Dagblaðið - 03.03.1977, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977
7
Amin segir erlenda mála-
liöaráðast inn í Uganda
Talsmenn ríkisstjórna Kenya
(>K Bandaríkjannohat'aborið til
baka fregnir frá Ltganda, þess
efnis að bandarískir, brezkir og
ísraelskir málaliðar væru
komnir að landamærum
Uganda og Kenya og hygðust
ráðast þar inn innan skamms.
Báðar stjórnirnar hafa sagt
þessi ummæli furðuleg og al-
gjörlega tilhæfulaus,
Talsmaður ríkisstjórnarinn-
ar í Kenya bætti því við, að ekki
þ.vrftu að koma til málaliðar
erlendra ríkja til að steypa
stjórninni í Uganda. Brátt hlyti
að koma aö því að þjöðin sjait
tæki ákvörðun um, hver ætti að
stjórna landinu.
Útvarpið í Uganda sagði eftir
Idi Amin að hann hefði fengið
bréf þar sem staðið hefði að
2.600 erlendir málaliðar væru
að fara yfir landamæri Kenya
og Uganda. Þeim til aðstoðar
væru, hermenn úr ríkisher
Kenya.
Þetta er í þriðja skiptið á
tveimur vikum, sem Amin
boðar að innrás sé í vændum í
ríki sitt.
Ken.vamenn telja að innan
skamms, muni Ugandabúar
sjálfir taka af skariö og gera út
um, hverjir eigi að stjórna
landinu. Idi Amin eða
einhverjir hæfari.
Geimskutlan Enterpirse flýgur hér á baki móðurskips síns i eyðimerkursólinni i Kaiiforníu.
Tilraunir með Enterprise hafa gengið svo vel að búizt er við því að hún verði tekin í notkun fyrr en
áætlað var. Upphaflega átti að prófa hana sex sinnum, en fyrirsjáanlegt er, að síðasta skiptinu verði
sleppt.
Ekki er úr vegi að segja frá því, að þegar Paul Conrad sá fyrst mynd af Enterprise og móðurskipinu
teiknaði hann í snatri nýja mynd af þeim og setti í texta: „Ekki í kvöld, eiskan, ég er með höfuðverk.“
Duiarfullur hugsunarháttur það..
Ekki í kvöld, elskan,
ég er með höfuðverk
Mótstaöa gegn
lan Smith íhans
eigin flokki
Fari svó að sjórn Ians Smiths
snúist gegn honum í dag, kann
svo að fara að boðað verði til
nýrra þingkosninga.
Ian Smith forsætisráðherra
Ródesíu mætir sennilega í dag
fyrsta mótstöðu flokks síns,
Ródesíufylkingarinnar, um 13
ára skeið. Tólf samflokksmenn
hans hafa hótað að greiða at-
kvæði gegn frumvarpi um
fyrsta skref stjórnarinnar til að
rýmka um kjör svartra og
litaðra i landinu og að litaðir
eigi kost á að sitja á þingi
Ródesíu.
Fréttamenn í Salisbury segja
að ef þessir tólf þingmenn
greiði atkvæði gegn tillögu
Smiths og stjórnarinnar, kunni
það að leiða til sérstaks flokks-
fundar. Sumir spá því jafnvel
að til nýrra þingkosninga
kunni að koma.
Forsætisráðherra Hollands:
Engar sannanir fyrir
þvíað Bernharð prins
hafi þegið mútur frá
Northrop-fyrirtækinu
Forsætisráðherra Hollands,
Joop Den Uyl, sagði í þingræðu
í gær, að engar sannanir hefðu
fundizt um, að Bernhard prins
hefði þegið mútur frá Northorp
flugvélafyrirtækinu. Ef ein-
hverjar sannanir þess efnis
kæmu fram, myndi ríkisstjórn-
in stuðla að því þegar í stað, að
þær væru rannsakaðar.
Það vár þingmaður úr
hollenzka sósíalistaflokknum,
sem fór fram á að þetta mál
yrði rannsakað. Sem kunnugt
er flæktist prinsinn í Lockheed-
mútumálið í fyrrasumar og
varð að afsala sér öllum titlum
og embættum vegna þess.
AUKIÐ OFBELDI í SJÓNVARPSEFNI í U.S.A.
— börn verða fyrir slæmum áhrif um
Ofbeldi i sjónvarpsefni hefur
aldrei verið meira en á síðasta
ári segir í skýrslu sem banda-
ríska þinginu var k.vnnt í gær.
Er þá miðað við þrjár stærstu
sjónvarpsstöðvarnar í Banda-
ríkjunum.
Einnig kom það fram að
mælzt hefðu að meðaltali 9.5
ofbeldisverknaðir á klukku-
stund i bandarísku sjónvarps-
efni. en það er hækkun frá
fyrra meti sem var sett 1967.
Dr. George Gerbner, yfir-
maður fjölmiðlaskólans ' í
Pennsylvaníu, staðfesti að of-
beldisverkum á skerminum
hefði fjölgað í 9.5 úr 8.1 1967.
Hann sagði að þessi aukningu
væri að finna víðast hvar í dag-
skránni, jafnvel í fjölskyldu-
þáttum sem gerðir eru að
verulegu le.vti með börn í huga.
Talsmenn skýrslunnar fullyrtu
einnig að börn yrðu fyrir
verulega slæmum áhrifum af
því sem þau sjá í sjónvarpi. Er
forstöðumenn stærstu sjón-
varpsstöðvanna CBS og NBC
voru beðnir að tjá sig um málið,
sögðu þeir að dagskráin væri
ávallt undir eftirliti af þeirra
hálfu, en þeir miðuðu að því að
minnka ofbeldi í sjónvarps-
myndum sínum. Hins vegar
sögðu þeir að stundum væri
nauðsynlegt að sýna ofbeldi, ef
það væri í beinu samhengi við
annað myndefni.