Dagblaðið - 28.09.1977, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977.
Verzlun
Verzlun
Verzlun
að hann tók Jackie
María gat aldrei
fyrírgefið Onassis
Maria f hlutverki
Normu i Aþenu árið
1960.
fram fyrír hana
Nú er Maria Callas dáin en
hún lézt af hjartaslagi að
heimili sínu í París fyrra
föstudag. Maria var ekki nema
fimmtíu og þriggja ára er hún
lézt.
Hún var fædd í New York og
giftist hljómsveitarstjóranum
Gian Meneghini árið 1948. Þau
skildu árið 1959 en hann beið
alltaf eftir því að hún kæmi til
hans aftur. Það var einmitt haft
eftir honum í vikunni áður en
María dó að hann væri enn að
bíða þess að hún sneri aftur til
hans.
Nöfn Mariu Callas og gríska
skipakónggins Aristoteles
Onassis voru sífellt í fréttunum
á sjötta áratugnum. Hún varð
ákaflega sár ogjeið þegar hann
lýsti frati á hana og kvæntist
Jackie forsetaekkju Kennedy
árið 1969.
Eftir að Onassis var orðinn
eiginmaður Jackie fór hann
margar ferðir einn síns liðs til
Parísar til þess að hitta Mariu
Hún söng i Tosca 1 Cov-
ent Garden ðrið 1965.
Arið 1976 lék Maria f
griskrl mynd um
Medeu.
Gian Meneghlni, sem nú
er áttatfu og tveggja
ára, var alltaf að bíða
eftir að hún kæmi aftur
til hans. Þau skildu árið
1959.
eftir því sem sagt var. Því var
haldið fram að þau væru „enn
vinir“.
En Maria Callas, sem kölluð
hefur verið tigrisdýrið vegna
þess hve skapmikil hún var,
fyrirgaf Onassis aldrei að hann
kvæntist Jackie. Þegar hún
frétti af giftingunni á hún að
hafa sagt með fyrirlitningu: „Ég
samgleðst Jackie innilega að
hun skuli hafa fundið afa
handa börnunum sinum.“
Christina, dóttir Onassis,
vildi miklu heldur að faðir
hennar héldi vinskapnum við
Mariu þvi hún var alltaf á móti
þvi að hann kvæntist Jackie.
Henni þótti söngkonan vera
„miklu virðulegri".
Samkvæmt upplýsingum frá
vinum Mariu fékk hún alvar-
legt taugaáf all þegar Onassis dó
árið 1975 og gerði tilraun til
þess að fremja sjálfsmorð.
Þegar starfsfólk Scala-
óperunnar í Milanó frétti um
lát þessarar miklu söngkonu
brast það í grát. Einn af for-
ráðamönnum óperuhússins
sagði að dauði hennar væri
mikili skaði og hann teldi
Mariu Callas tvímælalaust einn
af mestu söngvurum heims.
Maria Callas átt’i alla ævi að
stríða við of mikla likamsþyngd
og kunnugir telja að það hafi
e.t.v. átt sinn þátt í hjarta-
áfallinu sem leiddi hana til
dauða.
Scalaóperan varð nokkrum
sinnum að neita henni um hlut-
verk vegna „líkamlegs ástands"
hennar.
Árið 1954 byrjaði Mana fyrst
fyrir alvöru að reyna að megra
sig og tókst að létta sig um
þrjátíu kg á stuttum tima. Þar
með varð hún ein af fegurstu
konum heims að áliti aðdáenda
hennar.
Maria Callas átti aðdáendur
víða um heim og hún hafði
sungið á öllum frægustu
óperuhúsum veraldarinnar.
Móðir hennar, sem búsett er i
Aþenu, 75 ára gömul,
grét þegar hún heyrði um lát
dóttur sinnar. Sagði hún að
María hefði alltaf verið sér góð
dóttir og hefði hún sent sér
fjárhæð að upphæðl50£ (um 66
þúsund isl. kr.) mánaðarlega.
Fyrrverandi eiginmaður
Maríu, Gian Meneghini, sem nú
er orðinn áttatfu og tveggja ára
gamall, erorðinn mjöglasburða.
Var i fyrstu talið að andláts-
fregnin myndi riða honum að
fullu.
Samúðarkveðjur hafa borizt
víðs vegar að f íbúð Mariu
Calias sem er við Aveneu
Georges Mandel í París.
-Þýtt A.Bj.
Aristoteles Onassis og
María Callas voru óað-
skiljanleg á sjötta ára-
tugnum þar til hann yf-
irgaf hana og kvæntist
Jackie forsetaekkju
Kennedy.
Prinsessan velur
sér barnföstru
Anna Bretaprinsessa á von á
fyrsta barni sínu í nóvember.
Hún hefur verið að svipast um
eftir barnfóstru og nú hefur
hún ráðið hana. Það er engin
önnur en hennar eigin gamla
barnfóstra, Mabel Anderson.
Fröken Anderson, sem er
fimmtíu og eins árs gömul,
réðist fyrst til brezku konungs-
fjölskyldunnar fyrir tuttugu og
átta árum þegar Elisabet
drottning átti von á fyrsta barni
sínu, Charles.
Fröken Anderson, sem kon-
ungsfjölskyldan kallar að jafn-
aði Mabel, er dáð af öllum úr
fjölskyldunni. Hún litur enn
eftir yngsta bróður önnu prins-
essu, Edward, þegar hann er
heima i skólafríum.
Mabel Anderson er dóttir
lögreglumanns og fædd og upp-
alin í Skotlandi. Hún hugsaði
um öll börn Elisabetar drottn-
ingar en segir að Anna hafi
alltaf verið eftirlætið sitt.
Anna hefur oft komið I heim-
sókn til Mabel á undanförnum
árum og þegið bolla af tei hjá
henni. Þær hugsa sér báðar gott
til glóðarinnar þegar Mabel
Mabei Anderson er þarna með
skjólstæðing sinn, Charles
Bretaprins, árið 1950.
flytur sem barnfóstra til önnu.
Gert er ráð fyrir að barnið
fæðist milli 10. og 14. nóvem-
ber. Anna á fjögurra ára brúð-
kaupsafmæli 14. nóvember og
sama dag verður Charles bróðir
hennar tuttugu og níu ára gam-
all.
- Þýtt A.Bj.
BUCHTAL
keramik flísar.
„ÚTI & INNI“
Á GÓLF 0G VEGGI.
Komið og skoðið
eitt mesto flísoúrval
landsins.
JL-húsið
Byggingavörukjördeild
Sími 10600.
MOTOROLA
Allernalorar í bila og hála, 6/12/24/J2
volla.
Plalínulausar Iransislorkveikjur i flesla
bila.
HAUKUR & ÓLAFUR HF. Arinúla :!2. Simi .17700.
Getum nú boðið upp á
meira úrval af rokoko-
stólum en nokkru
sinni fyrr. Góðir
greiðsluskllmálar —
sendum um allt land.
Síminn er 16541.
Páskakertin eftirsóttu
Fermingar-, skírnar-, brúðar-, afmælis-
veizlukerti. 47 cm há. Tekið á móll pöntu
um í sima 16106 milii kl. 12 og 14 flesta dag
Geymið auglýsinguna.
R0K0K0STÓLAR
margar gerðir
Framleiðum
nýhúsgögn,
klæðum gömul
Áklæði
ímiklu úrvali.
Bólstrarinn
Hverfisgötu 76.
Simi 15102.
Rafgeymamir
fási hjá okkur. cinnÍK/kcniiskt hrcinsað
rafKcvmavatn til áf> llinuar á rafj*t*yma.
Smyrillhf.
Armúla 7. simi 84450.