Dagblaðið - 09.12.1976, Síða 9
DAGBLAÐIf). FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1976.
9
Guðjón Petersen um hugsanlega Suðurlandsskjálfta:
Sumstaðar jafnvel
hætta á manntjóni
— gæti orðið rafmagnslaust lengi á SV-iandi, jafnvel matvælaskortur
Samkværnt jarðskjáíftasögu
Suðurlands er jarðskjálfta þar,
sem mönnum og mannvirkjum
er hætt i, að meðaltali að vænta
á 21 árs fresti, þótt lengst hafi
liðið 119 ár milli skjálfta. Nú
eru liðin 64 ár frá jarðskjálfta á
austurhluta svæðisins og 80 ár
frá skjálfta á vesturhluta þess.
I grein sem Guðjón Petersen,
fulltrúi Almannavarna ritar í
nýútkomið fréttablað Rauða-
kross Islands, segir hann þessa
kyrrð vera orðna óhugnanlega
langa og boði hún hættu á stór-
skjálfta þar inrían langs tíma.
Um afleiðingar þess segar
Guðjón:
Verði jarðskjálftahrina á
Suðurlandi lík þeirri sem varð
1896, má búast við, að margt
manna í Rangárvalla- og Árnes-
sýslu muni missa heimili sín.
Sumstaðar má jafnvel reikna
með manntjóni og slysum allt
eftir upptakastað, styrkleika og
tímanum sem jarðskjálftinn
verður á. Búast má við miklu
tjóni á bústofni sem mun koma
hart niður á matvælaöflun fyrir
allt SV-land. Hugsanlega þarf
að flytja til tugþúsundir af búfé
vegna ónýtra útihúsa, mjalta-
kerfa o.s.frv. Allt aðaldreifi-
kerfi raforku um Suðurland og
til Faxaflóasvæðisins liggur
þvers og Rruss um jarðskjálfta-
svæðið, með meginháspennu-
Hnum eftir því endilöngu. Gera
mætti aðeins þess vegna ráð
fyrir nokkra vikna eða jafnvel
mánaða rafmagnsbilun á öllu
svæðinu. Hvað þýðir það? Tök-
um t.d. 120 þúsund manna
byggðina við sunnanverðan
Faxaflóa að vetri til. Myrkur
mun grúfa að mestu yfir öllu
þéttbýlinu. Kuldinn mun halda
innreið sína þar sem hitaveita
er háð rafmagni, frostskemmd-
ir verða í leiðslukerfum húsa
verði ekkert að gert. Matvæli
munu skemmast vegna þfðu I
frystigeymslum, atvinna á
skrifstofum, verksmiðjum og í
þjónustustofnunum myndi
leggjast næstum alveg niður,
þar sem allar skrifstofuvélar,
verksmiðjuvélar o.s.frv. eru
rafdrifnar. Eldun í heimahús-
um myndi einnig stöðvast.
Guðjón bendir á að með nú-
tíma tækni megi byggja upp
öflugar varnir og segir að
Guðjón: Fyrsta skilyrði þess að
unnt sé að verjast vá er að búið'
sé að skipuleggja fyrirfram
hver gerlr hvað, hvar og hve-
nær.
fyrsta skilyrði þess að unnt sé
að verjast vá, sé að búið sé að
skipuleggja fyrirfram hver ger-
ir hvað, hvar og hvenær þegar
áfall verður. -G.S.
qtODA'" ÍESTA.
5BODA‘! / ESTA,
2. Byrjað er á að stinga þurrum grein-
um, sem sprautaðár hafa verið gylltar,
silfurlitar eða hvítar, í leirhring stærsta
kertisins. Hans notar hér þrjár misstór-
ar, gylltar greinar. Fyrst er skreytt með
könglum, en þessi stóri sem sést á mynd-
inni er venjulegur greniköngull, en
margar tegundir eru til og er hægt að
hafa fjölbreytnina mikla.
3. Hér sjáum við könglana betur. Hans
notar greniköngla, bæði rauð- og hvít-
greni og svo niðursagaða Maritima-
köngla. Reynt er að hylja leirinn sem
bezt með könglunum, þegar greni er
ekki notað. Þarna er einnig búið að
stinga skrautberjum undir stærsta kert-
ið, en þau eru rauð á lit.
4. Þá er útbúin slaufa úr hvítum borða 5. Nú er' ekkert eftir nema að festa
og bindivír og henni fest við minna þriðja kertið og er það látið standa alveg
kertið. skreytingarlaust.
„Stuömannabassinn” og Búðdælingar
Pétur Þorsteinsson sýslumaður í Búðardal hefur beðið blaðið að geta þess að
enginn, Búðdælingur stal „Stuðmánnabassanum", eins og ráða mátti af frétt í
Dagblaðinu.
Sýslumaðurinn kvaðst hafa kynnt sér málið hjá lögreglunni f Stykkishólmi. '
Fjórir piltar voru viðriðnir stuld gítarsins, þrír frá Stykkishólmi og einn úr
Keflavík.Var hann staddur í Búðardal og gítárinnhafði verið geymdur hjá honum.
-ASt.
Herraskór
í úrvali
Verð kr. 8450
■
PÓSTSENDUM
6. Hér sýnir svo afgreiðsluslúlkan í Blómum og Aviixlum okk-ur
skre.vtinguna fullhúna. Hún er mjög falleg og heppileg til að standa ein
á borði og sómir sér vel innan um jólakræsingarnar á hátíðarborðinu.
DB-mvndir Arni Páll.
Tízkusýning í kvöld
Módelsamtökin halda árlega fatnað, bæði siða kjóla og vetrar-
tízkusýningu sína á Hótel Sögu kl. fatnað frá lizkuverzlunum borg-
21.00 I kvöid. F"élagar úr samtök- arinnar.
unum munu sýna margs konar A.Bj.