Dagblaðið - 03.03.1977, Page 12

Dagblaðið - 03.03.1977, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977 Maier helt marki sinu hreinu hjá Bayern Muncnen í gærkvöld — en hins vegar tókst honum ekki að verja á myndinni hér að ofan. Það var á dögunum, þegar Frakkar sigruðu vestur-þýzku heimsmeistarana 1-0 í París. Körfuknattleiksdeild Fram varð mjög sigursæl á Reykjavíkurmðtinu. Fram sigraði bæði í 2. og 3. flokki karla—og í minniboltanum urðu strákarnir hér að ofan Reykjavíkurmeistarar. Þeir heita — talið frá vinstri: Lárus Guðbjartsson. Daníel Helgason. Friðrik Friðriksson, Steinn Guðjónsson, fyririiði, Sigursteinn Tómasson og Eggert Ketilsson, þjálfari Fram. Fremri röð frá vinstri: Jón Júliusson. Þorsteinn Guðmundsson, Grímur Hjartarson, Lárus Hjartarson og Kristinn Jónsson. DB-mynd Bjarnieifur. St. Etienne, Frakklandi, sem lék til úrslita gegn Bayern í fyrra, sigraði Liverpool að viðstöddum 28 þúsund áhorfendum í St. Etienne. Liverpool, sem lék án Kevin Keegan, var óheppið að tapa leiknum. Fékk betri tæki- færi og Heighway átti stangar- skot. En á 80. mín. skoraði Bathe- nay eftir hornspyrnu og það var eina mark leiksins. Fjórði leikurinn í Evrópubik- arnum var í Zurich. Þar sigraði Zurich Dynamo Dresden, A- Þýzkalandi, 2-1. Áhorfendur 19 þúsund. Cucinotta og Risi skoruðu fyrir Zurich, Kreishe fyrir Dresden-liðið. 4 leikir í kvöld Keppni í milliriólunum í B- keppninni í Austurríki lýkur í kvöld. Þá keppa Búlgaría og Frakkland, síðan Svíþjóð- Tékkóslóvakía í A-riðlinum í Vín- arborg. Svíum nægir jafntefli til að ná því að keppa um efsta sæti í B-keppninni á sunnudag. Þá nægir Frakklandi jafntefli til að komast í lokakeppni HM í Dan- mörku. Í B-riðlinuin í Linz verða einn- ig tveir leikir. ísland leikur við Ilolland, síðan Austur-Þýzkaland og Spánn. Sigur gcgn Hollandi ætti að tr.vggja íslenzka liðinu rétt til að keppa um 3ja sætið á laugardag í B-keppninni, því ákaflega litlar líkur eru taldar á því, að Spánverjar geti unnið Aust ur-Þj óðver j a. TveirVík- ingar austur Tveir af meistaraflokksmönn- um Víkings undanfarin sumur munu ekki leika með Víking í sumar. Adolf Guðmundsson verður þjálfari á Austfjörðum — annaðhvort Seyðisfirði eða á Vopnafirði. Þá mun Þórhallur Jónasson starfa á Neskaupstað og mun leika mert Þrótti þar. Óskabyrjun hjá QPR QPR fékk lieldur betur óska- start gegn gríska lirtinu AEK í UEFA-keppninni i gær. Eftir 11 min. stórt 2-0 fyrir QPR og Garry Francis skoraði bæði mörkin úr vítaspyrnum, sem danski dómar- inn dæmdi á AEK. Fyrst var Stan Bowies felldur innan vítateigs — síðan Don Givens. Fvrir leikhléið skoraði Bowles 3ja mark QPR, en fleiri urrtu 'mörkin. Það var 11. mark Bowles í Evrópukeppninni — met. QPR ætti nú að hafa góða möguieika til að sigra AKE í keppninni. en gríska liðið hefur komirt þar mjög á óvart. Slegið Derby, Dynamo Moskvu og Rauðu stjörnuna, Belgrad. út. Önnur úrslit i UEFA-keppninni i gær. í Bilbáo: Atletico Bilbao — Barcelona 2-1. Ahorfendur 65 þúsund. Churruca og Ruiz skoruðu fyrir Bilbao, en Asensi fvrir Barcelona. í Magdeburg: Magdeburg, A- Þýzkalandi. — Juventus. italíu. 1-3. Áhorfendur 32 þús. Joachim Streich skorarti fyrir Magdeburg, En Cuccureddu. Benetti og Boninsegna fyrir Juventus. Þá gerrtu Fejenoord og Molenbeek, Belgíu. jafntefli i Rotterdam 0-0 og var belgíska liðirt lengstum sterkari aðilinn í íeiknum. Evrópumeistarar Bayern eru í hættu gegn Dynamo — eftir minnsta sigur á Olympíuleikvanginum í Miinchen í gær Bayern Miinchen, sem stefnir að fjórða sigri sínum í röð í Evrópubikarnum í knattspyrnu, vann sigur á Dynamo Kiev á Olympiuleikvanginum í Munch- en í gær. Það var fyrri leikur liðanna í átta-liða úr- slitum, en þrátt fyrir talsverða yfirburði í leik sigraði Bayern ekki nema með 1-0. Það kann að reynast lítið veganesti, þegar liðin leika að nýju í Kænugarði í tJkraníu eftir hálfan mánuð. Rainer Kuenkel, sem leikur í stað Gerd Miiller, skoraði eina marks leiksins á 43. mín. til mik- illar ánægju fyrir 74 þúsund áhorfendur. Þeir bjuggust við fleiri mörkum, en það var ekki raunin þó svo Franz Beckenbauer léki sóknarframvörð nær allan timann. Þung pressa Bayern var einstaka sinnum rofin með skyndisóknum Dynamo, en mark Bayern komst varla í hættu. Liðin voru þannig skipuð: Bayern Maier, Andersson Schwarzenbeck, Beckenbauer, Gruber, Roth (Weissl 83 mín.), Torstensson, Kappellmann, Rummenigge, Kuenkel, Hoeness (Oenal 83 mín.). Dynamo. Rudakov, Konkov, Reshko, Femenko, Mativienko, Troshkin, Slobodian (Muntyan 83 mín.), Beresznay, Suvev, Buriak og Blohkin. Borussia Mönchengladbach lék við Brugge í Dusseldorf og þar voru áhorfendur 65 þúsund. Brugge, drifið áfram af Roger David (áður Derby) komst í 2-0 með mörkum Cools og Courant, en Kulik tókst að skora eitt mark fyrir Borussia. Staðan í hálfleik 1-2. t síðari hálfleiknum jafnaði Alan Simonsen fyrir Borussia — en þýzku meistararnir eiga erfiðan leik framundan í Brugge 16. marz. íþróttir

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.