Dagblaðið - 20.01.1977, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR 1977.
7
Egyptaland:
FYRIRHUGUÐ VERÐ-
HÆKKUN KOSTAÐI
30 MANNS LÍFIÐ
reglunni hafi verið fyrirskipað
að skjóta alla mótmælendur á
færi, því að hópar fólks fóru
með ófriði um allar götur borg-
anna.
Kom til átaka milli lögreglu
og mótmælenda í borgarhverf-
unum, Shubra, Badel Shareya
og á Guiza-torginu, þrátt fyrir
margendurteknar tilkynningar
í útvarpi og sjónvarpi um, að
verðhækkununum hefði verið
frestað.
Enn voru háðir bardagar
milli lögreglu og mótmælenda í
nótt í Kairó vegna verð-
hækkana og er tala látinna nú
talin vera orðin um 30.
'Ðeirðirnar hófust á þriðju-
K
Sadat forseti. Vil kenna
kommúnistum um allt saman.
daginn sl. vegna þeirrar
ákvörðunar ríkisstjórnarinnai
að hækka verð á nokkrum
þýðingarmiklum vöruflokkum.
Hefur ríkisstjórnin sakað
kommúnista um að standa að
baki mótmælaaðgerðunum,
sem eru hinar alvarlegustu
síðan i janúar 1975.
14 klukkustunda útgöngu-
bann stjórnarinnar í Kairó og
Alexandríu virtist ekki hafa
mikil áhrif, né heldur að lög-
Þrír handteknir
fyrir tólfára gamalt
morö í Danmörku
Þrír menn sitja í gæzluvarð-
haldi í Viborg í Danmörku við-
riðnir eitt merkilegasta morð-
mál, sem nokkurn tima hefur
komið upp þar í landi. Það er
hið svonefnda „beinagrindar-
morð“ sem fyrir tilviljun varð
uppvíst fyrir rannsóknir dug-
legs rannsóknardómara sem
fengið hafði sem sitt fyrsta
verkefni að lýsa því yfir að Carl
Jensen skósmiður væri látinn,
en hann hafði horfið sporlaust
við undarlegar kringumstæður
tólf árum áður. Rannsóknar-
dómarinn heitir Morten
Wagner.
Jensen hvarf er hann vann
að byggingu sumarbústaðar
síns. Wagner spurði síðasta
eiganda bústaðarins, hvort
hann hefði tekið eftir ein-
hverju undarlegu við húsið. Jú,
svalirnar höfðu sigið á einum
stað.
Þegar grafið var þar fundu
menn lík Jensens og enda þótt
ekkert væri eftir nema beina-
grindin var hægt að sýna fram
á að hann hefði verið myrtur.
Lögreglan hóf mikla leit að
morðingjanum og þar kom, að
einn var handtekinn, sem játaði
að hafa myrt Jensen vegna þess
að hann hefði haft uppi kyn-
ferðislega tilburði við sig.
Þessi játning mannsins hélt
þó ekki lengi og eftir nokkrar
vikur játaði maðurinn að hafa
drepið Jensen, að skipun
manns sem keypt hefði skó-
verzlun af Jensen og síðan
ráðið hann til starfa.
„Bílstjóri verzlunareigand-
ans var einnig með honum að
grafa líkið,“ sagði sá, sem hand-
tekinn hafði verið. „Okkur var
lofað peningum, en við fengum
þá aldrei."
Ástæðan fyrir því að Jensen
var myrtur, var að hann og
verzlunareigandinn höfðu orðið
óvinir og að Jensen vissi eitt-
hvað um hann sem verzlunar-
eigandinn vildi fyrir alla muni
halda leyndu.
Hinn handtekni játaði einnig
að hafa síðar kveikt í verzlun-
inni og að hann hefði einnig
syðilagt bíl hans að beiðni eig-
andans.
Þá var verzlunareigandinn
handtekinn. Jú, hann kannaðist
við að hafa fengið manninn til
að brenna búðina og eyðileggja
bílinn til þess að hafa fé út' úr
tryggingunum. En morðið
kannaðist hann ekkert við.
Og þriðji maðurinn, hvað
sagði hann? 1 fyrstunni næsta
lítið, því hann hafði fafið
i ferðalag með fjölskylduna til
Mallorka. En hann kom hins
vegar heim til Danmerkur fyrir
skömmu af fúsum vilja, enda
hafði Interpol verið sett I spilið.
Hann játaði að hafa verið með i
því að kveikja í, hafa heyrt eitt-
hvað minnzt á bílamálið, en
vissi ekkert um morðið.
Margt virðist samt benda til
að játning morðingjans hafi við
rök að styðjast. En morðdeild
lögreglunnar á þó við mikil
vandamál að stríða.
Það eru liðin tólf ár slðan
þessi atburður gerðist. Ein áf
aðalspurningunum I þessu máli
er, hvað það hafi verið, sem
skósmiðurinn vissi um verzl-
unareigandann, sem leitt gat til
þess, að hann var ráðinn af
dögum.