Dagblaðið - 15.03.1977, Page 12

Dagblaðið - 15.03.1977, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 Keflvíkingar og Hnífsdælir drjúgir í júdó Síðastliðinn sunnudag var keppt í þyngdarflokkum kvenna og flokkum unglinga í ísiands- meistaramótinu í júdó í Kennara- háskóla íslands. Keppendur í ungiingafiokknum voru 29 en 16 kepptu í kvennaflokkunum. Sér- staka athygli vöktu keppendur frá Reyni í Hnífsdai og eins Ung- mennafélagi Keflavíkur en júdó er mjög vinsælt á þessum stöðum. Urslit á meistaramótinu urðu: Konur Léttvigt (undir 54 kg.) 1. Magnea Einarsdóttir, Á. 2. Sigurlína Júlíusd., Reyni. 3. Þórunn Ásmundsdóttir, Á. Millivigt (54—60 kg.) 1. Anna Lára Friðriksd., Á. 2. Anna Líndal, Á. 3. Rut Sigurðardóttir, Á. Þungavigt (yfir 60 kg.) 1. Þóra Þórisdóttir, Á. 2. Sigurveig Pétursd., Á. 3. Karen Erlingsdóttir, UlA. Unglingar 15—17 ára Undir 59 kg. 1. Einar Olafsson, Reyni. 2. Finnbogi Jóhannesson, Reyni. 3. Arnar Sigurjónsson, UMFK. 59-64 kg. 1. Þórarinn Ölason UMFK. 2. Ketilbjörn Tryggvason, JFR. 3. Kristinn Bjarnason, UMFK. 64-70 kg. 1. Viðar Finnsson, Reyni. 2. Daníel Eyjólfsson, UMFK. 3. Guðmundur Ármannsson, UMFG. Yfir 70 kg. 1. Sigurður Hauksson, UMFK 2. Gunnar Rúnarsson, UMFG. 3. Elvar Dagbjartsson, Á. Næstkomandi sunnudag, 20. rnarz, fer fram síðasti hluti íslandsmótsins í júdó. Verður þá keppt í opnum flokki karla og opnum flokki kvenna. Ajax stefnir í meistaratitil Nú virðist flest benda til að Ajax Amsterdam sigri í 1. deild- inni í Hollandi en Ajax hefur nú fimm stiga forustu á Feyenoord og sjö stig á meistara PSV Eind- hoven. Ajax tapaði að vísu stigi um helgina en það gerði PSV líka og Feyenoord tapaði óvænt á heimavelli en lítum á úrslitin unriielgina í Hollandi: Eindhoven — Breda 1-1 Venlo — Ajax 2-2 Twente — Sparta 1-1 Utreeht — FC Haag 5-1 Telstar — PSV 2-2 Go Ahead — Harlem 2-1 Feyenoord — AZ ’67 0-2 FC Amsterdam — Graafsehap 2-1 Roda — NEC 1-0 Ajax hefur nú hlotið 42 stig eftir 26 leiki — Feyenoord 37 stig og PSV Eindhoven 35. Átta lið í úrslitum Ursiitakeppnin í Evrópu- meistaramótinu í knattspyrnu 1980 verður milli átta liða — ekki fjögurra eins og áður eftir því, sem skýrt var frá í Berne á laug- ard. Akvörðun var tekin á fundi UEFA þar, en nánar gengið frá keppnistilhögun í júní. Felld var tillaga frá Vestur-Þjóðverjum, að allir leikir alveg fram í úrslita- leikinn yrðu leiknir heima og að heiman. Þá var einnig felld tillagan frá Belgíu að Evrópu- meistarar kæmust beint i úr- slit—og einnig, að eitt lið utan Evrópu tæki þátt í úrslita- kcppninni. Þá var á fundinum í Berne ákveðið að halda áfram því banni, að lcikmcnn klæðist búningum með auglýsingum í keppni á veg- um UEFA. Stenmark og Morerod öruggir sigurvegarar í brunkeppninni í Heavenly Valley í Kaliforniu um helgina missti Franz Austurríkismaðurinn Klammer af öllum möguleikum til að sigra í heims- bikarnum á skíðum. Heims- Ingemar Stenmark hefur haft yfirburði í stórsviginu í vetur og alveg skotið ólvmpíumeistaranum Heini Hemmi, sem hér sést á myndinni, ref fyrir rass. meistaratitillinn blasir nú annað árið í röð við Ingemar Stenmark. Hann er með 55 stiga forskot á Klaus Heidegger, Austurríki, en Klaus er eini keppandinn, sem hugsanlega gæti veitt Stenmark keppni. Næsta mótið í heimsbikarnum verður í Voss í Noregi 17. og 18. marz nk. Síðan verður keppt i Are í Svíþjóð 20. og 21. marz óg keppninni lýkur í Sierra Nevada á Spáni 24. og 27. marz. Stigakeppnin stendur nú þannig í karlaflokki. 1.1. Stenmark, Svíþjóð, 239 2. F. Klammer, Austurríki, 203 3. K. Heidegger, Austurr. 184 4. B. Russi, Sviss, 148 5. G. Thoeni, Ítalíu, 122 6. Heini Hemmi, Sviss, 117 7. Piero Gros, Italíu, 116 8. J. Walcher, Austurríki, 115 9. F. Sepp, V-Þýzkalandi, 97 10. P. Frommelt, Lichtenst. 88 I kvennaflokki er Lísa María Morerod svo gott sem orðin heimsmeistari. Staðan þar er: 1. L.M. Morerod, Sviss, 294 2. A.M. Moser, Austurríki, 238 3. M. Kaserer, Austurriki, 204 4. B. Habersatter, Aust. 186 5. H. Wenzel, Lichtenst. 150 6. M.T. Nadig, Sviss, 133 7. P. Perren, Frakklandi, 107 8. C. Giordani, Italíu, 101 9. B. Zurbriggen, Sviss, 78 10. F. Serrat, Frakklandi, 77 Jóhann Kjartansson kóngurinn á íslandsmóti unga fólksins! — í badminton, sem háð var á Akranesi um helgina — Þetta var hörkuskemmtiiegt mót og þátttaka góð, sagði Rafn Viggósson, formaður Badmin- tonssambands íslands, þegar blaðið leitaði hjá honum frétta af Unglingameistaramótinu í bad- minton, sem háð var á Akranesi um helgina. Keppendur voru 85 frá fimm félögum, ÍA, TBR, KR, Val og TBS. Keppnin hófst í nýja íþrótta- húsinu á Akranesi um hádegi á laugardag og haldið áfram fram eftir degi. Á sunnudag var byrjað kl. níu um morguninn, en eftir hádegi voru úrslitaleikirnir í öll- um aldursflokkum. Urslit urðu þessi: Einliðaleikur pilta, 16 til 18 ára. Þar sigraði Jóhann Kjartans- son, TBR. Lék til úrslita við Viði Bragason, IA, og frekar auðveldan sigur 15-7 og 15-8. I einliðaleik stúlkna, 16—18 ára, léku Sóley Erlendsdóttir, TBS, og Lovísa Hákonardóttir, TBS, til úrslita. Sóley sigraði 11-0 og 11-4. I tvíliðaleik stúlkna sigruðu þær Sóley og Lovísa Ásgerði Hákonar- dóttur og Eriksínu Asgríms- dóttur, TBS, með 15-8 og 15-2. I einliðaleik drengja, 14—16 ára, sigraði Guðmundur Adolfsson, TBR. Lék til úrslita við Öskar Bragason KR og vann með 11-2 og 12-10. I tvíliðaleik drengja sigruðu Daði Arngríms- son og Haraldur Marteinsson, TBS. Léku til úrslita við Gunnar Jónatansson og Gylfa Oskarsson, Val, og unnu með 15-8 og 15-5. I tvíliðaleik telpna sigruðu Anna Steinsen og Björg Sif Friðleifs- dóttir, KR. I úrslitum sigruðu þær Kristínu Magnúsdóttur, TBR, og Bryndísi Hilmarsdóttur, Val, með 15-11 og 15-3. I tvenndarleik telpna og drengja sigruðu Guð- mundur Adolfsson og Kristín Magnúsdóttir, TBR. Léku til úrslita við Snorra Guðjónsson og Hrefnu Guðjónsdóttur, ÍA, og unnu með 17-16 og 15-9. 1 tvíliðaleik pilta, 16—18 ára, sigruðu Jóhánn Kjartansson og Sigurður Kolbeinsson, TBR. Léku til úrslita við Víði Bragason og Björn H. Björnsson, IA, og unnu 15-7 og 15-5. I tvenndarleik pilta og stúlkna sigruðu Jóhann Kjartansson, TBR, og Guðrún Blöndal, TBS. Léku til úrslita við Jón Bergþórsson og Björgu Frið- leifsdóttur, KR, og unnu með 15-5 og 15-10. I einliðaleik telpna, sigraði Anna Steinsen, KR. Hún lék til úrslita við Kristínu Magnús- dóttur, TBR, og vann með 2-11, 11- 5 og 11-2. I einliðaleik sveina, 12— 14 ára, léku Gunnar Tómas- son, TBR og Þorgeir Jóhannsson, TBR, til úrslita. Gunnar sigraði 11- 4 og 11-8. I einliðaleik meyja 12— 14 árasigraði Særún Jóhanns dóttir, TBS. Sigraði Þórunhi Öskarsdóttur, KR, í úrslitum með 11-6 og 11-0. I tvíliðaleik sveina sigruðu Þorsteinn Hængsson og Þorgeir Jóhannsson, TBR, þá Gunnar Tómasson og Hauk Birg- isson, TBR, í úrslitum með 18-13 og 15-4. I tvíliðaleik meyja sigruðu Þórunn Öskarsdóttir, KR, og Guðrún Bragadóttir, ÍA. Léku til úrslita við Bryndísi Hilmarsdóttur og Maríu Ammen- drup, Val, og sigruðu. I tvenndar- leik sveina og meyja sigruðu Þor- geir Jóhannsson, TBR, og Bryndís Hilmarsdóttir, Val. Léku til úr- slita við Odd Hauksson og Særúnu Jóhannsdóttur, TBS, og sigruðu með 15-13 og 15-11. Þá var einnig keppt í enn yngri aldursflokkum — hnokka- og tátuflokk eins og þeir voru kall- aðir. Keppendur 12 ára eða yngri. Ekki var um Islandsmeistaratitla að ræða í þeim flokkum. I einliða- leik i hnokkaflokki sigraði Gunnar Mýrdal, IA, en hann lék til úrslita við Þórhall Ingason, ÍA, og vann í þremur lotum, 11-5, 5-11 og 11-9. I einliðaleik í tátuflokki sigraði Ingunn Viðarsdóttir, IA. Lék til úrslita við Mjöll Daníels- dóttur, TBR, og vann með 11-3 og 11-5. I tvíliðaleik hnokka sigruðu Árni Hallgrímsson og Þórhallur Ingason, ÍA, þá Harald Gylfason og Gunnar Mýrdal, ÍA, með 15-10 og 15-9. I tvíliðaleik í tátuflokki sigruðu IngunnViðarsdóttir og Hrönn Reynisdóttir, tA, Drífu Daníels- dóttur og Mjöll Danielsdóttur, lA, 15-10 og 15-11. I tvenndarleik hnokka og táta sigruðu Þór- halldur Ingason og Ingunn Viðarsdóttir, ÍA, þau Árna Hall grímsson og Hrönn Reynisdóttur, tA, með 15-9 og 15-12. Bommi hefur áhyggjur þegar hann byrjar endurhæfinguna. Eg hef áhyggj-\( Nita, hver er ur af Nítu. y ~"y það? Þú virðist gramur, hvað er að? 'Stúlkan mín. Við slitum samvistum þegar ég fór og nú er ég að hugsa um ^hvort við getum byrjað á, ~Unýjan leik..

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.