Dagblaðið - 31.03.1977, Page 6
b
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977.
(FlugslysiðáTenerife ) *
Flugumferðarstjóramir
ræktu starf sitt vei
samtöl fóru fram á góðri ensku—báðir
höfðu mennirnir allan hugann við starfsitt
Flugumferðarstjórarnir
tveir, sem voru á vakt á sunnu-
dagskvöldið þegar Boeing 747
þoturnar tvær rákust saman a
Tenerife, voru yfirheyrðir í
gærkvöld. Eftir áreiðanlegum
heimildum að dæma fóru
mennirnir tveir í hvívetna eftir
alþjóðareglum og ræktu starf
sitt óaðfinnanlega.
Það eru bandarískir og holl-
enzkir sérfræðingar sem rann-
saka orsakir þessa flugslyss,
sem er hið mesta, sem orðið
hefur síðan flugvélasmíði
hófst. Er könnuð voru samtöl
flugturnsins við þoturnar tvær
kom í ljós að þau fóru fram á
góðri og vel skiljanlegri ensku.
Flugumferðarstjórarnir stað-
hæfðu báðir að þeir hefðu haft
allan hugann við starf sitt allar
níu mínúturnar sem liðu á
undan flugslysinu. Þrír af fjór-
um flugritum þotanna voru
sendir í nótt með flugvél til
Bandaríkjanna þar sem þeir
verða rannsakaðir nákvæm-
lega. Fjórði flugritinn, sem var
í KLM-þotunni hollensku,
finnst ekki.
Alls lifir nú 71 maður eftir
flugslysið. Allt þetta fólk var í
bandarísku Pan Am-
flugvélinni 55 voru fluttir
heim til Bandaríkjanna í gær
með ,,Starlifter“, — fljúgandi
sjúkrahúsi. Einn hinna slösuðu
lézt í þeim flutningum. Margir
voru svo illa farnir aö þeim var
þegar í stað komið á sjúkrahús
)»
Dagblöð í Hollandi slógu flug-
slysinu upp á forsíðum með
sínu stærsta letri á mánudags-
morguninn, eins og reyndar
dagblöð um viða veröld.
er flugvélin lenti í New Jersey.
Þeir sem voru í betra ásigkomu-
lagi voru fluttir til Texas og
Kaliforníu. — Lík hollenzku
farþeganna verða flutt til síns
heima á föstudag eða laugar-
dag.
Um það bil 2.000 manns
. mættu i gær til minningarguðs-
þjónustu um þá sem fórust í La
Laguna dómkirkjunni á
Tenerife, skammt frá Los
Rodeos-flugvellinum þar sem
slysið átti sér stað.
SS!
Tussen 560en óOOdoden W
ZWAARSTE LUCHTRAMP
S'T.r" iioumjí | Cruijffweer g
Sfíici 'L J .JtuitlmV onbetwiste f'
bbSöTí M KI.M en I leider h.
leYolk*L1.a»t
LJ
JEPPAEIGENDUR
^ „DE RIJ.N" TELDE 249 IN/ITTENDEN |'
Botsing KLM en Panam
Sparið bensín og minnkið slit með Warn
framdrifslokum. Warn framdrifslokur fóst í
eftirtaldar bifreiðir:
Land Rover Willy’s Wagoneer
Ford Bronco Scout
Willy’s jeppa Blazer
og flestar gerðir af pick-up bifreiðum
með fjórhjóladrifi.
Amerísk bif reiðalökk
Þrjár línur íöllum litum
Mobil
Synthetic Enamel
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Acrylic Lacquer
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Acrylic Enamel
Mobil OIL CORPORATION FORMULA
Einnigöll undirefni,
málningasíur, vatnspappír
Hrafn Jónsson & Co. Brautarholti 22. Sími 22255.
vergt zeker 560 levens
PÁHAHTOESTt RAMTKLMMACHIHE OP TENERIFE lUMBO'S B0TSTEN:
L 2 EKER 570 D0DEN
rs
7
L
V
aai'mii/rt.NKmfK,
tnswiKW
jjéégjt.
Teltpaií
Mitaj
Sanjay
sagði
afsér
Sanjay Gandhi, hinn umdeildi
sonur Indiru Gandhi, sagði í gær
lausu embætti sínu sem hann
hafði fengið í valdatíð Kongress-
flokksins. Hann hafði umsjón
með vönunarherferð stjórnarinn-
ar, svo og hreinsunum fátækra-
hverfa auk annarra embætta.
Forseti Kongressflokksins,
Kant Barooah, tók lausnarbeiðni
Sanjays til greina. Hann liggur
sjálfur undir ámæli fyrir að hafa
ekki þegar sagt af sér eftir að
Kongressflokkurinn galt afhroð í
kosningunum i siðustu viku.
Sanjay Gandhi bauð sig fram í
kosningunum en kolféll fyrir and-
stæðingi sínum. Hann segist nú
draga sig til baka frá stjórnmál-
um fyrir fullt og allt, — Orðróm-
ur var uppi um að hefði Sanjay
ekki sagt af sér hefði honum verið
vikið frá embættum sínum.
Sanjay Gandhi á kosningafundi i
kjördæmi sínu. Hann tapaði með
miklum mun fyrir andstæðingi
sínum og hefur dregið sig að
fullu og öllu út úr indverskum
stjórnmálum.
Talið var að Indira Gandln
hefði ætlað Sanjay, sem er
þritugur að aldri, stóran hlut í
indverskum stjórnmálum í fram-
tíðinni. — jafnvel að verða eftir-
maður hennar. Frami hans í
Kongressflokknum þótti með ólik-
indum hraður eftir að hann gekk i
unglingafylkingu hans, — sér í
lagi er neyðarástandslög móður
hans gengu í gildi. Þau bönnuðu
einnig að nokkur gagnrýndi hann
eða verk hans.
Billy Carter ásamt Jimmy
bróður sínum. Billy verður
nú að forða sér frá Plains til
að losna við ágang ferða-
manna.
Forseta-
bróðirínn
forðarsér
frá Plains
Billy Carter, bróðir
Bandaríkjaforsetans, neyð-
ist til að flytja frá heimabæ
sínum Plains í Georgia.
Ástæðan er sú að hann og
kona hans hafa engan frið
fyrir ferðamönnum- sem
banka upp á og verða að
berja augum sjálfan bróður
forsetans.
Fjölskyldan hefur því
ákveðið að færa sig um set
sem svarar 30 kílómetrum
frá Plains, þar eð betra næði
gefst þar. Billy Carter er nú
staddur í Nashville í
Tennessee. Fyrr í vikunni
hélt hann erindi á ráðstefnu
þar. — Erindið fjallaði um
hvernig forseti getur um-
snúið gersamlega einum
smábæ. Hann sagði um
flutninga sína frá Plains að
erfitt yrði fyrir ferðamenn
að komast til nýja heimilis-
ins.
Sybil kona Billys lýsti
ástandinu þannig fyrir
blaðamönnum: „Á laugar-
dögum og sunnudögum
banka þrjátíu og fjörutíu
manns að dyrum hjá okkur
og biðja um mynd af fjöl-
skyldunni eða bara eigin-
handaráritun. Þannig er
þetta í raun og veru alla
vikuna þó að örtröðin sé
minni í miðri viku en um
helgar.
Við verðum að fá að eiga
okkar einkalíf í friði eins og
annað fólk. Þess vegna
ákváðum við að flytja.“
Bréfsprengja
fannstípósti
Carters
— sprakk áður en
hann veittihenni
viötöku
Leifar af bréfsprengju, sem
árituð hafði verið til Jimmy
Carters Bandaríkjaforseta,
fundust í póststofu Hvita húss-
ins í nótt. Talsmaður öryggis-
varðar forsetans sagði að
sprengjan hefði sprungið ein-
hvers staðar áður en hún kom
inn í húsið og að hún hefði
ekki verið sérlega öflug.
Sprengj usérf ræði ngar lög-
reglunnar i Washington voru
kallaðir til og fjarlægðu þeir ’
tætlurnar af sprengjunni. —
Póststofan er í skrifstofuálmu
sem liggur frá sjálfu Hvíta
húsinu. Lítill götuslóði skilur
hana og skrifstofu forsetans
að.