Dagblaðið - 04.05.1977, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MAl 1977.
m
Keppendur á Íslandsglímunni á Húsavík. Frá vinstri Guðmundur Freyr, Ingi Yngvason, Pétur Yngvason,
Eyþðr Pétursson, Kristján Yngvason og Guðmundur Ólafsson.
G( treysti Þingey-
ingum fulikomlega
UIDSKIPinSKRÚIII
sem komið hefur út í hartnær 40 ár,
veitir ýtarlegri og greinarbetri upp-
lýsingar um viðskipta- og athafnalíf
landsins, stjórn þess, félög og stofn-
anir, en nokkur önnur íslenzk bók.
Það er allra hagur, fyrirtækja jafnt
sem einstaklinga, sem reka viðskipti,
að láta skrá sig og auglýsa í
VIÐSKIPTASKRÁNNI.
Skrifið eða hringið og vér munum
koma yður í samband við næsta
umboðsmann.
umsKiPinsKRnm
Pósthólf 495, Reykjavík, sími 43728.
—tilaðsjá um
Íslandsglímunaá
Húsavík
í tilefni af frétt um úrslit
Íslandsglímunnar, sem birtist hér
í Dagblaóinu sl. mánudag og var
undirskrifuð ÁB, óskaði for-
maður Glímusambandsins, Ólafur
Gunnlaugsson, eftir að Dagblaðið
birti eftirfarandi athugasemd.
,,I umræddri fréttasendingu
segir að það hafi vakið furðu
norðanmanna og gremju að eng-
inn aðili frá Glímusambandinu
hafi látið svo lítið að sýna sig á
Húsavík.
Mér þykja þeir norðanmenn
furðulega þenkjandi sem gremst
það að Glímuráði Suður-
Þingeyinga skuli vera synt það
traust að sjá um Islandsglímuna
án þess að einhver eftirlitsmaður
frá glímusambandinu væri þar
viðstaddur.
Þar með er ekki sagt að
stjórnarmenn Glímusambandsins
hefðu ekki haft gaman af að
sækja þá norðanmenn heim og
vera viðstaddir Islandsglímuna
en stjórn Glímúsambandsins
taldi hins vegar þeim allt of litlu
fjármunum, sem Glímusam-
bandið hefur úr að spila, bdtur
varið til annarra hluta en að
styrkja skemmtiferðir."
María setti
íslandsmet
María Guðjohnsen, ÍR, sem nú
dvelur í Bandaríkjunum við nám,
setti nýlega nýtt íslandsmet í
langstökki. Stökk 5.74 metra og
bætti met Láru Sveinsdóttur, Ár-
manni, um fimm sentimetra, 5.69
m. María mun sennilega keppa
hér heima í sumar.
Jón Diðriksson, hlauparinn
kunni úr Borgarfirði, er farinn til
Norrköping í Svíþjóð til æfinga.
Mun dvelja þar næstu tvo mán-
uði„ én síðan verður hann um
tíma í Þýzkalandi. Jafnvel mánuð
Ágúst Þorsteinsson, Borg-
firðingur, æfir einnig í Norrköp-
ing — og innan skamms fara þeir
Gunnar Páil Jóakimsson, hlaup-
ari úr ÍR, og Guðmundur
Guðmundsson. hástökkvari í FH,
til æfinga í Norrköping.
SIGURÐUR VANN
UPP ÁTTA STIG
— ísíðari lotunni gegn Jamaíkamanni á HM í
badminton. Jóhann vann einnig — en þeir
töpuðu fyrir Indverjum ítvíliðaleik ígærkvöldi
— Ég lenti í hörkuleik við Trevor
Stewart frá Jamaika í fyrstu umferð-
inni í heimsmeistarakeppninni í bad-
minton, sem hófst hér í Maimö í Sví-
þjðð í gær. Tókst að sigra í þremur
lotum. Jóhann Kjartansson lék við
Yogesh Pathak frá Zambíu og vann
með miklum yfirburðum, en í gær-
kvöld töpuðum við saman i fyrstu
umferð tvíliðaieiksins fyrir Indverjun-
um Pawar og Modi, sagði Sigurður
Haraldsson , þegar Dagblaðið ræddi
við hann i Malmö í morgun.
— Ég hafði forustu í fyrstu lotunni
og virtist stefna í sigur gegn Stewart.
Staðan var 13-9 fyrir mig, en Jamaíka
manninum tókst að jafna, Það var
hækkað upp og Stewart sigraði með
18-16. 1 2. lotunni tókst mér að jafna
metin. Var þar aldrei í hættu og sigraði
örugglega með 15-9. Þar með þurfti
oddaleik — og þar var útlitið allt annað
en bjart um tíma. Stewart komst í 13-4
— en mér tökst að jafna í 13-13. Þar var
einnig hækkað upp — og þá tókst mér
að sigra með 18-15 og komst því í aðra
umferð, sagði Sigurður ennfremur.
Jóhann var meðal þeirra fyrstu, sem
hóf keppni . í gærmorgun. Lék við
Pathak frá Zambíu — en um tima var
ekki vitað hvort keppendurnir frá
Zambiu mættu til leiks. Þeir eru fimm í
þessu fyrsta heimsmeistaramóti í bad-
minton. Keppendur frá Nýja-Sjálandi
eru I Malmö — en fararstjöri Zambíu-
manna sagði, að þeim hefðu ekki borizt
fyrirmæli frá stjórnvöldum um að
hætta keppni. Aðeins ef keppendur frá
Suður-Afríku yrðu meðal þátttakenda.
Þetta var mjög léttur leikur hjá
Jóhanni. Hann sigraði í fyrri lotunni
með 15-5 — og í þeirri siðari fékk
Zambínumaðurinn ekki punkt. Jóhann
vann 15-0.
I gærkvöld léku þeir félagar,
Sigurður og Jóhann vð Indverjana
Pawar og Modi í tvíliðaleiknum. — Við
lékum ekki vel í þessum leik, enda illa
samæfðir í tvíliðaleik, sagði Sigurður og
índverjarnir sigruðu með 15-8 og 15-5.
Þetta var ekki gott hjá okkur, því það
átti ekki að vera erfitt að vinna þessa
Indverja. Þeir eru ekkert sérstakir,
sagði Sigurður ennfremur.
I kvöld veroa þeir Jóhann og Sig-
urður aftur í eldlínunni. Leika í 2.,
umferð einliðaleiksins, Mótherji
Sigurðar verður Roy Diaz Gonzalez frá
Mexíkó, sem sigraði Morten Frost
Hansen, Danmörku, i gær í 1. umferð
með 15-1 og 15-13, Jóhann leikur við
Rob Ridder frá Hollandi, en hann vann
Victor Yussim, Israel, í fyrstu umferð
með 15-1 og 15-0.
— Ég hef sáralitla möguleika gegn
Mexikananum, en mun reyna að selja
mig eins dýrt og hægt er, sagði
Sigurður Haraldsson, en Jóhann ætti
að hafa talsverða möguleika á, að sigra
Hollendinginn. Þó er kannski ekki gott
um það að dæma, því Ridder hafði svo
mikla yfirburði gegn Israelsmanninum
í gær — en virkaði þó ekkert sérstakur,
sagði Sigurður að lokurn, og bætti því
við, að öll framkvæmd mótsins væri
hreint stórkostleg. Gaman að fá þetta
tækifæri til að vera í keppni með beztu
badmintonleikurum heims.
I fyrstu umferðinni kom mest á
óvart, að Masao Tsuchida, sem ekki er
raðað í keppninni, sigraði bezta bad-
mintonspilara Englands Derek Talbot
með 7-15, 15-12 og 17-16 í m jög hörðurn
leik, sem stóð í 66 mínútur. Talbot var
ráðað meðal hinr.a efstu í keppninni.
Þá lenti Svend Pri, Danmörku i
miklum erfiðleikum með Lucio Fabris,
Kanada, en sigraði þó með 18-6 og 15-9.
Pri er slæmur í fæti. Norðurlanda-
meistarinn Svend Pri sat yfir í fyrstu
umferðinni.
Heimsmeistarakeppnin mun standa 1
sex daga og er háð í íshöllinni miklu í
Malmö. Áhorfendur hurfu næstum í
þessari risahöll í gær. Voru um 500, en
reiknað er með, að þar verði hvert sæti
skipað, þegar kemur að úrslitaleikjun-
um.
Af úrslitum í 1. umferð má
nefna að í fyrsta leiknum sigraði
Liemswie King, Indónesíu, sem
er raðað í efsta sætið í einliða-
leiknum ásamt Flemming
Delfs, sigraði David Eddy, Englandi
15-1 og 15-6 Thomas Kihlström,
Svíþjóð, sigraði Nonutako Ikeda, Japan
með 15-5 og 15-8, Victor Jara-
millo, Mexíkó, sigraði Uday Pawar,
Indlandi, með 15-13 og 15-9, Elo
Hansen, Danmörku, sigraði Jamie
McKee, Kanada, með 15-8 og 18-15
Liap Kun-Fu, Taiwan, sigraði Knut
Engabretsen, Noregi, með 15-12 og 15-
3, Ricardo Jaramillo, Mexíkó, sigraði
Gordon Hamilton, Skotlandi, 15-8 og
15-13, Stefán Karlsson, Svíþjóð, sigraði
Miho Sepee, Júgóslavíu, með 15-0 og
15-3, Partho Ganguli, Israel, sigraði
Vishan Kapil, Zambíu, með 15-2 og
15-2, Wolfgang Bochow, Vestur
Þýzkalandi, sigraði Miles Munson
Bandaríkjunum, 15-1 og 15-5, Hadiy
anto, Indónesíu, sigraði Brian Purser
Nýja-Sjálandi, 15-13 og 17-16, Padkone
Prakash, Indlandi, sigraði Shoich
Toganoo, Japan., með 17-14 og 15-8
Tomas Angarth, Svíþjóð, sigraði Lars
Erik Nybergh, Finnlandi, með 13-15
15-4 og 1.5-8, Mike Tredgett, Englandi
vann Roland Maywald, Vestur
Þýzkalandi, 15-7 og 17-14, Piet Ridder
Hollandi, sigraði Billy Gilliland, Skot
land, 15-7 og 15-12, Sumirat
Indónesíu, sigraði .John Czich, Kanada
15-12 og 15-3 og Sture Johanssorr, Sví
þjóð, sigraði Jorge Palazuelos, Mexikó
15-13 og 15-5.
Sex leikir voru í einliðaleik kvenna
— en þær beztu voru þar ekki. me„ðai
keppanda. Þar kom hélzt á ówart, áð
Sa.w gri Wiýanti,. Indónesíu, sigraði
Lonný BpsfoffecDanmörku, með 7-11,
12-T0" og ' . 11-2-. ■ Lena Köppen,
Danmörku, mun ekki keppa fyrr en á
fimmtudag, þar sem mótherji hennlar
í 1. umferð. Taty Sumirah Indónesíu,
gat ekki mætt til leiks.
Tvíliðaleikirnir í karlaflokki voru
heldur sviplitlir í gærkvöld, að sögn
Reuters, og það var ekki fyrr en í
síðasta leiknum að mikil spenna var.
Þar urðu úrsiit heldur betur óvænt, því
Svíarnir kunnu, Bengt Froman og
Thomas Kihlström, Norðurlanda-
meistarar og sigurvegarar á All-
England-mótinu, töpuðu fyrir Brian
Purser, Nýja-Sjálandi, og Peter
Cooper, Ástralíu, með 18-15, 8-15 og
15-8. Ekki var getið í fréttaskeytum um
úrslit i öðrum leikjum í tvíliðaleikn-
um.
Til viðbótar fyrri úrslitum má geta, að
Chung Tsung Lieh, Taiwan, sigraði
Peter Thoresen, Noregi, í 1. umferð
með 15-3 og 15-11, og Ray Stevans,
Englandi, sigraði Michael Schnaase,
Vestur-Þýzkalandi, 15-5 og 15-7. I
einliðaleik kvenna sigraði Pia Nielsen,
Danmörku. Teresu Koloko Zambíu,
með 11-0 og 11-2 og Emiko Ueno,
Japan sigraði Evru Stuart, Svíþjóð,
með 11-5 og 11-7. Þá vann Marjan
Ridder, Hollandi, Anettu Borjesson,
Svíþjóð, með 11-8 og 11-4. —hsím.
Iþróttafrétlamennirnii komast fljótt að
því ;>ð Boninii er á leiknum og....
— hann vekur meiri athygli eo
leikmennirnir r-
eins fljótt og ég
kemst í æfingu
og það verður
fijotlega!
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. MAl 1977
13
Sá tíundi hjá Liverpool
að komast íhöfn!
Meistaratitiilinn í ensku knatt-
spyrnunni er að síga í höfn hjá
Liverpool. í gær sigraði liðið
Manch.Utd. á Anfield 1-0. Kevin
Keegan skoraði eina mark ieiks-
ins á 15. min. Skallaði í mark
eftir fyrirgjöf David Johnson.
Liverpopl hefur nú 54 stig —
fjórum meira en Manch.City og
bæði lið eiga fjóra leiki eftir. Þrír
leikir Liverpool eru á útivelli —
einn heima gegn West Ham.
Leikmenn Manch. Utd. gerðu
hvað þeir gátu til að sigra Liver-
pool í gær — en tókst ekki. Liðin
leika úrslitaleik bikarsins 21. maí
á Wembley og f sambandi við
þann leik vann Manch.Utd. hlut-
kesti í gær. Fær að leika í sínum
rauðhvíta búning í Wembley, en
Liverpool verður að skipta,
Leikmenn Manch. Utd. hljóta nú
að óska þess, að Liverpool sigri í
1. deild, þvi það tryggir liðinu rétt
í Evrópukeppni bikarhafa hver
sem úrslit í bikarleik liðanna
verður á Wembley.
Derby lék við Arsenal í gær í
Lundúnum,. Náði jafntefli og
komst við það af mesta hættu-
svæðinu í 1. deild. Á mánudag
vann Mansfield Portsmouth 2-0 í
3. deild og leikur því í 2. deild í
fyrsta sinn í sögu félagsins næsta
leiktímabil. Mansfield er í Skíris-
skógum. Urslit i gær urðu þessi.
2. deild
Sheff.Utd.-Millwall 1-1
Southampton-Wolves 1-0
3. deild
Brighton-Sheff. Wed, 3-2
Bury-Shrewsbury 0-1
Chester-Lincoln 1-0
C. Palace-Wrexham 2-1
Gillingham-York 2-0
Grimsby-Walsall 2-2
Ný nöf n í f rjálsum
íþróttum f Firðinum
Hafnfirrkt íþróttafólk hefur tekið miklu ást-
fóstrj við frjálsar íþróttir og gróska er mikil,
sagöi Haraldur Magnússon, þegar blaöiö rœddi
viA hann nýiega, en Haraldur er helrta dríf-
fjörAur HafnfirAinga í frjálsum íþróttum. Á
sumardaginn fyrsta var keppt í kastgreinum í
Kaplakríka og þar urAu úrslit þessi. Allt
koppendur í FH.
Kariar:
Krínglukast
Brynjólfur Jónsson
Valdimar Gunnarsson
Guðm. R.Guðmundsson
Kristján Sigurgeirsson
Sigurður P. Sigmundsson
Gunnar Sigurgeirsson
Erlingur Þorsteinsson
Kúluvaro
Valdimar Gunnarsson
Guðmundur R. Guðmundss.
Brynjólfur Jónsson
Kristján Sigurgeirsson
Gunnar Sigurgeirsson
Gunnar Þ. Sigurðsson
Spjótkast
Kristján Sigurgeirsson
Gunnar Sigurgeirsson
Brynjólfur Jónsson
Þorsteinn G. Aðalsteinsson
Einar Kr. Hermannsson
Valdimar Gunnarsson
Konur.
Krínglukast #
Matthildur Pálsdóttir
Anna Haraldsdóttir
Fanney Karlsdóttir
Spjótkast
Anna Haraldsdóttir
Matthildur Pálsdóttir
33,48 m
33,15 m
25.60 m
25.55 m
23,08 m
18,80 m
15.90 m
11.90 m
11,22 m
10,88 m
9,11 m
8,66 m
8,42 m
55,62 m
50,87 m
44.60 m
44.55 m
44,17 m
39,00 m
21,35 m
18,11 m
11,62 m
22,00 m
17,00 m
F'anney Karlsdóttir 16,80 m
Þórdís Geirsdóttir 12,10 m
Kúluvarp
Matthildur Pálsdóttir 7,36 m
Anna Haraldsdóttir 7,16 m
Fanney Karlsdóttir 5,51 m
Það er athyglisveri hve karlakastararnir
ná betri árangri en kvenfólkið, enda hafa
þeir æft og kastað úti í allan vetur. Það
sýnir hve gðður veturinn hefur verið á
Suðurlandi. Eitthvert stærsta vandamál
frjálsfþróttadeildar FH er skortur á
kösturum. Kjartan Guðjónsson, hinn frækni
tugþrautarmaður, hefur haldið uppi merki
kastara undanfarin ár, en þeir sem líta á
árangur kastara á þessu móti, sjá að hér eru
ný nöfn á ferðinni í efstu sætunum.
Brynjólfur Jónsson og Valdimar Gunnarsson
hafa keppt fyrir frjálsíþróttadeild FH frá
áramótum. Þeir eru í flokki 19—20 ára eða í
unglingaflokki og er mikils að vænta af þeim
í sumar. Áður kepptu þeir fyrir Héraðssam-
bandið HVl.
I spjótkastinu má sjá einnig tvö ný nöfn,
bræðurna Kristján, sem er í unglingaflokki,
og Gunnar Sigurgeirssyni. Hann er í flokki
17—18 ára eða drengjaflokki. Árangur þess-
ara pilta er vægast sagt mjög góður svona
snemma á keppnistímabilinu. Enginn vafi að
til dæmis Kristján fer langt yfir 60 metra í
sumar. Kristján og Gunnar kepptu áður fyrir
frjálsíþrottadeild Stjörnunnar i Garóabæ.
Ennfremur hefur bætzt í raðir FH landsliðs-
maðurinn í 5 km, Erlingur Þorsteinsson, sem
keppti áður fyrir Stjörnuna. Um kastafrek
kvennanna er ekki mikið að segja, þær eru
ekki enn farnar að æfa köst fyrir keppnis-
tímabili. Þð er öruggt að nafnið Matthildur
Pálsdóttir mun verða ofarlega á blaði f fleiru
en köstum f sumar ef hún leggur rækt við
fþróttina.
Lilja vann í
3ja sinn
— Ég keppti í meistarakeppn-
inni í skógarhlaupi í Motala 27.
apríl — en það er keppni fyrir
Austur-Gotland og borgirnar og
bæi hér í kring. Ég hafði mikinn
hug á því að sigra, því tvö undan-
farin ár hef ég sigrað í þessu
hlaupi. Og það tókst. Eg var sigur-
vegari i kvennaflokknum, sagði
Lilja Guðmundsdóttir, hlaupa-
konan kunna, þegar Dagblaðið
ræddi við hana.
Vegalengdin var nú 8 km — en
var 4 km árin áður. Helzti keppi-
nautur minn var Kerstin Svens-
son, sem er mjög góð í skógar-
hlaupum og kunn skíðakona. Hún
hefur alltaf unnið mig í löngum
skógarhlaupum, 10 km. Ég.ákvað
að fylgja henni í byrjun og
Kerstin var fyrst fyrstu 500
metrana. En mér fannst hún ekki
fara nógu hratt, svo ég fór framúr
og alltaf lengdist bilið milli okkar.
Hlaupnir voru tveir hringir, 4 km
hvor. Það voru mjög brattar
brekkur rétt við markið — og
mjög erfitt að hlaupa upp þær.
Uff.
En þetta gekk þö vel, sagði
Lilja ennfremur, og ég vann létt á
31.17 mín., en Kerstin fékk tím-
ann 33.19. Ég var afar ánægð með
þennan árangur, því mér hefur
ekki gengið of vel í skógarhlaup-
um.
Að öðru leyti er einnig allt gott
að frétta héðan. Veður gott — en
talsvert vindasamt á stundum hér
í Norrköping. Möguleiki er á, að
ég keppi í 800 m hlaupi 6. maí —
en býst varla við góðum árangri
fyrr en síðar í sumar. Hef verið
slæm t iljunum um tíma, en þó
getað æft á fullu. Þá verður
keppni í Gautaborg 20. tnaí. Þar
mun ég hlaupa 3000 metra og
vonast til að hlaupa innan við tíu
mínútur, sagði Lilja að lokum.
Víkingar f keppni við nemendur Eiðaskóla
Víkingar heim-
sóttu Eiðaskóla
og léku borðtennis við nemendur
— Fjörugt íþróttalíf hefur
verið á vegum Ungmennafélags
Eiðaskóia í vetur, sagði Guð-
mundur Gíslason, þegar biaðið
ræddi nýlega við hann. Keppt í
mörgum íþróttagreinum og
gefið út myndarlegt íþrótta-
blað.
Borðtennisdeild knatt-
spyrnufélagsins Víkings i
Reykjavík kom í heimsókn og
keppti við okkur. Það sem er
athyglisverðast við þessa heim-
sókn er að þetta er í fyrsta
skipti sem borðtennislið kemur
hingað austur á land og keppir.
Var þessi heimsokn hin
ánægjulegasta í alla staði og
voru menn mjög ánægðir með
heimsókn þessa. Leikar fóru
þannig að Víkingur vann Ung-
Þátttakendur a námskeiðinu.
mennafélag Eiðaskóla. Það
voru átta menn í hvoru liði er
kepptu.
Væri óskandi að fleiri félög á
stór Reykjavíkursvæðinu f
íþróttum gerðu meira af því að
heimsækja minni félögin úti á
landi og þá einkum þau sem
eru mjög einangruð, sagði Guð-
mundur.
Dagana 20.—29. marz var
haldið í Eiðaskóla félagsmála-
námskeið I á vegum UMFE.
Kennari á námskeiðinu var
Hermann Níelsson íþróttakenn-
ari. Námskeiðið sóttu 20
nemendur úr efstu bekkjum
skólans. Námskeiðið tókst I alla
staði prýðilega og enginn vafi
er á því að námskeið sem þessi
eru mjög félagslega þroskandi
fyrir almenning.
2 nýjar teihnimyndasögur hefja göngu sína
5 myndasíðurum sumartízkuna
Opinskátt samtal við Glendu Jackson
8 frægarpersönur ínýja þættinum: Mest um fólk
Karlsson heimsækir Náttúrugripasafnið
Ný spennandi framhaldssaga: Drekafrúin
Rotherham-Reading
Swindon-Preston
4. deild
Barnsley-Exeter
Cambridge-Doncaster
Huddersf.-Bournemouth
Newport-Watford
Southport-Colchester
Swansea-Rochdale