Dagblaðið - 28.12.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 28.12.1976, Blaðsíða 14
14 r DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1976. PIB COP(MMACIN Jakki er góð f járfesting Það getur verið mjög hentugt að eiga nýtilegan og klæðilegan jakka í klæðaskápnum sínum. Hann má nota hvort sem er hversdags eða við hátíðleg tækifæri. Það eru flíkurnar sem notaðar eru með jakkanum sem ráða því hvort um verður að ræða spariklæðnað eða hversdags. Jakkinn á að vera með herra- sniði. Hann passar jafnvel við síðbuxur, pils eða kjól. Flauel og satín eru efni sem henta vel við öll tækifæri. Hvorugt þess- ara efna er lengur neitt dæmi- gerð fyrir spariklæðnað. Það er alveg eins hægt að nota prjóna- húfu og trefil og dömulegan hatt, silkiklút eða refaskinn við jakkann. Það er góð fjárfesting í svona jakka, bæði vegna þess að hann getur verið í tízku í mörg ár og er lika hentugur við svö mörg tækifæri. Það fer allt eftir því hvað notað er við hann, eins og áður sagði. Óvenjulegur samfestingskjóll Þessi samfestingur, sem ætt- aður er frá París, virðist hafa orðið til fyrir áhrif trúða- búninga. Bedúinabuxurnar eru enn í tízku og þarna eru þær notaðar á samfesting, sem verð- ur að eins konar kjól vegna víddarinnar. Þessi búningur passar ekki fyrir lágvaxnar og/eða þybbnar konur, en getur verið flott á háum og grönnum. „Kjólinn“ er einfalt að sauma fyrir þær sem kunna eitthvað fyrir sér í saumaskap, fjögur eins stykki (tvö bak og tvö framstykki) saumuð saman. Fallegast úr léttu efni. Tízkuhornið Nú notum við túrbaninn við hátíðleg tækifæri M-S7B' Túrbantízkan er enn vinsæl og nú einnig við hátíðleg tæki- færi. Þá eru gjarnan notaðir túrbanar úr „finni“ efnum en daglega, — t.d. heklað sjal ún þunnu ullargarni með silki-f þræði sem síðan er bundið um höfuðið í túrban eða i hinum vinsæla bedúínastíl. Einnig er farið að nota stóra klúta eða sjöl til þess að binda lauslega um mjaðmirnar yfir sið pils eða síða kjóla. Stóru sjölin sem konur i Suðurlönd- um nota yfir höfuðið eru tilval- in til þess. Má t.d. hnýta þau laúslega saman á hliðinni og kögrið og dúskarnir sem gjarn- an eru á slíkum sjölum eru ein- mitt i þjóðbúninga stælnum sem er enn svo vinsæll. HLYTT OG GOTT Það er bæði hlýtt og hag- kvæmt að sameina síðbuxur og kjóla. Það er enn ekki orðið mjög algengt, en verður það sennilega, þegar veðrið fer að kólna síðar í vetur. Rúllukragapeysa, síðbuxur og kjóll passa vel fyrir þær, sem ekki kæra sig um að vera í mörgum fatalögum, sem annars er algengt núna. Mörgum finnst sem þessi tízka sé dálítið „sjúskuð" og passi aðeins fyrir þær sem eru kornungar. Það getur verið mjög snyrti- legt að hafa peysuna og bux- urnar í sama lit. Möguleikarnir eru fjölmargir, t.d. köflóttur kjóll og peysa og buxur í ein- hverjum litnum sem fyrirfinnst í kjólnum o.s.frv. Á þennan hátt má líka nýta vel kjóla, sem e.t.v. eru orðnir of stuttir, eða peysur sem t.d. eru farnar að láta á sjá á oln- bogunum. M-S7 A //Íwvvt Hættulegt og þreytandi starf Hjálpsamur skógarbjörn Bandaríkjamaðurinn Rich Glassey gegnir lík- lega einhverju hættu- legasta starfi sem um get- ur. Þegar hann kemur heim til sín að kvöldi að loknum vinnudegi og seg- ist vera þreyttur eru það engar ýkjur. Hann starf- ar við að baða tvö bengölsk tígrisdýr í dýra- garði og gengur þá oft á ýmsu. Þeim barst aideilis góð aðstoð, dýragarðsvörðun- um í Midlands- dýragarðinum i Englandi, þegar Land Roverinn þeirra festist í aur og leðju. Einn af myndarlegri skógar- björnum garðsins tók sig til og lagðist af öllum kröftum á afturhluta bílsins. sem auðvitað flaug upp úr forinni. Það væri ekkl amalegt fyrir Grímseyinga ef ís- birnirnir væru jafn sam- vinnuþýðir. L

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.