Dagblaðið - 25.10.1977, Page 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÖBER 1977.
Erlendar
fréttir
SUÐUR AFRIKA:
Kruger með krufnings
skýrslu Steve Bikos
James Kruger dómsmálaráðherra Suður Afríku þykir einn harðasti
forsvarsmaður kynþáttaaðskilnaðarstefnu stjórnvalda þar. Hann
hefur verið ásakaður um að bera ábyrgð á dauða Steve Bikos,
þrítugs svarts andófsmanns.
Miklar varnir við
jarðarför Schleyers
Miklar varúðarráðstafanir
hafa verið gerðar vegna útfarar
Hans Martins Schleyers, vestur
þýzka iðjuhöldsins sem myrtur
var af mannræningjum, en hún
fer fram í dag.
Óttazt er að borgarskæru-
liðar muni láta til sín taka við
athöfnina i hefndarskyni vegna
dauða þriggja félaga sinna,
þegar þeir voru yfirbugaðir um
borð í farþegaflugvélinni á
Mogadishuflugvelli í Sómalíu.
Helmut Schmidt kanslari
verður viðstaddur jarðarför
Schleyers en hann hefur ein-
mitt varað landsmenn sína við
að vera viðbúnir óvæntum að-
gerðum borgarskæruliða.
Forseti Vestur-Þýzkalands,
Walter Scheel, mun einnig
verða viðstaddur athöfnina.
Hans Martin Schleyer verður
jarðsettur í Stuttgart en þar er
fangelsið sem þrír félagarnir í
Baader Meinhof hópnum voru i
haldi og frömdu að sögn yfir-
valda í Vestur-Þýzkalandi
sjálfsmorð nokkrum klukku-
stundum eftir að þýzkir her-
menn náðu flugvélinni í Sóma-
líu á sitt vald.
Mafíulög-
fræðingur
myrtur
Italskur lögfræðingur, Giulio
Battimelli, sem þekktur er að
þvi að hafa tekið að sér mál
frægra mafíuroringja var skot-
inn til bana i Napólí í gær-
kvöldi. Tveir grímuklæddir
byssubófar voru þar að verki.
Lögfreglan telur ekki að lög-
fræðingurinn hafi verið myrtur
af pólitískum ástæðum. Hann
var á leið til bess að tala við hóp
af skjólstæðingum sínum er
hann var skotinn.
Battimelli var vþrjandi
þekkts mafíuforingja Paolino
Bontado fyrir nokkrum árum
og fékk skjólstæðing sinn
látinn lausan.
Fyrir stuttu voru nokkrir af
skjólstæðingum Battimellis,
sem allir voru þekktir m:.fiu-
menn, dæmdir fyrir fjársugun
en foringi þeirra var saklaus
fundinn.
Menn þessir höfðu í hótunum
við lögfræðinginn eftir að þeim
var stungið í svartholið
—engu svarað hvort hann var myrtur
— Ég hef fengið í hendur
krufningsskýrslu vegna dauða
hins svarta andófsmanns og
foringja Steve Biko — sagði
dómsmálaráðherra Suður-
Afríku, James Kruger, í gær-
kvöldi.
Ráðherrann sagði ekkert um
innihald skýrslunnar en Biko,
sem var þritugur að aldri, dó í
fangelsi í fyrra mánuði.
Samkvæmt blaðafregnum frá
Suður-Afríku voru sérfræðing-
ar sem fjölskylda Bikos kallaði
til við krufninguna en þeir
munu ekki hafa komizt-að nein-
um niðurstöðum, sem varpað
gætu skýrara Ijósi á ástæður
fyrir dauða Steve Bikos.
Dómsmálaráðherrann sagði
að krufningsskýrslan mundi nú
send til saksóknara, sem tæki
ákvörðun um hvort frekari
rannsókn yrði á dauða
svertingjaleiðtogans.
Háværar fuliyrðingar hafa
komið fram um að miklir
áverkar hafi verið á líkama
hans og hann hafi ekki dáið
eðlilegum dauðdaga.
REUTER
i
iv
Vetrarþjánusta
CHEVROLET BUICK VAUXHALL OPEL
öíT
1. Mótorþvottur
2. Hreinsun á rafgeyma-
samböndum
3. Mæling á rafgeymi
og hleöslu
4. Viftureim athuguð
5. Skipt um platínur
6. Skipt um kerti
7. Loftsía athuguð
8. Skipt um bensínsíu
í blöndungi
9. Mótorstilling
10. Kælikerfi þrýstiprófað
11. Mælt frostþol - °C
12. Stillt kúpling
.13. Yfirfarin öll Ijós
14. Aðalljós stillt
15Í Hemlar reyndir
16. Stýrisbúnaður skoðaður
17. Rúðuþurrkur athugaðar
18. Rúðusprautur athugaðar
og settur á frostvari
Efni, sem innifalið er í verði:
Kerti, platínur, frostvari og bensinsía.
Verð: 4 strokka vél kr. 10.932.-
6 strokka vél kr. 12.802.-
8 strokka vél kr. 14.673.-
Gildir 1/10 - 1/12
GM
SAMBANDIÐ VÉLADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
HÖFÐABAKKA 9. Simar: Verkst.: 85539 Verzh 84245-84710
ljós á perunni ?
Ef ekki, þá höfum viö efnis til raflagna, einnig
mikiö úrval af Ijósaperum dyrabjöllur og raftæki.
í flestum stærðum og
styrkleika.
"Rafvörur” hefur úrval
Rafvirkjar á staönum.
PAI^VÖPUP_______________
La'ugamesvegur^2 s''se' 'l