Dagblaðið - 18.04.1977, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1977.
BETUR MA EF
DUGA SKAL
Úttektarnefndin sem fjallaói
um Þörungavinnsluna í
Karlsey hefir loks skilað áliti
og tillögum. Bendir á fernt um
að velja og eru allir kostirnir
vondir. Helst leggur nefndin til
að stöðva rekstur verksmiðj-
unnar á meðan hagkvæmari öfl-
unartækni er leituð uppi.
Þetta á víst að vera skynsam-
legt, en mér sýnist þetta vera
fram úr máta óskynsamlegt.
Þörungavinnslan er ekki
sjúklingur sem þarf að svæfa
við uppskurð, heldur sá sem
þarf að leggja hart að sér í
strangri endurhæfingu.
Vissulega er rekstrartapið
staðreynd og vissulega hefir
verið stólað meira uppá þang-
sláttarprammana en þeir
reyndust bærir um. Því er nú
úr vöndu að ráða.
Ekki vantar að allskonar
slettirekur rjúki upp og ýmist
kveði upp sleggjudóma um
Þörungávinnsluna og þær
stærsta sem minnst þekkja, eða
þá hafi hana fyrir skotspón ein-
hverrar mislukkaðrar aula-
fyndni hver sem betur getur.
Uttektarnefndin hefir efa-
lftið vandað verk sitt, miðað við
sínar forsendur. Hitt er þó
ennþá vissara: Það er blátt
áfram óforsvaranlegt að leggja
verksmiðjuna í rúst án nokk-
urra frekari umsvifa. Það er
óforsvaranlegt að greiða heilli
sveit, reyndar heilli sýslu, rot-
högg á þvílíkan hátt. Uttektar-
nefndin kom á staðinn fyrir jól
og hafði hratt á hæli. Má mikið
vera ef henni hefir tekist að
höndla allan sannleika. Ég er
einn þeirra sem hafa takmark-
aða trú á þvi.
Nú skulu rakin nokkur afger-
andi grundvallaratriði
varðandi tilveru og framtíð
verksmiðju Þörungavinnslunn-
ar: Verksmiðjan er komin upp.
Flest undirstöðuatriðin
standast til fulls, verða ekki
færð. Vegur, höfn, hitaveita
sem er nýtískulegt og vandað
verk, verksmiðjuhús, raf-
magnsveita, mjölturnar. Allt
mun þetta standast þær kröfur
V
sem til þess eru gerðar. Stór
hópur fólks, einstaklingar og
samfélag bindur traust við
starfsemi verksmiðjunnar, m.a.
hafa 10 ibúðarhús verið byggð.
Þeim sem þekkja til finnst
alveg óréttlætanlegt að ætla að
kasta öllu þessu á glæ strax og
eitthvað blæs á móti. Þvert á
móti finnst okkur að eigi að
bregðast við af alefli og finna
færar leiðir í stað hinna sem
reyndust svo torfarnar við
þangöflunina. Er þá bæði ólík-
legt og torskilið að alger
stöðvun verksmiðjurekstursins
sé rétt aðferð.
Kjallarinn
Játvarður Jökull
Júlíusson
Verksmiðjureksturinn
byggir á nýtingu náttúruauð-
linda sem endurnýjast í sífellu
af sjálfu sér: Heitu vatni sem
streymir uppúr jörðunni og
þangið sem vex án áburðar og
án umhirðu. Engin mengun af
neinu tagi er samfara önnur en
sú sem leiðir af olíunotkun á
farartæki á sjó og landi.
Norræni iðnþróunarsjóður-
inn hefir lánað til verksins og
skotar (Alginate Industri)
samið um kaup á framleiðsl-
unni fram í tímann.
En veikir hlekkir eru í kerfi
verksmiðjunnar, verulega
veikir. Án efa ber hópur „topp-
manna1' með framkvæmda-
stjóra Rannsóknaráðs ríkisins,
Steingrím Hermannsson,
fremstan í flokki, ábyrgð þar á.
„Prammarnir“ duga ekki. Hita-
nýtingin er alls ónóg. Færi-
böndin eru léleg.
Þessi atriði þarf að sjálf-
sögðu að taka til strangrar yfir-
vegunar og til úrbóta kerfis-
bundið. Það standa svo margir
valdamiklir og áhrifamiklir
menn að þessari verksmiðju-
uppbyggingu, að sæmd þeirra
fer allrar veraldar veg, verði
hætt við fyrsta mótbyr. Þetta er
brautryðjendastarf, þarna er
verið að þreifa sig áfram og það
er það sem er heillandi og er
hvetjandi. Alltaf er verið að
prófa nýtt og nýtt og fjarri fer
að hægt sé að sjá alla mögu-
leika fyrir. Á einu ári hefir
verið unnió við, auk þangsins:
Þaraþurrkun, heyþurrkun,
harðfiskþurrkun og loðnu-
þurrkun. Það tekur engum
svörum að splundra öllu að svo
komnu. Þvert á móti mætti
kveðja til Verkfræði- og raun-
vísindadeild Háskóla íslands að
leysa þarna erfiðustu verkefnin
í samvinnu við uppfinninga-
menn og áhugasama heima-
menn sem áreiðanlega vilja
talsvert á sig leggja til að þetta
brautryðjendastarf geti að lok-
um orðið til gagns og sæmdar
fyrir land og lýð.
Það er takmark sem tilvinn-
andi er að keppa að með öllum
ráðum. Annað er ekki sæmandi
og ég skora á ráðamenn og
stjórnvöld að setja sér það tak-
mark einhuga og því fyrr, því
betra.
Játvarður Jökull Júliusson
Það eru stundum einkenni-
legir hættir leikhúsanna í
Reykjavík. Eitt með öðru
skringilegu sem stundum hefur
mátt taka eftir er tilhneiging
þeirra til að hafa frumsýningar
sínar samtimis, helst sama
kvöldið eða því sem allra næst.
Samkvæmt þessari formúlu
voru í einni og sömu vikunni í
mars þrjár frumsýningar í
Reykjavik, tvær í Þjóðleikhús-
inu og ein í I’ðnó, en sömu dag-
ana var reyndar frumsýnd líka
hin margumtalaða nýja kvik-
mynd, Morðsaga eftir Reyni
Oddsson. Þá höfðu ekki komið
upp nýjar leiksýningar í
Reykjavík í tvo mánuði á
undan, nema ein sýning á litla
sviði Þjóðleikhússins og hin ár-
lega barnasýning þess, og svo
allar skólasýningar.
Þetta er nú varla í frásögur
færandi, og hefur kannski eng-
inn tekið eftir því, nema undir-
ritaður — af þeirri einföldu
ástæðu að ég var fjarverandi af
landinu þessa einu viku á vetr-
inum. Það var nú ekki alveg
nógu heppilegt þegar maður
þykist leggja það fyrir sig að
skrifa leikhús-gagnrýni. En
fyrir vikið hef ég síðan fengið
að sjá þessar sýningar i ró og
næði, Lé konung og Endatafl í
Þjóðleikhúsinu, Straumrof í
Iðnó, án þess að yfir vofði sú
skyldukvöð að fara strax dag-
inn eftir að tjá sig um sýning-
arnar á-prenti. En hitt er svo
sem ekki gott heldur að þegja
með öliu. í þessu starfi verður
það brátt eins og ljótur barns-
vani að þurfa óðara að geta þess
í blöðum ef maður fer í leik-
húsið, eða les bók sér til
skemmtunar.
Lés konungs raunir
Hvað um það: þessar þrjár
leiksýningar held ég að allar
séu, hver með sínu mótinu, í
hóp með þeim sem betri
gerast á reykvísku leiksviði, og
ein þeirra beinlínis annálsverð.
Areiðanlega er sýning Þjóð-
leikhússins á Lé konungi ein-
hver hin tilkomumesta leiksýn-
ing sem hér hefur sést um ár og
dag og um leið mesta og mynd-
ugasta Shakespeare-sýning á ís-
lensku til þessa.
Þetta er nú engan veginn
sagt til að niðra Makbeð-
sýningu Leikfélags Reykjavík-
ur í vetur sem var að mörgu
leyti hrífandi verk, enda engin
efni til þess að fara hér að fitja
upp á samanburði þessara alls
ólíku leiksýninga. Makbeð í
Iðnó var í alla staði, með
kostum sínum og göllum, miklu
heimamannlegri leiksýning en
Lér konungur í Þjóðleikhúsinu.
En sýningin á Lé kóngi var á
meðal margs annars eftirminni-
leg fyrir það hversu bláþráða-
og misfellulaus hún virtist,
engar eyður í leikinn, atburða-
rás og persónusköpun, eins og
oft vill verða þegar klassísk
verkefni eru annars vegar,’
fólksfrek og vandmeðfarin
verk, í báðum leikhúsunum.
Svo heilsteypt og mikilúðleg
túlkun á klassiskum harmleik
hefur aldrei fyrr sést á íslensku
leiksviði: það var eins og
kraftar leikhússins hefðu leyst
úr læðingi, lagðir undir einn
sterkan skapandi vilja.
Áreiðanlega verður heim-
sókn Hovhannes Pilikians leik-
stjóra lærdómsrík bæði leik-
húsfólkinu sjálfu og leikhús-
gestum, og sem betur fer sýn-
ingarinnar vegna en ekki bara
umtals um manninn og margra
langra blaðagreina um og eftir
hann. Ekki er minnst um það
vert ef eftir verður af samstarf-
inu við hann reynsluvit í Ieik-
húsinu sem síðar nýtist við önn-
ur verk og sýningar. Það er nú
eftir að sjá. En eins og stundum
endranær má það að loknum Lé
konungi vel verða umhugsunar-
efni að jafnan þarf til útlenda
leikforustu til að Þjóðleikhúsið
vinni sfn bestu verk, sýni hvers
það í raun og veru er máttugt
þar sem kröftum þess er öllum
kostað til. Eins og á Lé konungi
I vetur, Náttbólinu í fyrra. En
Lér konungur er svo mikils-
háttar sýning, mikil bæði að
efni. og meðferð þess, að maður
beinlínis hlakkar til að sjá hana
að nýju fyrr en leikári lýkur.
Daufur leiðir blindan
Það má nú liggja milli hluta
hvað líkt sé og skylt með Lés
konungs raunum og Endatafli
Samuels Beckett, með þeim Lé
kóngi og fífli hans, eða þá
blinduðum Glostur-jarli og
Tuma tötri á aðra hönd, en leik-
hetjum Becketts, Hamm og
Clov, á hina, eða þá Pozzo og
Lucky í Beðið eftir Godot. Hann
getur ekki staðið, Clov ekki
setið, Lucky er blindur, Pozzo
dumbur. I Lé kóngi leiðir
geggjaður blindan, fíflið kon-
unginn á réttan veg. Þeir góðu
og réttlátu ganga allir af vitinu,
en sakleysið er drepið. En um
þetta efni, hin afkáru heimssýn
í Lé konungi og skyldleika
hennar við afkáraleiki nútím-
ans, höfunda eins og Beckett,
Ionesco, Diirrenmatt, hefur
Shakespeare-skýrandinn Jan
Kott skrifað skemmtilega rit-
gerð með mörgum óvæntum
uppljómunum beggja verka,
Endatafls og Lés konungs.
Þetta má liggja milli hluta þó
V.
Maharishi Mahesh Yogi
KERFIÐ INNHVERF IHUGUN
TRANSCENDENTAL MEDITATION PROGRAMM E
Almennur kynningarfyrirlestur
verður haldinn að Hótel Esju i kvöld, kl. 20.30.
Við iðkun tækninnar innhverf ihugun vikkar tilfinninga- og vitsmuna-
líf, hugsun verður skýrari, aimenn velliðan og aukinn þróttur á sér
stað, eins og vísindalegar rannsóknir sýna fram á.
OLLUM HEIMILL AÐGANGUR
Islenzka íhugunarfélagið
ÍSLENZKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ
Heildsalar — Fyrirtæki —
Framleiðendur
Sameinið kostnaðinn
Viljið þið kynna eða selja vörurykkar.
Reglulegar söluferðir. Ákveðið verð.
Kynniðykkur ferðaprógram fyrir
maímánuð. Sími27676
LEIGUMIÐLUNIIM
húsaskjál
VESTURGOTU 4 S 12850
Höfum opnað leigumiðlun, þar sem
við sjá um um að leigja íbúðir
yðar að kostnaðarlausu
# Sjáum umaðganga frá samningum og
innheimta húsaleiguna.
# Reynið viðskiptin — Við erum ávallt
reiðubúnir að liðsinna yður.
# Við Riöfum opið frá kl. 2-10 alla daga
nema laugardaga kl. 1-6.
Járnsmiðir—vélsmiðir
Til sölu er lítið málmiðnaðarverkstæði
á 100 fm. Vélar og verkfæri fylgja.
Einnig getur fylgt framleiðsluréttur á
mjög sérhæfðu, sjálfvirku tæki. Til-
boð sendist Dbl. merkt „Léttur iðnað-
ur — 1977“.