Dagblaðið - 18.04.1977, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAC.UR 18 APRII. 1977
Barízt í Shabahéradi
um helgina
— fréttastofan íZaire segirhermenn
frá Zaire og Marokkó standa sig betur
Hermönnum frá Zaire og
Marokkó tókst í sameiningu um
helgina aö hrinda af sér innrás-
arliði því, sem safnazt hefur
saman í Shagahéraðinu í Suður-
Zaire. Að sögn fréttastofu
landsins börðust alls 1.500
Marokkóhermenn með stjórn-
arhernum. Talsvert magn af
hergögnum var gert upptækt og
mannfall var nokkurt í liði
uppreisnarmanna.
Fréttastofan upplýsti, að
uppreisnarmenn hefðu verið
hraktir 20 kílómetra til baka í
bardögunum. Við leit á þeim,
sem féllu, fundust peningar frá
Angola — örugg vísbending að
sögn fréttastofunnar um að
liðið kæmi frá Angola. Þá var
einn uppreisnarmaður hand-
tekinn. Hann verður yfir-
heyrður af háttsettum manni
frá höfuðborginni Kinshasa,
sem var sendur til Shaba. Síðar
fá fréttamenn að ræða við fang-
ann.
Bardagarnir nú um helgina
eru þeir fyrstu síðan uppreisn-
armennirnir réðúst inn í Shaba-
hérað í síðasta mánuði. Forseti
Zaire, Mobuto Sese Seko, lýsti
yfir ánægju sinni með frammi-
Ástralía:
Víðtækáhríf
verkfalls
stöðu sinna manna og kvað nú
fullsannað að innrásin hafi ver-
ið gerð með vitund og vilja yfir-
valda í Angola og studd með
aðstoð frá Kúbu og Sovét-
ríkjunum. Yfirvöld í þessum
löndum þræta stöðugt fyrir að
vera nokkuð við málið riðin.
»
Þorpið Klowezi í Shabahéraði
er aðalmiðstöð kopariðnaðarins
í héraðinu. Þangað eru inn-
rásarmenn sagðir reyna að
komast en án árangurs.
A-Þjóöverjar og Kúbanir
þjálfuöu innrásarliöiö
fullyröirbandaríska tímaritiö Newsweek
_ í nýjasta hefti fréttatima-
ritsins Newsweek er fullyrt að
það hafi verið kúbanskir og
Austur-þýzkir ráðgjafar í
Angola, sen hafi þjálfað 1.500
manna innrásarlið til að ráðast
á Shabahérað í Zaire. Þessar
upplýsingar, segir í ritinu,
fengu bandarísku og frönsku
leyniþjónusturnar nýlega
uppgefnar.
Franska leyniþjónustan er
sögð hafa fengið nöfn 100
Austur-Þjóðverja og 150
Kúbana, sem sáu um þjálfun
innrásarliðsins. Þar að auki
upplýsir Newsweek, að yfirvöld
í Bandaríkjunum og Frakk-
landi hafði ræðzt við með leynd
að undanförnu vegna
ástandsins í Zaire.
Erlendar
fréttir
ASGEiR
TÖMASSON
REUTER
i
Hugðust Ijósmynda
Claudiu Cardínale en
URÐU FYRIR
SK0TÁRÁS
Tveir' blaðaljósmyndarar,
sem hugðust ná myndum af
kvikmyndabombunni
ítölsku, Claudiu Cardinale, í
gær, fengu heldur betur
óblíðar viðtökur. Það var þó
ekki leikkonan sjálf, sem
veitti þær viðtökur heldur
gestgjafi hennar og
samlandi Pasquale Squitieri
leikstjóri. Hann þreif upp
skammbyssu sína og skaut á
ljósmyndarana.
Þeir flúðu skelfingu
lostnir í gamla Fíatnum sín-
um en óður af bræði elti
Squitieri þá í sportbíl og ók
nokkrum sinnum á Fíatinn,
að sögn ljósmyndaranna.
Þeir kærðu leikstjórann til
lögreglunnar. Við leit í bíl
hans fannst ein skammbyssa
og önnur á heimili hans.
Hann þrætti fyrir að hafa
skotið á mennina, en ákærði
þá þess í stað um að hafa
gert gat á limgerði í garðin-
um hans.
Pasquale Squitieri er
þekktastur fyrir nokkrar
kvikmyndir er hann hefur
gert um suður-ítölsku undir-
heimana og mafíuna í
Napóli. Hann er búsettur í
Rómaborg.
flugvalla-
starfsmanna
Belgía:
Flokkur Tindemans
forsætisráöherra
vann sigur í
þingkosningunum
Flugfélagið International Air-
lines skoraði í morgun á ástralska
flugvallastarfsmenn að láta þegar
í stað af verkfalli sínu, sem hefur
staðið í fjóra daga. Nú eru um það
bil 1.000 farþegar fastir í Ástralíu
og fjöldi breiðþota frá Bretlandi,
Ítalíu, Singapore, Hollandi og
Filippseyjum kemst ekkert
sökum þess að eldsneyti er ekki
afgreitt á þær.
Það eru starfsmenn sem sjá um
áfyllingar á flugvélarnar sem eru
í verkfalli. Þeir krefjast hærri
launa og betri vinnuskilyrða.
Talsmaður flugfélagsins
British Airways sagði í nótt að
áhrif aðgerða áströlsku flugvalla-
starfsmannanna væru nú farin að
teygja sig um allan heim, þar eð
þær flugvélar sem væru nú
tepptar gætu ekki staðið við áætl-
un sína til annarra staða á hnett-
inum. Þá eru þúsund-
ir manna, sem bíða eftir flugfari
innan Ástralíu. Landið er svo
stórt, að ógjörningur er að ferðast
með hraði nema með flugvélum.
Ferðamálaráðherra Ástralíu,
Peter Nixon, sagði i gær, að verk-
fallsmennirnir væru að skapa
svipað ástand og í „Bananalýð-
veldi“. „Ástralíumenn kunna því
illa að láta verkfall af þessu tagi
kyrrsetja sig,“ sagði Nixon.
Kristilegir sósíalistar í Belgíu
unnu stórsigur í kosningum, sem
fram fóru í landinu í gær. Sigur
þessi er talinn vera mjög
mikilvægur fyrir Leo Tindemans
forsætisráðherra landsins. Hann
fær nú sjö menn til viðbótar í
neðri deild þingsins, sem nægir
þó ekki til að mynda hreinan
meirihluta. Viðræður um stjórn-
armyndun eru taldar byrja í dag
og eiga eftir að taka langan tíma
samkvæmt venju.
Alls sitja 212 fulltrúar á
belgíska þinginu. Kristilegir
sósíalistar hafa nú 79 þingsæti.
Einn annar þingflokkur er talinn
hafa bætt við sig fylgi er talningu
er að mestu leyti lokið. Það eru
sósialistar, sem voru síðast I
stjórnarandstöðu. Þeir bæta að
öllum líkindum við sig einum.
manni, og hafa nú 60 fulltrua á
þingi.
Formaður Sósíalistaflokksins
sagði, er iiaiin frétti úrslitin, að
hann vildi ekki útiloka þann
möguleika að fara með Tinde-
mans í að mynda meirihlutastjórn
í landinu ásamt Frjálslynda
flokknum.
Ef af slíkri stjórnarmyndun
verður, verður nægur meirihluti
á þinginu til að takast á við þau
vandamál sem Belgar eiga nú við
að stríða. Atvinnuleysi er þar
meira en í nokkru öðru Efnahags-
bandalagsríki. Um átta prósent
landsmanna ganga atvinnulausir.
Þá eru allmörg efnahagsvanda-
mála, sem þurfa skjótrar úr-
lausnar.
Leo Tindemans sagði í nótt, er
línur tóku að skýrast í kosningun-
um, að bersýnilegt væri að þjóðin
treysti sér fyrir því að leysa
vandamálin.
Bhutto hyggst sitja áfram með valdi
—bannaöi spilavíti, næturklúbba og vínneyzlu ígær
Zulfikar Ali Bhutto. forsælis-
ráðherra I’akistan hefur lýsl (. >;
yfir að hann haíi ails ukki í
hyggju að segja af sér til að
binda enda á þær stjórnmála-
erjur sem nú geisa í landinu.
Hann lýsti þessu yfir á blaða-
mannafundi í gær og bætti því
við að hann hikaði ekki við að
beita sér gegn hernum, dytti
yfirmönnum hans í hug að
steypa sér af stóli.
Forsætisráðherrann til-
kynnti í gær að hann hefði
bannað áfengisnotKun, spuavm
og næturklúbba í landi sínu. —
Nú hafa um 170 manns látizt í
óeirðunum í Pakistan, sem
hófust er stjórnarandstæðingar
kváðu Bhutto hafa svindlað í
þingkosningum í marzbyrjun.
Ung stúlka t Baifast flýr i skalfingu, ar óairAir brutust skyndilaga út þar sam hún var stödd.
Unglingur skotinn íBelfast
— 18IRA hermenn hafa veriö í
hungurverkfalli í 44 daga
Brezkur vakthafandi her-
maður skaut i gær á 19 ára
ungling í Belfast — sem lézt
skömmu síðar I sjúkrahúsi.
Pilturinn hafði verið með loft-
riffil í höndunum. Hann neitaði
að kasta honum frá sér þrátt
fyrir ítrekaðar skipanir og
miðaði honum loks að her-
manninum, sem skaut á móti.
I Dublin, höfuðborg Irska
lýðveldisins, sagði dómsmála-
ráðherra landsins í gær að full-
yrðingar IRA um að illa væri
farið með menn í fangelsum
landsins væru rangar. 20 her-
menn Irska lýðveldishersins
fóru í hungurverkfall 7. marz
síðastliðinn til að mótmæla
slæmri aðbúð. Tveir hafa nú
gefizt upp, líðan hinna er eftir
atvikum. Þeir eru allir í sjúkra-
húsi.