Dagblaðið - 04.05.1977, Side 15

Dagblaðið - 04.05.1977, Side 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1977. 15 Arsf jórðungsspádómur Jane Dixon: Nýtt Watergate-hneyksli kemur upp — náttúru- hamfarir og Jackie lendir f ástarævintýri Ein af frægustu spákonum Bandarikjanna er Jane Dixon. DB hefur áður birt spádóma hennar. Það er óneitanlega gaman að lesa um spádóma hennar. Dixon gefur jafnan út ársspádóma sína í janúarmán- uði en síðan kemur auka- spádómur frá henni ársfjórð- ungslega. Að sjálfsögðu spáir .Jane Dixon mest um innanlandsvið- burði í Bandaríkjunum en hún á það líka til að leyfa erlendum „stórviðburðum" að fljóta með í spádómum sínum. DB hefur borizt í hendur árs- fjórðungslegur spádómur frú Dixon og skulum við nú athuga hverju völvan spáir um fram- tíðina. Nýtt eiturlyfja- og Watergate-hneyksli Nýtt hneyksli er i uppsigl- ingu í Bandaríkjunum og að þessu sinni verður það í sam- bandi við eiturlyf. Eiturlyfjaneyzla fólks í skemmtanaiðnaðinum, sérstak- lega þeirra kornungu, mun vekja þjóðarhneykslan. Eitur- lyfjaneyzlan mun verða að póli- tísku máli og getur skaðað nýju stjórnina í Washington. Nán- ustu samstarfsmenn forsetans ættu að athuga sinn gang vel til þess að ekki þurfi að falla skuggi á forsetann sjálfan að ófyrirsynju. Nýtt Watergate-hneyksli hefur þegar gerzt, segir .Jane Dixon. Það hefur aðeins tekizt að halda því betur leyndu en hinu fyrra. Segist Jane Dixon þarna eiga við mútugreiðslur erlendra ríkja til ýmissa þingmanna í Washington. Það eru nú liðnir margir mánuðir síðan fyrst fréttist af þessuam greiðsíum og er unnið að rannsóknum á málinu. En sannleikurinn mun ekki koma í ljós. „Það sem er alvarlegast við þetta hneyksli," segir Jane Það er ekki bara völvan Jane Dixon sem spáir um framtíðina. t bandarísku blaði rákumst við á spádóma miðilsins Marjorie Staves sem er talin vera gædd miklum sálrænum hæfileikum. Hún sagði á sfnum tíma fyrir um styrjöldina í Israel, olíu- kreppuna miklu og slys sem varð þremur bandariskum geimförum að aldurtila. Staves er alveg ófeimin við að spá allhressilega og með allt öðrum hætti en Jant Dixon. Staves heldur því fram að Elizabeth Taylor og Richard Burton eigi eftir að giftast enn einu sinni á árinu, Páll páfi muni deyja, Idi Amin verði myrtur og Nixon eigi eftir að komast í „náðina“ á nýjan leik. Dixon, „er ekki það sem sagt verður frá í stórfyrirsögnum blaðanna heldur það sem verður þagað yfir.“ Jarðskjálftar yfirvofandi hvenœr sem er Næsti meiriháttar jarð- skjálfti mun verða í lok apríl- mánaðar, segir Jane Dixon í spádómi sínum, en hann var birtur 26. apríl. Varla getur völvan átt við jarðskjálftana við Mývatn en okkur er kunnugt um aðra „stóra“ jarðskjálfta annars staðar í heiminum nú í lok mánaðarins. Náttúruhamfarir verða í þriðju viku júnímánaðar, einnig um miðjan júli og telur Dixon að þær verði í Austur- löndum. Náttúruhamfarir, svo sem flóð, fellibyljir og jarðskjálftar munu krefjast mannslífa í kringum miðjan ágúst. Aðrir hættulegir dagar verða 4., 5. eða 6. september. En harðir jarðskjálftar, sem mælast mörg stig á Richterskvarða, verða þó ekki fyrr en þriðju vikuna í september. Ýmsar aðrar nátt- úruhamfarir eiga eftir að dynja yfir heimsbyggðina síðari hluta ársins. Launmorð „Ráðamenn verða jafnan að hafa það hugfast að laun- morðingjar eru alltaf á ferli,“ segir Dixon. „Þeir sitja um fleiri en forseta Bandaríkj- anna.“ Hún ráðleggur Mondale vara- forseta og fastafulltrúa Banda- ríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum, Andrew Young, að efla lífvörð sinn, sérstaklega í ferð- um sínum til annarra landa. Sjálfsmorð Frú Dixon segist sjá fyrir að einhver alþjóðlega fræg per- Svartur páfi Páll páfi mun deyja á árinu og kardínálarnir sem velja eftirmann páfa munu velja svartan mann í það embætti. Yrði það í fyrsta sinn í mann- kynssögunni sem páfinn yrði ekki hvítur. Christina Onassis mun giftast á árinu, annaðhvort Frakka eða þá að hún giftir sig í Frakklandi. Jackie Onassis mun bjóðast að vera með í gerð sjónvarpsþátta sem sniðnir verða sérstaklega fyrir banda- rískar konur. Elizabeth Taylor og Richard Burton munu aftur komast á forsíður heimspressunnar. Eiizabeth verður ekki lengi i hjónabandinu með John Farrah á að fá sér nýjan umboðsmann. sóna muni fremja sjálfsmorð síðari hluta september eða fyrri hluta októbermánaðar. „Ég gæti gefið upp nafn þess- arar persónu en tel ekki rétt að gera það,“ segir Jane Dixon, „Ég tel ekki að það sé hægt að koma i veg fyrir að spádömar rætist. En við verðum að vera minnug þess að guð hefur ekki ætlað mönnunum sjálfum að ákveða lengd lífdaga sinna,“ segir hún. „Það er óráð- legt að taka slíka ábyrgð á sínar eigin herðar. Maður á að treysta guði,“ segir hún. Jackie lendir í spennandi ástarœvintýrum Jackie Onassis mun ekki finna heppilegan eiginmann á árinu. En hún lendir í spenn- andi ástarævintýri og ekki vantar hana giftingartilboðin. •Jackie verður orðuð við frægan leikara en þar verður ekki um ást að ræða, aðeins vináttu. Hún verður einnig orðuð við frægan hljóðfæraleik- ara — kannski fiðluleikara vegna þess að hún fer á hljóm- komast í virðingarstöðu á nýjan leik. Warner og spáir Staves skilnaði bæði Liz og Burtons. „Liz og Burton munu ganga i hjónaband í þriðja sinn ein- hvern tíma í nóvember," segir spákonan. „í þetta sinn mun hjónabandið haldast. Þau eru greinilega alveg sköpuð hvort fyrir annað." Mikil velgengni mun verða í Bandaríkjunum á árinu en náttúruhamfarir verða ekki umflúnar. í Colorado og fjallahéruðun- um þar í kring mun verða mik- ili jarðskjálfti sem krefst mannfórna. En eftir að hann verður genginn yfir kemur í ljós að nýjar gullnámur hafa opnazt. Ekki er langt í að Idi Amir verði fyrir alvarlegum skakka- •föllum, segir miðíllinn. Elli kerling mun ekki ráða niður- lögum hans heldur mun hann falla fyrir sprengju eða leyni- skyttu. Cher á i vandræðum áfram en heldur vinsældum sínum. leika hans og hjálpar honum að komast áfram. Jackie getur átt von á því að lenda í vandræðum með börnin sín, John og Caroline, með haustinu. Hún kemur til með að leita aðstoðar hjá mági sínum fyrrverandi, Ted Kennedy, og hann mun ekki bregðast henni. Heimurinn mun halda áfram að fylgjast með Jackie og það sem hún tekur sér fyrir hendur verður gert að umræðuefni í heimsfréttunum eftir sem áður. Jane Dixon ráðleggur Jackie að gæta vel að hlutunum því annars gæti hún átt von á að listaverkum hennar verði stolið. Cher heldur vinsœldum sínum Söngkonan Cher (sem áður var gift Sonny) hefur verið mjög vinsæl í Bandaríkjunum. Vinsældir hennar munu haldast að minnsta kosti þetta árið. Hún hefur átt í miklum vandræðum í sambandi við einkalíf sitt og þau vandræði halda áfram samkvæmt upplýs- ingum Jane Dixon. maður hans verður svartur. Forsetafjölskyldan fékk sinn skammt í spádómi miðilsins. Amy litla Carter mun eiga góða daga í almenningsskólanum sem hún gengur í. Aðalvanda- mál Carter-fjölskyldunnar verða í sambandi við heilsufar móður forsetans, frú Lillian, sem mun eiga við mikið heilsu- leysi að stríða. Einnig mun Billy, bróðir forsetans, eiga við vanheilsu að stríða. Kvikmyndaleikarar verða einnig heilsulausir. Marlon Brando verður að neita hlut- verki sem honum býðst vegna þess að hann er svo lélegur til heilsunnar. John Wayne fær hjartaslag þar sem hann er við vinnu sína en fyrir algjört kraftaverk nær hann sér á strik á nýjan leik. Loks segir miðillinn að Richard Nixon eigi eftir að komast í „náðina" á nýjan leik og eigi eftir að koniast i virðingarstöðu. Jackie lendir f spennandi ástar ævintýri en giftist ekki. Farrah lendir í vandrœðum Önnur vinsæl sjónvarps- stjarna, Farrah Fawcett-Majors (sem hárgreiðslan sem sýnd var í DB í fyrri viku er kennd við), kemur allmikið við sögu I spádómum Jane Dixon. Farrah hefur átt f útistöðum við sjónvarpsfyrirtækið sem hún hefur verið hjá og marg- sinnis hótað að hætta. Dixon ráðleggur henni að fá sér nýjan umboðsmann en samkvæmt spádómnum virðist eiginmaður hennar, Lee Majors, hafa eitt- hvað með umboðsmannsstörf hennar að gera en honum hætti til að vernda konu sína um of. Annars er eiginmaðurinn það sem kallað er ofurhugi eða ,,stunt“-maður eða sá sem tekur að sér alls kyns hættuleg hlut- verk. Dixon ráðleggur honum að fara varlega þvi annars gæti farið illa fyrir honum, hann annaðhvort handleggs- eða fót- brotnar. — Dixon spáir því einnig að þau hjónin muni gera kvikmynd saman sfðar á árinu og nái hún geysilegum vinsæld- um. En því miður verða þau ekki eins hamingjuöm i einka- lífinu og ekki alltaf á sama máli. Þýtt og endursagt A.Bj. Liz Taylor og John Warner eiga ekki fyrir sér langa sambúð samkvæmt spádómum miðils. „Við erum ekki búin að heyra það síðasta af Watergate- hneykslinu," segir Staves. „Opinber embættismaður sem var við völd á sama tíma og Nixon hefur ekki alveg hreini mjöl í pokanum. Honum hefur enn ekki verið refsað en öll hans mál verða rannsökuð gaumgæfilega." Eins og sjá má af samanburði við spádóma Jane Dixon eru þessir spádómar harla ólíkir. Og þó. Jarðskjálftar og eitthvað nýtt í sambandi við opinbert hneyksli í Bandaríkjunum. Dixon spáir að einhver fræg alþjóðleg persóna fremji sjálfs- morð á árinu en Staves spáir því að Idi Amin verði ráðinn af dögum. Nú er bara að bíða og sjá hvað setur, og hvað skyldi koma fram af þessurn spádómum? Þýtt og endursagt A.Bj Miðilsspádómar fyrir árið 1977: Burton og Liz aftur í hjónaband — næsti páfi verður svartur og Nixon kemst í virðingar- stöðu á nýjan leik

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.