Dagblaðið - 04.05.1977, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1977.
7
Milljónir Bandaríkjamanna
bíða þess með spenningi að sjá
gamla forsetann sinn, Richard
Nixon, birtast á skerminum í
dag. Þá verður sjónvarpað
fyrsta af fjórum viðtalsþáttum
brezka sjónvarpsmannsins
Davids Frost við Nixon, — þar
sem rætt verður um Watergate
hneykslið.
Þetta er í fyrsta skipti sen
Nixon kemur fram í dagsljósii
síðan hann yfirgaf Hvíta húsii’
með tárin i augunum í ágúst-
mánuði 1974. Síðan hefur
Nixon haldið til í húsi sínu i
Kaliforníu og fengizt við að rita
endurminningar sínar.
Sjónvarpsþættirnir fjórir
taka 90 minútur í sýningu hver.
I þeim fyrsta ræðir David
Frost við Nixon um Watergate
og bakgrunn þess hneykslis,
sem að sönnu er hið mesta sem
dunið hefur yfir forseta
Bandaríkjanna síðan það
embætti var stofnað seint á
átjándu öldinni. Að sögn þeirra
sem séð hafa þáttinn, varpar
hann litlu nýju ljósi á, hvað það
var í raun og veru, sem var að
gerast.
Á síðasta sunnudag birtu
nokkur bandarísk blöð nýjar
upplýsingar um Watergate-
málið, — þar sem enn frekar
þykir sannað að Nixon hafi
vitað meira um innbrotið og
aðdraganda þess, en hann
hefur til þessa viljað vera láta.
David Frost lagði mikla áherzlu
á þessa vitneskju í samtali sínu
og afleiðingin var „niðurbrot-
David Frost og Nixon ræðast við.
inn“ maður, sem var við að
bresta i grát. í enda þáttarins
neitar Nixon þó að vera sekur i
þessu máli.
Nixon fær í sinn hlut að
minnsta kosti 600.000 dollara
fyrir að leyfa David Frost að
ræða við sig. Sú upphæð getur
þó orðið enn hærri ef þættirnir
seljast vel. Allt bendir til að
bandarískur almenningur bíði
þess með spenningi að viðtals-
þátturinn hefjist. „Bandaríkja-
menn munu hafa viðbjóð á
hverri einustu minútu viðtals-
ins og vilja ekki missa af því,
hvað sem i boði er,“ sagði
blaðið Washington Star í gær.
Viðtal Davids Frost við Richard Nixon:
Bandaríkjamenn bíða
þáttaríns með spenningi
Nixon fær 600 þúsund dollara fyrir sinn snúð
Spánn:
Suarez fer í framboð fyrir
miðflokkasambandið
Adolfo Suarez, forsætisráð-
herra Spánar, lýsti því yfir í
gærkvöld að hann hygðist bjóða
sig fram með Miðflokkabanda-
laginu svokallaða sem fimmtán
spænskir stjórnmálaflokkar
standa að. Bandalag þetta var
stofnað til að hindra að öfga-
sinnaðir hægrimenn fengju of
mikið af atkvæðum í þingkosn-
ingunum, sem fram fara 15.
júní næstkomandi.
Litið er á þessa tilkynningu
forsætisráðherrans sem tilraun
hans til að koma einhverri
stjórn á Miðflokkabandalagið
sem er fremur laust í reipun-
um. Suarez þarf ekki að fara í
framboð til að halda embætti
sfnu. Hann tilkynnti ákvörðun
sfna í sjónvarpi f gærkvöld og
kvaðst þá myndi fara rólega í
kosningabaráttuna.
Bannað að aka
eftir klukkan
11 á kvöldin
Sfðustu fimm mánuði hefur
ríkt algjört bann við næturakstri f
bænum Bad Woerishofen f
Bayern f Vestur-Þýzkalandi, Eftir
klukkan ellefu á kvöldin hafa
ökumenn verið stöðvaðir, sektaðir
um 20 mörk (um 1600 fsl. kr.) og
síðan sendir fótgangandi heim.
Astæðan fyrir þessu furðulega
umferðarbanni er sú að bæjar-
yfirvöld vilja að fbúar Bad
Woerishofen og ekki sfður þeir
70.000 ieroamenn sem koma ár-
lega í heimsókn til að leita sér
lækninga fái svefnfrið fyrir véla-
skrölti og flauti. Nú er bannið
hins vegar farið að verka heilsu-
spillandi á hina heilbrigðu.
Venjulegt fólk unir því að sjálf-
sögðu illa að þurfa að hafa hljótt
um sig eftir ellefu á kvöldin. —
Innanrfkisráðuneyti Bayern
hefur nú í athugun kröfu fjölda
manna um að aflétta umferðar-
banninu.
Frakkland:
VINSTRIFLOKKARNIR
MYNDUSIGRA
Bandalag sósfalista og komm-
únista f Frakklandi fengi 56%
greiddra atkvæða ef þingkosn-
ingar færu fram nú. Þessar
upplýsingar komu fram í
franska blaðinu L’Aurore í
morgun, en blaðið gekkst
nýlega fyrir víðtækri skoðana-
könnun um fylgi frönsku
stjórnmálaflokkanna. — Þetta
atkvæðamagn er það mesta sem
vinstri flokka bandalagið hefur
hlotið í skoðanakönnunum til
þessa.
Carter neitar tilvist dauðageislans
Jimmy Carter Bandarikjafor-
seti mótmælti þvi staðfastlega f
gærkvöld að sovézkir vísinda-
menn væru um það bil að fjúka
við uppfinningu sína á dauða-
geislanum. Bandarískt tímarit,
Aviation Week and Space
Technology, sem, eins og nafnið
bendir til, fjallar um visinda-
málefni og uppfinningar, full-
yrðir i nýjasta tölublaði sínu að
nú sé verið að fullprófa þessa
uppfinningu í Sovéiríkjunum.
Carter ræddi við fund banda-
riskra ritstjóra á Honolulu í
gærkvöld og kvað þessa frétt
gjörsamlega ranga. Blaðið full-
yrðir í frétt sinni, að leyniþjón-
ustunni CIA sé kunnugt um
uppfinninguna, en ekki hafi
verið skýrl frá þeirri vitneskju
vegna deilna innan stofnunar-
innar.
-------►
Carter forseti ræddi við
bandaríska ritstjóra, sem
funduðu á Havaii.i gegnunt
sfma. Þar kvaðst hann neita að
trúa fregnum um dauðageisl-
ann.
23636 14654
Til sölu:
Einstaklingsíbúð við
Bergþórugötu
2ja herb. íbúð við
Hjallaveg
3ja herb. íbúð við
Kóngsbakka
3ja herb. sérhœð við
Rauðagerði
4ra herb. íbúð mjög
vönduð við Æsufell.
4ra herb. íbúð við
Kleppsveg.
4ra og 5 herb. íbúðir
við Álfaskeið í Hafn-
arf.
Einbýlishús og raðhús
í Mosfellssveit, eigna-
skipti möguleg.
Sala og samningar
Tjarnarstíg 2 Seltj.
Kvöldsimi sölumanns,
Tómasar Guðjónssonar,
23636.
Valdimar Tómasson lögg.
fasteignasafi.
Matador coupé 2ja dyra
sjálfskiptur ’74.
Matador 4ra dyra ’73.
Matador station '71.
Hornet 4ra dyra '74, ’75.
Hornet 2ja dyra ’74.
Hornet Hatchback ’74, ’75.
Hornet Sportabout ’74.
Gremlin ’74.
Cherokee 6 cyl. beinskiptur
’74.
Wagoneer 8 cyl. sjálfskiptur
’71, ’73, ’74.
Wagoneer 6 cyl. beinskiptur
'71, '72, ’73, ’74, ’75, ’76.
Jeepster ’68, '71, '72.
Jeep CJ5 '72, ’73, ’74, ’75.
Willy’s Jeep ’53, ’55, ’62, ’64,
'65, ’66.
Lancer 1200 og 1400 '74, ’75,
'76.
Galant 1600 grand luxe 4ra
dyra ’75.
Galant 1600 grand luxe 2ja
dyra '75.
Minica station ’74.
Sunbeam 1600 super '76.
Sunbeam 1500 ’70, ’72, ’73.
Sunbeam 1250 ’72, ’73.
Peugeot 404 dfsil, einkabíll,
'74.
Sunbeam Rapier sjálfskipt-
ur ’73.
Hunter ’70, '71, ’72, ’74, ’76.
Saab 96 ’72.
Fiat 850 ’70.
Pinto station ’74,
Mazda 616 ’74.
Rambler Classic ’64.
Toyota Corolla ’71.
Cortina 1600 ’73.
Ford Country Sedan station
'69.
VW 1302 '71.
Nýir bílar
Lancer 1200 4ra dyra ’77.
Lancer Celeste 1600 gt. '77.
Galant Sigma 4ra dyra ‘77.
Sunbeam 1600 super 4ra
dyra '11.
Hornet 4ra dyra sjálfskiptur
'77.
Matador 4ra dyra sjálf-
skiptur '77.
Cherokee '77.
tGILL.
VILHJALMSSON
HF Laugpvegi 118-SW 15700