla-
vík i viötali við Dagblaðið í ntorg-
un. „Lögreglumennirnir sem
handtóku fanga okkar sáu aldrei
neinar stúlkUr." bætti hann við.
Hann kvað rannsókn málsins vera
í fullum gangi og yfirheyrslur
hefðu farið fram í gær svo lengi
sem lög leyfðu og þeim væri hald-
ið áfram. „Það eru þrjár kærur á
umræddan mann unt fjármála-
misferli hér hjá okkur," sagði
sýslumaður, en vildi ekki gefa
upp hverjir kærendur væru.
„Varðandi það atriði í frétt
Dagblaðsins í gær, að lögreglan i
Keflavík hafi sett gildru fyrir
leigubílstjórann, sem handtekinn
var í fyrrinótt, fullyrði ég. að svo
var ekki. Lýsi ég furðu minni á
þeirri frásögn blaðsins_" sagði
Kristján Pétursson, deildarstjóri,
í viðtali við blaðið.
„Við höfum um nokkurt skeið
gert athuganir og kannanir á
hugsanlega ólögmætu athæfi
þessa manns á sviði viðskipta og
varðandi fleiri atriði. Leiddi þessi,
athugun til handtöku mannsins,"
sagði Kristján Pétursson.
Lögregluyfirheyrslur eru byrj-
aðar yfir leigubílstjóranum og
kvaðst Kristján hafa veitt aðstoð
við þær að beiðni bæjarfógetaem-
bættisins i Keflavík. Taldi
Kristján. að þetta kynni að verða
umfangsmikil rannsókn og taka
allnokkurn tíma.
Maðurinn, sem handtekinn var
með leigubílstjóranum, var látinn
laus, er hannhafði veriðyfirhe.vrð-
ur. Varðandi stulkur. sem Dag-
blaðið sagði í frétt í gær að verið
hefðu í bíl leigubílstjórans, sagð-
ist Kristján ekki telja neitt óeðli-
legt við það, þótt farþegar væru í
leigubíl. Hann kvaðst telja víst, að
lögreglan í Keflavík leitaði
þeirra.
Eitthvað af ótolluðu áfengi.
bjórkassi og tvær vodkaflöskur
fundust í biíreiðinni, þegar í
henni var leitað.
í gæzluvarðhaldsúrskurðinum
var þess getið, að leigubílstjórinn
væri talinn hafa orðið sér úti um
fé með ólögmætum viðskiptum.
Var vikið að viðskiptum við kaup-
mann nokkurn í Keflavík, verzl-
un á Akureyri, og játningu bíl-
stjórans um aðild að meintri ólög-
legri ráðstöfun á 15 lítrum af
spíra.
Sem fyrr segir, fara nú fram
lögregluyfirheyrslur yfir bílstjór-
anum. Honum hefur verið skipað-
ur réttargæzlumaður, Tómas
Gunnarsson, lögmaður.
-ASt.
Allt í háaloft hjá stjórnarflokkunum:
Ný skattalög eftir að fólk
hefur gert skattframtölin?
Allt hefur verið uppíloft í
stjórnarflokkunum vegna
skattafrumvarpsins. Málið
hefur tafizt vegna gagnrýni
ýmissa þingmanna á því.
uppkasti, sem til er að
frumvarpinu.
Nú er talið líklegast, að frum-
varpið verði alls ekki afgreitt
fyrir jólaleyfi þingmanna.
Kannski verður það sýnt á
þinginu fyrir jólin og kannski
ekki. Þá kæmi upp sú staða, að
launþegar yrðu að semja skatt-
framtöl sín Ljanúar, áður en
þeir vissu, hvaða skattalögum
yrði farið eftir!
Uppkastið var fyrir nokkru
lagt fyrir þingflokka stjórnar-
liðsins, en það komst ekki
áfram.
Þá yrði í þetta sinn að ganga
frá fjárlögum samkvæmt gömlu
skattalögunum, sem þó hefði
verið lýst yfir, að ætti ekki að
nota.
Skattafrumvarpið hefur að
mestu verið samið í fjármála-
ráðuneytinu. Þingmannanefnd,
sem átti að fjalla um málið,
mun ekki hafa komið saman í
marga mánuði.
Stóru mólin
óafgreidd enn
Fjárveitinganefnd hefur
haldið tíða fundi um fjárlögin.
Stóru málin voru enn óafgreidd
þar, þegar samband var haft við
nefndarmenn í gær. Hin
smærri mál hafa mörg verið
afgreidd í nefndinni.
Frumvarpið kemur líklega til
annarrar umræðu á þingi á
mánudag eða þriðjudag í næstu
viku.
Gestkvæmt er hjá nefndinni,
„stanzlaus erindi og viðtöi,“.
eins og einn nefndarmanna
komst að orði.
HH
Meia,
Nú er skoðað metið og vegið. Um margt er að velja. Og svo er að gá að því hvort buddan þolir það sem hugurinn vill. Myndin er tekin
í verzlun við Laugaveginn. DB-m.vnd Arni Páll.
„VIÐ HÖFUM LEITAÐ AÐ
STULKUNUM EN EKKIFUNDIД
Handtökumál
„leigubflstjórans”
í Keflavík:
r
„Þjóðinni stefnt í gjaldþrot 1980"
Sjá kjallaragrein Reynis Hugasonar bls. 11