Dagblaðið - 28.12.1976, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 28.12.1976, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1976. 15 N r Það er ekki betra að vera feimin en að vera sífellt með skítugt hór og lykkjufall á sokkunum. Þér líður hörmulega og enginn tekur eftir þér. Ef þú ert ekki því feimnari, þó œttu þessi fimm eftir- töldu róð að hjólpa þér við að losna við feimn- ina. Læknirinn Jerome L. Singer sem er prófessor i sálfræði vió Yaleháskólann, segir aö feimið fólk hafi oft verið feimin börn sem tóku sig út úr hópnum, i stað þess að reyna að samlagast. Það kann oft ekki að dansa, flörta eða halda uppi samræðum. Þess vegna finnst því öll samkvæmi afskaplega leiðinleg. Ráðið er þvi: lærðu að dansa, þá ertu þegar á góðri leið upp úr sjálfgerðum öldudal. Að opna munninn svolítið og tala er ekki svo erfitt. Það er bara um að gera V að gera það um leið og þér dettur eitt- hvað I hug. Sem sagt gefðu þér ekki tíma til þess að hætta við. Eftir þvi sem dr. Louis Hott segir, leggur feimið fólk allt of mikið upp úr því hvað það segir eða gerir. Kannski er einfaldasta leiðin til að vinna bug á feimni sinni að taka sjálfan sig ekki of alvarlega. Enginn býst við stórkostlegri djúphyggju eða fyndni. Þess vegna, léttu af þér álaginu. Annað ráð til þess að fá fólk til að skríða út úr. skel sinni er að fara f leikfimitíma, badminton eða yoga. Að reyna hressilega á sjg er gott, og maður slappar af á eftir. (Það má auðvitað ekki ofreyna sig). Á eftir er minni hætta á að þú verðir taugaóstyrk í samkvæmi, sem þú átt kannski að fara í. Gerðu þetta að venju þinni og þú munt smám saman öðlast meira sjálfstraust. Einnig hjálpar það að draga djúpt andann. Það er róandi. Að bera sig vel gerir kraftaverk. Teygðu vel úr þér og berðu höfuðið hátt, með því öðlast þú meira sjálfsöryggi. Eftir smátíma kemur það ekki fyrir þig að handleggirnir verði eins og einhverj- ar pípur sem skrúfaðar hafa verið fyrir einhverja tilviljun við hliðarnar á þér. Emily Cho, sem rekur ráðgefandi stofu sem hún nefnir „New Image“ (ný ímynd), segir að feimin kona geti klaétt sigút úr skelinni, eins og hún orðar það. Emily segir að það sé sín reynsla af þessum konum að þær eigi skápa fulla af dökkum og púkalegum kjólum, sem hanga utan á þeim og eru of stórir. Þær reyna að fela fötin og ekki hjálpa þau upp á sjálfstraustið. Emily ráðleggur að feimna konan lagi þessa feimni sína með þvf að vera 1 fötum sem reglulega sýna hennar innri mann. Til þess að finna út hvernig þú ert og hvernig fmynd þfn á að vera, skaltu fara f tízkuverzlun. Mátaðu það sem þér finnst vera flott. Biddu einhvern góðan vin þinn um að koma með þér og segja álit sitt. Smám saman skaltu svo kaupa þér föt og venjast þeim, svo að þér finnist ekki að þú sért eins og trúður á leiksviði í þeim. Það er oft að feimið fólk fer með þeim í samkvæmi sem eru færir f flestan sjó. En þetta kemur ekki að haldi. Það endar aðeins með því að þú ert f skugga hinnar persónunnar. Næst skaltu standa á eigin fótum og fara ein. — Það gæti meira að segja farið svo að þú kæmir þér sjálfri á óvart.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.