Dagblaðið - 31.03.1977, Page 3

Dagblaðið - 31.03.1977, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977. Ó// blaðasali, vænd- iskonur og fisksalar Frissi í Freiburg skrifar: Tveir fullorðnir menn, einn fisksali og svo einhver annar, hafa lagt sig niður við að skrifa um starfsemi Óla blaðasala á horninu við Reykjavíkur Apðtek. Báðir komast að þeirri niðurstöðu að Óli neyti afls- munar til verndar umráðasvæði sinu og eins að hann ætti að fá sér „mannsæmandi“ vinnu eða eins og fisksalinn orðar það „fara í eyrarvinnu eins og hver annar". Sá blaðsöluháttur, sem enn er við lýði í Reykjavík, er orðinn næsta sjaldgæfur í borg- um Evrópu. Gefur hann okkar annars litdaufa götulífi i Reykjavík ómissandi blæ, auk þess sem unglingarnir fá marg- ir hverjir sín fyrstu kynni af lífsbaráttunni í kapitalísku þjóðfélagi. Erlendis þekkist slík næsta óvernduð götusölu- mennska aðallega í tveimur at- vinnugreinum, blaðsölu og í elztu atvinnugreininni, vændi, — læt ég hér ósagt hvort sú atvinnugrein sé mannsæmandi eður ei. Við skulum gera ráð fyrir því að annar ,,skríbentinn“ hafi mannsæmandi starf, með mannsæmandi hvítan flibba og mannsæmandi stimpil í hendi og snúum okkur að starfi fisk- salans og Óla. Enginn munur er á sölustarfi Óla og fisksalans. Fisksalinn gat notað eyrinn, sem hann vann sér inn á eyrinni, ásamt því að verða þar að manni, til þess að fá sér þak yfir höfuðið og söluvarning sinn. Auk þess kaupir hann tryggingu til verndar sjoppu sinni, m.a. með því að ganga í stéttarfélag. Dagblöðin tíu notar hann nú sem umbúðapappír. Fisksalinn yrði sennilega ekkert hress ef einhver grásleppukarlinn stað- setti kerru sína beint fyrir framan fiskbúðina, s.s. á hans umráðasvæði. Fisksalinn kallar á lögregluna. Vændiskonan kallar á melludólginn og Óli kallar, já, í hvern á Óli að kalla? Það er munur að vera maður með þak yfir höfuðið og verndara við hlið sér, eða þá vændiskona með sterka menn sér til varnar. Ég seldi blöð á götum Reykja- víkur um líkt leyti og fisksal- Eygi ekki f rum- leikann í Morðsögu — á þetta skilið styrk úr sjöðum hins almenna borgara? Einar Guðmundsson skrifar: Myndin „Morðsaga" hefur vérið með fádæmum vel aug- lýst, enda von því hér er á ferð- inni fyrsta íslenzka kvikmynd- in í mörg ár. Mikið hefur verið rætt um nauðsyn þess að koma á fót íslenzkum kvikmyndaiðn- aði, eða eins og maður nokkur skrifaði í Mbl. „yfirvöldin verða líka að hugsa um andlegu fæðuna handa landsmönnum". Það er nauðsynlegt að styrkja íslenzkan kvikmyndaiðnað fjár- hagslega og skilst mér að það hafi verið gert (1 milljón) í þessu tilfelli. Hvers vegna þarf kvikmynd að vera íslenzk? 1 öllu þessu flóði missjúkra erlendra mynda kemur loksins ein íslenzk mynd. En til hvers? „Jú, blessaður maður þetta er alislenzk mynd, með íslenzku tali, íslenzk hús og kvenfólkið maður, ekki má gleyma því. Týpískar íslenzkar aðstæður með hrauni og viðeigandi. Og þráðurinn maður; enginn smá þráður." Myndin virðist mér eiga að sýna islenzkt fjölskyldulíf sem er í rúst. Slík hjónabönd eru víst á hverju strái hérlendis. Gott og vel. En sökkvum okkur eilítið dýpra í þessa ádeilu og hverju við fáum að kynnast. Lífið á þessu ömurlega/- glæsilega heimili snýst allt um rassinn á hálfsturluðum karl- fausk sem er að drepast úr sjálfselsku og öðrum skyldum kvillum. Kvenpeningurinn á heimilinu er gjörsamlega niðurbældur og veit maður fátt um þeirra eiginleika nema þá umburðarlyndi þeirra beggja svo og kynlífsdrauma hinnar langsoltnu eiginkonu. Ef tekiö er saman hvað gerist í myndinni er æði oft vikið að kynlífi. Fæstar eru senurnar þó mjög grófar en áhorfendum gefinn kostur á að nota ímynd- unaraflið þeim niun meira. Senur á milli kynlífsatriðanna, virkuöu á mig"Sem hrein upp- fyllingaratriöi því þær enduðu allar í einhvers konar kynlifi eða hugleiðingum um slíkt. Að sjálfsögðu á þetta ekki við um lokaatriöiö sem er útför kúgar- ans sjálfs en sú sena kemur skemmtilega á óvart að opnum dyrum eftir nýafstaðið Geir- finnsmál. Að sjálfsögðu er morð í myndinni og auðvitað einnig nauðgun. Það þykir ekki „þrjú- bíó"-hæf mynd í dag nema 1—2 nauðganir eigi sér stað annað slagið svona rétt til að hressa móralinn. Morðið í myndinni er hressilega ógeðslegt en þó held ég að það séu ekki nema í mesta lagi börnin sem ennþá hafa gaman af morðum. Æ þetta er svo hversdagslegt með öll þessi morð. Nei, i alvöru talað Reynir Oddsson. Þessi fögnuður/- (ófögnuður) fæddist í hugskoti þínu. Guð og geðlæknar séu þér næstir. Til hvers? spyr ég einu sinni enn. Varla er það gróðinn sbr. dagblöðin. Einhver útrás eða upphefð fyrir þig og sköpunargáfu þina? Reyndu að prófa vatnsliti eða útsaum frekar en þessar • ógeðslegu mannlífssenur sem þú hugsar út. Og enn spyr ég: Hvaða menningarlegt, andlegt.og þjóð- félagslegt gildi hefur það að taka kvikm.vnd sem gæti þess vegna verið samsett úr nokkr- um erlendum hallærismyndum sem hér hafa gengið. Skella síðan íslenzku tali á allan ófögnuðinn og segja: Þetta á skilið styrk úr sjóðum hins al- menna borgara, því þetta er framtak öllum til góðs. Skiptir engu máli hvers konar ómynd er verið að framleiða? Næstum nákvæmlega þessa mynd hef ég verið að horfa á í erlendum útgáfum í mörg ár. Það er sama skítalyktin af flestum myndum sem sýndar eru í dag. Annars á ég kannski bara eitthvað bágt, a.m.k. hlýt ég að fylgjast illa með tíðarandanum, þó aðeins tvítugur sé. Ég eygi bara því miður ekki frumleik- ann í myndinni. Raddir lesenda inn. Þetta var góð reynsla, ég var sjálfstæður, gat boðið mér í þrjúbíó og upp á ís. Ein skemmtunin var sú að hrekkja uppstökka manninn við Reykja- víkur Apótek. Við vissum að þetta var hans umráðasvæði og að blaðasala var hans eina „lifi- brauð" en vissum líka að hann gat ekki hlaupið hratt með öll þessi blöð í fanginu og langræk- inn var hann ekki. Ef hann páði til að dangla í okkur, þá var okkur sjálfum um að kenna, okkar heimska. Fólk sem á leið um hornið við Reykjavíkur Apótek ætti að hjálpa Óla blaðasala í hans sjálfsbjargarviðleitni með því að stugga þessum tillitslausu smáormum og óvitum frá honum og hans atvinnu. Megi okkar litrika persóna, Óli blaða- sali, skreyta horn Austur- strætis og Pósthússtrætis um ár og síð. Umsjön: JFM Ungur, reglusamur maður óskar eftir atvinnu. Hefur bíl til umráða. Getur unnið part úr degi allan daginn eða eftir samkomulagi. Er vanur verðútreikningum, tollskýrslum, innheimtu og bókhaldi. Get tekið vörur í umboðssölu. Uppl. í síma 12850. 28644 EW.U-M 28645 Fasteignasalan sem er íyðar þjónustu. Spararhvorki tána né fyrirhöfn við að veitayðursem bezta þjónustu Seljavegur 2ja herb. 65 fm ibúð á fyrstu hæð, öll nýstandsett, auka- herb. í kjallara. Verð 6 millj- ónir, útb. 4 milljónir. Suðurvangur, Hf. 3ja herb. 100 ferm. íbúð á 1. hæð í blokk, þvottahús í íbúðinni. Krummahólar 2ja herb. 55 ferm. ibúð á 5. hæð í háhýsi frábært útsýni. Skipti á stærri eign æskileg. Verð 6 millj. útb.4 til 4,5 milij. Hraunbœr 4ra herb. 110 ferm. á 1. hæð í blokk, mikið skáparými, teppi á gólfum verð 10,5 millj., útb. 7,5 millj. Leirubakki. 3ja herb. 90 ferm. ibúð á 1. hæð í blokk. aukaherb. í kjallara, þvottahús í ibúðinni, teppi á gólfum, falleg i!)úð. Verð 8,5 til 9 millj. Hóagerði endaraðhús sem var að koma í sölu, stærð 2x87 ferm, 4 herb. 2 samliggjandi stofur. Einarsnes 4ra herb. 100 fm timburhús’ á steyptum grunni, stór og mikil eignarlóð. Innri-Njarðvík, Njarðvíkurbraut einbýlishús, 158 ferm á 800 ferm eignarlóð, húsið er ekki alveg fullklárað, bíl- skúrsréttur. Verð 14 millj. Hella, Rangórvöllum Drafnarsandur fokhelt einbýlishús, stærð 135 férm. Verð 3 til 3,5 millj. Hveragerði, Kambahraun einbýlishús, 150 ferm, ásamt 50 ferm bílskúr, 3 herb.. 2 stofur. V'erð 12,5 millj. Höfum kaupanda að 4ra—5 herb. ibúð í vesturborginni. Okkur vantar allar tegundir eigna á skrá ft£df6p fasteignasala Solumaður ÖEdugötu 8 Fmnur Karlsbon heimasimi 434 70 símar: 28644 : 28645 ValgarÖuf Sigufdsson logff , Spurning dagsins Tekurðu mikið af Ijósmyndum? Gunnhitdur Jónsdóttir hús móðir: Bara við sérstök tækifæri. Það er alltof dýrt að taka myndir, sérstaklega litmyndir, en það er skemmtileg iðja. Björn Jónsson laganemi: Nei, það geri ég ekki. Þó á ég tvær myndavélar, meira að segja japanskar. Sennilega skortir mig áhuga til að sinna ljósmyndun. Henrik Thorarensen fv. staris- maður i Útvegsbankanum: Ékki lengur. Ég tók mikið af myndum þangað til þeir stáiu af mér -myndavélinni. Þetta var fín vél sem ég keypti á 27 krónur sænskar og ég náði oft ágætum myndum á hana. Jón K. Sæmundsson ljósmynd- ari: Allan daginn, alla daga. Ég rek nefnilega ljósmyndastofu i miðbænum. Heigi Skúlason leikari: Ekki svona „maniskt" eins og sumir. Ég bregð þessu fyrir mig einstaka sinnum við sérstök tækifæri. Jon Wathne verzlunarmaður: Nei, ég er nú alveg hættur því í bili. Ég á enga myndavél eins og er, en mála bara myndir í staðinn.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.