Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 28.09.1977, Qupperneq 4

Dagblaðið - 28.09.1977, Qupperneq 4
4 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977. Bifreiðastillingar NICOLAI Brautarholti 4 — Sími 13775 Lagerhúsnæði Óskum eftir aö taka á leigu sem fyrst ca. 100 fm lagerhúsnæði með góðum aðkeyrsludyrum fyrir iðnaðarvöru. Uppl. í síma 11414. Urgur íyngri mönnum íFÍH: HREVnti Sími 8-55-22 Lærið að fljúga Bóklegt námskeið fyrir einkaflugmenn hefst í Miðbæjar- skólanum, st. 13, þriðjudaginn 4. okt. kl. 8.30. Kennt verður: Siglingafræði — Veðurfræði — Vélfræði Flugeðlisfræði — Flugreglur. Hjálp í viðlögum — Agrip af flugrétti. Þeir sem hafa hug á að taka þátt í þessu námskeiði geta fengið allar uppl. í síma 28122. gamla flugturninum Reykjavíkurflugvelli. Sími 28122. Námsmenn og umboðsmenn námsmanna erlendis október nk. Aætlaóur afgreióslutimi þeirra er 1. mars 1978. Skilafrestur umsóknargagna er mánuði fyrir af- greiðslutima eða 1. febrúar 1978. Ef umsóknargögnum er ekki skilað fyrir þann tíma tefst afgreiðsla lánsins sem því nemur. Fylgiskjöl með umsókn eru þessi: a) Prófvottorð frá sl. vetri, stúdentspróf eða önnur menntagráða. b) Vottorð um tekjur þegar síðast var sótt um (ef námsmaður hefur sótt um áður). Námsmenn erlendis skulu skila íslensku tekjuvottorði og tekjuvottorði frá námslandinu. c) Innritunarvottorð fyrir áramót og eftir áramót. Náms- rnenn á íslandi þurfa í flestum tilfellum ekki að senda innritunarvottorð, því sjóðurinn fær þau beint frá skólanum. d) Abyrgð og umboð. Umboð skal gefa á umsókn. Ábyrgð þarf að útfylla fyrir hverja afgreiðslu láns. Ábyrgðarmenn mega ekki vera eldri en 65 ára og ekki yngri en 20 ára. Hjón geta ekki verið ábyrgðarmenn fyrir sama láninu, nema þau hafi aðskilinn fjárhag, og skal þá leggja fram með ábyrgð gögn, er sanna að svo sé. Að gefnu tilefni skal á það bent að þeir sem þegar hafa sótt um haustlán þurfa ekki að sækja sérstaklega um almennt lán. Ennfremur að framfærslukostnaður við útreikning al- mennu lánanna er miðaöur viö námsárið, þ.e. frá hausti til vors. Reykjavík, 16. sept. 1977. Lánasjóður íslenskra námsmanna. „SINFÓNÍAN HIRÐIR SJÓÐINN” „Auðvitað ætlum við að sækja um styrk,“ sagði Pétur Kristjáns- son hljómsveitarstjóri hljóm- sveitarinnar Pókers I viðtali við DB. „Við erum að vísu búnir að fara nokkrum sinnum til Færeyja fyrir eigin reikning, en höldum nú þaðan áfram til Danmerkur og það sakar ekki að fá styrk til þeirrar menningarfarar." Allmikill urgur er nú í yngri mönnum innan Félags íslenzkra hljóðfæraleikara eftir að uppvíst varð að stjórn Menningarsjóðs fé- lagsins hafði veitt Sinfóníuhljóm- sveit Islands rúmlega tólf hundr- uð þúsund króna styrk til Fær- eyjarfarar. Alls eru 50 manns í þeirri ferð, 46 hljóðfæraleikarar, stjórnandi og framkvæmdastjóri auk menntamálaráðherrahjón- anna. Ein megintekjulind Menning- arsjóðsins eru gjöld Ríkisútvarps- ins fyrir að fá að leika innlendar hljómplötur og svo gjöld sem greiða þarf til sjóðsins ef íslenzk- ar hljómplötur eru leiknar t.d. i diskótekum og víðar á almanna- færi. „Við vitum ekki til þess að Sinfóníuhljómsveitin hafi selt mikið af plötum eða verið sérstak- lega vinsæl í útvarpi og þykir hart að þeir skuli svo hirða allan sjóð- inn,“ sagði einn yngri mannanna í viðtali við DB. „Ef þeir ætla til Færeyja eða halda tónleika yfir- leitt ættu þeir að reyna að standa undir þeim eins og við verðum að gera um hverja helgi.“ „Það eru hreinar línur, að allir félagsmenn eiga jafnan rétt á styrk úr sjóðnum," sagði Sverrir Garðarsson formaður FÍH í við- tali við DB um þetta mál. „Styrkir hafa verið veittir úr honum til ýmissa menningarmála, við höf- um fengið hingað fræga erlenda hljóðfæraleikara til kennslu og hallinn á átján manna hljómsveit- inni hér um árið var greiddur úr honum. Hér er ekki verið að mis- muna mönnum á nokkurn hátt og fulltrúar yngri mannanna eru þeir Sigurjón Sighvatsson og Guð- mundur Haukur Jónsson." Sverrir sagði að framundan væri mikið starf til þess að kynna lifandi tónlist og væri jafnvel í bígerð að fá einhverja popphljóm- sveitina til samstarfs við Sinfóní- una og halda síðan tónleika. DB hefur fregnað að það sam- starf hafi til þessa orðið heldur lítið, enda eigi popptónlistar- mennirnir að starfa kauplaust og allur ágóði eigi að renna í Menn- ingarsjóð. Sinfónían er hins vegar á launum eins og mönnum er kunnugt. -HP. Málningardósin á Lækjartorgi TEKUR 8700 LÍTRA 0G MÁSKISTÆRST í HEIMI Nýlega var mynd af stórri málningardós í DB, sem komið hefur verið upp á Lækjartorgi vegna Iðnkynningar í Reykjavík. I myndatexta voru bollaleggingar um það að hér væri e.t.v. um að ræða stærstu málningardós í heimi. Þetta leiddi til þess að eig- endur dósarinnar, málningar- verksmiðjan Harpa sendi hinni frægu Guinnes heimsmetabók skeyti þar sem grennslazt var fyrir um stærstu málningardós í heimi. Hörpu hefur nú borizt skeyti frá Guinnes heimsmeta- bókinni þar sem þeir tilkynna að þvl miður eigi þeir ekki neinn lista yfir stærstu málningardósir í heimi. Harpa mun nú fá vottorð um stærð dósarinnar og senda það réttum aðilum til íhugunar. Tilgáta DB stendur því enn óhögguð, en dósin tekur 8700 lítra. -JH. ^ViÖ þörfnumst cÞÍÁl Söfnun stofnfclaga cr í fullum gangi. Undirskriftarlistar liggja frammi á eftirtöldum stöðum: ARBÆJARAPÓTEK, Hraunbæ 102 BLÓM og ÁVEXTIR, Bankastræti 11 BLÓM og ÁVEXTIR, Hafnarstræti 3 GARÐS APÓTEK, Sogavcgi 108 HÁALEITIS APÓTEK, Háalcitisbraut 68 HÓLAKOT, Lóuhólum 4—6 LAUGARNESAPÓTEK, Kirkjutcig 21 LYFJABÚÐ BREIÐHOLTS, Amarbakka 4-6 PLÖTUPORTIÐ, Vcrzlanahöllinni, Laugavegi 26 Snyrtivöruvcrzlunin NANA, Völvufclli 15 TÝLÍ hf., Austurstræti 7 iíáJí SAMJÖK ÁHUGAFÓLKS E^lLtuJ um áfengisvandamálið SKRIFSTOFA: FRAKKASTlG 14B - SlMI 12802 Heimsmetabók Guinnes heldur ekki skrá yfir stærð málningar- dósa en vera má að hér sé sú stærsta. DB-mynd Bjarnleifur.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.