Dagblaðið - 27.12.1976, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 27.12.1976, Blaðsíða 24
Guðbjartsmálið: „Haukur lasmér kæruna fyrir” — segir einn sem kærði Guðbjart Pálsson ..Það verður að segjast eins or er. aðdragandinn að tilurð þessarar kæru er dálítið undar- legur.“- sagði Hallgrímur Jóhannesson i Keflavík í samtali við fréttamann DB í gær. Hallgrímur er sá „fangi á Litla-Hrauni", sem kært hefur Guðbjart Pálsson fyrir að hafa „stolið andvirði" 1200 þúsund króna víxla.... Hallgrímiir fekk skilorðs- bundna náðun fyrír helgina eftir að hafa afplánað helming 12 mánaða dóms síns fyrir tékkamisferli. „Þessi kæra var handskrifuð af mér,“ sagði Hallgrimur. „Haukur Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður í Keflavík, sem kom til mín austur. lagði mjög fast að mér að þessi kæra kænti frarn og sem slík á hún fullan rétt á sér. En ég er ekkert viss um að þetta sé gild kæra. Haukur las mér hana fyrir og ég skrifaði enda stóð ég i þeirri trú. að mín kæra yrði aðeins ein af fjölmörgum, sem verið væri að safna á Guðbjart Pálsson. Eg átti aldrei von á að þessi „kæra" mín yrði aðalplaggið. Þá vil ég taka það fram. að ég hef ekkert á móti Hauki Guðmundssyni, ég er bara ekki viss um hvort þetta getur verið kæra, enda engar atvikalýsing- ar tilteknar. Ég hef aftur á móti gefið skýrslu um allt þetta mgl í Sakadómi Reykjavíkur, og það gæti miklu frekar verið kæra." — Hvaða bréfaskriftir fóru á milli þín og Ólafs Jóhannesson- ar ráðherra? „Ég rak erindi mitt um frestun á úttekt dóms við dóms- málaráðuneytið og ráðherrann beint," svaraði Hallgrímur. „Ég skrifaði Ölafi Jóhannessyni og skýrði frá viðskiptum okkar Guðbjarts, en þá var það mál allt að komast af stað. Ég fékk þau svör að þar sem mitt nafn væri á annarri hvorri síðu í skjölum þeirra Hauks og Kristjáns Péturssonar, þá yrði ekki hægt að taka ákvörðun í máli minu fyrr en Guðbjartsmálið hefði skýrzt. Ég hef ekkert verið að „verzla" mig út úr fangelsinu." Hallgrímur sagðist hafa Skrifað annað bréf, þar sem hann hefði sagt ráðherra frá viðskiptum og samtölum þeirra Hauks Guðmundssonar svo og frá viðskiptum Hauks við konu Hallgríms. Eins og frá hefur verið sagt i DB hefur kona Hallgríms borið það fyrir rétti að Haukur Guðmundsson hafi óskað eftir við hana, að hún tæki þátt í að leggja gildru fyrir Guðbjart. Haukur hefur borið þessa fullyrðingu til baka og segir konu Hallgríms hafa óskað eftir að fá að leggja gildru fyrir Guðbjart. „Það er hægt að sanna þetta," sagði Hallgrímur, þegar fréttamaður blaðsins ræddi við hann í gær. „Haukur hringdi til mín austur á Litla-Hraun og bað um samþykki mitt fyrir því að konan tæki þátt í þessu. Þau símtöl eru hleruð svo vitni eru að þeim. Svo er það líka, að það gerðist á meðan ég var að gefa skýrslu i sakadómi, að konan mín hringdi í þann tiltekna rannsóknarlögreglumann og skýrði frá málaleitan Hauks." Hallgrímur sagði að sér skildist að Guðbjartsmálið væri búið að vera lengi á döfinn’ hjá Sakadómi Reykjavíkur en hvers vegna vissi hann ekki. Hann sagði Hauk Guðmundsson hafa sagt að rannsókn þeirra 'Kristjáns væri í nánu sambandi við Sakadóm Reykjavíkur, en síðan hefði rannsóknarlög- reglumaður í Reykjavík sagt það vera ósannindi, enda vildi sakadómur Reykjavíkur sem minnst hafa með þá Kristján og Hauk að gera. „Eg var ekki beðinn að þegja yfir upplýsing- um," sagði Hallgrímur, „og því veitti ég Hauki þær upplýsing- ar sem ég hafði." — Hefur þú vitneskju um hvort Einar Ágústsson ráðherra gerði tilraun til að fá þig lausan úr fangeisinu? „Ég veit ekki um það en mér hefur skilzt það samt. Haukur Guðmundsson sagði mér að Guðbjartur og „ákveðinn ráð- herra framsóknar" vildu fá mig lausan. Eg veit ekkert um sann- leiksgildi þessa, en sé þetta rétt yar það að mér forspurðum og ekki í mína þágu," sagði Hall- grímur Jóhannesson. Kæra Hallgríms á hendur Guðbjarti er orðin nokkuð gamalt mál. Það hófst þannig að Hallgrímur hafði fengið vinnu greidda með víxlum, samþykktum af „ákveðnum aðila." Guðbjartur fékk síðan víxlana til að selja þá. Það gerði hann en „stendur ekki skil á andvirðinu, sem eru tólf hundr- uð þúsund," sagði Hallgrimur. „Helmingurinn, 600 þúsund, voru seldir i banka í Reykjavík. Seljandi víxlanna var Guðbjartur Pálsson, mót- takandi fjárins Guðbjartur: Pálsson. Hin sex hundruð þúsundin voru seld einstaklingi 1 Reykjavík og hann er reiðu- búinn að bera vitni um að Guð- bjartur hafi móttekið greiðsluna." Að lokum sagði Hallgrímur: „Það kann að hljóma einkenni- lega frá manni sem er að koma úr fangelsi en þeir Kristján og Haukur eru okkar beztu rannsóknarlögreglu- menn. Þeir þora að taka á því sem á er takandi. En þeir verða að vera innan þess ramma sem þeim er settur. Þess vegna segi ég frá þessu. Það er kannski skrítið en það má ekki alltaf nota refsbrögðin á refinn, en svona er það nú samt." -ÖV. frfáJst, úháð daghlað MÁNUDAGUR 27. DES. 197&. . ,Ósatt’ — segir Haukur Guðmundsson, sem telur engan vafa á að nú eigi að ganga frá sér og Kristjáni fyrir fullt og allt „Það er ósatt að ég hafi lesið Hallgrími kæruna fyrir, enda vissi ég ekkert um efnisatriði kærunnar," sagði Haukur Guðmundsson rannsóknarlög- reglumaður i Keflavík í samtali við DB í morgun. „Hallgrímur skrifaði þessa kæru með eigin hendi." Haukur vildi að öðru leyti ekki tjá sig um frásögn Hall- gríms í samtalinu við DB en sagði ýmislegt benda til þess að margskonar öfl væru á kreiki og þvi væri betra að hafa þolin- mæði. „Það er enginn vafi á því að nú á að ganga frá okkur Kristjáni i eitt skipti fyrir öll. Ég er hræddur um að það takist ekki. Þetta er nú þriðja aðförin á þessu ári og margir bera káp- una tvöfalda í þessu máli." Haukur kveðst ekki hafa óskað eftir því við konu Hallgríms að hún legði gildru fyrir Guðbjart Pálsson, hún hefði boðizt til þess sjálf. Væri hægt að sanna það á annan veg- inn með símtölum austur á Litla-Hraun þá er það „mjög gott fyrir mig,“ sagði Haukur Guðmundsson. —ÓV Gafl barnarúmsins var mjög brunninn svo og milliveggur að stofu. Inn í þetta Þarna fór konan út með barn sitt í fanginu. herbergi fullt af reyk fóru skátarnir og sóttu barnið. DB-myndir Sveinn Þormóðsson. Eldsvoði í Kópavogi: I gegnum gluggarúðu með barn í fanginu Skátar björguðu tveim öðrum börnum úr íbúð fullri af reyk Rétt fyrir klukkan 9 í morg- un kom upp eldur á jarðhæð hússins númer þrjú við Borgar- holtsbraut í Kópavogi. 1 húsinu voru kona og þrjú ung börn en faðirinn var farinn til vinnu. Virðist eldurinn hafa komið upp við eitt barnarúm- anna i herbergi við hlið svefn- herbergisins. í svefnherberg- inu mun konan hafa verið ásamt öðru barnt. Konan braut rúðu i svefnher- bergisglugganum og skarst all- mikið við það. Meðal annars skarst í sundur slagæð á upp- handlegg hennar og blæddi henni mjög. Hún greip með sér barn úr rúminu í svefnherberg- inu og komst með það út um gluggann sem rúðubrotin stóðu alls staðar i. Tveir ungir menn, skátar úr Kópavogi, rétt innan við tvítugt, komu þarna að. Fóru þeir inn 1 reykhafið og náðu í hin börnin tvö. Var konan og börnin þrjú flutt 1 skyndi í sjúkrahús. Eldurinn virðist hafa komið upp við barnarúm í herbergi við hlið svefnherbergis sem fyrr segir. Barn i því rúmi var eitthvað brennt en var enn meira þjáð af reykeitrun. Stálpaðra barn mun hafa verið að leik i íbúðinni. Slökkviliðsmönnum tókst fljótt að ráða niðurlögum elds- ins sem varð mestur við barna- rúmið og í vegg þar við. Eldur varð ekki mikill en mun meiri reykur. Konan og börnin voru flutt Landspítalann 1 morgun. Ekl Var búið að skera úr um hv alvarlegar afleiðingar þett óhapp hefur-haft í för með séi hvorki varðandi brunasát reykeitrun eða skurði af völc um glerbrota. —AS

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.