Dagblaðið - 14.01.1977, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1977.
n
Reiðarslag á
reiðarslag ofan
A 112 sekúndum kom upp
allt önnur mynd af stjórnmála-
ástandinu i Danmörku. Sjón-
varpsviðtal þetta var sent út 30.
janúar 1971.
Alla stjórnmálamenn í land-
inu rak í rogastanz við ummæli
Glistrups og ekki tók betra við,
er hann sagði í útvarpsviðtali
hálfum mánuði síðar, að þrátt
fyrir milljóna tekjur hefði
hann ekki einn eyri i skatt!
Kollegar Glistrups fengu
einnig nóg af öllu saman. Lög-
fræðingaráðið, dómstóll lög-
fræðinga sjálfra, hóf rannsókn
á vinnubrögðum Glistrups.
Einn viðskiptavina hans
kærði einnig. Sá taldi, að Glist-
rup hefði svindlað á sér. Lög-
fræðingaráðið kærði málið til
skattayfirvalda. Sagði ráðið, að
viðskipti Glistrups næmu
mörgum milljónum króna, en
hér væru á ferðinni tilbúin við-
skipti, því að enga peninga væri
um að ræða, heldur aðeins
tölustafi á pappírum.
En þá kastaði Glistrup fram
nýrri sprengju:
Þann 20. marz árið 1971 til-
kynnti Glistrup, að hann ætlaði
að stofna nýjan stjórnmála-
flokk, sem hefði það á stefnu-
skrá sinni að afnema alla tekju-
skatta.
Stuttu síðar ákvað ríkissak-
sóknari að höfða mál á hendur
Glistrup.
Fyrstu réttarhöldin voru
hreinar leiksýningar, Glistrup
fékk sjálfur að ákveða, hvenær
hann gæti mætt, þvi að hann
naut þess réttar að stjórnmála-
störf mætti ekki hindra.
Allan tímann reyndi hann að
láta fólk komast á þá skoðun, að
málið allt væri gert til þess að
varna því, að hann gæti haslað
sér völl á stjórnmálasviðinu.
Spies rak hann
Um svipað leyti ákvað einn
stærsti viðskiptavinur hans,
ferðaskrifstofukóngurinn
Spies, að reka hann úr þjónustu
sinni. Glistrup fékk tíu daga til
þess að skila verðbréfum,
hlutabréfum og þviumlíku að
verðmæti rúmlega þriggja
milljarða króna alls. Það gerði
hann. En þessi atburður varð
mjög til þess að rýra álit fólks á
Glistrup.
Lögfræðistörf hans minnk-
uðu jafnt og þétt og nú eru
þau aðeins helmingur þess, sem
áður var.
2000 blaðsíðna
vitnaleiðslur
Hin eiginlegu réttarhöld
hófust ekki fyrr en í lok ársins
1974. Þar hafa verið lagðar
fram um 2000 síðna vitna-
leiðslur frá um 200 réttarhöld-
um. Nú skömmu fyrir jól var
Glistrup tilbúinn með varnar-
ræður sínar.
Hann hefur krafizt þess, að
sérstaklega skuli fjallað um
hvert hinna 2716 fyrirtækja, en
ekki i heild, eins og ríkissak-
sóknari hafði krafizt. Um jólin
var komið að fyrirtæki númer
1460. Glistrup segir, að ríkis-
saksóknarinn, Leo Lemvigh,
hafi ekki rétt fyrir sér, er hann
segi, að fyrirtæki þessi hafi
ekki verið starfandi. Lemvigh
hefur svarað því til, að Glistrup
sé bara að reyna að tefja tím-
ann og fari í kringum ákæru-
málin eins og köttur í kringum
heitan graut.
Og nú er málið sem sagt hafið
á ný eftir jólafri. Verður fjallað
um það næstu tvo mánuðina að
öllum líkindum.
En síðan á það eftir að fara
fyrir hæstarétt og þá verður
allt saman endurtekið. Margir
telja, að Glistrup-málið muni
taka allt að f jögur ár.
Utanríkisráðherra
hringir
dómsmálaráðuneyti
sleppir
Kjallari á
föstudegi
Eru málin endalaus? Er
dómskerfið endanlega gefið
upp? Er engin heil brú í gangi
mála? Og það er von að spurt
sé. Aftur og aftur heldur
maður, að nú hljóti svo að vera
komið, að vandræðamálum fari
að fækka, en umbótum að
fjölga. Aftur og aftur heldur
maður, að nú hljóti apparatið í
landinu að fara að sjá að sér.
En það er ekki. Heldur hlaðast
upp ný mál og skringilegri en
ofast áöur. Málefni Guðbjarts
Pálssonar verða margslungnari
með hverjum deginum. Og
dagblaðið Tíminn sér ástæðu til
þess í vikunni að geta þess, að
það sé alkunna, að CIA-
leyniþjónustan bandariska
kosti víða um lönd níð- og rógs-
herferðir á hendur stórbrotn-
um stjórnmálamönnum. Því
skyldi það ekki vera einnig svo
hérlendis! Það er hátt risið á
fyrrum málgagni fátækra
bænda.
Haukur hundeltur
Eltingaleikurinn við Hauk
Guðmundsson, rannsóknarlög-
reglumann í Keflavík, hefur
haldið áfram. Það hefur verið
sett upp víðtækasta sakarrann-
sókn og virkasta í manna minn-
um til þess að reyna að leiða
rök að því, að hann hafi beitt
ósæmilegum aðferðum, þegar
Guðbjartur Pálsson, titlaður
leigubílstjóri, var handtekinn á
Suðurnesjum fyrir jól. Fjöl-
skylda lögreglumannsins hefur
verið yfirheyrð og nánast bók-
staflega spurð spjörunum úr.
Svo og vinir hans, svo og starfs-
stúlkur Kristjáns Péturssonar á
Keflavíkurflugvelli. Rannsókn
virðist fara fram bæði í Reykja-
vík og Keflavík. Lögreglumann-
inum hefur verið sagt upp
störfum. Dómskerfið hefur
ekki sýnt slíkt snarræði í
manna minnum. Gamalt kæru-
mál, sem dummað hafði í kerf-
inu von úr viti, er aftur dregið
fram. Ekkert virðist til sparað.
Síðast þegar til fréttist stóð
þetta mál nánast nákvæmlega í
sömu sporum og þegar það
hófst. Enginn veit hvað þessi
rannsókn getur tekið langan
tíma. Enginn veit hver ákveður
þessa áherzlu og þennan ógnar-
hraða (sem auðvitað er
virðingarverður — en óvenju-
legur). Enginn veit hvað er að
gerast, eða hvers vegna.
Enginn veit, hvort tilgangur-
inn er sá einn að losna við Hauk
Guðmundsson úr starfi í eitt
skipti fyrir öll. Allur er mála-
vafsturinn torkennilegur, án
þess að hér sé frekari dómur
lagður á hvað kann að gerast.
Málið er þeim mun torkenni-
legra fyrir það sem á undan var
gengiðímálum Guðbjarts Páls-
sonar, þegar þau voru með
valdboði send í Sakadóm
Reykjavíkur, gegn vilja Hall-
dórs Þorbjörnssonar, yfirsaka-
dómara. En sýnu torkenni-
legast er málið fyrir þá sök, að
undanfarið hefur það sýnt sig
æ ofan í æ, að dómskerfið er
síður en svo hafið yfir tor-
tryggni.
Manni sleppt
úr tukthúsi
Vísir skýrir frá því á mið-
vikudag, að skömmu fyrir jól
hafi fjársvikara verið sleppt úr
haldi af Litla-Érauni. Þessi
maður er nátengdur málum
Guðbjarts Pálssonar. Hann
hafði verið dæmdur í 28 mán-
aða fangelsi fyrir tvö stærri
fjársvikamál. Hann hafði ein-
ungis setið inni í nokkra
mánuði þegar honum var sleppt
með tilskipun úr dómsmála-
ráðuneyti. Ráðuneytið neitar að
útskýra, af hverju það sleppti
manninum. Auk þess mun
þriðja ákæran á hann vera f
deiglunni.
Nú er það svo, að umfjöllun
af þessu tagi má engan veginn
skoðast sem árás á þann ein-
stakling sem í hlut á. Hér er
verið að fjalla um dómsmála-
ráðuneyti, þá aðila, sem þessa
ákvörðun taka, en ekki þann
brotlega einstakling, sem í hlut
á. En lögfræðingar draga laga-
heimild ráðuneytis í efa. Og allt
verður þetta tortryggilegra
vegna títtnefnds Guðbjarts
Pálssonar, sem sat í gæzluvarð-
haldi fyrir nokkrum vvikum
vegna meintra fjársvika', Sem
hefur orðið tilefni blaðagreinar
um meinta okurstarfsemi, en
virðist nú vera orðinn eins
konar saksóknari ríkisins gagn-
vart lögreglumönnum.
Dómsmálaráðuneytið kann
að hafa einhverja skýringu á
því, hvers vegna manninum var
sleppt, þó svo sú skýring sjáist
ekki í fljótu bragði. En enn á ný
þá virðast tengsl undirheima
íslenzkrar fjármálastarfsemi
við valdakerfið í landinu vera
óskiljanleg öllu venjulegu
fólki.
Róðherra hringdi
í haust
Þessi mál verða enn illskilj-
anlegri vegna þess, að í haust
sem leið, sennilega í ágústmán-
uði, hringdi siminn á skrifstofu
bæjarfógetans í Keflavik. Þá
voru mál þessa sama brotlega
manns á döfinni hjá embætt-
inu. í símanum var Einar
Ágústsson, utanríkisráðherra.
Ég hefi fengið staðfest hjá
embættinu, að þetta simtal fór
fram. Eðlilega vill embættið
ekki gefa upp hvert erindi ráð-
herra var nákvæmlega, og enda
í sjálfu sér um einkasímtal að
ræða. En þó var erindið að
spyrjast fyrir um mál þessa til-
tekna manns. Sem vonlegt var
vissu starfsmenn embættisins
ekki hvaðan á þá stóð veðrið.
'Svörðun
M nr AötntlurfUtn*
. y«rih
tpurMr * .«16 U<B»
,M.i MJ-
Hver* vr, Ja“
moluni
Vl.lt “!
vndir “V5 irtmkvmn!
Leysti dómsmálaráðuneytið mann
ór haldi án heimildar laga?
Maftur einn, sem lengt hefur verift náinn gamstarfsmaftur
Gaftbjarts Pálssonar, var látlnn laus úr fangelsinu aft
iitia-Hrauni skömmu fyrir jól. Hann haffti verift d*mdur i
tamtals 28 mánafta fangelsi fyrir svik og fals, en var afteins
báinn aft afplána nokkra mánufti þegar dómsmáiaráftuneytift
ákvaft aft láta hann lausan.
Samkvæmt ákvæftum hegningarlaga er hægt aft veita
mönnum reynslulausn er þeir hafa afplánaft 2/3 hluta refsi-
timans og ef sórstaklega stendur á þegar belmingur timaas
hefur verift afplánaftur. Lögin gera ekki ráft fyrir öftntm
tilvikum nema þá hreinlega aft menn séu náftaftir.
Umræddur maftur var ekki náftaftur, en dómsmálaráftu-
neytift hefur neitaft aft gefa Visi upplýsingar um ástæftur þess
aft manninum var sleppt. — Sjá bls. f
S ,rMnkvCS
+*> ,onníSv
jsassggs-sjst
|u' "!F •“**
rp W“l2u!»>»
Hrti».r*",J,eu..r
Vilmundur Gylfason
Siarfsfólk embættisins vissi
um þetta gímtal, en gat þó ekki
gert sér grein fyrir af hverju
hringt hafði verið. Alla vega
hlaut mál viðkomandi brota-
manns eðlilega meðferð og var
svo þangað til nú skömmu fyrir
jól, í miðjum vandræðamálum
Guðbjarts Pálssonar. Þá skarst
dómsmálaráðuneytið í leikinn.
Nú skal engum getum að því
leitt, af hverju utanrikisráð-
herra sér ástæðu til þess að
hringja í embætti bæjarfógeta
til þess að spyrjast fyrinummál
tiltekins sakamanns. Það getur
verið undir viðmælanda háns
komið hvernig slíkt er skilið.
Utanríkisráðherra hefur ekki
með dómstóla að gera. Hann er
hins vegar valdamaður.
Enn á ný: Á þessu kunna að
vera eðlilegar skýringar, en
þær liggja ekki í augum uppi.
Og því síður liggja þær í augum
uppi í ljósi síðustu atburða.
Hverjar eru
skýringar?
Ef þetta væru einangraðir at-
burðir, ef ekkert hefði gerzt á
undan, þá vektu þessi mál og
önnur ekki athygli manns. En
málum er ekki svo háttað. Það
hefur ýmislegt gerzt og það er
ýmislegt að gerast.
Það er ástæða til þess að tor-
tryggja valdið. Það er ástæða til
þess að ætla að valdinu sé iðu-
lega misbeitt, og þá jafnvel í
þágu þeirra, sem iðulega hafa
þverbrotið leikreglur sam-
félagsins. Hjá okkur nærliggj-
andi þjóðum þykir slíkt.teljast
til meiri háttar og illra tiðinda.
Hér eru menn svo sem ekki
óvanir slíku, en óvanir því að
um það sé opinberlega fjallað.
Og þó ætti slíkt að vera að
komast upp í vanann og geta
komizt upp í vanann eins og
hvað annað.
En það er í meira lagi ein-
kennilegt, að á sama tima og við
vitum ekki hvort tugmilljóna
velta Guðbjarts Pálssonar frá
árinu 1965 verður nokkurn tím-
ann skýrð til hlítar, þá séu
æðstu valdamenn samfélagsins
uppfullir af áhuga á málum
fjársvikara, og halda jafnvel
yfir þeim verndarhendi.
Af hverju hringir utanrikis-
ráðherra í embætti bæjarfóget-
ans i Keflavík i haust og til
hvers? Af hverju skerst dóms-
málaráðuneytið nú f leikinn?
Hver er tilgangurinn með þessu
öllu?