Dagblaðið - 25.03.1977, Blaðsíða 28
STAÐFEST
—maðurinn
enn íhaldi
UPP,
UPP,
UPP
— fer norðurendi
Kröflustöðvar-
hússins
Noröurendi stöðvar-
hússins við Kröflu heldur
ferð sinni áfram hægt og
hægt upp á við og hefur nú
risið 9,3 mm. Skjálftarnir
síðasta sólarhring urðu
flestir síðan þessi hrina
hófst eða 142 kippir þar af
19 yfir 2 á Richterskvarða.
Fimm skjálftar fundust í
Kröflubúðum en sá stærsti
mældist 2,6 á Richter.
Klukkan 8.40 í morgun
höfðu mælzt 84 skjálftar frá
því kl. 3 í gærdag. Útlit er
því fyrir að skjálftarnir
verði færri þennan sólar-
hringinn. EVl
Dánarorsök ungu konunnar
er lézt að heimili sínu í fyrri-
nótt var ekki staðfest í morgun,
að sögn rannsóknarlögreglunn-
ar. Réttarkrufning var gerð.
Skýrsla um hana lá ekki fyrir,
þegar DB spurðist fyrir um
hana.
Unga konan, sem lézt með
svo sviplegum og hörmulegum
hætti, hét Sigríður Jósteins-
dóttir, f. 19. okt. 1942. og var
því 34 ára að aldri, barnlaus.
Eiginmaður konunnar gerði
viðvart um lát hennar kl. rúm-
lega 4 í fyrrinótt, aðfaranótt
fimmtudagsins. Við frum-
skoðun var talið að konan
kynni að hafa látizt um það bil
tveim til fimm klukkustundum
fyrr en lögregla og læknir
komu á vettvang.
Áverkar voru á líkama kon-
unnar, eins og DB sagði frá í
gær. 1 gærmorgun reyndist
erfiðleikum háð að yfirheyra
eiginmann konunnar, vegna
undangenginnar áfengisneyzlu.
Hann er enn í haldi. í morgun
hafði hann ekki verið úrskurð-
aður í gæzluvarðhald. Þrír
rannsóknarlögreglumenn
vinna að rannsókn málsins.
Þeir eru Njörður Snæhólm, Jón
M. Gunnarsson og Haraldur
Árnason. Einnig vinnur Örn
Höskuldsson, fulltrúi yfirsaka-
dómara, að málinu.
BS/GS Sigríður Jósteinsdóttir.
Upphaf ævintýraferðar
Það voru kátir krakkar sem sem var að fara í söngferð tif
lögðu „loft undir fót“ með flug- Færeyja. Stjórnandi kórsins, Guð-
félagi Islands í gær. Það var líka mundur Norðdahl, var með í för-
full ástæða fyrir þau að gleðjast inni en fararstjóri er Vilbergur
en þetta var skólakór Garðabæjar Júlíusson skólastjóri. Krakkarnir
eru úr Flataskóla, sem áður hét
Barnaskóli Garðahrepps, og eru á
aldrinum níu til þrettán ára. Á
söngskránni eru bæði innlend og
erlend lög. DB-mynd Sveinn
Þorm.
— A.Bj.
Skýrsla um réttarkrufningu lá ekki fyrir ímorgun:
DÁN ARORSÖK EKKI
Iðnaðarráðherra á ársþingi Félags íslenzkra iðnrekenda:
IÐNAÐUR MEÐ LAKARILÁNSKJÖR EN
SJÁVARÚTVEGUR 0G LANDBÚNAÐUR
talsverðar úrbætur væntanlegar fár
„Hvað lánskjör varðar býr
iðnaðurinn við lakari lánskjör
en aðrir höfuðatvinnuvegir
okkar, landbúnaður og sjávar-
útvegur," sagði Gunnar Thor-
oddsen, iðnaðarráðherra, i
ræðu á ársþingi Félags ís-
lenzkra iðnrekenda í gær.
Um leið gat hann þess að á
vegum iðnaðarráðuneytisins
væru nú starfandi tvær nefndir
til að kanna þessi mál og gera
tillögur til úrbóta.
Þá sagði hann að í ár yrði
veruleg aukning á útlánagetu
fjárfestingasjóða iðnaðarins.
Mest verður aukningin hjá Iðn-
lánasjóði, úr 728 milljónum í
fyrra í liðlega 1200 milljónir í
ár. Hér skiptir máli traust eigin
fjármögnun sjóðsins, að fram-
lag ríkissjóðs þrefaldast á þessu
ári, eða hækkar úr 50 milljón-
um í 150 og að lán frá Fram-
kvæmdasjóði hækkar úr 250
milljónum í 450 milljónir á
þessu ári.
Einnig gat hann fleiri atriða
sem hann sagði til hagsbóta
fyrir iðnaðiunn.
-G.S.
frfálst, úháð Hagblað
FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1977.
Katla
minnir
ásig
Almannavarnarráð V-
Skaftfellssýslu og björg-
unarsveitarmenn í Vík voru
skjótir á sínar varðstöðvar í
gærmorgun er vart varð
jarðskjálfta í austanverðum
Mýrdalsjökli. Snarpasti
kippurinn mældist 4,5 stig á
Riehter. Fannst hann sums
staðar í Vík og á bæjum í
kring. Fleiri skjálftar urðu
enn minni.
Veginum austur yfir Mýr-
dalssand var lokað í skyndi
af ótta við að nú væri Katla
að vakna af nær 60 ára
svefni. Skjálftavirknin stóð
fram til klukkan langt geng-
in eitt en féll þá með öllu
niður.
Björgunarsveitarmenn
létu alla Víkurbúa og nær-
sveitafólk vita um hættu-
ástandið. Klukkan 4 var svo
vegurinn austpr yfir sand
opnaður á ný, en aftur
lokaður í nótt i öryggisskyni.
Jarðeðlisfræðingar geta
engu' um spáð hvað þessi
hristingur boðar en hann er
sá mesti á svæðinu Síðan
1967.
-ASt.
Ekki bólar á
vestanioðnu
I morgun hafði rannsókna-
skipið Árni Friðriksson ekki orðið
vart við loðnu út af Vestfjörðum
en skipið er nú búið að leita á
allstóru svæði. Verður leit haldið
áfram. Loðnubátarnir halda
áfram aðfá slatta hér og slatta
þar.
_________ -G.S.
Fimm unglingar
böðuðusig
ívornóttinni
Fimm ungmenni stálust í sund-
laugarnar í Laugardal um tvö-
leytið í nótt. Þegar lögreglan kom
á staðinn voru allir að fá sér sund-
sprett í lauginni.
Ungmennin höfðu gengið mjög
snyrtilega um og ekki unnið nein
spjöil, aðeins fengið sér sund-
sprett I vornóttinni.
A.Bj.
Innbrotínótt
_[ Sigölduvirkjun:)
Gangsetning tókst með ágætum
— raf magn þaðan eftir aðra helgi
„Startið gekk einstaklega vel,
titringsmælingar sýndu eins
litinn titring og bezt verður á
kosið, legur sýndu eðlilegan
hita og upp úr annarri helgi
ætti rafmagn að fara að berast
frá vélinni," sagði Egill Skúli
Ingibergsson, staðarverk-
fræðingur við Sigöldu, í viðtali
við DB i morgun.
Nú um helgina er frihelgi, en
strax eftir helgi verður farið í
að ganga frá búnaði í tengslum
við vélina svo sem sísegulvél,
sem er stjórntæki.
Skv. upphaflegri áætlun átti
þessi fyrsta vél af þrem að fara
í gang um áramót en eins og
fram kdm í viðtali DB við Egil
Skúla fyrir tæpum mánuði
stafa þessar tafir af því að
frágangur vélabúnaðarins var
með nokkuð öðrum hætti en
búizt hafði verið við. Seinkaði
það vinnu og kostaði meiri
mannskap.
Þessi fyrsta vél, eða túrbína,
á að geta framleitt 51,5 mega-
vött. Til samanburðar á Kröflu-
virkjun að geta skilað hámark
um 70 megavöttum. Fvrst um
sinn er reiknað með að hún
l'ramleiði um 40 megavött, þar
sem ekki er komin full vants-
hæð í uppistöðulón virkjunar-
innar og þar með ekki fullur
þrýstingur.
Egill Skúli sagði að vinna við
vél nr. 2, mundi taka mun
skemmri tíma en við fyrstu
vélina, endá væru allir helztu
annmarkar komnir í ljós. Bjóst
hann við að hún kæmist i
gagnið með haustinu en unnið
er að nákvæmri áætlun um það.
— mikill drykkjuskapur
íborginni
I nótt var brotizt inn í kjallara-
íbúð í vesturbænum og þaðan
stolið talsverðum verðmætum. Þá
var brotizt inn hjá SÍS á
Kirkjusandi og þaðan stolið
kindakjöti. Var það um miðnætt-
ið. Skömmu síðar náðust kjöt-
þjófarnir með þýfið, en þarna
reyndust vera tveir menn að
verki sem lögreglan hefur oft
áður haft afskipti af.
Samkvæmt upplýsjngum
Einars Bjarnasonar varðstjóra
var talsvert um drykkjuskap í
borginni í nótt, sérstaklega
miðað við að ekki var helgi, þótt
ekki hefðu orðið neinar óspektir
vegna ölvunarinnar.
-A.Bj.