Dagblaðið - 04.05.1977, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 04.05.1977, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MAl Er blessun að vera bandarískur 1. maí? Svo viróist sem margir hafi tekið fjórmenningana í sjón- varpinu sér til fyrirmyndar og slökkt í seinustu sígarettunni eftir fréttir á mánudagskvöldið. Vonandi gengur öllum jafnvel að standa við það áform. Ég horfði á flesta þættina og fannst þeir bara jafnast á við suma skemmtiþætti, að minnsta kosti voru þeir mnn léttari oe eðlilegri ensumtsemá endilega að vera skemmtilegt en er það alls ekki. Á mánudaginn horfði ég ekki á annað og heldur ekki á þriðjudaginn, dagskráin var ðsköp óaðlaðandi og tímanum betur varið til hvers sem var annars. En miðvikudagurinn var hins vegar ágætur, þrátt fyrir vonbrigðin með Onedin. En það er svo sem ekki í fyrsta sinn sem hann veldur vonbrigð- um. Ég man það víst rétt að tilkynnt var í einhverjum dag- skrárkynningarþætti fyrir tæpu ári að sýningar á Onedin ættu að hefjast aftur sl. haust. Hvað kom þá fyrir? Ég minntist á það um daginn að engin skýring var gefin á hvers vegna einn þáttur af húsbænd- um og hjúum féll niður en nú var gefin skýring á þessu með Onedin. Framför. Eitthvað fór víst úrskeiðis með Prúðu leikarana líka. Þær upplýsingar var að finna í blaði fyrir einum þremur vikum að seinasti þátturinn yrði á dag- skrá næstu viku þar á eftir. En nú bregður svo við að áfram er haldið. Ekki er nema gott að fá að horfa á þessar skemmtilegu skepnur sem lengst og það mun enn eitthvað eftir, að minnsta kosti var kynntur núna á föstu- dagskvöldið þáttur sem ekki var sýndur. Gesturinn var sem sé ekki Candice Bergen, eins og stóð í dagskránni, svo við eigum líklega til góða að sjá hana. Ég ætlaði að horfa á frönsku bíö- myndina á föstudagskvöldið með öðru auganu, svona rétt til að geta sagt eitthvað um hana, en það reyndist ekki hægt nema tapa gjörsamlega þræðin- um, ef hann hefur þá verið ein- hver. Að minnsta kosti botnaði ég hvorki upp né niður. En fólk hefur tjáð mér, sem hafði ekki augun af skjánum allan tímann, að hún hafi verið „sæmileg“. Simone Signoret stóð sig þó með ágætum, svo mikið þóttist ég sjá. Laugar- Snjólaug Bragadóttir dagurinn var ágætur og ég þaut að tækinu þegar ég heyrði að þar var verið að sýna lyftingar. Að vísu hef ég ekkert sérstak- lega gaman af að horfa á unga menn nfmynda á sér kropp- innmeðþvf að bisa við eitthvert járnarusi en mér finnst alltaf sérstakt andrúmsloft í kriugum þetta puð þeirra og spenna í öllum viðstöddum, auk vöðva- spennu keppenda. Jæja, litli lávarðurinn er óskaplega „pen“ mynd, allt svo faliegt og form- fast. Alltaf getur maður hlegið að læknunum en Loftus er þó bestur af öllum. Þátturinn úr einu í annað fór að mestu fyrir ofan garð og neðan hjá mér, nema söngur Heathermae og litla bróður. Ætlar þessi Readingfjölskylda að verða eins konar fósturfjölskylda okkar hérna? Jæja, en ég varð mér úti um ró til að horfa á bíómyndina því ég bjóst við ein- hverju spennandi. Allan tímann var ég reyndar að búast við því, til dæmis að stíflan brysti eða eitthvað verulega æsandi gerðist. En þetta var hálfdauft til loka og endaði í rólegheitum eins og það átti að enda. Stundin okkar er orðin eígin- lega endurtekning á sjálfri sér viku eftir viku. Þar eru alltaf tveir eða þrír myndaflokkar í gangi um sömu persónurnar. En sunnudagskvöldið var ágætt. Þátturinn heimsókn var svo innilega afslappandi að maður bókstaflega stífnaði af formlegheitum þegar hús- bændur og hjú komu rétt á eftir. En það gleður mitt gamla hjarta að blessað fólkið þarna skuli líka gera „hitt“ á þessum siðsemdartímum sem eru á yfir- borðinu. Af því það var nú 1. maí á sunnudaginn rak ég upp stór augu þegar ég sá að dag- skráin átti að enda á einhverju sem nefndist. „En sú blessun að vera Bandaríkjamaður". Átti þetta að vera grín? Jú, það var grín, en á annan hátt en nafnið á þættinum benti til, svona bók- staflega séð. Þarna var gert bæði góðlátlegt óg býsna hvasst grín að öllu bandarísku, í formi söngva. Dóra Hafsteinsdóttir á heiður skilinn fyrir þýðinguna, án góðrar þýðingar á textunum hefði þessi þáttur ekki komisl fyllilega til skila, en slíkt var nauðsyn, einkum á þessum degi. Fljótt á litið sé ég fátt í dag- skrá næstu viku en þó ætla ég að horfa á tálmyndina, þessa sem kom í stað Onedins, húr lofaði bara góðu. Bíómyndirnai á föstudag og laugardag sýnas mér líka vera þess virði a< horfa á þær, hvað sem af þv verður. ( Verzlun Verzlun Verzlun BORGARLJÓS Grensásvegi 24. Sími 82660 .v.^*** No. 180 Kr. 1500.- No. 176 Kr. 4500. No. 171 Kr. 2100,- Ný sending plastik kristal Póstsendum No. 179 Kr. 2900. No. 182 Kr. 2800.- No. 1650 Kr. 2300,- No. 1651 Kr. 2900,- No. 174 Kr. 2300,- 6/ 12/ 24/ volta alternatorar HAUKUR 0G ÓLAFUR Ármúla 32 — Slmi 37700 Þórarinn / Dróttarbeisli — kerrur KrÍStínSSOn Höfum nú fyrirliggjandi original dráttarbeisli á flestar gerðir evrópskra bíla. Útvegum beisli með stuttum fyrirvara á allar gerðir bíia. Höfum einnig kúlur, tengi og fleira. Klapparstíg 8. Siíni Sendum í póstkröfu um allt 28616 (Heima 72087) land. Bilasalan BILAVAL Laugavegi 90-92 Símar 19168 og 19092 Hjá okkur er opið alla daga nema sunnudaga frá kl. 10-19.00 Látið okkur skrá bílinn og mynda hann í leiðinni. Söluskrá ásamt myndalista liggur frammi. — Lítið inn hjá okkur og kannið úrvalið. Við erum við hliðina á Stjörnubíói. BILAVAL SIMAR19168 0G19092 Stigar Handrið Smíðum ýmsar gerðir af hring- og palla- stigum. Höfum einnig stöðluð inni- og útihandrið í fjölbreyttu úr- vali. Stólprýði Vagnhöfða 6. Sími 8-30-50. phyris heguro blomanna stendur yður til bofla. Unglingalinan: Special Day Cream — Special Night Cream. Spocial Cloansing — Tonic. Phyris tryggir vellíAan og þægindi 0«, veitir hörundi, sem mikiA mæðir a, velkomna hvíld. Phyris fyrir alla — Phyris-umboAiA. WBIABIB \fijálst, úháð dagblað c Þjónusta Þjónusta Þjónusta j Múrverk ★ Flísalögn ★ Fllsaleggjum bæði fljótt og vel. ★ Hlöðum og pússum að baðkerum og sturtubotnum. ★ Viðgerðavinna á múr- og fllsalögn. ★ Hreinsum upp eldri flísalögn. ★ Hvitum upp gamla fúgu. ★ Múrvinna í nýbyggingum. ★ Förum hvert á land sem er. Skilmálar hvergi betri. ★ Fagmenn. IJppl. í síma 76705 eftir kl. 19. Þéttum allt sem lekur Morter-Plas/n þakklæðningarefni 300% teygjuþoii — sérlega gott fyrir ísl. veðráttu bæði fyrir nýlagnir og viðgerðir. Þéttitækni Tryggvagölu 1 — sími 27620. fyrir slétt þök með «Verð kr. ÍÍW|| wBf pr. ferni BBr ákomið WM Regnbogaplast hf. skiltagerð Kársnesbraut 18 — sími 44190. Framleiðum: ljósaskilti úr plasti. þakrennur úr plasti á hagstæðu verði. Sjáum um uppsetningar. Sérsmíðum alls konar plasthluti. Sjáum um viðgerðir og víðhald á Ijósaskiltum. Tökum gomul Ijosaskilti upp 1 n.y. Tökum allt aö 6 man. brotaabyrgA. lltllfll

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.