Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 28.09.1977, Qupperneq 15

Dagblaðið - 28.09.1977, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977. V 15 OKTETT — Dúmbósextettinn skipa reyndar átta manns svo að réttara væri að kalla hann Dúmböoktett. Hér er hópurinn saman kominn með framhlið plötuumslagsins sem er unnið af Pétri Halldórssyni lista- manni. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson. Dansleikjahald Dúmbósext- ettsins hefst um helgina —nýja platan kemur íbúðir ínæstu viku Hljómplata Dúmbósextetts- ins og Steina er væntanleg á markaðinn í næstu viku. Dans- leikjahald hljómsveitarinnar til að fylgja plötunni eftir hefst þó nokkru fyrr eða nú á föstu- daginn. Þá leikur hópurinn i heimabæ sfnum, Akranesi, á dansleik sem Iþróttabandalag Akraness stendur fyrir. Þaðan liggur leið sextettsins til Stykkishólms en á sunnu- daginn verður haldinn annar dansleikur á Akranesi. Sitt Irtið af hvurju Hljómsveitin Santana hélt hljómleika fyrr í mánuðinum í Mílanó á Italfu. Óhætt er að segja að viðtökurnar hafi vart getað verið óblfðari. Ahorfend- ur grýttu hljómsveitina til að mótmæla aðgangseyrinum sem var of hár að þeirra dómi. Nokkrar bensínsprengjur flugu upp á sviðið og sumir köstuðu járnbútum svo að hljómsveitin hraktist f burtu. öll hljóðfæri hljómsveitarinn- ar voru eyðilögð. Santana er ekki eina hljóm- sveitin sem hefur fengið óblfðar viðtökur að undan- förnu. Er enska ræflarokk- hljómsveitin Stranglers lék á dansstað á Skáni um daginn mættu einir þrjú hundruð svo- kallaðir raggarar á staðinn og réðust á hljómsveitarmeðlim- ina. Þeir voru barðir sundur og saman og hljóðfærin lögð f rúst. Að sögn sænskra blaða voru þau um 8.5 milljón króna virði. Stranglers flúðu að sjálf- sögðu land eftir aðrar eins móttökur. Margir höfðu hugsað sér gott til glóðarinnar að hlusta á hljómsveitina sem talin er í fremstu röð meðal ræflarokks- eða nýbylgju- hljómsveita. Ný hljómplata með David Bowie er væntanleg á markað- inn í Englandi þann 7. október næstkomandi. Platan mun tera nafnið Heroes. Hún er sú fyrsta sem Bowie sendir frá sér síðan Low kom út. Helgina á eftir verður Dúmbó- sextett á ferðinni í Reykjavík, nánar tiltekið í veitingahúsinu Sigtúni þar sem haldnir verða þrir dansleikir. Um þriðju helgina verður síðan leikið i Festi i Grindavík á föstudegi og á Hvoli á laugardegi. Að sögn Jóns Hildiberg, sem sér um ferðalag Dúmbósext- etts og Steina, er þeim mögu- leika haldið opnum að bæta við ferð norður f land ef hljóm- sveitin fær góðar viðtökur sunnanlands. Áður hefur verið sagt nokkuð frá efni Dúmbóplöt- unnar f Dagblaðinu. Hljóm- sveitin starfaði aðallega á ár- unum 1964-68 og eru lög plöt- unnar frá þeim tfma — með íslenzkum textum að sjálf- sögðu. Dúmbómenn gerðu ávallt sérstaka Iukku I Glaum- bæ heitnum og er mynd af þvf húsi á framhlið umslags plöt- unnar f heiðursskyni við þann ágæta veitingastað. Einnig er minnzt á Glaumbæ f textum tveggja laga. Meðal hljóðfæraleikara sem koma fram á Heroes með David Bowie eru Brian Eno og Robert Fripp. Hreinn ágóði sfðasta árs af fyrirtækjum ABBA- samsteypunnar reyndist vera 47 milljónir sænskra króna eða rétt rúmir tveir milljarðar ís- lenzkra. ABBA þarf að greiða 80% af tekjum sínum í skatta en nú er framkvæmdastjóri samsteypunnar, Stikkan Anderson, að vinna að því að fá þá lækkaða niður f 30%. Það telur hann mögulegt á þeirri forsendu að ABBA sé menn- ing. Sem dæmi um 30% skatt- lagða listamenn má nefna Lizu Minelli, Sammy Davis jr., Vfktor Borge og fleiri. Jimmy McCuilough gftar- leikari hefur yfirgefið hljóm- sveitina Wings eftir að hafa leikið með henni siðastliðin fjögur ár. Hann er þó ekki atvinnulaus þessa dagana því að hann gekk nær samstundis f hljómsveitina Small Faces. í samtölum við brezka blaðið Melody Maker báru þeir Jimmy og Paul McCartney hvor öðrum vel söguna og kváðust hafa lært mikið af samstarfinu. Hins vegar var kominn upp ágreiningur milli Jimmys og hinna svo að hann ákvað að breyta til. Jimmy McCullough varð fyrst frægur er hann starfaði með hljómsveitinni Thunder- clap Newman og lék lagið Something In The Air. Hann taldi það góða breytingu að vera nú kominn í Small Faces. „Ég og strákarnir f Small Faces erum gamlir kunn- ingjar," segir Jimmy, „auk þess hef ég alltaf haft mjög gaman af tónlist þessarar hljómsveitar.“ Krossinn hefur unnið sér óafmáanlegt nafn f tóniistarsögu landsins. Þar kom hljómsveitin Hljómar fram i fyrsta skipti — 5. október árið 1963. Þungum krossi létt af táningunum íKeflavík og Njarövíkum: Krossinn opnaráný Samkomuhúsið Krossinn f Njarðvíkum hefur nú verið opnað á ný eftir að hafa verið lokað um nokkurt skeið. Diskó- tek er nú starfrækt i húsinu. Krossinn kom mikið við sögu í skemmtanalífi á Suðurnesjum fyrr á árum. Þar kom hljómsveitin Hljómar fram f fyrsta skipti og áður en Stapinn og Festi I Grindavík voru byggð voru fjörugustu böllin haldin þar. Húsið var kannski ekki alltaf f sem beztu ásigkomulagi — alla vega eiga Hljómar blautar minningar um þak hússins yfir sviðinu. 1 bókinni um sögu Hljóma er fyrsta dansleiks hljómsveitar- innar í Krossinum minnzt þannig að álitamál hefði verið hvort meðlimirnir væru blaut- ari af svita eða regni sem vætl- aði niður úr rjáfrinu — en það er nú önnur saga. Krossinum var lokað á síðnum tíma að kröfu lögregl- unnar. Talið var að salernisað- staða væri ekki nógu góð, sömuleiðis mun áfengisvanda- mál hafa komið þar við sögu, sem var „harðlega mótmælt af hálfu Krossins“, eins og komizt er að orði í frétt um opnunina f Suðurnesjatíðindum. Táningar í Keflavik og Njarðvfkum hafa átt í fá hús að venda að undanförnu til að skemmta sér. Það má þvf segja að þungum krossi sé af þeim létt með opnun Krossins.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.