Dagblaðið - 14.01.1977, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANUAR 1977.
Daouds
Nokkur hundruö franskir
níynsmenn söfnuðust saman
fyrir utan sendiráð Frakka i
Jerúsalem í gærkvöld og mót-
mæltu frélsun Abu Daouds —
mannsins sem stóð að baki
morðum á ísraelskum íþrótta-
monnum í MUnchen 1972.
Námsmennirnir kölluðu
Giscar'd d’Estaing öllum illum
nöfnum og brenndu nafnskír-
teini sín.
Yigal Allon, utanríkis-
ráðherra ísraels, sat fund með
sendiherra sínum í París, sem
var kallaður heim vegna
ástandsins. Fréttir frá ísrael
herma, að ríkisstjórnin muni
þegar í stað taka til endurskoð-
unar samskipti sin við Frakk-
land
Sambandið milli Israels og
Frakklands hefur verið stirt
síðan þeir síðarnefndu til-
kynntu að þeir hygðust selja
Egyptum Mirage orustuflug-
vélar. Frelsun Daouds bætir nú
um betur og í dag verður ljóst
hvernig ísraelsmenn bregðast
við.
1»
Abu Daoud, heilinn á bak við morð ísraelskra ólympíuleikmanna í
Miinchen 1972, var handtekinn fyrr réttri viku. Eftir að Frakkar
létu hann lausan hafa fréttir af mótmælum borizt viða að, þar á
meðai frá Bandaríkjunum og Kanada. Þá munu Frakkar sjálfir
vera uggandi vegna aðgerða stjórnvalda.
* .. ' .......
ísrael mótmælir frelsun
BENSÍNSTÖDVARQGANDINN KOM
ERFÐASKRÁ HOWARDS HUGHES FYRIR
Bensínstöðvareigandinn Mel-
vin Dummar hefur játað að
hafa sjálfur komið erfðaskrá
margmilljónerans Howards
Hughes fyrir í aðalstöðvum
mormóna í Salt Lake City.
Hann hefur hins vegar harð-
neitað því að hafa skrifað hana
sjálfur, eða að vita, hver hafi
samið hana ef Hughes sjálfur
hafi ekki gert það. Þá harðneit-
ar hann jafnframt að segja frá
þvi hvernig, hvar og hvenær
hann hafi komizt yfir skrána.
Fari svo að erfðaskrá þessi
reynist vera sú eina rétta, mun
Melvin Dummar erfa meira en
100 milljónir dollara, sem
svarar til rúmlega 1,9 milljarða
íslenzkra króna. Yfirheyrslur
til að sanna eða afsanna rétt-
mæti erfðaskrárinnar áttu að
hefjast í Las Vegas fyrr i vik-
unni. Þeim var hins vegar
frestað eftir að upp komst að
fingraför Dummars voru á um-
slagi utan um erfðaskrána.
Melvin Dummar fuilyrti,
þegar erfðaskráin fannst í aðal-
stöðvum mormóna skömmu
eftir dauða Howards Hughes .
apríl síðastliðnum; að hann
hefði leyft gömlum manni, sem
hefði verið strandaglópur í
Nevadaeyðimörkinni, að sitja í
bíl sínum. Dummar segir að
gamli maðurinn hafi verið
Hughes sjálfur og að atburður-
inn hafi átt sér stað seint á
árinu 1967. — Þjónustufólk
Hughes segir aftur á móti að
hann hafi aldrei yfirgefið íbúð
sína í hóteli í Las Vegas á tfma-
bilinu 1966—70.
H
Erfðaskrá margmiiljónei ans
Howards Hughes er enn á dag-
skrá. Bensínstöðvareigandinn
Melvin Dummar hefur nú ját-
að, að hafa sjálfur komið fyrir
„mormónaerfðaskránni“ svo-
nefndu.
Villtist
af leið
íhríð
„Þabasona”, gæti hann hafa
sagt maðurinn sem virðir þarna
fyrir sér Beachcraft-flugvél
sein flaug inn í hús í Indiana-
polis í Bandaríkjunum fyrir
skömmu. Flugvélin lenti í
hríðarveðri og virðist flug-
maðurinn hafa villzt verulega
afleið.
Einn maður fórst í flugslysi
þessu og þrír særðust. tbúar
hússins, sem fengu flugvélina
óvænt inn á gólf hjá sér sluppu
hins vegar ómeiddir.
Sektaður
fyrir að
bíta
eyrna-
snepil af
ítalskur rugbyleikmaður,
Paolo Paoletti, hefur verið
sektaður um upphæð sem
nemur 32,5 milljónum fs-
lenzkra króna fyrir að bíta
eyrnasnepilinn af mótherja
sínum. Þessi atburður átti
sér stað í leik sem fram fór i
nóvember síðastliðnum.
Paoletti var þá þegai
ákærður fyrir að hafa valdið
mótherja líkamlegum
meiðslum. — Eyrnasnepill-
inn hefur hins vegar verið
saumaður á manninn.
Niðurstaða
skoðanakönn-
unar íUSA:
Gilmore
skal
deyja
Samkvæmt niðurstöðum
skoðanakönnunar, sem birt
var í Bandaríkjunum í gær,
telur meirihluti landsmanna,
að taka eigi morðingjann, Gary
Gilmore af lífi. Alls munu 71 %
þeirra, sem spurðir vorú, hafa
sagzt vera meðmæltir af-
tökunni, sem á að fara fram á
mánudaginn. 80% voru á móti
því að aftökunni yrði sjónvarp-
að en 11% vildu fá að horfa á
hana. — Alls voru 1.259 manns
spurðir álits í þessari skoðana-
könnun.