Dagblaðið


Dagblaðið - 18.04.1977, Qupperneq 6

Dagblaðið - 18.04.1977, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1977. Hort — Spassky: Spassky sigraði í 15. einvígisskákinni —Hort féll á tíma með unna stöðu „Auðvitað er ég ánægð, sagði frú Marina Spassky við fréttamann DB, þegar hún sat frammi á ganginum fyrir utan keppendasalinn og spjallaði við Högna Torfason og beið eftir manni sínum, sigurvegaranum í 15. einvígisskákinni. „Ég var með betra tafl þar til ég lék e4 í 27. leik“, sagði Spassky, þegar hann kom fram. „Það var ekki góður leikur bætti hann við, „og með honum snerist taflið mér í óhag“. Spassky var ekki þreyttur eftir skákina að eigin sögn, en svo virtist sem hann væri ekki sáttur við sjálfan sig vegna þessa leiks. Smyslov lék við hvern sinn fingur og fór ekki dult með, að hann var í sjöunda himni yfir úrslitum skákarinnar. Hort féll á tíma þegar Spassky hafði leikið sinn 35. leik og átti pa sjálfur eftir 5 mínútur. Lokastaðan var þessi þegar klukkan féll á Hort: 1 ■am. w & • w IP wm. i m i W, m mm wm. ■ i® i ■ ........ HP m, A TT m i Hf A gp ÍIH: w • ■ 1 $>•>>}>? £ ' 1 #77^ m 2 ■ Frú Marina Spassky fylgdi manni sinum tll leiks i gær og iét hann ekki fara matarlausan i 5 klukkustunda einvfgið. MoAal áhorfenda voru þeir, lem myndin sýnir: Oafur Einarsson stórkaupmaAur í Fasti. Róbart Sigmundsson, framkvstj., Bergur Pálsson deildarstj., Ólafur Magnússon, fyrrum íslandmeistari i skák, Jón Þorsteinsson, lögfraaóingur og sáttanefndarmaAur, Ellert Söivason, verslunarm. og fyrrum knattspymustjarna í Val, og Albert GuAmundsson alþingismaAur. Auk þeirra voru meAal annarra: Bjami GuAnason prófessor, Olafur Helgason bankastj., Magnús Gislason bifreiAarstj., Sigurbjöm Pétursson tannlaaknir, Magnús Kristjánsson iAnaAarm., Bjami Linnet, póstmeistari í HafnarfirAi, Stefán Björnsson ftr., Skattstofunni, Gunnlauggr Kristjánsson, bankastj., Helgi Snmundsson, rithöf., Kristján Benediktsson borgarftr., Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur, AAal- steinn GuAjohnsen rafmagnsstjóri, Jakob Hafstein, framkvstj. Halldór Halldórsson blaAam. Páll G. Jónsson stórkaupm. Polaris, Vilmundur Gylfason menntaskólakennari og blaAam.. Benedikt GuAbjartsson, deildarstj. Rafmv. Rvikur, SigurÖu' Þ. GuAmundton læknir, DaviA Oddsson skrifstofustj.. Haukur Már Haraldsson blaöam., Bjöm Víglundsson skákm., Stefán Reynir Kristinsson, viAsk.fr., Baldur Pólmason, dagskrárftr., Útvarpinu, Jón Birgir Pótursson fréttastj., ólafur Geirsson trk -.v. Anton GuAjónsson bifr.stj., Margeir Sigurjónsson, stórkaupm., Steinavör, Hoskuldur SkagfjörA leikari, Ólöf Þráinsdóttir. Kristin GuAjohnsen, Aslaug Kriti'ns- dóttir, Haukur Hnlaanon hagfr., Haraldur Blöndal lögfræAingur, Úlfar Kristmundsson verzlm, Ólafur Orrason, viosku -vo oinhverjir séu nefndir. Með þvi að leika drottnipgu á g4 var Hort með unnið tafl, ef tími hefði verið til að halda skákinni áfram. Klukkan var þá fallin og vinningurinn Spasskys. Spassky hafði hvítt. Upp kom drottningarindverskt tafl. Stór- meistararnir léku nokkru hvassara en oft áður að dómi áhorfenda. Skákin var geysi- spennandi og fékk Spassky fljótlega betra tafl. Eins og oft hefur virzt áður í þessu einvigi tók að halla nokkuð á Spassky, þegar á leið skákina. Eins og hann sagði sjálfur og getið er hér að framan, var það 27. leikurinn, sem hefði getað orðið örlagaríkur, ef Hort hefði leikið ögn hraðar. Skákin tefldist annars þannig: 1. d4 Rf 6 2. c4 —e6 3. Rf3 —b6 4. o3 — Bb7 5. Bd3 — d5 6. 0-0 — Rd7 7. b3 — Bo7 8 . Bb2 — 0-0 9. Rc3 — c5 10. Do2 — Hc8 11. Hfdl — Dc7 12. Hoc1 — Hfe8 13. C«d5 — oxd5 14. Bf5 —g6 15. Bh3 — HcdB 16. Ro4 — Ro4 17. dxc5 — bxcS 18. Bxd7 — Dxd7 19. Re5 — Dc7 20. f3 — Rf6 21. Rd3 — c4 22. Rdc5 — Bc6 23. Bd4 — Bb5 24. Df2 — Rd7 25. Rxd7 — Bxd7 26. Rc3 — Bf5 27. o4 — dxo4 28. Rxo4 — Bxo4 29. fxo4 — c3 30. Hfl — Bb4 31. Bxo7 — Hd2 32. Do3 — Ho8 33. Bb6 — Dd7 34. o4 — c2 35. BcS Svortur féll ó tímo. Sp. 2.25 H. 2.30 Áhorfendur á Hótel Loft- leiðum í gærkvöldi voru ekki mikið yfir tvö hundruð, á æsi- spennandi skák með drama- tískum leikslokum. íslands- meistarinn ungi, Jón L. Árna- son, var meðal skáksýrenda. Náði hann góðu sambandi við áhorfendur og fórst skýringin vel úr hendi. Hort mætti aðeins fyrr til leiks í gær og tendraði stóran vindil á meðan hann beið eftir Spassky. Úrsiitaskákin verður tefid næstkomandi þriðjudag á Hótei Loftleiðum. Hún hefst kl. 5. Hort verður með hvítt. Grasgarðurinn í Laugardal: Hef ur afgreitt fræ til gras- garða víðs vegar um heim Ræktaðir hafa verið sterkir runnar í tilraunastöðinni, en eru ekki komnir íalmenna notkun „Sérhverja nýja frætegund sem okkur tekst að koma til teljum við sigur í að efla gróður landsins,“ sagði Sigurður Albert Jónsson garðyrkjumaður, stöðvarstjóri í grasgarðinum í Laugardal. „Við erum í tengslum við fjöld- ann allan af erlendum grasgörð- um og skiptumst á fræsendingum. Við höfum afgreitt yfir þúsund fræskammta til yfir ]80 garða víðs vegar í heiminum,“ sagði Sigurð- ur. Hann sýndi okkur lista frá gras- görðum báeði í Evrópu, Kína, Japan og Rússlandi. „Að sjálfsögðu hafa erlendu grasgarðarnir miklu fleiri teg- undir á boðstólum en við en í okkar frælista eru nú 287 tegund- ir þar af eru 115 íslenzkar. Við söfnum þessu fræi bæði hér í grasgarðinum og einnig úti í náttúrunni. Hér er um að ræða blóm, tré og runna. Haldin er nákvæm spjaldskrá yfir allar plöntur sem við sáum til og með því móti er smám saman hægt að hafa á takteinum allar nauðsynlegar upplýsingar sem að haldi mega koma við ræktun jurt- anna. Tegundunum er síðan komið fyrir í gróðurreitunum í garðin- um og eru allar vel merktar til þess að almenningur geti kynnt sér hvernig þær líta út,“ sagði Sigurður. Starfsemin í rannsóknarstof- unni er mikið þolinmæðisverk því árangurinn af starfinu kemur í rauninni ekki fullkomlega í ljós fyrr en eftir nokkur ár. Sigurður sýndi okkur fræpoka sem borizt höfðu til stöðvarinnar daginn sem DB kom í heimsókn og voru þeir frá Rússlandi, Hollandi, og tveimur stöðum í Sviss. „Þegar við fáum fræið er því fyrst sáð í potta. Síðan er því dreifplantað og loks er plöntun- um píantað í útireit og þær hafðar undir gleri fyrsta veturinn. Síðan eru þær hafðar i opnum reit og vel merktar til þess að kynna þær almenningi. Þetta getur tekið nokkur ár. Allt sem viðkemur hverri ein- stakri plöntu er síðan skráð í spjaldskrána. Hér er t.d. spjald yfir fræ af runna frá Leningrad. Við fengum fræið i apríl 1964. Þvi var plantað í uppeldisreit árið 1968 en plönturnar fóru ekki út undir bert loft fyrr en fimm árum eftir að við fengum fræið, eða árið 1969. Þetta er sérstaklega sterk og góð runnategund sem hlotið hefur á íslenzku nafnið bergtopp- ur. Hann getur tekið við sér um miðjan vetur ef tíð er góð og það gerir honum ekkert til þótt komi hret — þá hægir hann bara á Ser. Hér er einnig önnur runnateg- und sem reynzt hefur alveg sér- lega vel hér á landi. Runninn er blendingur sem við fengum frá Sigurður Albert Jónsson fékk einmitt fræsendingar erlendis frá daginn sem DB kom i heim- sókn. DB-mynd Bjarnleifur. Wageningen í Hollandi en er upp- haflega frá Ottava í Kanada. Þessi runni er kallaður roðaber á ís- lenzku. Við fengum fræið í maí 1964 og plöntum af því var ekki hægt að planta út fyrr en árið 1970. Á spjaldinu stendur sú at- hugasemd að þessi runnaplanta standi sig mjög vel,“ sagði Sigurð- ur. — Hafa þessar nýju runnateg- undir ekki verið ræktaðar til þess að hafa á boðstólúm handa al- menningi fyrst þær hafa reynzt svona vel? „Nei, garðyrkjubændurnir hafa ekki sýnt þessum tegundum mik- inn áhuga, enda hafa þær ekki verið kynntar almenningi nægi- lega vel," sagði Sigurður. Grasgarðurinn var stofnaður á hundrað sjötíu og fimm ára af- mæli Reykjavíkurborgar, 18.' ágúst 1971. í fyrstu voru plönt- urnar tvö hundruð talsins, gjöf frá Jóni Sigurðssyni skólastjóra og Katrínu Viðar. Annars var það Eiríkur Hjartarson rafvirkja- meistari sem gróðursetti fyrstu trén í garðinum, í kringum 1930. Tegundirnar í grasgarðinum eru nú hátt í þrjú þúsund. Garðurinn er jafnan opnaður almenningi i júníbyrjun en stund- um fyrr ef vel vorar. A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.