Dagblaðið - 03.03.1977, Page 15
l'ACBLAÐIÐ. FIMMTUDACUK :i. MARZ 197:
Ráðstefnumi
sem talandi er
Úlfurinn bjargaði
veiðimanninum
Þetta er líkan af ráóstefnu-
miðstöð sem byggja á í Berlín
en bvggingarframkvæmdir eru
þegar hafnar. Byggingin verður
88.000 fermetrar að stærð og
gert er ráð f.vrir að henni verði
lokið í apríl 1979.
Ráðstefnumiðstöðin .verður
320 metrar á lengd og 80 metrar
á breidd. t stærsta fundarsaln-
um verður rúm fyrir fimrn þús-
und manns i sæti. Þar að auki
vet'ða áttatíu aðrir fundarsalir í
miðstöðinni. Utbúnaður verður
fyrir hendi þannig að hægt
verði að túlka á átta tungumál
samtímis og á boðstólum verður
öll sú fullkomnasta aðstaða sem
hægt er að hugsa sér fyrir
ráðstefnur og fundi.
Miðstöð þessi mun tryggja að
Berlín verður ein af tíu borgum
heims, sem bjóða upp á bezta
þjónustu fyrir ráðstefnur og
hvers konar fundarhöld.
Rússneskur veiðimaður.
Nikolai Bulko, var á gangi í
sköginum í grennd við veiðistöð
í Hvíta-Rússlandi. Allt I einu
stökk gaupa upp á bak Nikolais.
Náði hann rétt að hrópa:
„Busjui, komdu hingað.“ Og
síðan leið yfir hann.
Þegar hann rankaði við sér lá
gaupan dauð við hlið hans og
skammt frá illa særður úlfur.
Nikolai gat með erfiðismunum
komið úlfinum að mótorhjóli
sfnu sem hann hafði skilið eftir
i skógarjaðrinum. Hann fór
með úlfinn á dýraspítalann og
sjálfur til læknis.
Þetta var enginn venjulegur
skógarúlfur, sem þarna kom við
sögu og bjargaði veiðimannin-
um." Nikolai hafði veitt úlfa
fyrir sex árum og í hópi sex
yrðlinga, sem hann veiddi fyrir
dýragarð var lítill yrölingur
sem Nikolai hélt eftir, ól hann
upp og kallaði Busjui.
(APN).
Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Árangursríkar til-
raunir með getnaðar-
vamir fyrir karia
Konur vantrúaðar á að karlar passi nágu vel upp á
íþróttamynd
ársins í
Bandarískir vísindamenn
hafa nú „fundið upp“ getnaðar-
varnarlyf fyrir karlmenn og
vantar aðeins leyfi viðkomandi
yfirvalda til þess að hægt sé að
koma því á markaðinn.
Þetta er karl-hormóninn
testosterone og fyrirfinnst
hann í meðalaskáp flestra
lækna.
„Það er ekki nokkur vafi á
því að meðalið dugar,“ sagði dr.
Emil Steinberger prófessor við
læknaskóla i Houston í Texas.
„Eins og stendur höfum við
ekki ástæðu til þess að ætla að
éinhverjar óæskilegar hliðar-
verkanir hljótist af þessu lyfi."
Heilbrigðisyfirvöld í Banda-
ríkjunum vilja fá betri og ná-
kvæmari sannanir fyrir
skaðleysi lyfsins áður en leyfi
verður gefið til þess að setja
það á almennan markað.
Testosteron er náttúrlegt
efni sem stöðvar sæðisfram-
leiðslu karla ef því er dælt í
blóðið á tólf daga fresti.
Dr. Steinberger og samstarfs-
menn hans hafa re.vnt lyfið á
tuttugu mönnum og komizt að
raun um að það ber tilætlaðan
árangur.
Ekki aðeins að sæðisfram-
leiðsla mannanna hætti, þannig
að þeir verða gjörsamlega
ófrjóir, heldur urðu þeir ekki
fyrir neinum líkamlegum eða
andlegum óþægindunt, — og
þeir héldu óskertri kynhvöt.
Skömmu eftir að „tilrauna-
mennirnir" hættu að fá
testosteron sprauturnar urðu
þeir frjóir á nýjan leik.
Dr. Steinberger vinnuf
einnig að tilraunum á því hvorf
hægt sé að taka þennan honnón
í pilluformi.
Þeir sem eru á móti þessari
notkun á karlhormóninum hafa
bent á að langvarandi notkun á
honum geti aukið líkurnar á því
að karlar fái krabbamein i
blöðruhálskirtilínn.
Þessu mótmælir dr. Stein-'
berger harðlega því hann beld-
ur þvl frant að ekki þurfi að
gefa nema lítið af testosteroni
til þess að ná góðum árangri.
Annar bandariskur prófessor
tók í santa streng og dr. Stein-
berger. dr. Fawcett frá
Harward-háskóla. Hann segir
að ef testosteron harmón er
notaður í of stórum skiimmtuin
geti hann orsákað lifrar-
skemntdir eða blööruháls-
kirtils sjúkdóma. Sé efnið hins
vegar notað í eins litlum niæfi
og nauðsynlegt er til getnaðar-
varna sé það alveg skaójaust.
Konur sem spurðar hafa
verið álits á þessu máli hafa
látió I ljósi efasemdir um að
karlar gættu þess nógu vel að
taka getnaðarvarnarlyf á rétt-
ttm tíma, jafnvel þótt slíkt yrði
á boðstólum.
Dr. Elizabeth Conell, hjá
Roekefeller stofnuninni, sem
þekkt er fyrir rannsóknir sínar
á sviði getnaðarvarna, segir að
þetta muni ekki leysa allan
vandann.
„Frá sjónarhóli konunnar
verður það alla tíð mjög erfitt
að tre.vsta því að karlmaðurinn
sjái um þá hliðina sem að
getnaðarvörnum snýr, nema
samband hennar við manninn
sé mjög náið og traust. Við meg-
um ekki gle.vma því að það eru
þó konurnar, sem enn ganga
með og fæða börnin," segir
hún.
Dr. Steinberger er dálítið
bjartsýnni:
„Mér finnst áríðandi að karl-
menn taki meiri þátt í barn-
eignum en hingað til hefur
tíðkazt. — Þeir eiga að gera
meira en að frjóvga konur
sínar."
Hann er á þeirri skoðun aö
flestir karlmenn vildu gjarnan
vera meiri þátttakendur, eins
(oi; t.d. ákveða í samráði við
konur sínar hvort þau skuli
• ígriast barn, en ekki láta kon-
una eina um þá ákvörðun.
A vesturströnd Banda-
rík.janna vinnur dr. Paulsen
proféssor við læknaskólann i
Scattle að því að finna
. ‘t naðarvarnir fyrir karla.
Ilann hefur framleitt pillu er
nefnist Danazol og skal hún
tekin daglega. En einnig er
náuðsynlegt að fá testosteron
sprautu mánaðarlega.
Danazolið stöóvar sæðis-
myndun en mánaðarlega
sprautan viðheldur kynget-
úrinL
Danazolið hefur hins vegar
ekki revrizt mjög vel. þvi 20%
af þeim sem l.vfið var prófað á
revndust framleiða sæði eftir
sem áður.
Þýtt og endursagt A.B.j.
Þýzkalandi
Arlega hafa íþróttafréttamenn það fyrir sið að kjósa iþróttamynd
ársins. Þýzkir íþróttafréttamenn skipuðu fimm manna dómnefnd
undir forsæti Willi Daume, sem er formaður þýzku Olympíunefnd-
arinnar. Hafa dómararnir nýlega kveðið upp þann úrskurð að þetta
sé iþróttamvnd ársins 1976.
Myndin var tekin af Jochen Steliwaag, ljósmyndara frá Stutt-
gart. í sigUngakeppriinni i Kingston í Kanada á síðustu Ol.vpipíu-
leikum. Stellwaag kallaði þessa niynd sína: „Varaðu þig, við
fljúgum!“