Dagblaðið - 14.01.1977, Qupperneq 7
óvenju mikið snjóar íEvrópu og Bandaríkjunum
Það tók alls 12 ár að fullgera
fyrsta vasasjónvarpstækið, sem
var kynnt í Lundúnum fyrir
nokkrum dögum. Fyrirtækið, Sin-
clair Radionics, eyddi 500.000
sterlingspundum til uppfinn-
ingarinnar og hlýtur því að vonast
eftir góðum viðtökum hennar.
A myndinni sést sjónvarps-
tækið og til viðmiðunar má sjá
mannshönd og öskubakka. Sjón-
varpsviðtækið mun koma á al-
mennan markað og kosta í Bret-
landi um 175 sterlingspund, sem
'samsvarar 57.000 íslenzkra króna.
til að finna út íslenzka verðið á
tækinu þarf að bæta við tollum og
fleiri gjöldum. En skyldi ekki ein-
hver taka sig til og setja inn-
flutningsbann á tækin?
Utan úr hinum stóra heimi,
berast þær fréttir, að snjókoma
sé nú að færa allt í kaf. 1 gær-
kvöld gekk hríðarveður yfir
víða í Evrópu og orsakaði öng-
þveiti og jafnvel manntjón.
Geysimikil snjóflóð féllu í
ítölsku Ölpunum. Níu ára
gömul stúlka, sem stödd var í
sumarbústað, lét lífið. Hafa
snjóflóð á þessu svæði nú orðið
níu manns að bana á tveimur
dögum.
Bretland varð allt snævi
þakið í gær. Brezkir veðurfræð-
ingar kalla gærdaginn ,,Dag
hinna stóru snjókorna“ og þeir
spá áframhaldandi úrkomu í
dag.
Þjóðvegir nálægt Lundúnum
voru þaktir 25 sentimetra
þykku snjólagi og í gærkvöld
snjóaði þar enn, sem svaraði 5
sentimetrum á klukkustund.
Vegna þessa fylltust helztu
hótel i brezkum borgum, þar eð
þeir sem hugðust halda út á
landsbyggðina treystu sér ekki
til að fara.
Sömu snjóasöguna er að
segja frá miðríkjum Bandaríkj-
anna. Þar hafa 60 manns látið
lífið að undanförnu, ýmist í um-
ferðarslysum, af völdum hálku
eða úr hjartaslagi við áreynsl-
una af að moka snjónum burtu
af tröðum heimila sinna.
í Chicago er veturinn sá kald-
asti í 104 ár. Þar hefur hita-
stigið verið fyrir neðan frost- Þessi kuldi hefur valdið skorti hafa lokazt og viðskiptalífið er
mark síðastliðna átján daga. á olíu til húsahitunar, skólar farið úr skorðum.
prínsessu
Rainier fursti, prins af
Mónakó, hefur höfðað mál á
hendur brasilískum glaum-
gosa, Fancisco ,,Chiquinho“
Scarpa, fyrir að hafa farið
niðrandi orðum um dóttur
hans í sjónvarpsviðtali. Lög-
fræðingur furstans í Sao Paulo
í Brasilíu segir að hann fari
fram á skaðabætur sem nema
50 milljónum cruzeiros, eða
760 milljónum ísl. króna.
Ef glaumgosinn reynist
sekur á hann yfir höfði sér allt
að 18 mánaða fangelsi.
Ummæli sín um dóttur
Rainiers, Caroline prinsessu,
viðhafði hann í viðtali í brasil-
íska sjónvarpinu i október
síðastliðnum. Ekki er vitað
hvað hann sagði sem móðgaði
furstann svona mikið.
Nýjasta nýtt ísjónvarpsheiminum:
Margot
Fonteyn
hlaut
Shake-
speare-
verðlaunin
Menningarsjoður Hajn-
borgar í V-Þýzkalandi til-
kynnti í gær, að brezka ball-
ettdansmærin Margot
Fonteyn hefði hlotið Shake-
speareverðlaun sjóðsins árið
1977. Verðlaunaupphæðin
nemur um 19,5 milljónum
króna.
Shakespeareverðlaunin
eru veitt þeim enskumæl-
andi listamanni, sem að mati
stjórnar sjóðsins hefur lagt
mest af mörkum til eflingar
lista t Evrópu. Fyrri verð-
launahafar eru meðal ann-
arra rithöfundurinn
Graham Green og leikrita-
skáldið Harold Pinter. —
Margot Fonteyn er nú 57
ára. Hún veitir verðlaunun-
um viðtöku í Hamborg 23.
júní næstkomandi.
Tækiðkemur
áalmennan
markað
áþessuári
DAGBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JANIIAR 1977.
Erlendar
fréttir
„Dagur hinna stóru snjó-
korna" í Bretlandi ígær
REUTER
Málshöfðun
vegna um-
mæla um
Karólínu
NÚ ER ÞAÐ VASASJÓNVARP
ELDG0Sí
ZAIRE
—óvíst er um mannt jón
Hraunstraumurinn úr eld-
fjalli á landamærum Zaire og
Rwanda er nú orðinn um 16
kílómetrar á lengd. Ekki er
kunnugt um neinn mannskaða
af völdum eldgossins. Reyndar
sagði fréttastofa Rwanda að
margt fólk hefði farizt og í'
Brussel er haft eftir diplómat-
ískum leiðum að hundruð
manna hafi brunnið undir ólg-
andi hraunstraumnum.
Fjallið sem gýs heitir Nyira-
gongo og er 3.470 metra hátt.
Prentarar stöðvuðu
útkomu Times
Verkfall prentara, sem stöðv-
aði útkomu Lundúnadagblaðs-
ins Times í gær, olli hvassyrt-
um umræðum í enska þinginu í
gær. Framkvæmdastjórn
blaðsins sagði að prentararnir
hefðu neitað að láta blaðið
koma út vegna greinar eftir
David Astor, fyrrum ritstjóra
Observer. Þar sagði meðal
annars, að prentarar gætu, ef
þeir vildu, stöðvað útkomu
heils blaðs með smávegis af
tyggigúmmíi eða nokkrum
dropum af olíu, sem settir væru
á rangan stað.
í Neðri málsstofunni á
brezka þinginu gagnrýndi
Mjrgaret Thateher, formaður
íhaldsflokksins, Gallaghan for-
sætisráðherra ha^ðlega fyrir að
fordæma vinnustöðvunina ekki
harðlega. — Callaghan hafði
sagt að hann gæti ekki lagt dóm
á aðgerðir prentaranna þar eð
hann hefði ekki heyrt þeirra
sjónarmið.
„Aldrei hefði eg átt von á
því,“ sagði frú Thatcher, „að ég
ætti eftir að heyra forsætisráð-
herra Bretlands leggja blessun
slna yfir ritskoðun, sem er ein-
mitt það sem nú hefur gerzt.“
Það var brezka prentara-
félagið sem stóð fyrir þessum
aðgerðum í gær. Ekki reyndist
unnt að fá fram sjónarmið
félagsins og þegar hringt var
þangað svaraði einungis sfm-
svari sem tilkynnti um næstu
félagsfundi.