Dagblaðið - 18.04.1977, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1977.
5
Einhver, sem hefur vantað
síma, tók sig til og lét verða af því
að fá sér tækið. Tók viðkomandi
það ráð að ræna símanum úr
kaffiskúr vörzlumanns borgarinn-
ar í Selási. Þegar inn í skúrinn
kom var ýmislegt annað sem var
álitlegt t.d. útvarpstæki, úlpa og
teppi. Innbrotsþjófurinn hafði
þessa hluti á brott með sér ásamt
simanum.
-KP
AsKriftir
Afgrev&sla
Auglýsdngar
ÞVERHOLTI 2
»011
Skjaldhamrar slá í
gegn í Bandaríkjunum
aðauki
Svo virðist sem páskarnir hafi
ekki nægt fólki til að lyfta sér
upp. Mikið var um að vera í borg-
inni unt helgina og þó nokkur
ölvun. Lögreglan þurfti einnig að
hafa afskipti af fólki í heimahús-
um. Þar kont til ryskinga milli
íbúa og þurfti lögreglan að aka
fólki í fangageymslur.
Fyrir utan skemmtistaðina i
borginni kom til slagsmála. Ráðizt
var á tvo menn fyrir utan Óðal en
þeir sluppu með rifin og tætt
spariföt. Slegizt var fyrir utan
Þórscafé og Glæsibæ. Lögreglan
fjarlægði óróaseggina og fengu
þeir að gista fangageymslurnar
sem reyndar fylltust aðfaranótt
laugardags.
Lögreglan hafði afskipti af öku-
mönnum sem hún taldi að hefðu
setzt undir stýri helzt til hressir.
-KP
Stal síma
Um miðjan marz sl. var leikrit
.Jónasar Árnasonar, Skjaldhamr-
ar, sýnt í Midland í Ohio í Banda-
rikjunum. DB hefur borizt úr-
klippa úr Midland Reporter Tele-
graph þar sem mjög lofsamlegum
orðum er farið um sýninguna,
bæði leikritið, frammistöðu leik-
aranna og höfundinn sjálfan.
Eftir að greinarhöfundur hvet-
ur lesendur sína til þess að drífa
sig i leikhúsið til þess að sjá góða
leiksýningu segir hann ma. að
Skjaldhantrar sé bæði viðfelldinn
og skemmtilegur leikur í einfald-
leik sínum. Þetta sé ekki þungt og
þrúgandi leikrit eins og verk
hinna þekktustu norrænu leik-
ritahöfunda eins og Strindbergs
og Ibsens.
Leikritið risti dýpra en virðist
við fyrstu sýn. Greinarhöfundur
telur að Jónasi hafi tekizt einstak-
lega vel að lýsa dæmigerðum ís-
lendingi, sem sé bæði stoltur og
sjálfstæður.
Þá lýkur greinarhöfundur, Rog-
er Southall, miklu lofsorði á
frammistöðu hinna bandarísku
leikara og segir að sýningin hefði
eflaust ekki skilað sér jafnvel ef
ekki hefði verið valinn maður í
hverju rúmi.
Greinarhöfundur segir að
Skjaldhamrar sé mjög hnyttið
leikrit, fyndið á stundum og sunt-
ir kaflarnir sé sprenghlægilegir.
Þrátt fyrir það sé þráðurinn í
Eftir helgarböllin:
Rifin ogtætt
spariföt —
ogfangavist
(ESl
Sérverzlun með listræna húsmuni, Borgartúni 29
Ný verzlun
Stólar, borð, lampar, skrautmunir og aðrir hlutir sem sameina notagildi og fegurð,
teiknaðiraf heimsþekktum listamönnum. fyrsta sinn (á Islandi) sérverzlun með listræna
hiísmuni, hluti sem halda gildi sínu eftir bvísem árin líða.
leikritinu alvarlegs eðlis og þótt
leikritið sé leikandi létt sé endir-
inn á þann veg að hann veki fólk
til umhugsunar.
Greinarhöfundur segir að höf-
undurinn, Jónas Árnason, hafi
komið til Midiand í tilefni frum-
sýningarinnar. Hafi höfundinum
tekizt að glæða íslenzka þjóðtrú
dulúð og hafi þetta vakið áhuga
greinarhöfundar á íbúum þessa
fjarlæga eylands norður við heim-
skautsbaug.
A.Bj.
Úr leiksýningunni í Midland i
Ohio. Talið frá vinstri Nikki,
Randy Hicks, Katrín, Coiia
Morrow og majoriStone, Charl-
es Dixon. — Svið&myndin var
gerð veslra en Jónas Arnason
sagði að hann hefði fengið leyfi
Steinþórs Sigurðssonar til að
senda litljósmyndir af sviðs-
búnaði hans utan og hefði verið
stuðzt við þær í gerð leiktjald-
anna í Midland.